Alþýðublaðið - 28.10.1994, Page 15
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 75 ÁRA
15
Alþýðublaðsegg Atli Rúnar Halldórsson,
fréttamaður á Ríkisútvarpinu:
Vilmundur útdeildi
17 verkefnum
Minnisstæðastir frá Alþýðu-
blaðsárum mínum 1976 til 1978
eru líklega ritstjómarfundir með
Vilmundi Gylfasyni í forsæti. Vil-
mundur var afleysingaritstjóri á
sumrin og mætti hreint ekki tóm-
hentur á daglega fundi með blaða-
mönnum sínum. A fyrsta fundin-
um klukkan níu að morgni fékk ég
sautján verkefni og ritstjórinn sleit
fundi með þeim orðuni að upp úr
hádegi myndi hann ganga á milli
manna og deila út nokkrum í við-
bót til að glíma við síðdegis!
Við vorum fö! í framan af skelf-
ingu, en Vilmundur fór inn á sinn
kontór og skemmti sér vel yfir öllu
saman - á meðan undirmenn hans
engdust hver í sínum bás í llóði
verkefna. Vonleysið var svo mikið
að ég sá eiginlega eftir því að hafa
nokkum tíma sótt um vinnu hjá
Áma Gunnarssyni ritstjóra. Því
Áma hafði orðið það á að ráða mig
og bera beinlínis ábyrgð á að ég
lenti á þessari starfshillu í lífinu.
Sælutfðin á Alþýðublaðinu
endaði svo á dramatískan og eftir-
minnilegan hátt. Ritstjórinn var
rekinn sumarið 1978, eftir íjórtán
þingmanna kosningasigur krat-
anna, og ákveðið var að gefa út lít-
ið Alþýðublað - sem Jón Baldvin
Hannibalsson kallaði síðar sendi-
bréf til flokksmanna. En Alþýðu-
blaðið sýndi sig enn einu sinni að
var ekki feigur fjölmiðíll. Það er
nú enn og aftur orðið alvörublað;
líflegt og læsilegt og löngu vaxið
upp úr að komast samanbrotið of-
an í eldspýtnastokk. Þingflokkur-
inn mun á hinn bóginn ekki
sprengja utan af sér flokksherberg-
ið í þinghúsinu eftir kosningar í
vor, ef svo fer sem horfir.
Alþýðublaðið getur því sagt
núna: Sá hlær best...
Bestu kveðjur til afmælisbams-
ins!
Atli Rúnar: Á fyrsta fundinum klukkan níu að morgni fékk ég sautján verkefni og Vilmundur sleit fundi
með þeim orðum að upp úr hádegi myndi hann útbýta nokkrum til viðbótar.
Alþýðublaðsegg Oddur Ólafsson,
fréttastjóri Tímans:
Blaðamaður Politiken
borgaði brúsann
I mínum huga em það dýrmæt
forréttindi að fá að kynnast og
starfa með því mannvali sent rit-
stjórn Alþýðublaðsins stöð saman
af 1957 og sfðar. Umbrot í okkar
litla blaðaheimi og fjölmiðlun
voru snörp og átökin um sjálfstæði
blaða og blaðamanna mun nieiri
en alntenn vilneskja sýnist nú vera
um.
Ef velja á einstakan atburð öðr-
um minnisstæðari frá ámnum á
Alþýðublaðinu kemur fyrst upp í
hugann 1. september 1958. Þá var
landhelgin færð einhliða út í tólf
mílur og fyrsta þorskastríðið hófst.
Meira var haft við en dæmi vom
um áður. Það var leigð flugvél til
að fljúga yfir átakasvæðið. Það var
of mikið fyrirtæki fyrir eitt blað og
tók Vísir og Politiken þátt í kostn-
aði og sendu menn með.
Frá Alþýðublaði fórum við tveir
í loftið, Gísli J. Ástþórsson ritstjóri
og ég sem þá starfaði sem ljós-
myndari. Við vissum ekki hvert
átti að halda eða hvers var að
vænta. ísland var komið í stríð og
ekkert var vitað um viðbrögð and-
stæðingsins.
Gmnnt úti fyrir Vestfjörðum
fundust breskir togarar að veiðum
innan nýju landhelginnar og her-
skip þeim til vamar. Óðinn litli var
þarna örsmár á sjávarfletinum og
Oddur: Alþýðublaðið var orðinn
svo merkilegur fréttamiðill (1.
september 1958) að blaðið sendi
menn sína í fiugvél á átakasvæði
til að lýsa atburðum fyrir lesend-
um.
herskip sigldu mikinn ntilli hans
og togaranna. Okkur létti. Fyrsta
þorskastriðið var búið að standa í
tíu kiukkustundir og sýnilegt var
að ekki var um vopnuð átök að
ræða. En ofbeldið var greinilegt.
Þennan morgun urðu þáttaskil í
íslandssögunni og okkur fannst að
nýtt tímabil væri einnig haflð í
fréttamennskunni. Gísli skrifaði
albragðsgrein undir fyrirsögninni
„Togað í nafni hennar hátignar" og
þótt myndimar sem ég tók væm
kannski ekki merkilegar, þar sem í
þær vantaði bardagann fóru þær
vítt og breitt um heimspressuna
vegna mikilvægi þeirrar fréttar að
íslendingar stóðu upp í hárinu á
herveldi og tóku sér rétt til að
vernda eigin auðlindir.
En fyrst og fremst vom þær
teknar fyrir Alþýðublaðið sem var
orðinn svo merkilegur fréttamiðill
að senda menn sína í flugvél á
átakasvæði tii að lýsa atburðum
fyrir lesendum. Að vera þátttak-
andi í slíkum tímamótum verður
ávallt stolt minning í huga gamals
blaðamanns.
Síðan vom háð lleiri þorskastrfð
og dramatfskari. Fjölmiðlar urðu
öflugri og fréttatækni fleygði
fram. En að finna flotann og
sveima yfir honum á lyrsta tnorgni
fyrsta þorskaslríðsins verður aldrei
frá okkur tekið.
Og mikið gladdi það gjaldker-
ann þegar í ljós kom að fyrir mis-
gáning hafði blaðamaður Politiken
borgað flugferðina sem varð Al-
þýðublaðinu að kostnaðarlausu.
:—
Rétta leiðin
i
m
W
f Jt?
► Vv þektfirþú hana?
Reikningaflóð, sveiflur í útgjöldum og þú veist ekki
hve'Tniíp' er til ráöstöfunar í mánuðinum? Mei, rétta
leioirnír fyrirhyggja, útgjaldadreifing og reglubundinn
sparnaður
gjörið svo vel. ►►►
Vr- s.
!>\ ',iC\
<•?. •>-
A
víðtæk
fjármálaþjónusta
:
9\
\;:v 4* '
tv %
%r % ~
% % ^
?? <»-
%
>?
*>- 0\
ov
<o
i
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna