Alþýðublaðið - 20.08.1988, Qupperneq 16
16
Ferðamenn leggja allan heiminn
að velli. Krafan er lúxushótel að
han darískri fyrirmyn c/, en afleið-
ingarnar eru niðurbrotin menning
og atvinnuhœttir:
Þorlákur
Helgason
skrifar
Feröamenn eru á góöri leiö
meö aö útrýma öllu því sem
telst þjóölegt — siðum, venj-
um og atvinnuháttum, um all-
an heim. Hótelin rísa innst í
eyöimörkum og út viö strend-
ur jafnt í Asíu sem Afríku,
Evrópu og Suður-Ameríku.
Allt er miöaö viö feröamann-
inn. Afgamall söngleikur á
Sómalíu, sem tekur 11
klukkustundir í flutningi, er
styttur niður í 90 minútur til
aö þóknast vesturheimskum
feröamanninum. í karabíska
hafinu eru það bandariskir
túrhestar sem í mörgum til-
vikum ákveöa hvenær há-
punktur karnevals eyja-
skeggja er. Feröamanna-
postular afsaka sig með þvi
aö nauðsynlegt sé „aö koma
til móts viö“ hópferöirnar.
Öllu er umbylt. Betlarinn
þénar meir en faglæröur
iönaöarmaöurinn í vanþróaðri
ferðamannaparadísinni, svo
aö sá siðarnefndi sér engan
tilgang i þvi að afla sér
menntunar. Víöa takmarkast
störfin sem innfæddir öölast
í ferðamennskunni við tösku-
burö. Hagnaöur af ferðaiöj-
unni er allur hjá feröaskrif-
stofunni i allt öðru útlandinu.
„Viö eigum enga undan-
komuleið," segir útvarpsstjóri
„Radio Antilles" um feröa-
mannastrauminn til
karabísku eyjanna. „Indíán-
arnir hafa ekki heldur getaö
staöiö gegn innrás hvíta
mannsins." Afleiðingarnar
eru augljósar. Byggingarreit-
urinn hefur nífaldast á síö-
ustu 5 árum á eyjunum.
Hótelin rísa alls staðar samt.
I fyrra voru 364 milljónir á
faraldsfæti um víða veröld.
Þaö eru helmingi fleiri en
1972 — og 14 sinnum fleiri
en um miöja öldina. Saman-
lagt eyða feröamenn um 150
milljöröum dala á fjarlægum
slóöum.
Áfangastaöirnir hafa fjar-
lægst. A þessu ári er t.d. bú-
ist viö að um 1 milljón Þjóö-
verja leggi undir sig lönd
þriöja heimsins á heims-
hornaflakkinu. Alls staöar
hitta þeir fyrir landa. Feröa-
mennirnir eru i bunkum. Þú
hittir landa þína jafnt í
Honduras sem Himalaja,
Kamerún sem Kanada.
Hvergi fær landsþilda að vera
í friói. Ævintýraferöir heyra
sögunni til. Klæóskerasaum-
aöar pakkaferöir hafa tekiö
viö. Ferðamaðurinn veróur aö
geta látið sér „líöa vel“ innan
um allan þennan framand-
leika. Ráðgjafarstofurnar á
vesturlöndum gefa allar
sömu fyrirmælin: Hótelin
veröa að vera I bandariskum
lúxusgæðaflokki. Og van-
þróuðu ríkin fylgja forskrift-
inni. Fólk framfleytir sér illa á
frumstæðum landbúnaöi, en
skrefið úr landbúnaði I tösku-
burö verður oft ekki annaö en
úr eymd í volæöi. í örvænt-
ingu mæna þau á hinn und-
ursamlega velferðargemsa,
sem kominn er úr vestur-
löndum hámenningarinnar.
Smáríki og lönd á borð við
Burma og Madagaskar bíöa i
eftirvæntingu eftir að berja
augum velmegunina í kjölfar
eftirtekjunnar af erlendum
feröamönnum. Hver ný staöa
í hótelþjónustu kostar um 65
þúsund mörk. Þaö samsvarar
Eru sannkallaöar
ævintýraferöir aö
veröa undir í hóp
feröamenning-
unni?
Pakkaferöir um öll
heimsins höf.
Meðal annars er
boöiö upp á
sleðaferöir á
Grænlandsis.
Ferðamannaparadis í
Karabiska hafinu: Heima-
fólk verður töskuberar.
SSfif Isups 0S lupsbrepusJ
Laugardagur 20. ágúst 1988
kostnaði viö aö koma 50
manns aö í vinnu á lands-
byggðinni. Fjárfestingarfyrir-
tækin eru hins vegar ekki
sþennt fyrir því að fjárfesta
þar, vegna þess aö vextir fjár-
magnsins skila sér ekki eins
vel og í feróabransanum. Af-
leiöingarnar verða oft á tíö-
um vítahringur. Fólk leitar af
landsbyggö í ferðaþjónustu.
Ræktanleg svæöi eru lögö í
órækt og innflutningur mat-
væla eykst. Framfærslu-
kostnaóur eykst umfram
launahækkun.
Feröamenn I leit aö ævin-
týrum veróa að láta undan.
Fátt vekur lengur furöu. í
september nk. efnir ferða-
skrifstofa ( Þýskalandi til
„frumstæðrar" feróar fyrir
250 þúsund krónur á ókunnar
slóðir Pólinesíu — ekki til
þess að liggja á ströndinni i
Ijúfri sólinni, heldur til þess
aö „umgangast hina vingjarn-
legu íbúa“. Ferðir sem tók ár
að undirbúa og aóeins þókn-
aöist fáum útvöldum aö njóta
finnur hver sem er í ferða-
bæklingum ferðaskrifstof-
anna: 25 daga ferö til Kína, á
hundasleöa til Grænlands
eöa mánaöartúr í svefnvagni
um undur Eldlands. í janúar
efndi kanadísk feröaskrif-
stofa til hóþferðar á Suöur-
pólinn. 35 manns greiddu yfir
eina og hálfa milljón hver fyr-
ir ferðina, sem var lítið annað
en staðfesting á því aö viö-
komandi hefói komiö á slóóir
Amundsens.
Hverjir græöa svo á öllu
saman? í fæsturri tilvikum
njóta heimamenn annars en
ávöxtunar af töskuburöi. Spá-
kaupmenn á vesturlöndum
hafa drjúgt upp úr krafsinu er
þeir kaupa land undir hótel
fyrir smánarverö af landsbú-
um, byggingarfyrirtæki á
heimaslóð hafa í fæstum til-
vikum burði til að takast á
við miklar framkvæmdir og
því eru verktakar og efni frá
móðurstöðvum. Til þess aö
lokka alþjóölega fjárfesting-
arjöfra á staðinn veröa sveit-
arstjórnirnar oft aö standa
fyrir nokkurri uppbyggingu,
leggja vegi og vatnslagnir t.d.
Talið er aö um 30% útgjalda I
Kenýju sitji eftir. Afgangurinn
fer aö mestu í vasa hóteleig-
enda sem í flestum tilvikum
eru fjölþjóöafyrirtæki.
„Feröamennskan er þróunar-
löndunum byrði,“ segir Karl
Wolfgang Menck við hag-
fræðirannsóknarstofnun
Hamborgar. Og því fátækara
sem landið er fyrir, þeim mun
óhagstæðari verður ferða-
mennskan því.
Ennþá erfiðari eru menn-
ingar- og sálfræðilegar afleiö-
ingar. Trúarbrögöin verða aö
afskræmi og þjóöfræöin ekki
neysluhæf ööru visi en í
gerviformi. Kynþáttafor-
dómum er vióhaldið. Hviti
maðurinn i Suður-Afríku er
miklu „vingjarnlegri" og „gáf-
aðri“ en sá svarti eru um-
mæli ferðamannanna sem
koma til Suður-Afríku, þrátt
fyrir (eða vegna þess) að
ferðamaðurinn hitti ekki þá
kúguóu. 54% feröamanna á
leið til Marokkó töldu Mar-
'okkóbúa „frumstæöa",
„ómenntaða" og „skítuga".
Aö ferö lokinni voru ennþá
fleiri eöa 65% sama sinnis.
Fyrr á árum höfðu fáir út á
þróun ferðamennskunnar að
setja. Nú er öldin önnur. í
héraöinu Goa á Indlandi mót-
mælir heimafólk. Indverska
stjórnin hyggst bæta 19 lúx-
ushótelum viö þau 4 sem eru
fyrir. Strandlengjan er undir-
lögö og fiskimenn eiga ekk-
ert griðland lengur. Carvahlo
háskólakennari leiöir vaskan
andspyrnuhóp. „Fyrrum
flakkaði sirkusfólk milli
þorpa og aparnir þeirra döns-
uöu,“ segir Carvahlo, „núna
erum við apar ferðamann-
anna.“
(Byggt á Spiegel)