Alþýðublaðið - 28.10.1994, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 75 ÁRA
t'.PP! .. V' '
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
Byltingarnar á Alþýðub
Á 75 ára ferli hefur blaðið oftar en einu sinni valdið þáttaskilum í íslenskri blaðamennksu
Frá því að Alþýðublaðið var stofnað sem lítið og harð-
skeytt verkamannamálgagn fyrir 75 árum hefur það
gengið í gegnum mörg og ólík tímabil. Sagt hefur ver-
ið að ekkert íslenskt blað hafi sveiflast jafn mikið í leit
að einhvers konar ímynd eða forskrift sem passaði fyr-
ir tilgang þess og lífsmöguleika. A sínum glæstustu
augnablikum hefur það hitt á óskastundina og fundið
þá formúlu, sem best átti við, og þá hefur það farið
langt í að verða stærsta blað þjóðarinnar. A öðrum
stundum hefur það verið vesælt og við það að hverfa.
Tími flokksblada
Þegar Alþýðublaðið byrjaði að
koma út, 29. október 1919 voru fyrir
tvö dagblöð í landinu. Þau voru Vís-
ir, stofnaður 1910 og Morgunblaðið,
stofnað 1913. Báðunt hafði í upphafi
verið ætlað af stofnendum sínu, Ein-
ari Gunnarssyni og Vilhjálmi Fin-
sen, að vera óháð fréttablöð en áður
en mörg ár liðu voru þau engu að
síður orðin þrælflokkspólitísk. Þetta
sást fyrst glögglega árið 1916. Vísir
og Morgunblaðið börðust þá hat-
rammlega gegn sérstökum framboð-
um verkamanna
og bænda og gegn
víðtæku og af-
drifaríku háseta-
verkfalli í Reykja-
vík. Sú pólitíska
stefna sem þessi tvö höfuðblöð
Reykjavíkur tóku var innsigluð með
þvf að stjómmálamaðurinn Jakob
Möller keypti Vísi árið 1918 og sam-
tök kaupntanna í Reykjavfk keyptu
Morgunblaðið 1919. Hinn nýstofn-
aði Alþýðuflokkur taldi því brýna
nauðsyn á að koma upp dagblaði
sem túlkaði sjónarmið verkamanna
og myndaði mógvægi gegn fyrr-
nefndum blöðum. Tími flokksblað-
anna var upp runninn.
Olafur Friðriksson, einn helsti
leiðtogi jafnaðarmanna, hafði að
vfsu ritstýrt blaðinu Dagsbrún frá
1916 en það var aðeins vikublað og
gat því ekki haft jafn afgerandi áhrif
og dagblað. Öflug blöð vom þá talin
hafa úrslitaáhrif í allri stjómmálabar-
áttu. Upphaflega stóð til að blaðið
Dagsbrún yrði gefið út áfram sem
eins konar vikuútgáfa af Alþýðu-
blaðinu. Samgöngur voru með þeim
hætti þá að ekki var unnt að senda
dagblöð í sveitir og var því talið
nauðsynlegt að þjappa efni þeiira
saman í eina vikuútgáfu handa
sveitamönnum. Þess vegna var Tím-
inn, sem einkurn var ætlaður bænd-
um, aðeins vikublað. Hann varð ekki
dagblað fyrr en 1947. Fyrirætlanir
um Dagsbrún fóru hins vegar út um
Eftir
Guðjón Friðriksson
sagnfræðing
Fyrstu árin var þvf afar lítið um al-
mennt skemmtiefni sem nú þykir
nauðsynlegt í blöðum, svo sem
myndasögur, skrítlur og þess háttar
en þó vom þar framhaldssögur, svo
sem Tarzan- sögumar sem birtust í
Alþýðublaðinu frá og með árinu
1922. Ekki vom heldur myndir í
blaðinu svo að nokkm næmi og þætti
slíkt dauflegt nú til dags. Fyrsta
fréttamyndin í Alþýðublaðinu kom
22. júní 1920 eða átta mánuðum eft-
ir að blaðið byrjaði. Viðtöl vom líka
sjaldgæff^rstuárin.
Ingólfur Jóns-
son, einn stúdent-
anna sem aðstoð-
uðu Ólaf Friðriks-
son við efnisöflun
sagði að Ólafur
hefði daglega sest við ákveðið borð í
Rósenbergkjallaranum undir Nýja
bíó. Þar hafi safnast nokkur hópur
manna í kringum hann og rætt nýj-
ustu tíðindi úr stjóm- og þjóðmálum
og þar hafi orðið til hugmyndir um
efni blaðsins næsta dag. Utvarp var
þá nýlega komið til sögu í heiminum
og mun Hendrik Ottósson, einn af
aðstoðarmönnum Ólafs Friðriksson-
ar, fljótlega hata eignast móttöku-
tæki en hann var málamaður mikill
og útvegaði þannig nýjustu erlendu
fréttirnar með því að hlusta á fjarlægt
og brakandi útvarp, sennilega frá
Bretlandi. Hann hlýtur að hafa verið
með þeim alfyrstu sem það gerðu hér
á landi.
Timburskúrinn vid Ingólfs-
stræti, Ólafur rekinn
Þó aö Alþýðublaðið hefði engar
ritstjómarskrifstofur fyrstu árin var
þó keyptur lítill timburskúr og hann
settur upp á lóðinni þar sem nú er Is-
lenska óperan við Ingólfsstræti. Þar
var afgreiðsla blaðsins undir stjóm
Sigurjóns A. Ólafssonar, síðar bæj-
arfulltrúa og alþingismanns. Ekki er
vitað um upplag blaðsins fyrstu árin
en í Reykjavík vom aðeins 500
kaupendur í febrúar 1923, þannig að
Fyrsti ritstjórinn: Ólafur Friðriks-
son skrifaði Alþýðublaðið heima
hjá sér.
Haraldur Guðmundsson: einn virt-
asti foringi Alþýðuflokksins, rit-
stjóri 1928-31.
þúfur vegna skorts á fjármunum.
Aðeins eitt tölublað af því kom út
eftir að Alþýðublaðið hóf göngu
sína.
Stíll Ólafs Fridrikssonar
Ólafur Friðriksson, fyrsti ritstjóri
Alþýðublaðsins, skrifaði mestallt
blaðið heima hjá sér, en hafði Ijóra
stúdenta sér til aðstoðar um efnisöfl-
un. Blaðið var síðdegisblað í litlu
broti og fyrst og fremst áróðursblað.
allt upplagið hefur þá varla náð 1000
eintökum. Morgunblaðið var þá selt
í um 2200 eintökum.
Alþýðublaðið var prentað í Guten-
berg til 1923. Þá varð prentaraverk-
fall snemma árs. Til þess að Alþýðu-
blaðið gæti komið út, þrátt fyrir
verkfallið, tóku tveir prentarar úr Al-
þýðuflokknum gamla og ónotaða
prentsmiðju í bakhúsi við Bergstaða-
stræti 19 á Ieigu þar sem hægt var að
prenta blaðið meðan á verkfallinu
Benedikt Gröndal: ritstjóri flest viðreisnarárin.
Þrír ritstjórar: Ingólfur Margeirsson, Kristján Bersi Ólafsson og Gylfi Grön-
dal. Myndin er tekin þegar Alþýðublaðið var 70 ára.
Slfkt fréttaritarakerfi var þá nýjung á
Islandi. Hin blöðin vöknuðu upp við
vondan drauml. Svar Morgunblaðs-
ins var að koma sér upp fréttaritara í
Kaupmannahöfn og einnig var það
stækkað upp í átta síður daglega með
fjölbreyttari efnisþáttum en áður
meðan Alþýðublaðið var aðeins Ijór-
ar síður. Alþýðublaðið svaraði aftur
með því að stækka blaðið í broti upp
í sex dálka í október 1934, hefja út-
gáfu sérstaks sunnudagsblaðs með
forsíðum eftir íslenska listamenn og
hefja mánudagsútgáfu þannig að
blaðið kom út alla daga vikunnar og
gekk svo í tvö ár. Þá var efnt til smá-
sagnasamkeppni og einnig gekkst
blaðið fyrir skemmtunum í Iðnó.
Þetta var blaðastríð. Eitt gerði Morg-
unblaðið þó ekki, það hélt áfram að
leggja forsíðu sína undir auglýsing-
ar. En auglýsingarnar voru einmitt
Akkilesarhæll Alþýðublaðsins. Þeim
fjölgaði lítið þó að blaðið ykist mjög
að útbreiðslu.
Breytingamar á Alþýðublaðinu
oliu keðjuverkunum í íslenskum
blaðaheimi. Blaðið seldist stundum í
allt að tíu þúsund eintökum á dag en
upplagið var þó að jafnaði 6000 ein-
tök. Þá var Morgunblaðið prentað í
svipuðu upplagi og stóðu blöðin
jafnfætis um hríð. Athyglin sem hin
nýja samkeppni olli varð líka til þess
að framsóknarmenn hugsuðu sér til
hreyfings. Þeir byrjuðu 1934 að gefa
út Nýja dagblaðið og kom það út
sem dagblað í Reykjavík á ámnum
1934 til 1938. Var það fjórða dag-
blaðið á landinu en Þjóðviljinn kom
svo hið fimmta árið 1936.
Farsæl ritstjórn
Stefán Pjeturssonar
Miklar deilur innan Alþýðu-
flokksins urðu árið 1938 og lauk
þeim með því að hann klofnaði. Við
þessar deilur virðist Finnbogi Rútur
hafa misst áhugann á blaði sínu eða
skort úthald til að halda áfram rit-
stjórn þess. Hann hætti einfaldlega
að mæta á ritstjómarskrifstofunum
en var þó áfram titlaður ritstjóri.
Stefán Pjetursson gegttdi ristjóra-
störfum í forföllum Rúts en tók
formlega við blaðinu I. júlí 1940. Þá
var upplag þess komið niður í 3000
eintök og var það skömmu síðar
minnkað í broti vegna rekstrarörðug-
leika. Svo illa höfðu innanflokks-
deilurnar farið með það. Þó leið ekki
á löngu þar til enn var blásið til sókn-
ar. Það tækifæri gafst er stríðsgróð-
inn tók að þyngja pyngju lands-
manna. í febrúar 1942 var blaðinu
gjörbreytt. Það var stækkað í átta síð-
ur, geit að morgunblaði í stað síð-
degisblaðs sent það hafði verið frá
upphafi og teknir upp fjölmargir ný-
ir efnisþættir. Byrjað var til dæmis
með teiknimyndasöguna Öm eld-
ingu sem var í mörg ár í blaðinu og
naut mikilla vinsælda. Hún var samt
ekki fyrsta teiknimyndasagan því að
1939 hafði um skeið verið leikni-
myndasaga í blaðinu, byggð á ævin-
týmm H.C. Andersen. Hins vegar
var við þessar breytingar allar farið
að leggja forsíðuna undir auglýsing-
ar á ný og þótt mörgum það afturför.
Var svo allt fram í ágúst 1946. Bak-
síðan var aftur á móti lögð undir
gamanmál, sem Loftur Guðmunds-
son sá um, og var það nýjung. Stefán
Pjetursson var farsæll ritstjóri og
algerlega lögð undir auglýsingar eins
og í hinum dagblöðunum tveimur.
Árið 1928 tók Haraldur Guð-
mundsson við ritstjóm blaðsins af
Hallbirni Halldórssyni en árið 1931
tók gamla kempan, Ólafur Friðriks-
son, við ritstjórn á ný og hélt henni til
1933. Var blaðið heldur dauflegt á
þessum ámm og kom ekki út fyrr en
klukkan ljögur á daginn og stundum
seinna. Upplag blaðsins á þessum ár-
um var aðeins 1200 til 2000 eintök.
Rútur lætur til skarar
skrída
Árið 1933 voru enn aðeins þtjú
dagblöð á Islandi: Vísir, Morgun-
blaðið og Alþýðublaðið. Þá var
komið að því að síðastnefnda blaðið
tæki forystuna og gerði eins konar
byltingu í íslenskum blaðaheimi.
Ungur og róttækur maður kom þá til
landsins eftir áralangt nám í helstu
stórborgum álfunnar, svo sem Berl-
ín, París og Róm. Hann tók að sér rit-
stjórn Alþýðublaðsins fyrir milli-
göngu Héðins Valdimarssonar og
Jóns Baldvinssonar og sagði í ávarpi
til lesenda er hann tók við:
„Mönnum kemur saman urn að ís-
lenskum blöðum hafi hingað til ver-
ið mjög ábótavant, einkum dagblöð-
unum þremur í Reykjavík. Eg skal
fúslega játa að það er langt frá því að
Alþýðublaðið hafi verið nokkur und-
antekning í því efni. Allir sem hafa
haft tækifæri til að bera saman erlend
blöð og íslensk eru sammála um það
að þau standist engan samanburð."
Finnbogi Rútur lét því hendur
standa fram úr ermum. Eitt af því
sem hann gerði strax var að sópa
auglýsingum af forsíðu blaðsins og
hafa þar í staðinn fréttaflutning í líf-
legum stfl. Hann vildi hafa stórt letur
á fyrirsögnum, sem hafði verið sjald-
gæft til þessa, ásamt undirfyrirsögn-
um og inngangi að fréttum. Fréttim-
ar áttu að byrja á aðalatriði málsins.
Einnig lagði hann mikið upp úr
myndum. Hann kunni þá kúnst að
haga fyrirsögninni þannig að lesand-
inn tók blaðið hvort sem hann var
sammála henni eða ekki. Fyrsta setn-
ingin átti að valda því að hann vildi
lesa næstu setningu og svo koll af
kolli. Stíllinn átti að vcra einfaldur
og hnitmiðaður. Mottó hans var að
nauðsynlegustu vinnutæki góðs rit-
stjóra væru skæri og stór ruslafata.
Með þessari stefnu ásamt ná-
kvæmni, áræðni og vinnusemi olli
Finnbogi Rútur þáttaskilum í ís-
lenskri blaðamennsku. Hann var
maður hins nýja tíma meðan flestir
aðrir blaðamenn vom enn nokkuð
fastir í aldamótastíl íslenskra blaða
þar sem allt var sett fram í belg og
biðu. Er talið að fyrirmyndir sínar
hafi Rútur einkum haft úr frönskum
blöðum. Oft setti hann Iíka fréttir
fram í æsifréttastíl og með nokkmm
galsa og vísaði þar með veginn fram
á við.
stóð. Þess skal getið að prentvélin,
sem notuð var, hafði veriö keypt til
landsins árið 1879 til Isafoldar og
var fyrsta svokallaða hraðpressan á
landinu. Svo æxlaðist að í þessari
gömlu vél í bakhúsinu við Berg-
staðastræti var svo Alþýðublaðið
prentað til 1926 en þá tók Prent-
smiðja Alþýðublaðsins til starfa.
Ólafur Friðriksson ritstjóri fór til
Moskvu öðm sinni árið 1922 til að
sitja alþjóðaþing kommúnista. Var
það í óþökk miðstjórnar Alþýðu-
flokksins og gaf hún honum reisu-
passann sem ritstjóra blaðsins sama
dag og hann fór af landi brott. Við
tók Hallbjörn Halldórsson prentari
og skrifaði hann nánast allt efni í
blaðið þrjú fyrstu ritstjómarár sín.
Hann var rnjög vandfýsinn en meiri
bókamaður en blaðamaður. Hall-
björn sagði að betra væri að gefa út
gott blað og vandað en að fiýta út-
gáfunni. Blaðið kom því stundum
seint út.
Prentsmidja Alþýdu-
bladsins og stækkun
Alþýðublaðið eignaðist eigin
prentsmiðju, cins og áður sagði, og
tók hún til starfa I. febrúar 1926.
Gamli timburkofinn við Ingólfs-
stræti hafði þá verið stækkaður að
mun og orðinn tvílyftur kumbaldi
eða réttara sagt hæð ofan á háum
kjallara. Þar var prentsmiðja niðri en
afgreiðsla og síðar ritstjórn uppi.
Þess skal getið að eitt af því sem
Hannibal: ritstjóri Alþýðublaðsins
og formaður Alþýðuflokksins á
umbrotatímum.
keypt var í nýju prentsmiðjuna var
setjaravél (Linotype) en fram til þess
tíma hafði blaðið verið handsett.
Hinn 1. desember 1926 var Al-
þýðublaðið stækkað um helming í
broti og var þar með orðið svipað
hinum dagblöðunum í útliti þó að
síðufjöldinn væri að jafnaði heldur
minni. Fram til þess tíma höfðu yfir-
leitt verið fréttir á forsíðu blaðsins
auk þess sem stundum voru þar aug-
lýsingar, en eftir þetta var forsíðan
Kedjuverkun í
bladaheiminum
Finnbogi Rútur gerði samning við
þekkta blaðantenn við Daily Herald í
London, Politiken og Social-Demo-
kraten í Kaupmannahöfn og Arbeid-
erbladet í Osló um að þeir sendu
einkaskeyti með fréttum til blaðsins.
Alþýduhúsid og
Hannes á horninu
Á dögum Finnboga Rúts sem rit-
stjóra Alþýðublaðsins var hafin
bygging Alþýðuhússins á homi Ing-
ólfsstrætis og Hverfisgötu og var
húsið vígt 1. maí 1936. Er það enn
eitt dæmið um stórhug hans og
hreyfingarinnar um það leyti. Þess
skal getið að tuminn á húsinu var
ætlaður fyrir fréttir sem rynnu þar á
ljósaskiltum eins og gerðist í erlend-
um stórborgum. Aldrei varð þó úr
þeim áformum.
Alþýðublaðið var t mikilli efnis-
legri mótun á þessum árunr. Varan-
legasta nýjungin sem blaðið inn-
leiddi var fastur dálkur sem Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson hóf að
skrifa árið 1936 undir heitinu Hann-
es á hominu. I þessum dálkum var
vettvangur fyrir almenning til að
koma skoðunum sínum á framfæri,
umkvörtunum, lofi og lasti og jafn-
framt vettvangur fyrir Vilhjálm sjálf-
an að berjast fyrir sínum eigin
áhugamálum. Hann varð þannig eins
konar sál og samviska Alþýðublaðs-
ins. Hugmyndina mun hann hafa
fengið frá breska blaðamanninum
Hannan Swaffer sem lengi skrifaði
fasta rabbdálka í Daily Herald í
London. Vilhjálmur hélt þessum
þáttum úti í Alþýðublaðinu til
dauðadags 1966 og voru þeir fyrir-
mynd af samsvarandi dálkum í öðr-
um blöðum.