Alþýðublaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 15
Laugardagur 20, ágúst 1988
15
Maxi Priest
til ísiands
Einn vinsælasti dans-
reggae-söngvari Evrópu, Maxi
Priest, er væntanlegur til ís-
lands helgina 26. og 27.
ágúst og mun syngja fyrir
gesti Broadway.
Maxi Priest hefur sent frá
sér fjórar LP-plötur og sú síð-
asta, Maxi, inniheldur þrjú af
topp tiu í Bretlandi um þess-
ar mundir. Þaö eru lögin How
can we ease the pain, some
guys have all the luck og Cat
Stevens-lagið Wild world,
sem vermt hefur fyrsta sæti
allra íslensku listanna í sex
vikur.
Opið hús
á Hvanneyri
I tilefni af Norrænu tækni-
ári 1988 verða Bændaskólinn
á Hvanneyri og Bútæknideild
Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins með opið hús á
Hvanneyri sunnudaginn 21.
ágúst klukkan 13—17.
Þarna verður kynntur bæði
gamli og nýi tíminn i land-
búnaði, dýrasýning verður
fyrir börnin og léttar veitingar
á boðstólum. Þetta er tilval-
inn sunnudagsbíltúr fyrir fjöJ-
skylduna og allir eru hjartan-
lega velkomnir.
Opið hús á næstunni:
Sunnudaginn 4. sept.:
Rannsóknastofnun landbún-
aðarins.
Sunnudaginn 11. sept.: ís-
lenska járnblendifélagið.
Sunnudaginn 18. sept.: Mjólk-
urstöðvar víða um land.
REYKJMIÍKURBORG
Actutovi Stidtvi
Þjónustuíbúðir aldraðra
Dalbraut 27
Starfsfólk vantar í eftirtalin störf:
Vakt — hlutastarf, aöstoð við íbúa.
Eldhús 75% starf — vinnutími 8—14, unnið aðra
hvora helgi.
Heimilishjálp: 100% starf, hlutastarf kemur til
greina.
Dagdeild: Hlutastarf — aðstoð við vistmenn.
„Hljóðleiðsla"
Fyrirtækið Námsljós hefur
nýlega hafið kynningu og
sölu á bandarískum kassett-
um með undirvitundarboð-
um (Subliminal Messages)
sem hefur verið gefið nafnið
„hljóðleiðslá'.
Þessi tækni, sem hefur
mikið verið notuð í Bandaríkj-
unum sl. ár og býðst nú hér á
landi, notar dulda hæfileika
og undirvitund notandans til
að skerpa viljastyrk og ein-
beitni. Hljóðleiöslu er beint
að undirvitundinni með
jákvæðum skilaboðum sem
skipta þúsundum á hverri
kassettu. Boðin eru með svo
lága tíðni að aðeins undirvit-
undin greinir þau, en á með-
an heyrir notandinn aðeins
sjávarnið eða Ijúfa tónlist.
Vegna þess aö dagvitundin
heyrirekki hljóðleiðsluboðin
getur notandinn gert allt
mögulegt annað um leið og
hljóðleiðslukassetta er spil-
uð, s.s. lesið, sofið, unnið,
keyrt bíl og horft á sjónvarp.
Boðin eru á einfaldri og
skýrri ensku og höfða til
lausnar á margvíslegum verk-
efnum. Á hverri kassett.u er
tekist á við ákveðið mál
(stundum nokkrar saman í
pakka) s.s. að hjálpa fólki til
þess að grennast, hætta að
reykja, njóta betur kynlífs,
sofa betur, auka sjálfstraust
o.fl. o.fl. Ef fólk óskar eftir
nánari upplýsingum má
panta ókeypis kynningu meö
því að skrifa til Námsljóss,
Pósthólf 183, 212 Garðabæ
eða hringja i sima 91-652344
og 91-21170.
Upplýsingar gefur forstööumaöur í stma 685377 frá
kl. 10—14 daglega.
maJi
skiptir
að vera vakandi
mÉUMFERÐAR við stjýrið.
Wráð
Vor og sumarliWr
komnir
ssmetíc soyrtivömr í' hæsta
worattu fra hinu þekMa ty
^Orionl Rnníandi
LUMENE
ALÞÝÐUFLOKKSFERÐ TIL SPÁNAR
SKRIFSTOFU ALÞÝÐUFLOKKSINS hefur tekist að útvega góð kjör á ferð til Spánar. BOÐIÐ ER uppá
tveggja vikna ferð. EF ÞATTTAKA verður næg förum við til Madrid og heimsækjum spænska bræðraflokkinn og
skoðum höfuóborgina. FARIÐ VERÐUR 20. september og gist í góðum íbúðum á Benidorm. VERÐ frá
kr. 32.900.- tvær vikur. NÁNÁRI UPPLÝSINGAR hjá fararstjóra Guðlaugi Tryggva s: 681866 e.h. og hjá
Ferðamiðstöðinni s: 28133, Fanney.FJÖLMENNUM til landsins þar sem jafnaðarmenn hafa skapað
efnahagsundur. Ath. 3 vikur frá kr. 40.700.-
VIVA ESPANA ALÞÝDUFLOKKURINN .
Guðlaugur Tryggvi
Karlsson, fararstjóri.