Vísir - 05.03.1976, Síða 5
vism Föstudagur 5. mars 1976
5
Rosi fer á sjóskíði á sumrin
Hvað gerir Rosi Mittermaier,
tvöfaldur ólympiumeistari á
skiðum á sumrin þegar lítinn
snjó er að finna? Nú, hún fer
auðvitað á sjóskiði!
Rosi sleppir þó ekki alveg hin-
um skiðaæfingunum, þvi hún
bregður sér við og við á þá
skiðastaði i Vestur-Þýskalandi
sem opnir eru á sumrin. >ai æf-
ir hún af mikilli hörku.
Yfirleitt hafa myndir af Rosi
verið frá skiðamótum, þar sem
hún er klædd vigalegum skiða-
búningum, svo aðeins sést i
glaðlegt andlitið. En þessi
hnellna skiðakona, sem nú er
eftirlæti allra landa sinna, kann
einnig að slappa af i sólinni —
einsogsjá máástóru myndinni.
Ólafur Hauksson
skrifar:
Lœtur kunnuglega í eyrum
Við rákumst á þetta lesenda-
bréf i norska blaðinu Verdens
Gang. Það er skrifað á gamal-
norsku, sem hefur mörg orð og
orðatiltæki lik islensku. Auðvitað
er meginhluti málsins orð sem
ekki finnast i islensku. En þarna
koma fyrir nokkur sem láta kunn-
uglega i eyrum — vitlaust —
VITLAUST FYLLEPRAT
undrast — ved högljos dag —
fylgjesveinen — ofselege — meir
er ikkje a segja — samanblanding
o.s.frv.
En það er best að láta lesendum
eftir að ráða fram úr bréfinu,
þrátt fyrir að letrið sé i smærra
lagi.
m
Árbœjarhverfi
Æskulýðsráð boðar til almenns fundar i
Árbæjarhverfi föstudaginn 5. mars. Fund-
urinn verður i samkomusal Árbæjarskóla
og hefst kl. 20.30.
Fundarefni: Félagsmiðstöð i Árbæjar-
hverfi, kynning og umræður.
/Eskulýðsráð Reykjavíkur
Útboð
Tilboð óskast i smiði á gufuskiljum, raka-
skiljum og hijóðdeyfi vegna Kröfluveitu
fyrir Orkustofnun.
Útboðsgögn verða afhent gegn 5.000 kr.
* skilatryggingu hjá Virki h.f., Verkfræði-
stofu Guðmundar og Kristjáns, Laufásveg
19 og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen
s.f., Ármúla 4, Reykjavik.
Tilboðum skal skilað 22. marz 1976.
Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen s.f.
Nóg að gera
hjá Liv Ullmann:
Liv Ullmann er þessa dagana
að ieggja siðústu hönd á bók, sem
hún hefur veríð að skrifa undan-
farin ár. Bókin hefur fengið nafn-
ið „Breytingin”, og verður gefin
út í september, samtimis i Dan-
mörku, Noregi og Sviþjóð.
Liv hefur siðustu vikur dvalist i
heimalandi sinu Noregi, og leikið
i leikriti eftir O’Neill i Oslo Nye
Teater.
Upphaflega miðaði Liv aðeins
við norskan markað, þegar hún
hóf að skrifa bók sina. En mikill
frami hennar i Bandarikjunum,
bæði fyrir leik i kvikmyndum og á
leiksviði, hefur valdið þvi að hún
miðar meir við aljóðlegan les-
endahóp. Vegna vandkvæða við
þýðingu kemur bókin þó ekki út i
Bandarikjunum fyrr en snemma
á næsta ári. Bóksölumenn búast
við mikilli sölu á bók Ullmann, og
hafa fjölmargir útlendir útgef-
endur lagt leið sina til ósló til að
tryggja sér útgáfurétt.
Liv Ullmann fer aftur til
Bandarikjanna i april, til að vera
viðstödd frumsýningu kvikmynd-
arinnar „Augliti til auglitis”.
Þegar hún kemur heim aftur,
hekiur hún áfram að leika i Nye
Teater.
Liklega verður nóg að gera h já
henni, þvi einnig eru i bigerð
upptökur á nýrri mynd hjá Ing-
mar Bergman.
— En ég veit ekki nákvæmlega
hvenær upptökur hefjast, þvi það
sem hefur gerst að undanförnu
vegna skattarannsóknanna hefur
valdið einhverjum breytingum.
Liklega seinkar þeim eitthvað,
segir Liv.
Sem kunnugt er fékk Bergman
svo herfilega á baukinn hjá
sænskum skattayfirvöldum að
hann lagðist sjúkur.
Liv hefur fengið tilboð um að
leika á Broadway næsta vetur. —
Ég býst við að taka þvi, segir hún.
Það þýðir að mörg tilboð sem
liggja fyrir um kvikmyndaleik i
Bandarikjunum verða látin sitja
á hakanum enn um sinn.
^KIammer heldur
sér í œfingu
Austurriski skiðamaðurinn
Franz Klammer, sem vann gull
á siðustu Ólympiuleikum, á þrjú
aðaláhugamál — auk skiða-
iþróttarinnar að sjálfsögðu.
Mótorhjól, skógarhögg og
kvenfólk — i þessari röð. A
sumrin þeysir hann um egg-
sléttar hraðbrautir Evrópu, eða
upp beygjur Alpanna á ein-
hverju þriggja mótorhjóla
sinna.
— Maður verður að halda
hraðanum, segir skiðamaður-
inn.
Skógarhögg kemur næst. —
Þetta er mjög sérstakt áhuga-
mál, og ég nýt þess að höggva
tré. Auk þess þjálfar maður lik-
amann á þvi.
Númer þrjú: kvenfólk.
— Maður verður að halda sér
i æfingu, segir Klammer.
Hann hefur nokkrum sinnum
veriðkærðurfyrir aðhafa mari-
juana i fórum sinum, en ekki
verið strangt á þvi tekið. En lög-
reglan gerði fyrir stuttu húsleit
heima hjá honum, í lúxusviliu
hans i Hollywood. Þar
fundust ýmsar
tegundir fikni- [
efna, i nokkru |
magni.
Lögfræðingur 5
O’Neal bað uml
að hann fengií
aðeins skil-f
orðsbundinn
dóm. A það var|
fallist, með þvii
skilyrði þó aðj
leikarinn sækti’
skaðsemi fikniefna. Leikarinn
samþykkti, og verður nú i sex
mánuði að sækja nær daglega
fyrirlestra um óhollustu fikni-
efna og skaðsemi þeirra.
Samúðin er öll
Ryan O'Neil dœmdur með Bergman
Kvikmyndaleikarinn Ryan
O’Neal fékk nýlega skilorðs-
bundinn dóm fyrir að hafa á
heimili sinu umtalsvert magn
fikniefna.
Samúðin er öll með Inginar
Bergmann vegna krafna
sænskra skatty firvalda um
greiðslur í rikissjóð sem Berg-
mann segist ekki hafa haft hug-
mynd um að hann ætti að borga.
Málið fær næstum jafn mikið
rúm i enskum og ameriskum
blöðum og væntanleg úthlutun
Óskarsverðlaunanna. Frægir
leikarar og leikstjórar gefa út
harðorðar yfirlýsingar um með-
ferðina á kollega sinum. Allir
eru sammála um að sviar séu
stórbilaðir — nema Bergmann
auðvitað.
Leikkonan Shirley MacLaine
er i fararbroddi mótmælafólks-
Hvernig er hægt að auðmýkja
jafn ágætan listamann á þennan
hátt. Ingmar Bergman er besta
auglýsing sem Sviþjóð fær. en
hvað er honum svo gert? spyr
þessi herskáa leikkona.
— Það hlýtur að vera íerlegt
skrifstofuveldi sem heldur að
besti kvik-
myndafram-
leiðandi heims
geymi peninga
undir koddan-
um. Skrifstofu-
veldi sém veit
ekkert um fólk-
ið, heldur fer
bara eftir regl-
unum. Stórbiluð
þjóð! þrumar
MacLaine.