Vísir - 13.02.1976, Blaðsíða 15
vísm
Föstudagur 13. febrúar 197«
SÝNINGAR OG SÖFN
I.istasafn íslands
Á laugardag kl. 1.30 veröur
opnuð á safninu sýning á is-
lenskri popplist. Sýningin
stendur i u.þ.b. mánuð.
Norræna liúsið
Gunnar örn Gunnarsson opn-
ar sýningu á 60 oliumálverkum
á laugardag kl. 2. Sýningin
stendur til 24. febr. og er opin
daglega frá kl. 2-10.
I.of tið
Gunnar örn Gunnarsson opn-
ar sýningu á 50 koi-, grafik og
blýantsteikningum. Sýningin
veröur opin um helgina frá kl.
2-10 og stendur til 24.íebriiar.
Mokkakaffi
A sunnudaginn kl. 2 opnar
Hjalti bórðarson sýningu á um
20 vatnslita og oliumyndum.
Asgrimssa fn
Syning á valnslitamyndum
Asgrims. Safnið er opið
þriöjud., fimmtud., laugardaga
og sunnudaga frá kl. 1.30-4.
Atriði úr einþáttungi Odds Björnssonar „Við lestur framhalds-
sögunnar.”
Verslunarskóla-
skemmtunin 76
A laugardag kl. 2 halda
verslunarskólanemar skemmt-
un i Austurbæjarbiói sem opin
er öllum.
Dagskráin er létt og f jörleg að
vanda. Sýndur verður dans sem
lýsir tiðaranda hernámsáranna.
Einn nemandi, Sigrtin
Magnúsdóttir, syngur frumsam-
in lög við gitarundirleik.
Tveir einþáttungat; eftir Odd
Björnsson verða sýndir. Bera
þeir nöfnin Partý og Við lestur
framhaldssögunnar. 1 leikskrá
segir m.a. um höfundinn: —
„Mikilvægt einkenni Odds sem
höfundar er skörp myndræn sýn
og næm skynjun á hinum sviðs-
lega i formgerð leiksins. Eitt
fremsta höfundareinkenni hans
má þó telja hina siðferðislegu
afstöðu, Mörg verka hans má
túlka svo að þema þeirra sé sið-
ferðilegur vandi. Hvað er rétt og
hvað er rangt?”
Að lokum syngur nemenda-
mótskórinn lög eftir Simon og
Garfunkel.
|í| ISBBWSSí V
||pjj
1
V, - : . J L - 1
...og annað atriði úr einþáttungi Odds. Hér er mikiö partý i
gangi. — Ljósm : Loftur
Sjálfsmynd frá árinu 1973. Til sýnis á „Loftinu
Gunnar Örn:
Opnar tvœr sýningar
i
Á laugardaginn kl. 14 opnar
Gunnar örn Gunnarsson 5.
einkasýningu sina i Norræna
húsinu og á Loftinu.
Gunnar örn er sjálflærður
listamaður og vakti fyrst at-
hygli á haustsýningu FÍM 1971
Að lokinni einkasýningu árið
1972 hélt hann utan. Hann
ferðaðist um Evrópu þar sem
hann sýndi og kynnti sér list
annarra. Undanfarin ár hefur
Gunnar verið búseltur i Dan-
mörku og hafa myndir hans
hlotið þar lofsamlega dóma.
— Það er ólikt betur búið að
listamönnum i Danmörku en
hér heima —, sagði Gunnar þeg-
ar við litum inn i Norræna húsið.
—- I Kaupmannahöfn eru t.d.
galleri sem taka að sér að kynna
verk listamanna. Ég átti mynd-
ir hjá einu þeirra i eitt ár. Þar er
beitt látlausum áróðri til að
vekja athygli á myndunum.
Listamaðurinn ber engan kostn-
að af sýningum, en galleriin fá
50 prósent af allri sölu.
Málverk eins og t.d. eftir Þor-
vald Skúlason seldust á um 2,5
milljónir þar, en hér seljast
slikar myndir á um 250 þúsund.
Listasmekkur islendinga finnst
mér vanþróaður, fólk kaupir
frekar sófasett en málverk. —
Er þetta viðamikil sýning sem
þú ert með?
— Ég er með 60 oliumálverk
hérna i Norræna húsinu og á
Loftinu eru 50 kol-, grafik- og
blýantsteikningar. —
Sýning Gunnars stendur til 24.
febrúar og er opin frá kl. 2-10.
bæði á Loftinu og i Norræna
húsinu um helgina.
„A fyrstu sýningunni sneri fólk viö þegar það hafði litið yfir
salinn". Gunnai' Orn við eina af nivndum sinuni i Norræna
húsinu. — Ljósm.: Loftur.
llótel Saga:
Föstudagur: Lokað. Laugar-
dagur: Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar og Þuriður
Sigurðardóttir skemmta i
Súlnasal. Lokaö i Atthagasal.
Sunnudagur. Otsýnarkvöld i
Súlnasal, lokað i Atthagasal.
Hótel Borg:
Hljómsveit Arna tsleifs og
Linda Walker skemmta um
helgina.
Tónahær:
Föstudagur. Hljómsveitin Ýr
frá tsafirði leikur. Lokað
laugardagskvöld.
Klúbburinn:
Föstu- og laugardagskvöld.
Hljómsveit Guðmundar Sigur-
jónssonar og Kaktus. Sunnu-
dagskvöld. Hljómsveitin Ýr og
Dvnamit.
Rööull:
Hljómsveitin Bella Donna
skemmtir föstudags- og laugar-
dagskvöld. Stuðlatrió leikur
sunnudagskvöld.
Tjarnarbúð:
Lokaðyfir helgina vegna einka-
samkvæma.
Lindarbær:
Gömlu dansarnir á laugardags-
kvöld. Hljómsveit Itúts Kr.
Hannessonar og Jakob Jónsson
skemmta.
Sigtún:
Pónik og Einars skemmta
íöstudags- og laugardagskvöld.
Drekar leika fvrir gömlu
dönsunum sunnudagskvöld.
Glæsibær:
Asar leika um helgina.
Leikhúskjallarinn:
Skuggar leika um helgina að
venju.
Skiplióll:
Hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar skemmtir vfir helgina.
Óðal:
Diskótek
Sesar:
Diskótek..
Ungó. Keflavik:
Haukar leika föstudagskvöld.
Festi, Grindavik:
Ýr og Kabarett skemmta
laugardagskvöld.