Vísir - 12.08.1976, Blaðsíða 7

Vísir - 12.08.1976, Blaðsíða 7
,r<V4^: VISIR Fimmtudagur 12. ágúst 1976 og Jón Björgvinsson } Berjast þeir til síðasta manns? — Island og önnur Norðurlönd senda frá sér yfirlýsingu vegna Líbanon Þrátt fyrir tilraunir RauOa krossins liggur enn fjöldi særöra tepptur i flóttamannabúðum paiestinumanna I Tel al-Zaatar. Talið er að aðeins séu um 300 vopnfærir menn i Tel Al-Zaatar flótta- mannabúðunum, sem nú eru rústir einar. Hægrimönnum sem i gærmorgun sögðust ætla aö vinna búöirnar á sitt vald innan tveggja sólarhringa hafði orðið nokkuð ágengt i morgun, en greinilegt var þó að palestinumennirnir i búðunum voru mjög hikandi við að gefast upp. Vatns- og matarskortur er i búðunum og særðir deyja þar lyfja- og læknislausir. Tiu til tólf börndeyja daglega vegna skorts. Þótt palestinumenn og hægri- menn hafi i gær undirritað sam- komulag um brottflutning flótta- manna úr búðunum, virðast flóttamennirnir ekki leggja meiri trúnað á þann samning en fyrri samninga af svipuðu tagi. Svo virðist sem palestinumenn séu nú að berjast til siðasta manns af ótta við að uppgjöf leiði til enn meiri blóösúthellinga. Stjórnir Islands, Danmerkur, Finnlands Noregs og Sviþjóðar hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ástandsins i Libanon. Þarlýsa stjórnirnar yfir samúð sinni vegna þjáninganna, sem al- menningur liður nú i Libanon og eyðileggingarinnar sem fylgt hef- ur i kjölfar bardaganna. Þjóðirnar styðja allar tilraunir til að koma á vopnahléi og vilja á sama tima styðja Rauða krossinn i þvi mikilvæga hjálparstarfi sem hann hefur innt af hendi i þessu striðshrjáða landi. Staðnir að flugráns til- raun Skæruliðar palestinuaraba gerðu i gær tilraun til þess að ræna Ei Al-farþegaþotu á flug- vellinum i Istanbul. Þegar leita átti i föggum farþega, gripu ræn- ingjarnir til vopna sinna og I orrahriðinni féllu fjórir farþegar og þrjátiu særðust. „Mér var ekki leyft Æntgk segir Korchnoi, sem kemur HV I w I Bw$g nú fram úr fylgsni sínu Sovéski stórmeistar- inn i skák Viktor Korchnoi sem verið hefur i felum siðan hann leitaði hælis i Hol- landi i siðasta mánuði Stórmeistarinn Korchnoi, sem farið hefur huldu höfði frá þvi hann beiddist hælis i Hollandi er nú kominn I dagsljósið á nýj- an leik. talaði við f'réttamenn i gærkvöldi. Stórmeistarinn sagði að hann vonaðist til að taka þátt i alþjóð- legum mótum á árinu og heims- meistaramótinu næsta ár. Korchnoi hefur verið veitt landvistarleyfi i Hollandi i sex mánuði og talið er fullvist að hann fái þar áframhaldandi búsetuleyfi. Korchnoi skýrði flótta sinn og sagði: — Siðustu tvö árin fannst mér þrengt að frelsi minu og mér ekki leyft að tefla að vild i Sovétrikjunum. Korchnoi var spurður um fjöl- skyldu sinaogsagðisthann hafa áhyggjur af henni: — Eg hef aflað henni tekna. Nú versnar hagur þeirra til muna. I öðru lagi veit ég ekki hvort þeirra biða nokkur tæki- færi framar i Sovétrikjunum. Korchnoi á eiginkonu og 17 ára son I Leningrad. Bolstrun HARÐAR PÉTURSSONAR Grensásvegi 12 r 20 ara af framleiðsluvörum okkar þessa viku. Sem dæmi: Sófasett sem kostar kr. 295.000.- Fæst gegn staðgreiðslu fyrir kr. 238.950,— 2ja m. svefnsófi sem kostar 79.800 Fæst gegn staðgreiðslu fyrir kr. 64.638.- í því tilefni veitum við 10% aukaafslátt 10% afsláttur á húsgögnum gegn af borgunum. 10% afsláttur á húsgagnaáklæði. 10% afsláttur á húsgagnaleðri. lúsgogn Grensásvegi 12 - Sími 3-20-35

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.