Alþýðublaðið - 20.08.1988, Side 14
14
Laugardagur 20. ágúst 1988
Á SVIÐI OG
UTAN
Eyvindur Erlendsson
skrifar
..VOÐINN MIKLr OG PINTER
„Heyrt hefur maöur hans
getiö,“ sagði þunglyndi maó-
urinn þegar sálfræöingurinn
spuröi hvort hann kannaðist
viö einmanaleikann. Meira
fékkst ekki uppúr honum um
það málefni.
Sú kenning er raunar enn
uppi í veröldinni, sem frans-
menn fundu upp fyrr á öld-
inni og nefndu existensíal-
isma, aö maðurinn sé alltaf
einn, — einnig í erlinum
miöjum, þar sem þúsundir
troðast um. Þessu var þó
undireins svaraö m.a. í fræg-
um línum sem hefjast á orð-
unum: „Enginn er eyland,
einhlítur sjálfum sér...“ vegna
þess aö hver eyja hefur fjölda
augljósra og dulinna tengsla
viö meginlandiö og hver
maður, hversu einn sem hann
fer, er alháóur öðrum mönn-
um. Jafnvel sá sem gerist
einsetumaður í helli, — hug-
ur hans er fullur af öörum
mönnum og athafnir hans
stjórnast af þeim hugsunum.
Jafnvel er hugsanlegt aö sjálf
útlegðin sé af honum ætluð
sem svar við einhverju því
áreiti sem hann hefur oröiö
fyrir af öörum mönnum, —
hans afneitun á þátttöku i
stimpingum heimsins sé ein--
mitt hans þátttaka í þeim
sömu stimpingum. Og
stundum hreint ekki svo
áhrifalítil.
Viö þekkjum dæmin.
Hvaö sem því líður, þá er
það eitt víst í vorum nútíma
aö maðurinn gerir ekki neitt
einn. Ekki aó gagni. Allra síst
i leikhúsi. Kannski: „Þvi
miöur.“
Leikhús nútímans er þung
vél og lætur illa að stjórn.
Hver maður þar er svo háöur
heildinni aö hann fær sig
harla lítiö hreyft að eigin vilja
en veröur aö fylgja meö í
þeim sígandi straumi sem
vaninn, verkþörfin og tíska
tímans orsaka. Þaö eina sem
hann getur gert upp á eigin
spýtur er aö drepast eöa
koma sér burt. Veit þó hver
sá er reynt hefur að hvort-
tveggja er einnig harla þungt
í framkvæmd.
„Leikarinn er véfrétt og
leikhúsiö musteri" kann að
vera rétt, en þó og því aðeins
að hvorugt hugsi sér sig
þannig.
Þetta kann aö viröast fjar-
stæöa eöa þversögn. Samt er
þaö satt og væri hægt að
sanna en hér verður þó látið
nægja aö fullyrða; það er
annað á dagskrá. Látum
nægja eitt dæmi. Á sínum
tfma var tilkynnt fjálglega:
„Þjóöleikhúsiö er musteri ís-
lenskrar tungu.“ Þessi trú
grot um sig meöal leikaranna
og varó þeirra stolt. Afleió-
ingin var sú að í hverri sýn-
ingu var lögö áhersla á aö
tala íslensku „eins og hún
verður fegurst töluö“. Þá var
gjarnan vitnaö til enskra leik-
ara jafnframt en á þeim tíma
var þar í landi tíska aö tala
flott. Þetta varö til þess aó
leikarar, sem eru kannski
ekki endilega fullkomnir í
málsmekk, fóru aö leiðrétta
texta hinna frægustu höf-
unda, strax a tyrsta samlestri
og áöur en þeir voru búnir aö
átta sig á persónum leiksins,
— uns ræóa hvers og eins
var orðið staðlaö, rökrétt, fag-
urt og vióurkennt íslenskt
mál.
Þetta og einmitt þetta átti
til aö drepa líf ræöunnar og
þar með leiksins. Sérstaklega
gat þetta oröið bagalegt
þegar fariö var aö fást viö
höfunda á borö viö Rússana
Gorky og Tsékov, menn sem
höföu afar næmt auga fyrir
málfari allrar alþýöu manna
og skildu manna best að
fjöldi fólks talar alls ekki rök-
rétt eða fagurlega en í sund-
urslitnum hugsunum og
margvíslegum kringilyröum,
enda þótt mál þess verði
kannski fegurst og rökréttast
alls máls þegar allt er komiö
saman í munni góös leikara.
Gleggstu dæmin eru hinar
ýmsu gömlu fóstrur, sem
koma fyrir hjá báöum, sítaut-
andi, hrærandi saman þrem
til fjórum áhyggjuefnum í
einu og engin setning nema
hálfsögö með hverskyns inn-
skotum og ringjum á milli.
Afleiðingin veröur einföld:
Rétt mál, fagurt og skiljan-
legt — röng persóna, skrum-
skæld og óskiljanleg =
óskiljanlegt leikrit, þrátt fyrir
skiljanlegt orðafar og jafnvel
leik = allt hið ágæta mál
talað fyrir daufum eyrum.
Þess vegna varö Þjóðleik-
húsiö aldrei neitt musteri og
orð þess sem hljómanda
málmur og hvellanda bjalla,
oft og einatt.
Þaö skorti meininguna —
erindiö viö söfnuðinn.
Hinn upphaflegi leikari
meöal mannanna; spásagnar-
maöurinn sjamaninn og síðar
fífliö, átti öruggt erindi. Hann
var nefninlega sá friöhelgi
sem í skjóli geðtruflana,
furðulegheita og skrípaláta
gat sagt kónginum og hverj-
um sem var það sem öörum
var ekki leyfilegt að hugsa
.einu sinni hvaö þá segja og
gat allt eins innihaldið guö-
legan bodskap, hversu mikiö
rugl sem þaö virtist. Þess-
vegna uröu þeir einskonar vé-
frétt, — enn meir eftir aö
skáld tóku aö móta ruglið í
form hrynjandi skáldskapar
— og seiðpallur þeirra, eöa
leikpallur, varð aö musteri
hinnareinu sönnu tungu,
hvert svo sem þeir töluöu
tungumálið.
Leikhús er ekki spaugstofa
og ekki heldur friðhelg kirkja,
eins og viö þekkjum slíkar,
— þaö er ekki heldur háskóli
vitsmunanna eins og viö
þekkjum slíka; þaö er brenni-
punktur hinna margvíslegu
andlegu Ijósa sem að því ber-
ast — ef vel er.
Hin grónu, starfandi leik-
hús nútímans þurfa hins-
vegar ekki aö vera þaö. Á
þeim hvíla svo margar aörar
kröfur. T.d. aö vera fínn sam-
komustaður þar sem er sómi
að láta sjá sig, aö skemmta,
aö vera forsetanum (eöa
kónginum) samboöin, aö
skaffa starfsfólki sínu verk-
efni, að standa skil á kaupi,
aö uppfylla kröfur ríkisendur-
skoóunarinnar og, í sam-
keppnisþjóðfélagi, aö þenjast
sífellt út, vera alltaf öllu
bólgnari aö fyrirferö þetta
áriö en það næsta á undan.
Því enginn er eyland og
enda þótt maður sjái oft og
einatt leikhúsið sem eyju,
friöaðan griðastað skáld-
skaparins, þá er sú eyja al-
háö ófriði meginlandsins.
Vandinn er aö bregðast við,
án þess aö eiga algera innrás
og eyðingu, af völdum hins
blinda kapps, yfir höfði sér.
Ekki vantar aö liösmenn
leikhúsa séu sér meðvitaðir
um þetta og hvarvetna í
heiminum eru þeir leitandi að
röddum tímans og þessu
nauösynlega en háskalega
sambandi eyjarinnar viö meg-
inlandiö, leikhússins viö
mannfélagiö umhverfis. Gall-
inn er sá að leitin verður æva
yfirborðsleg og foröast
fundinn. Menn gríþa til yfir-
boröslegra ályktana eins og
þeirra aö á kvenréttindatím-
um sýnir maður kvenréttinda-
stykki eöa fatlaöraoglamaðra-
stykki ef þau málefni eru I
umræóunni. Oftast fer svo að
slíkar lausnir eru samþykktar
og meðteknar af öllum þeim
nefndum sem um málið fjalla
og hinu óræöa almennings-
áliti sem allir veróa aö óttast
og reyna aö hlýöa.
En galdur verður enginn af
því. Engin spásögn. Enginn
leikur aö háskanum. Hvergi
komið nærri hinum guðlega
eldi.
Og jafnvel þótt af og til
uppvekist upptendraöir eld-
hugar lostnir guðlegum hug-
myndum og jafnvel þótt allt
liöiö sé ákveðið í aö veðja á
þá menn og þær hugmyndir
þá er hinn marghjólaði vagn
leikhússins of þungur f
drætti, leðja vegarins of seig,
til þess aö skrið ækisins geti
nokkru breytt um hraöa eöa
stefnu.
Ketill Bang Hansen, fyrrum
leikhússtjóri norska þjóöleik-
hússins, kvað rækilega uppúr
meö þennan vanda nú í
sumar. Hætt er þó við aö þaö
upphlaup fái heldur ekki
miklu breytt.
Harold Pinter leyfir sér
hlutskipti einsemdarinnar,
tekur á sig kross utanveltu-
mannsins og situr við yrking-
ar um þau efni sem enginn
hefur tilkynnt aö brenni á
samtíma hans en ratar þó, af
sínu innsæi og — ef til vill
— glöggri dómgreind einnig,
á þær véfréttir um hæpna
vígstööu Mannsins, þess
sem alltaf fereinn þrátt fyrir
manngrúa nútimans, þrátt
fyrir aö hann hefur gert
óaflátanlega iðkun „sam-
bands“ við aðra menn aö
sínu aóalstarfi, ástina og
kynlífið ekki síst.
Og at og til verður einhver
þess umkominn, — eöa
hrekst til þess, — aö taka
þessa sjónleiki hans upp og
setja þá á sviö, hreina eins
og þeir voru hugsaðir af
höfundinum, án þess að laga
á þeim máliö, án þess að
fegra eða lýta persónurnar,
án þess aö aðlaga neitt
„kröfum tímans", án þess aö
ætla sér neitt annað en þaö
sem ég leyfi mér aö kalla
„hrelling spásagnarmanns-
ins, miöilsins og skelmishátt
fíflsins" — aö gefa sig galdr-
inum á vald.
Þetta er þaö sem gerist í
sýningu Alþýðuleikhússins
undir leikstjórn Ingunnar
Ásdísardóttur og meö fim-
legum leik þeirra Viöars Egg-
ertssonar og Erlu B. Skúla-
dóttur.
Meö þessu breytist hinn
fátæklegi Ásmundarsalur I
musteri hinnareinu sönnu
lifandi tungu og hiö mikla
samband sem menn löngum
þrá, viö guðdóminn hinn
skelfilega og aðra menn,
myndast.
Og um stund er maður
ekki lengur einn!
Með þessu
breytist hinn
fátœkiegi Ás-
mundarsalur í
musteri hinnar
einu sönnu lif-
andi tungu og
hið mikla sam-
band sem menn
löngum þrá,
við guðdóminn
hinn skelfilega
og aðra menn,
myndast. Og
um stund er
maður ekki
lengur einn.