Vísir


Vísir - 02.02.1976, Qupperneq 10

Vísir - 02.02.1976, Qupperneq 10
10 C Mánudagur 2. febrúar 1S76. VISIR j Fjórir settir út og Celtic efst! Sean Fallon sem gegnir fram- kvæmdastjórastööu Celtic i veik- indum Jock-Stein gerði fjórar breytingar á liði Celtic fyrir leik- inn gegn Dundee United á laugar- daginn. Hann setti Peter Latch- ford markvörð, Roddy McDon- ald, Ronnie Glavin og Bobby Lenox út úr liðinu, tók fjóra nýja menn inni liðið og lét Jóhannes Eðvaldsson leika miðvörð. Dæm- ið gekk upp hjá Fallon og Celtic er nú i efsta sætinu i skosku úrvals- deildinni eftir sigur gcgn Dundee Utd og jafntefli Rangers gegn hinu Dundee liðinu. Leikmenn Dundee Utd fengu óskabyrjun i leiknum gegn Celtic, þvi strax á fyrstu minútu leiksins mátti Alistar Hunter sem tók stöðu Latchford i markinu hirða boltann úr netinu hjá sér, þá not- færði Henry Hall sér misskilning Jóhannesar og Hunters — og skoraði ódýrt mark. Eftir markið tóku leikmenn Celtic öll völd á vellinum og þeir Paul Wilson og Kenny Dalglish skoruðu fyrir Celtic i fyrri hálf- leik. Ekkert mark var skorað i siðari hálfleik, en þá beinlinisóðu þeir Dixie Deansog Paul Wilson i tækifærum — og var oft með ólikindum hvernig þeir komust hjá að senda boltann i mark Dundee. VALSSONGJJRINN ÞAGNADI OVÆNT FH stöðvaði sigurgöngu Vals í 1. deild kvenna í gœrkvöldi Hið skemmtilega handknatt- leikslið FH i 1. deild kvenna kom heldur betur á óvart i Laugar- dalshöllinni í gærkvöldi, er liðið mætti tslandsmeisturum Vals, sem ekki hafa tapað leik i X. deildinni i vetur. FH-stúlkurnar gerðu sér litið fyrir og sigruðu meistarana með hvorki meira né minna en fimm mörkum — 15:10. Við þessu hafði enginn búist við fyrirfram, en þó læddist sá grunur að mörgum er Valsliðið hljóp inn á, þvi i það vantaði driffjöðrina — Sigrúnu Guðmundsdóttur. Til að byrja með var munurinn ekki mikill. FH hafði betri tök á leiknum, en Valsstúlkurnar héldu i viö þær, og voru ekki nema einu marki undir i hálfleik — 5:4. En i siðari hálfleiknum kom fjarvera Sigrúnar fyrst verulega i ljós. FH-stúlkurnar náðu öruggri for- vsta og sigruðu eins og fyrr segir með fimm marka mun — 15:10. Þær voru vel að þessum sigri komnar — léku mun betri hand- knattleik en íslandsmeistararnir, sem hafa til þessa byggt allt á Sigrúnu Guðmundsdóttur. 1 liði FH var Sylvia Hallsteinsdóttir potturinn og pannan i öllu spiiinu og hefur sjaldan verið betri en i þessum leik. Þá áttu þær Katrin Danivalsdóttir og Gyða úlfars- dóttir mjög góðan leik, en annars var FH-liðið allt mjög gott. Það sama verður ekki sagt um Valsstúlkurnar. Þær höfðu reikn- að með að sigra með ,,fullu húsi” i deildinni i vetur og voru heldur kærulausar i þetta sinn, þrátt fyr- ir að Sigrún væri ekki með þeim. Þær tóku samt tapinu nokkuð vel, en Valssöngurinn, sem þær hafa sungið eftir flesta leiki sina i vet- ur, heyrðist nú ekki — enda yfir- leitt ekki sunginn eftir tapleikil! Tveir aðrir leikir voru leiknir i 1. deild kvenna um helgina. Ár- mann lék við nýliðana í deildinni — Keflavik — og sigraði með 21 marki gegn 14 eftir að hafa verið 4 mörkum yl'ir i hálfleik — 10:6 —. Þá sigraði KR Viking með 13 mörkum gegn 8 eítir að staðan i hálfleik hafði verið 4:4. KB/—klp Staðan í leikina um Valur FH Fra m Árm ann KR Kreiöahlik Vikingur Keflavik 1. deild kvenna eftir hclgina: »801 151:82 1G 8702 113:77 14 7601 122:68 12 8602 115:93 12 8305 87:101 6 8 2 0 6 71: 125 4 7016 55:103 1 9 0 1 8 91:156 1 2:1 2:1 5:0 2:0 1:1 Úrslitin i Skotlandi á laugar- daginn urðu þessi: Aberdeen — Ayr Celtic — DundeeUtd Hibernian — St Johnstone Motherwell — Hearts Dundee— Rangers Rangers átti i miklum erfið- leikum meö að finna leiðina i mark Dundee þrátt fyrir mikla yfirburði. Mark Rangers skoraði Derek Johnstone, en Dave John- stone jafnaði fyrir Dundee. Willie Pettegrew er nú marka- hæstur i Skotlandi og hann skor- aði bæði mörk Motherwell gegn Hearts. Staðan er nú þessi: Celtic Rangers Motherwell Hibernian Aberdeen Hearts Dundee Ayr Dundee Utd St. Johnst. 23 14 4 5 49:30 32 23 13 5 5 39:20 31 23 11 7 5 42:30 29 22 11 6 5 39:25 28 23 9 7 7 37:33 25 23 78 8 27:34 22 23 7 7 9 38:44 21 23 8 4 11 30:39 20 22 4 6 12 26:38 14 23 2 2 19 23:57 6 Um næstu helgi leika Celtic — Hearts, Dundee Utd — Ayr, Hibs — Dundee, Rangers — Aberdeen og St. Johnstone — Motherwell. — BB Löggan kom til hjólpar Kveöa varð til lögreglu I vináttuleik svissneska knatt- spyrnuliðsins Grasshopper Zurich og úrvalsliðs Ilong Kong i Hong Kong uin helg- ina vegna slagsmála. Leikurinn var mjög grófur frá upphafi og að lokum sauð uppúr, mikil slagsmál hófust á milii lcikmanna liðanna, dómarinn sem réð ekki neitt við neilt, varð aö lokum aii kalla á aðstoð lögreglunnar. Kftir að tekist liafði að stilla til friðar var einum úr svissneska liðinu vísað af leikvelli, en það virtist ekki konia að sök — þvi að sviss- lendingarnir sigruðu í leikn um 3:0. - BB Hafþór Júliusson frá isafiröi sigraði bæöi i svigi og stórsvigi á fyrsta punktamóti vetrarins sem fram fórj Skálafelli um helgina. Var hann annar tveggja sem komst klakklaust I gegnum öll hliðin, bæði I svigi og stórsvigi. Tveir komust alla leið! — Karlmönnunum gekk illa í fyrsta punktamótinu ó skíðum í Skálafelli um helgina Þau Hafþór Júliusson, isafirði, og Margrét Baldvinsdóttir frá Akureyri, höfðu mikla yfirburði i fyrsta piuiktamótinu á skiðum, sem háð var i Skálafelli nú um helgina. Voru þau ein af örfáum sem. luku keppni, bæði i svigi og stór- svigi, en mikið „fall” var i báðum þessum greinum - sérstaklega þó i svigi karla siðari daginn. Þar voru rúmlega 30 keppendur sem lögðu af stað, en aðeins 7 komust i einhver afgreiðslan opin ailan daginn KL. 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 i i i W AÐALBANKINN yV BANKASTRÆTI 5 SÍMI 27200 1 1 1 ÚTIBÚIÐ 1 LAUGAVEG1172 SÍMI 2 0120 lÍÍÉli | 1 AFGREIÐSLAN ## UMFEROARMIÐSTÖÐ SÍMI 22585 !!i ‘•'•■•:*:*:j IIÉ * Æ BREIÐHOLTSÚTIBÚ Æ ARNARBAKKA2 SÍMI74600 Illl •:•:•:•:•:•] •:•:•:•:•: íj* i! iii \/€RZlUNRRBRNKINN mark i báðum umferðunum. i stórsviginu og sviginu voru það aðeins tveir menn, sem komust klakklaust niður brekkurnar, og var Hafþór annar þeirra. Hinir allir féllu úr!! Kvenfólkinu gekk öllu betur - en þó féllu nokkrar i báðum greinum. Þau Margrét og Hafþór sigruðu i alpatvikeppninni og voru vel að þvi komin, enda sýni- lega i mun betri æfingu en aðrir keppendur. Er það sjálfsagt að þakka, að þau æfðu sig með ólympiuliði islands i haust en komust ekki i liðið, sem nú er komin til Innsbruck. Úrslit i einstökum greinum i þessu fyrsta punktamóti ársins urðu annars þessi: Stórsvig kvenna: Margrét Baldvinsdóttir Akureyri. 135,89 sek. Katrin Frimannsdóttir Akureyri, 141,63 sek. Guðrún Frfmannsdóttir Akureyri, 157,40 sek. Svig kvenna: Margrét Baldvinsdóttir Akureyri, 134,51 sek. Kristin Úlfsdóttir tsafirði, 141,02 sek. Guðrún Frfmannsdóttir Akureyri, 156,60 sek. Stórsvig karla: Hafþór Júliusson tsafirði, 140,84 sek. Gunnar B. Ólafsson tsafirði, 140,89 sek. Böðvar Bjarnason Húsavik, 141,05 sek. Svig karla: Hafþór Júliusson tsafirði, 107,44 sek. Valur Jónatansson tsafirði, 108,66 sek. Arnór Magnússon, tsafirði, 109,56 sek. —klp —

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.