Vísir - 13.02.1976, Side 7

Vísir - 13.02.1976, Side 7
w VISIR Föstudagur 13. febrúar 1976 Jarðskjálftinn flutti landið metra í vestur Vísindamenn halda því fram að jarðskjálftinn sem leiddi ógn og dauða yfir Guatemala hafi fært landið að minnsta kosti einn heilan metra vestur á bóginn út f Kyrrahaf. Almannavarnarráð Guatemala hefur sent frá sér skýrslu þriggja sérfræðinga sem segja að jarð- skjálftinn mikli hafi átt rætur sinar að rekja til þess að bergið hafi færst lárétt eftir heljar- mikilli sprungu. Þeir segja að slikum fyrir- brigöum áöur hafi fylgt urmull smærri jarðskjálfta sem fjaraö hafi smám saman út. — „Fylgi jarðskjálftinn 4. febrúar þeim fordæmum ætti ekki að þurfa að óttast annan slikan tjónvald,” segja sérfræðingarnir. í Guatemala er haldið áfram björgunarstarfinu og unnið viö uppgröft úr rústum og hreinsun i þéttbýli. — Nú hafa nær nitján þúsundir manna verið taldar af. Kjell Laugerud, forseti Guate- mala, flutti útvarpsræðu i gær- kvöldi. — Grafið hina látnu, berið sár ykkar möglunarlaust og hefj- ist handa við uppbyggingu lands- ins af eigin rammleik — var boð- skapur hans. Matvæli og hjálpargögn flæða inn i landið viða frá. Daglega ber- ast um 100 smálestir til aðstoöar hinum bágstöddu. í höfuðborginni einni saman misstu um 400,000 manns heimili sin, en alls um allt land stendur nú uppi um ein milljón manna með heimili sin i rústum. — Til sumra afskekktustu þorpanna hefur engin hjálp borist enn. Til hliðar: Fjölskylda gengur framhjá hrundum húsum i San Pedro Sacatapeque þorpinu sem ekki er fjarri höfuöborg Guate- mala. Þetta þorp var mjög illa úti i jarðskjálftanuin 100 manns fór- ust, og var búinn til nýr kirkju- garður i þorpinu. Að neðan: Ráð- vitlt móðir situr með barn sitt í al- menningsgarði í Guatemalaborg. Heimili hennar gjöreyðilagðist i jarðskjálftanum mikla. Sameining Alsír og Libyu Á ný hefur verið vakin upp hugmyndin um sam- runa Alsír og Líbýu og greinilegt að það er deilan um Vestur-Shara sem nú gæðir þessa gleymdu drauma lífi. Houari Búmedienne forseti Alsir sagöi viö komu sina til Tri- póli i gær: ,,Libya er meir en bandamaður. viö erum hér til að leita að öruggustu og áhrifa- bestu leiöinni til að láta vonir um sameiningu rætast.” Þessi hugmynd fékk byr undir báöa vængi á fundum þeirra Búmedienne og A1 Gaddafi i desember, en hefur legið niðri siðan. Greinilega hafa nú skýrst aftur þær hillingar sem arabar sjá um eitt sameinað arabariki sem spanni yfir mestalla Noröur- Afriku. Birta nöfn fímm KGB njósnara hjá Sam. þjóðunum Fjórar austur-e vrópskrar frelsishreyfingar dreifðu í gær lista til sendinefnda hjá Sam- einuðu þjóðunum, með nöfnum, heimilisföngum og simanúmer- um fimm háttsettra sovéskra diplómata hjá Sameinuöu þjóð- unum. Sagði aö þessir menn væru allir njósnarnar sovésku leyniþjónustunnar KGB. 1 bréfi sem fylgdi listanum segja frelsishreyfingarnar aö vegna þátttöku KGB i að gefa upplýsingar um CIA, hafi verið ákveðið að birta listann. Þessar opinberanir KGB hafi leitt til þess að yfirmaður CIA i Grikk- landi, Richard Welch, hafi verið drepinn. 1 bréfinu voru sovétmenn var- aðir viö að reyna að berja niður króatisku þjóðarhreyfinguna i Júgóslaviu eftir lát Titós sem búist er við hvenær sem er vegna veikinda hans. Frelsishreyfingarnar sögðu að niu menn þeirra hefðu verið drepnir i Vestur-Evrópu undan- farna mánuði af hendi komm- únista. Frjálsar fóstureyðingar Vestur-þýska „Bundestad” (neöri málstofa þingsins) sam- þykkti i gær frjálsari fóstureyð ingarlög fyrir landsmenn, þrátl fyrir megna andstöðu kristilegrs demókrata. Þetta er i annað skipti á tveim árum sem frjálslyndir reyna að létta á lagaákvæðum um fóstur- eyðingar. Atkvæði féllu aö þessu sinni 234 gegn 181 á móti. — En frumvarpið á eftir að hljóta samþykki efri deild- ar áöur en það getur orðið að lög- um. Hauskúpukrossfari 38 ára gamall læknir i Munchen sem notaði málningu i krossferð sinni gegn reykingum, ætlar sér að afplána tólf daga fangelsi fremur en greiða sekt og skaðabætur fyrir skemmdir á auglýsingaspjöldum. Dr. Eberhard Busch haföi farið i fritimum sinum um borgina og málaö hauskúpu dauðans á öll veggspjöld sem auglýstu vindlinga. Drjúgur skattur Búðarhnupl, skemmdarfýsn og rán hafa valdið 23,600 milljón doll- ara tjóni i bandariskri kaupsýslu á siðasta ári. — Það er þrem milljón- um meira, en árið 1974 eftir þvi sem viðskiptamálaráðuneytið upp- lýsir. ' Kartöfluskortur Belgar hafa farið i flokkum yfir frönsku landamærín til þess að bæta sér upp kartöfluskort sem rik- ir i heimalandi þeirra. Hafa toll- verðir haft i nógu að snúast við að fylgjast mep kartöflusmygli. Um leiö er mikill úlfaþytur i Belgiu vegna mistaka sem uröu þegar skip meö 2,300 smálestir af kartöflum var snúið frá Belgiu, en þvi hefur nú verið snúið aftur og er væntanlegt meö nýju birgðirnar i dag eða á morgun. Þetta kartöfluhamstur hefur leitt til hærra verðs á kartöflum á markaönum. Anna ekki eftirspurn eftir skriðdrekum Bandarikin hafa tilkynnt aö þau muni ekki afgreiða ameriska skrið- dreka til erlendra rikja næstu átján mánuðina. Meðal þeirra sem eiga skriödreka I pöntun er israel. Martin Hoffman varnarmálaráð- herra sagði i gær að afgreiösia á M- 60 skriðdrekum hæfist ekki aftur fyrr en framleiðslan gæti annað eftirspurninni. Flestir hafa fiktað við maríjúana Meirihluti bandariskra ung- menna á aldrinum 18 til 25 ára hafa fiktað við marijúana samkvæmt skýrslu bandariskra stjórnvaida. — Fyrir þrem árum varö þetta ekki sagt um nema 48% ungmenna. Dr. Robert Dupont sem fylgdi skýrslunni úr hlaði á blaðamanna- fundi sagði að engin sönnun hefði fundist á þvi að marijúana væri skaðlegt likamanum. En hitt færi ekki á milli mála að marijúana- vima dragi mjög úr hæfni notand- ans. Hann vildi jafnvel meina að vindlingar og áfengi væru meiri vandamál vegna almennari neyslu. Benti hann á að þær raddir gerðust nú háværari sem aflétta vildu lagamanni við notkun marijúana. Nefndi hann til sex riki sem nýlega hafa afnumið fangelsisviðurlög viö neyslu marijúana. Köfunarvinna Hollenskir kafarar sem rann- sakað hafa skemmdir á risa- oliuskipinu Olympic Bravery urðu að hætta i gærkvöldi köfun- arstarfinu vegna veöurs og brælu. Skipið sem er i eigu Onass- is-skipafélagsins strandaði á skerjum við Quessant-eyju skammt frá Brest i Frakklandi. Þaö er 275 þúsund smálestir. Uppi eru ráöagerðir um aö ná skipinu á flot aftur, ella gæti þetta orðið dýrasti skipstapi sögunnar. Þaö var tryggt fyrir nær 50 miiljónir doUara, eða tvöfalt hærra en norska risa- flutningaskipiö Berge Istra sem fórst i desember i Kyrrahafi. Olíuskildingur Eftir 1980 búast norðmenn við að framleiða- árlega úr Norður- sjó oliu fyrir 12,888,000,000,000 króna, eftir þvi sem Bjartmar Gjerde iðnaðarráöherra sagði i gær. Hann sagði að árleg oiiu- vinnsla norðmanna úr Norður- sjó mundi veröa 78 milljónir lesta eftir 1984. Ráðherrann sagði að átta Evrópuriki heföu leitað eftir samningum við þá um kaup á oliu og gasi, Sviþjóð, Finnland. Danmörk, Pólland, V-Þýska- land, Holland, Bretland og Austurriki.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.