Vísir - 01.07.1976, Síða 10

Vísir - 01.07.1976, Síða 10
Fimmtudagur 1. júlí 1976VISIR Utburður vegna háreysti og svalls Reykjavikur og siðar Hæstarétti. Málavextir. Geröarbeiðandi var eigandi aö hálfri húseign á móti móöur geröarþola. Geröarbeiöandi bjó á efri hæð hússins ásamt konu sinni og fimm börnum. Geröar- þoli hafði hins vegar til afnota neðri hæð húseignarinnar en aðilar höfðu báöir afnot af geymslum i kjallara. Gerðarbeiðandi kveður snemma hafa farið að bera á þvl I rlkum mæli að geröarþoli og ýmsir er til hans hafi sótt, hafi haft I frammi háreysti og svall, jafnt daga sem nætur. Hafi þar verið íramin peningaspil, drykkja og áflog og hafi hávaði og margs konar annaö ónæði af þessum völdum gert sér og fólki sinu illmögulegt að búa I húsinu, þar sem enginn næturfriður hafi fengist nótt eftir nótt. Þá hafi ýmiskonar óspektir og ósiðsemi verið höfð I frammi fyrir utan húsið og stafað frá gestum gerðarþola og öðrum er kröfðust þar inngöngu. Lög- regla kom oft á vettvang til að skakka leikinn og þurfti gerðar- beiðandi iðulega aö sækja lög- reglu til þeirra hluta. Gerðarbeiðandi geröi itrekaö- ar tilraunir til að fá bætt úr þessu ástandi og sneri sér m.a. munnlega til sameiganda sins og tvívegis skriflega en án árangurs. Afrit af framan- greindum bréfum sendi geröar- beiðandi til geröarþola. Gerðar- beiðandi áleit þetta framferði gerðarþola algjörlega ólögmætt gagnvart sér og ritaði þvi bréf til fógetaréttar Reykjavikur og krafðist útburðar á gerðarþola. Nokkur vitni voru leidd I mál- inu. eitt þeirra, nágranni gerðarbeiðanda, sem tvivegis hafði kært til lögreglunnar vegna ónæðis af völdum gerðar- þola skýrði svo frá að sumir ibúar I húseign hans hefðu oft ekki haft svefnfrið fyrir gerðar- þola og gestum hans nótt eftir nótt. Hafi gerðarþoli og gestir hans setiö að spilamennsku og drykkju eftir að rökkva tók og þeirri Iþrótt gjarnan lokið með almennum ryskingum. Þá hafi húsið að næturþeli veriö lamið utan af mönnum, meira eöa minna ölvuðum, sem fýst hafi að taka þátt i leikjum innan dyra. Framburður vitna var mjög á sama veg. Þó bar þessum vitn- um saman um að hlé hafi stund- um orðið á ólátum þessum og játaði geröarbeiðandi það einn- ig. Jafnvel hafi það komið fyrir að gerðarþoli bæði sjálfur um lögregluaðstoð gegn gestum sinum. t málinu voru lögð fram vott- orð lögregluþjóna um hjálpar- beiönir vegna illdeilna meðal gesta gerðarþola út af spilum og vegna ölæðishávaða af þeirra völdum. Dómkröfur og málsástæður. Eins og áður sagði kraföist gerðarbeiöandi útburðar á geröarþola og studdi kröfu sina þeim sjónarmiðum að framan- greind háttsemi gerðarþola væri algjörlega ólögmæt gagn- vart sér. Gerðarþoli mótmælti gerðinni aðallega á þeim grundvelli aö gerðarbeiðanda skorti aðild til þess að fara einmneð mál þetta þar sem hann væri ekki einn eigandi hússins. Vitnaði hann sérstaklega til bréfs móður sinnar til gerðarbeiöanda þar sem hún neitaði að ljá honum atbeina til málareksturs þessa. Móöir gerðarþola geröist meöalgönguaðili I málinu og mótmælti framgangi gerðarinn- ar. Niðurstaða fóegeta- réttar Reykjavikur. 1 úrskurði fógetaréttar Reykja- vikur segir að meö framburði vitna svo og öðru er fram hafi komið I málinu verði aö telja sannað, að gerðarþoli hafi gerst sekur um stórkostlegan og vlta- verðan ójöfnuð gagnvart gerðarbeiðanda. Ekki skipti neinu máli, hvernig sameign gerðarbeið- anda og móður gerðarþola að húsinu sé nánar varið eöa hvernig afnotaskiptingu að hús- inu sé háttað. Ekki skipti það heldur máli I þessu sambandi, hvort móöir gerðarþola taki þátt I rekstri málsins eöa ekki. Hitt sé víst að gerðarbeiðandi hafi tvlvegis skorað á hana aö skerast I leikinn gagnvart óþol- andi framferði af völdum gerðarþola en hún hafi neitað aö skipta sér nokkuð af þvl máli. Hafi hún þannig gerst meðsek gerðarþola um framangreind réttarbrot hans gagnvart gerðarbeiðanda og verði á eng- an hátt taliö að henni sé heimilt eðli máls samkvæmt að mis- beita þannig sameignarrétti sinum yfir húseigninni. Komst fógetaréttur Reykja- vlkur þannig að þeirri niður- stöðu að leyfa bæri framgang gerðarinnar. Dómur Hæstaréttar. í dómi Hæstaréttar er um það fjallað að sameign gerðarbeið- anda og gerðarþola að umræddu húsnæði hafi verið svo háttað að gerðarþoli hafi haft eignarráð efri hæðar hússins en móðir geröarþola neðri hæðar og bæöi 'hafi" ha’ft umráð og áfnot' kjá'll- ara. Af réttarsambandi þeirra vegna sameignarinnar leiöi, að þeim beri skylda til að stuðla að þvl eftir megni, að hvort þeirra geti ótruflað hagnýtt sér sinn hluta hússins á eðlilegan og lög- mætan hátt. Nú sé það leitt I ljós I máli þessu að gerðarþoli og þó eink- um menn þeir, sem hann hleypti innl húsið, hafi haft þar I frammi sllka háreysti, svall og ósiðlegt atferli, bæði að degi og nóttu, að heimilisfriði gerðar- beiðanda og högum hans hafi verið stórkostlega raskað. Sé honum ekki skylt að búa undir sliku. Þar sem móðir geröarþola hafi ekki viljað veita gerðar- beiðanda atbeina til að létta þessum ófögnuði af húsinu, sé honum sjálfum heimilt að hefj- ast handa og fá hjálp dómstóla til að bera út þá, sem óspektum valda. Með visan til framanritaðs tekur Hæstiréttur kröfu gerðar- beiðanda til greina. Strandanir vegna mistaka tiðar íslenskir binqmenn i vandrœðum veana „styrialdar" 10 f Þórður Gunnarsson ^ ^lögfræðingm^skrifar^ — Gerðarbeiðandi var meðeigandi að hólfri efri hœðinni — Gerðarþoli hafði hins vegar afnot af neðri hœðinni — Snemma fór að bera ó hóreysti og svalli hjó gerðarþola — Gerðarbeiðandi óleit þetta fram- ferði algjörlega ólögmœtt gagn- vart sér —^-------------1 í málaiokum að þessu sinni er fjallað um út- burðarmál, sem rekið var fyrir fógetarétti Á smærri bátum tiökast það I of rikum mæli, að skipstjórnarmenn yfirgefi stjórnpali og feli mönn- um, sem hvorki hafa réttindi né þekkingu að annast stjórn skip- anna. Þetta kemur fram I nýiít- kominni skýrslu rannsóknar- nefndar sjóslysa. I skýrslunni er brýnt fyrir skip- stjórnarmönnum að nýta sér þá auknu tækni til siglinga, sem fy rir hendi er en að láta það þó ekki verða til þess að slæva eðlilega athygli og árvekni við stjórn skipa. í skýrslunni eru raktar orsakir fimm skipstranda og I öllum til- fellum er þaö álit nefiidarinnar aö mistök I siglingu hafi valdið strandinu. — JOH — „Þetta beindist ekki að mlnum dómi að okkur islendingunum, heldur fyrst og fremst að kana- dfska flugfélaginu, sem við flug- um með. Það kom greinilega fram hjá varðstjóranum hjá Inn- flytjendaeftirlitinu að hann var með þessu að ná sér niðri á kanadamönnum —, kanadlska flugfélaginu.Hann margendurtók það að ef Kanada hefði undirritað samning, ég man ekki hvenær, þá hefðu þeir mátt koma með áritunarlausa transit-farþega.” Þetta sagði Magnús Torfi Olafsson, er Visir spurðist fyrir um vegabréfsvandræði sem Is- lensk þingmannanefiid lenti I I Bandarikjunumeftir heimsókn til Kanada. „Það má segja I og með að við höfum verið fórnardýr I „styrjöld” milli bandarlkja- manna og kanadamanna, en I ljós kom svo, að aðeins eitt flugfélag hafði skrifaö undir samning þennan og það félag er frekar llt- ið. Viö höfðum strax samband við ræðismann tslands I Montreal, sem hafði samband við ræðis- mann Bandarikjanna, sem kom þessum málum strax I lag og hafði samband við Innflytjenda- eftirlitið og lét I Ijós vanþióknun sina á þessu.” Magnús Torfi áleit islendinga ekki hafa bolmagn til þess aö taka upp breytta stefnu i vegabréfs- málum gagnvart bandarlkja- mönnum, en Itrekaði aðsér fynd- ist þetta atvik mjög leiðinlegt, þvl sendinefndin hafði farið héðan i þeirrigóöu trú aö vegabréfsmálin væru öll I góöu lagi. — RJ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.