Vísir - 05.03.1976, Qupperneq 3
3
vism Föstudagur 5.
mars 1976
Samkomusalur Austurbæjarskólans er uppi á lofti i suðurálmunni. Gefur þetta nokkra mynd af þvi
hvernig aðbúnaður skóladagheimilisins kemur til með að vera ef af verður framkvæmdum Aðal-
álman er alimikiu stærri. ., '
L^ósmynd JIM
Tillaga frœðsluráðs:
Skóladagheimili á lofti
Austurbœjarskólans
Þarna er að visu lágt undir
loft, en ég geri ráð fyrir þvi, að
innrétta mætti þetta húsnæði til
þessara afnota. Ég hef að visu
ekki gaumgæft þctta mál og það
er auðvitað heilbrigðisy fir-
valda, slökkviliðsstjóra og
skólayfirvalda að kveða á um
það.
Á þessa leið fórust Kristjáni
Gunnarssyni, fræðslustjóra orð
þegar Visir innti hann álits á til-
lögu fræðsluráðs um að hafa
skóladagheimili á lofti Austur-
bæjarskólans. Var hann með-
mæltur þessari tillögu.
Tillaga fræðsluráðs er á þessa
leið: „Vegna mikillar þarfar
fyrir skóladagheimili i Austur-
bænum og vegna erfiðleika fé-
lagsmálaráðs við að finna hús-
næði fyrir það i þvi hverfi, og
þar eð á lofti Austurbæjarskól-
ans er litt nýtt ca. 500 fermetra
húsnæði, samþykkir fræðsluráð
að láta kanna, hvort þarna megi
ekki innrétta og koma fyrir
skóladagheimili þvi, sem borg-
arstjórn hefur ákveðið að koma
upp i Austurbænum.
•Jafnframt telur fræðsluráð
rétt að kannað sé, hvort ekki sé
hagkvæmt að tengja skóladag-
heimili meira skólunum i borg-
inni. Samþykkir fræðsluráð að
fela fræðslustjóra að kanna
hvort áhugi sé fyrir hendi á
þessari lausn.”
I greinargerð með tillögunni
segir að húsnæði þetta sé rúm-
gott, hægt sé að hafa sér inn-
gang frá Vitastig og hugsanleg-
ur aðgangur gæti verið að leik-
svæði, sundlaug, bókasafni o.fl.
Þá segir að flutningsmaður til-
lögunnar hafi haft óformlegt
samband við skólastjóra Aust-
urbæjarskólans, slökkviliðs-
stjóra og borgarlækni og sjái
þeir ekki neina annmarka á
þessum notum húsnæðisins.
Sjálfsögö réttlætiskrafa.
Skólastjóri Austurbæjarskól-
ans hefur skilað áliti til fræðslu-
ráðs og er málið nú i höndum fé-
lagsmálaráðs.
— Mér finnst þetta sjálfsögð
réttlætiskrafa, ekki einungis
fyrir þennan skóla heldur alla
skóla, sagði Hjalti Jónasson,
skólastjóri Austurbæjarskólans.
Sagði hann að sér þætti það
synd að á meðan þörfin væri
mikil fyrir dagheimili i borginni
en húsnæðisskortur mikill, þá
stæði allt þetta húsnæði ónotað.
Að visu hefur Eyjólfur Eyfelis
þarna smávægilega aðstöðu en
að mestu er loftið þakið gömlu
dóti, sem er að mestu leyti
ruslahaugsmatur að sögn
Hjalta, nema kannski kjörkass-
arnir, sem þarna eru geymdir.
—VS
Frœðsluróð um íþróttahús fyrir Hlíðaskóla og Hamrahlíðarskóla
EINN STOR HAGKVÆM-
ARI EN TVEIR LITLIR
Þeirri hugmynd hefur verið hreyft I fræðsluráði,
að væntanlegt iþróttahús við Hamrahliðarskóla
verði reist með sameiginleg afnot iþróttasalarins
við Hlíðarskóla I huga.
— Þetta er þó aðeins hugmynd en ekki tillaga
fræðsluráðs, sem samþykkt var að leita eftir um-
ræðum við menntamálaráðuneytið um, sagði
Kristján Gunnarsson, fræðslustjóri i samtali við
Visi.
— Hugsunin er sú, sagði Kristján, að i staðinn
fyrir að gera ráð fyrir iþróttasal i viðbótarhúsnæöi
fyrir Hliðaskóla, verði sameiginleg aðstaða i
iþróttahúsi menntaskólans. Salnum þar mætti
skipta i tvennt eða þrennt eftir atvikum með lausum
skilrúmum, sem þá gæti nýst sem einn stór til
stærri iþróttamóta.
Hvenær væntanlegt iþróttahús ris er ekki ákveð-
ið, er það háð fjárveitingavaldi Alþingis.
— Það er að minnsta kosti ekki inn á fjárlögum
þessa árs, sagði Kristján. —-VS
Ólafur sótti ekki
dómþing og eng
inn fyrir hann
Ólafur Jóhanncsson, dóms-
málaráðherra sótti ekki dóm-
þing, við þingfestingu máls
þess, sem ritstjóri og þrir
stjórnarmanna úr útgáfustjórn
Visis höfðuðu á hendur honum.
Enginn mætti heldur fyrir hans
hönd.
Við þingfestingu lögðu stefn-
endur fram málsskjöl sin.
• ••
Málið var þvi dómlekið að
kröfu stefnenda og verðurdæmt
á framlögðum gögnum að svo
miklu leyti sem þau fara ekki i
bága við landslög.
Óvenjulegt er svo ekki sé
meira sagt, að ekki sé sótt þing
af hálfu stefnda i mciðyrðamáli.
Eru þess fá ef nokkur dæmi.
— VS
Fjórir nýir
olíutonkar
í Örfirisey
Hafnarstjórn hefur
fallist á gerö sameigin-
legrar lóöar Olíufélagsins
h/f og Olíufélagsins
Skeljungs fyrir f jóra 7800
rúmmetra olíugeyma á
nýju landsvæði suðvestan
við núverandi stöðvar fé-
laganna í örfirisey.
Mál þetta er nú til um-
fjöllunar hjá skipulags-
yfirvöldum og umhverf-
isráði Reykjavíkurborg-
ar. Er siglingamálastjóri
að kanna hvort fyrirhug-
aður frágangurá tönkun-
um sé fullnægjandi/ en
gert er ráð fyrir þró í
kringum tankana, sem á
aðgeta tekið við innihaldi
eins tanks.
Getur haft áhrif á stað-
setningu oliuhafnar
„Þessi ákvörðun getur haft
áhrif á staðsetningu oliuhafn-
ar,” sagði Ólafur B. Thors for-
maður hafnarnefndar Reykja-
vikurborgar er hann var spurð-
ur hvaða áhrif þetta myndi hafa
á legu oliuhafnar sem rætt hefur
verið um að gera i Reykjavik.
„Enn er ekki ákveðin stað-
setning oliuhafnarinnar enda er
nú unnið að endurskoðun aðal-
skipulags. Hins vegar hefur
verið rætt um ýmsa staði svo
sem Geldinganes.
Það að reistir eru fleiri tankar
i örfirisey getur orðið til þess að
höfninni verði endanlega valinn
staður i örfirisey. Jafnvel getur
svo orðið i framtiðinni að lagður
verði garður út i Engey.”
SJ/EKG
Aldarafmœlis Ásgríms
Jónssonar minnst
í tilefni af þvi að i gær voru liöin
hundrað ár frá fæðingu Ásgrims
Jónssonar, listmálara, eftir
Reykjavikurborg í samvinnu við
Ásgrimssafn til yfirlitssýningar á
vcrkum hans. Verður sýningin
opnuð á morgun laugardag á
Kjarvalsstöðum.
Þetta er stærsta sýning, sem
haldin hefur verið hér á landi á
verkum eins málara. Myndirnar
eru 274 talsins og eru þær allar úr
Asgrimssafni, sem var dánargjöf
listamahnsins til þjóðarinnar.
Ásgrimur Jónsson varð fyrstur
islendinga til að gera málaralist
að ævistarfi sinu eingöngu. Þegar
hann andaðist árið 1958 voru i
safni hans 192 fullgerð oliumál-
verk og 277 fullgerðar vatnslita-
myndir, auk ófullgerðra mynda
frá ýmsum timum og fjölda þjóð-
sagnateikninga. Siðan hafa safn-
inu borist að gjöf frá ýmsum aðil-
um 6 myndir, sem Ásgrimur mál-
aði um aldamótin, þar á meðal
elsta mynd listamannsins máluð
þegar hann var 15 ára.
Yfirlitssýningin mun standa
nokkrar næstu vikur og hyggst
borgin gangast fyrir tveim
Mozart-tónleikum i vestursal
Kjarvalsstaða á meðan á sýning-
unni stendur, en Asgrimur var
mikill unnandi tónlistar og hafði
hann sérstakar mætur á tónverk-
um Mozarts. Verða tónleikarnir
auglýstir sérstaklega, þegar þar
að kemur.
—SJ
Næturhólf
Þaö er ætið óvarlegt aö geyma peninga eða aðra fjármuni í misjafnlega traust-
um geymslum, - hvort sem þær eru i heimahúsum eöa á vinnustaö.
Meö næturhólfum veitir Landsbankinn yður þjónustu, sem er algjörlega öháö
afgreiöslutíma bankans. Þjónusta þessi hentar bæöi fyrirtækjum og einstakling
um; gerir yöur mögulegt að annast bankaviöskipti á þeim tíma sólarhringsins,
sem yður hentar best; sparar yöur fyrirhöfn; tryggir yöur trausta og örugga
geymslu á fé og fjármunum.
Kynnið yður þjónustu Landsbankans.
UNDSBANKI ÍSLANDS
LANDSBANKINN
Vidskipti allan sólarhringinn