Alþýðublaðið - 28.10.1994, Side 13
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 75 ÁRA
Pelsfóðurskápur og jakkar
Alþýðublaðsegg Fríðrik Þór
Guðmundsson, blaðamaður
á Vikublaðinu:
Ég heimilaði
birtingu gagnrýni
á Jón Baldvin
Ég hóf minn blaðamennskuferi! á
Alþýðublaðinu 1982 og sannreyndi
þá að Alþýðublaðið var og er öflug
uppeldisstöð fyrir blaðamenn. A
sama tfma og mér var ýtt beint út í
foraðið - að „grilla Tómas Amason
um bankamál og Agúst Einarsson
um útgerðarmál - hóf vinur minn
störf á Morgunblaðinu við að vinna
úr Velvakandabréfum.
Ritstjóri Alþýðublaðsins var þá
Guðmundur Ami Stefánsson, tiltölu-
lega nýkominn frá Helgarpóstinum
og blaðamaður var Þráinn Hall-
grímsson. Alþýðublaðsdeilan 1981
sveif yfir vötnum og ég man greini-
lega eftir taugaveikluninni þegar
flokksþingið 1982 stóð yfir og ég
heimilaði sem vakthafandi blaða-
maður birtingu greinar eftir Kjartan
Ottósson; grein sem innihélt mikla
gagnrýni á Jón Baldvin. Ég hygg að
þetta hafi verið afgreitt sem byij-
andamistök.
Okkur Gása og Þráni tókst held ég
að halda úti mjög þokkalegum fjór-
blöðungi sem hafði áþreifanleg
„tveggja þrepa“ áhrif út í pólitíkina.
Friðrik Þór: Okkur Gása og Þráni
tókst held ég að halda úti mjög
þokkalegum fjórblöðungi sem
hafði áþreifanleg „tveggja þrepa"
áhrif út í pólitíkina.
Mér er sérlega minnisstætt
þegar ég skrifaði grein um að
Davíð Oddsson, þáverandi
borgarstjóri, hefði rekið ræst-
ingakonu fyrir að nota símann á
skrifstofu hæstvirts borgar-
stjóra.
Þá minnist ég þess vel hversu
þungvæg baráttan var í blaðinu
gegn „sjúklingasköttum" hægri
stjómarinnar sem ríkti 1983 til
1987 og gegn þeirri hrikalegu
kjaraskerðingu sem þessi ríkis-
stjóm beitti sér fyrir þegar kaup-
máttur ráðstöfunartekna hmndi
um 20 til 25 prósent á tveimur
ámm.
Ég óska Alþýðublaðinu hjart-
anlega til hamingju með afmæl-
ið og til hamingju með nýtt og
ferskt blað.
NÝSENDING
Greiðslukjör
við allra hæfí
PELSINN
Kirkjuhvoli • sími 20160
Þar sem
vandlátir
versla.
Þorgrtmur; Blaðstjórnin brást, engir peningar, ekkert átak í dreif-
ingunni; Gísli hætti og Alþýðublaðið varð aldrei stórblað. Við hætt-
um líka.
Alþýðuhlaðsegg Þorg r™
ur Gestsson, ritstjóri Vinnur
Mér fannst ég
ekki vera að
vinna fyrir
krataflokkinn
Það er hálf ótuktarlegt að
minna mann á besta aldri á að
aldarfjórðungur er liðinn frá því
hann var ungur blaðamaður á Al-
þýðublaðinu. Tuttugu og fimm
ár er svo langur tími að flest sem
gerðist þá, og við hæfi er að segja
frá, er löngu gleymt og grafrð.
Nema ef vera skyldi það að í
50 ára afmælishófi Alþýðublaðs-
ins þakkaði Gylfi Þ. Gíslason,
þáverandi formaður flokksins,
okkur ungu blaðamönnunum á
Alþýðublaðinu sérstaklega fyrir
framlag okkar í þágu flokksins.
Okkur þótti hólið vitanlega gott,
en mér fannst ég þó ekki hafa
verið að vinna að framgangi
krataflokksins. Mér fannst ég
vera að vinna við blaðamennsku.
Og var orðinn þó nokkuð sjóaður
í starfmu; hafði unnið við þetta í
rúmtár!
Alþýðublaðið bar gæfu til að
ráða Gísla J. Ástþórsson ritstjóra
blaðsins rúmu ári seinna. Hann
hafði áður stýrt blaðinu við góð-
an orðstír á miklu blómaskeiði
þess, sem hófst í ritstjómartíð
Finnboga Rúts Valdimarssonar.
Með báðum þessum mönnum
komu ferskir vindar inn í ís-
lenska blaðamennsku.
Á árunum 1971 til 1972 tók
Gísli okkur unga fólkið til bæna
og gerði úr okkur blaðamenn;
hann þjálfaði okkur og agaði og
taldi sig að lokum hafa í höndun-
um blað sem hægt væri að selja.
En blaðstjómin brást, engir pen-
ingar, ekkert átak í dreifmgunni;
Gísli hætti og Alþýðublaðið varð
aldrei stórblað. Við hættum líka,
hver eftir annan næstu árin,
dauðuppgefnir á baráttunni við
að heimta launin okkar en ég
þakka það tamningu Gísla að
flestir okkar sem vom í ritstjóm-
inni hans em að fást við þetta
ennþá þótt ekki gusti af okkur
viðlíka og honum og Finnboga
Rúti.
Alþýðublaðið komst að lokum
ofan í eldspýtnastokk. Ég veit
það, því ég hef prófað það sjálf-
ur. Það hjarir þó enn, sem er dá-
lítið kraftaverk. Og flokkurinn
tórir lika. Það var því enginn fyr-
irboði þegar fyrmefndur ungur
blaðamaður greip til þess óyndi-
súrræðis eitt sinn á prentsmiðju-
vakt að loka blaðsíðu tvö með
legsteinaauglýsingu í útfarar-
ramma þar sem áttu að standa til-
kynningar um flokksstarf Al-
þýðuflokksins, vegna þess að
þessar tilkynningar höfðu ekki
borist í tæka tíð. Flokksstjórnin
titraði víst út af þessu en mig
minnir að þáverandi pólitískur
ritstjóri blaðsins, en núverandi
heilbrigðis- og iðnaðarráðherra
hafi hlegið.
Síðasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma, pöntunarsími í Reykjavík er 672811.
Grænt númer er 99 - 6333.