Vísir


Vísir - 01.07.1976, Qupperneq 6

Vísir - 01.07.1976, Qupperneq 6
Fimmtudagur 1. júll 1976 VISIR Vilja fyrirbyggja kjarn- orkustríð í misskilningi Frakkland og Sovétrlkin hafa gert með sér samkomulag um leiðir til að hindra að annað rikið geri kjarnorkuárás á hitt — fyrir slysni. Valery Giscard d’Estaing, for- seti, skýröi frá þessu samkomu- lagi I gær, en skýrði það ekki i einstökum atriðum. Samkomu- lagið verður formlega undirritað á næstu vikum. Bandarikin og Sovetrikin hafa fyrir löngu komið sér saman um ýmsar leiðir til að hindra kjarn- orkuárás fyrir slysni. Meðal ann- ars er i þvi hin svonefnda „heita Bæði rússar og bandarikja- menn hafa haft af þvi nokkrar á- lina” milli Moskvu og Washing- ton. Margir hernaðarsérfræðingar óttast að kjarnorkustrið kunni að hefjast fyrir slysni og misskiln- ing. Eftir þvi sem fjölgar i kjarn- orkuklúbbnum, aukast likurnar á þessu. Eyðingarmáttur stórveld- anna er nú svo gifurlegur að flest- ir telja útilokað að þau fari i kjarnorkustríð af ásettu ráði. I slikri viðureign yrði enginn sigur- vegari. hyggjur að kinverjar reyndu að milli þeirra og meðal annars koma af stað kjarnorkustriði þessvegna var heita linan lögð. Hitabylgja í Evrópu Meðan íslendingar rölta um undir rigningar- himni hafast menn i Mið-Evrópu við i sundlaug- um sinum eins mikið og þeir geta, vegna hita- bylgjunnar. Þessir herramenn i Munchen geta lik'íí vpitt Q#^r lskíílHíin hinr f-rá "RínioralQnHi Svindl f ólympíu- þorpi Montreals Sjö menn, sem átt hafa hlut i þvi að reisa óiympiuþorpið i Montreal, verða kall- aðir fyrir rétt i ágúst skömmu eftir lok Ólympiuleikanna. Þeim er gefið að sök að hafa átt þátt i þvi að svindla 370 þúsund dollara út úr undirbún- ingsnefnd leikanna. Þarna er um að ræða fjóra forstjóra, tvo arkitekta og einn byggingaráðunaut fyrirtækis, sem reisti þorpið, 90 milljón dollara verk. í ákærunni er sagt, að menn- irnir hafi falsað kostnaðar- reikninga arkitektanna. Þessi ákæra fylgir i kjölfar umfangsmikillar rannsóknar, sem gerð var vegna óhóflegrar hækkunar byggingarkostnaðar ólympfuþorpsins. f nóvember i vetur gerði lögreglan húsleit i' 50 skrifstofum Zarolega-sam- steypunnar og undirverktaka hennar og hafði á brott með sér bilhlöss af skjölum. Aætlaður byggingarkostnaður þorpsins hafði verið 30 milljón dollarar. Loftbelgs leitað Bandariska landhelgis- gæslan hefur hafið leit að 27 ára bandarikjamanni sem lagði upp i' loftbelg siðast- liðinn föstudag og ætlaði yfir Atiantshafið. Hann lagði upp frá New Jersey. Sfðast heyrðist til hans á sunnudag, en þá var talið að hann væri 900 mílur fyrir aúslan New Jersey. Leit úr lofti hófst i gær, en bar ekki árangur. Skip ogflugvélarmunu svo halda áfram leitinni i dag. Kunningjar loftbelgsflug- mannsins segja að karfa belgsins eigi að fljóta á vatni og eru vongóðir um að hann finnist. Gyðingum bannað að biðja ísraelskur dómstóll kvað i gær upp þann úr- skurð að gyðingum sé ó- heimilt að biðjast fyrir á Musterishæðinni. Þar með er hnekkt öðrum úrskurði, sem olli mikilli ólgu með aröbum fyrr á þessu ári. A siðasta ári reyndu átta ungir gyðingar að biðjast fyrir á þess- um stað, sem er helgur bæði gyð- ingum og múhameðstrúarmönn- um. Þeir voru leiddir .fyrir rétt, en sýknaðir. Múhameðstrúarmönnum þótti að sér sorfið og það urðu óeirðir I Jerúsalem og viöa á vesturbakka árinnar Jórdan. Rikissaksóknarinn I ísrael sagði i útvarpsviðtali i gær að það væri nú ákveðið að gyðingar mættu ekki biðjast þarna fyrir. Lögreglan hefði rétt til að beita valdi til að hindra slikar bæna- samkomur. Þegar israelar hertóku Jerúsalem i sex daga striðinu 1967, veittu þeir múhameðstrúar- mönnum leyfi til að biðjast fyrir á hæöinni. Gyðingar voru hins veg- ar takmarkaðir við grátmúrinn. A Musterishæðinni eru tveir mestu helgidómar múhameös- trúarmanna, Al-Agsa og Omar moskurnar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.