Vísir - 05.03.1976, Síða 11

Vísir - 05.03.1976, Síða 11
Aldarafmælis Ásgríms Jóns- sonar minnst á veglegan hátt í tilefni aldarafmælis Ásgrims Jónssonar, listmálara, 4. mars, verður opnuð yfirlitssýning á verkum hans á Kjarvalsstöðum n.k. laugardag. Reykjavikurborg stendur fyrir þessari sýningu i sam- vinnu við Ásgrimssafn. Birgir isleifur Gunnarsson, borgarstjóri, segir m.a. i sýningarskrá: „Asgrimur Jóns- son var brautryðjandi i islenskri myndlist. Hann var að visu ekki fyrsti islenski myndlistarmað- urinn, en hann flutti með sér ferskan andblæ og lifsþrótt i is- lenskt myndlistarlif. Með verk- um sinum þroskaði hann þekk- ingu landsmanna á myndlist, og yngri mönnum varð hann fyrir- mynd og aflgjafi, en margir okkar bestu listamanna, sem á eftir honum komu, nutu leið- sagnar hans, áður en'þeir heldu utan til náms.” Á sýningunni eru eingöngu verk úr Asgrimssafni, og er meginþorri þeirra dánargjöf listamannsins til þjóðarinnar. Þetta mun vera stærsta sýning, sem haldin hefur verið hér á landi á verkum eins listamanns. i báðum sölum Kjarvalsstaða, kaffistofunni og göngum eru 274 verk og mun það vera um 2/3 hlutar heildarsafnsins. i sýningarnefndinni, sem sá um val myndanna og uppsetn- ingu eru listamennirnir Þor- valdur Skúlason, Guðmundur Benediktsson og Hjörleifur Sigurðsson. Auk þeirra er i nefndinni Bjarnveig Bjarna- dóttir, safnvörður Asgrims- safns. Bjarnveig er frænka listamannsins og hefur hún haft umsjón með safninu frá þvi að Asgrimur lést árið 1958. Hjörleifur Sigurðsson sagði blaðamanni Vísis, að sýningar- nefndin hefði valið þann kostinn að skipa myndunum eftir mótif- um. Þannig skiptist sýningin i nokkrar deildir og eru myndir frá Húsafelli saman i einni deild, i annarri eru eldgosa- myndir, þá er Þingvalladeild, Þjóðsagnadeild, myndir frá gömlu Reykjavik, svo nokkuð sé nefnt. Eru oliumálverk og vatnslitamyndir hlið við hlið og ber ekki á öðru en að það fari vel, þótt það sé heldur óvana- legt. Bjarnveig Bjarnadóttir sagði, Elsta mynd, sem til er eftir Asgrim Jónsson. Þessi mynd var safninu gefin nýlega og mun lista- maðurinn hafa málað hana cftir hugmynd 14 ára gamall. að Asgrimur hefði málað mikið gömlu Reykjavik, meðan þar rikti ró og friður. Hins vegar hefði hann litið gert af þvi hin siðari ár og þá helst útsýnið út um gluggann sinn á Bergstaða- strætinu. Að sögn Bjarnveigar eru á þessari sýningu um 120 myndir úr vinnubókum og möppum listamsnnsins og hefðu þær ekki verið sýndar áður. Ásgrimur Jónsson var mikill unnandi sigildrar tónlistar og átti hann gott plötusafn. Mest dálæti hafði hann á verkum Mozarts og mun borgin gangast fyrir tveim Mozart-tónleikum að Kjarvalsstöðum á meðan á sýningunni stendur. Sýningin verðuð opnuð að viðstöddum boðsgestum kl. 3 á laugardaginn og verður hún öll- um opin kl. 5. Er ætlunin að sýn- ingin standi i nokkrar vikur. Hér er svo siðasta mynd Asgrims. Þetta er þjóðsagnamynd, teiknuð með bleki og blýanti og vann listamaðurinn að henni 4 dögum áður en hann dó. HAFNARFJÖRÐUR OG KEFLAVÍK sameinast í söng Karlakór Keflavikur og Karlakórinn Þrestir i Hafnarfirði efna til óvenju fjölbreyttra tónleika um helgina. Verða þeir haldnir i Bæjarbiói, Hafnarfirði, i kvöld 5. mars og i Fé- lagsbiói, Keflavik á morgun, laugardag Auk framangreindra kóra, og sameiginlega, munu koma sem syngja bæði sitt i hvoru lagi fram blandaður kór frá Haínar- firði, tvöfaldur kvartett frá Keflavik og einsöngvararnir Inga Maria Eyjólfsdóttir, Hafn- arfirði oe Haukur Þórðarson, Keflav syngja einsöng og tvisöng. Stjórnendur kóranna eru Gróa Hreinsdóttir og Eirikur Sigtryggsson og undirleikarar eru m.a. Agnes Löve, Gróa Hreinsdóttir og Ingvi Steinn Sigtryggsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.