Vísir - 14.08.1976, Side 3
3
VISIR Laugardagur 14. ágúst
1976
Þa& var engin smá steinvala sem innbrotsþjófarnir notuOu til aO
brjóta uppp hurö verslunarinnar i NorOurbrúninni. Steinninn vó um
60 kg. og mölbraut gleriö I hurDinni og dyraumbúnaöinn. Mynd:
Jens.
ÞRÍR INNBROTSÞJÓFAR
GÓMAÐIR Á STOLNUM BÍLUM
Brotist var inn i matvörubúö
viö Norðurbrún 2 um hálf sjö
leytiö i gærmorgun. Voru þar á
fcrö þrir ungir menn, og komust
þeir inn i verslunina meö þvi að
kasla stórum grjóthnullungi i
gegnum dyr verslunarinnar,
sem var úr tvöföldu ein-
angrunargleri. Steinninn var
svo stór, að tvo þurfti til að
henda honum.
Maöur var aö vinna i verslun-
inni er mennina bar þarna aö,
og er þeir uröu hans varir lögöu
þeir á flótta á bíl sem þeir höföu
komiö á. Geröi maöurinn i
versluninni lögreglunní þegar
viövart, og gat lýst bifreiöinni
nokkuö greinilega.
Var þá allt lögregluliö
Reykjavfliur sent út aö leita
bflsins, og fannst hann eftir
nokkra stund. Var þá aöeins
ökumaðuri bilnum, og var hann
talsvert drukkinn. Kom I ljós að
bifreiöinni höföu þeir kumpánar
stolið fyrr um nóttina i gamla
bænum.
Var pilturinn fluttur á lög-
regluvaröstofuna, en jafnframt
hafin leit aö hinum tveimur.
Fundust þeir eftir skamma
stund inn á Kleppsvegi, þar sem
þeir voru að gangsetja bifreið
sem þeir hugðust taka trausta-
taki. Af þvi varð þó ekki, og
voru þeir fluttir á lögreglustöð-
ina.
Piltarnir eru allir rúmlega
tvitugir aö aldri, og hafa a.m.k.
tveir þeirra komist undir
manna hendur áður. Þeir voru
allir undir áhrifum áfengis.
Þess má geta aö báöar bif-
reiðarnar sem þeir þremenn-
ingarnir stálu eru fólksbflar af
gerðinni Ford Cortina, en aö
sögn lögreglunnar nýtur sú teg-
und mikilla vinsælda hjá bfla-
þjófum. Mun þaö vera vegna
þess að auöveldara er aö gang-
setja þær án kveikjulykils en
flestar aðrar bifreiöategundir.
—AH.
Ætla að
krœkja sér
í krœkling
Þeir sem hafa áhuga á a&
gæöa sér á kræklingi munu
eflaustfara með feröafélaginu
Útivist i gönguferö á
kræklingafjörur viö Háls I
Kjós á.morgun.
Lagt verður af stað frá Um-
ferðamiðstöðinni i Reykjavik
klukkan 13. Er miöað viö aö
vera viö Háls á háfjöru.
Að sögn þeirra hjá Útivist
eru ferðir sem þessar mjög
vinsælar og hafa farið upp
undir hundraö manns i þær.
Er hugmyndin að matreiöa
kræklinginn sem fólk t&iir
enda er þetta hinn mesti
herramannsmatur.
Þeir sem ekki hafa áhuga á
göngutúr um fjörur geta fariö
i f jallgöngu á Meðalfell i Kjós.
—EKG.
Einar
Hákonarson
myndlistar-
gagnrýnandi
Vísis
Einar llákonarson mynd-
listarkennari og listmálari
hefur tekið viö störfum sem
myndlistargagnrýnandi VIsis.
Einar er fæddur i Reykjavik
árið 1945. Hann lauk teikni-
kennaraprófi árið 1964 og var
siðan við framhaldsnám við
Valands listaháskólann i
Gautaborg i Sviþjóð, frá 1964
til 1967.
Siðan hann lauk námi hefur
hann unnið sem kennari við
Myndlista- og handiðaskólann
með hléum.
Einar Hákonarson hefur
tekið þátt i fjölda myndlistar-
sýninga bæði hér á landi og er-
lendis. Hefur hann unnið bæði
að svartlist og málun.
Verkfrœðingar fó 40% hœkkun:
„Þaö er alltaf ánægjulegt að
búiö sé aö leysa mál. En þessi
samningur er ekkert til aö
hrópa húrra fyrir. Þetta er
minnsta mögulega hækkun sem
hægt er aö sætta sig viö”, sagöi
Gunnar H Gunnarsson fulltrúi i
samninganefnd verkfræöinga
hjá Reykjavikurborg er Visir
ræddi viö hann.
Tveggja mánaða verkfalli
verkfræðinga lauk i fyrrinótt og
eru þá væntanlega úr sögunni
Ekkert til að hrópa hórra fyrir" — segja verkfrœðingar
n
margs kyns vandræði sem
skapast hafa vegna vinnu-
stöðvunarinnar.
Verkfræðingar munu fá um
40% hækkun. Þannig að 1. mars
siöast liðinn hefur kaup þeirra
hækkað um 6%, 10% frá 1. júli.
Fyrsta október næst komandi fá
þeir 6% hækkun, 3,8% 1. janúar,
5% frá 1. febrúar og 4% frá 1.
júli. Samningur þessi gildir til
10. júli. Visitöluhækkun kemur á
laun eins og hjá öðrum og verði
gengið fellt falla samningar úr
gildi.
Gunnar sagði að hóflega
reiknað hefðu verkfræðingar
hjá borginni verið 20% lægri i
ævitekjum siðasta haust en
starfsbræður þeirra á verk-
fræðistofum. Og ef allt væri
reiknað með væri sennilegri
tala nær 30%. Siðan hefði bilið
breikkað þannig að hækkunin nú
gerði ekki meir en að vega það
upp.
Siöan bar Gunnar saman þró-
un I tekjum verkamanna annars
vegar og verkfræðinga hjá
Reykjavikurborg frá árinu 1967.
„Til þess að launahlutfall héld-
ist svipað og þá þyrftu laun okk-
ar að hækka um 60 til 70 pró-
sent”, sagði hann. „Og til að
halda i við iðnaðarmenn þyrftu
þau að hækka um 80 til 90%.”
Sem dæmi um hækkun sem
yrði hjá verkfræðingum er
störfuðu hjá Reykjavikurborg
nefndi Gunnar að hæstu laun
verkfræðings hjá Reykjavikur-
borg fyrir hækkun hefðu verið
142.517 en væru nú 170.593.
Byrjunarlaun fyrir verkfræðing
sem kæmi beint frá prófborðinu
væru nú 106.631 krónur.
— EKG
„Slœmir samningar"
— segir Albert Guðmundsson formaður
launamólanefndar Reykjavíkurborgar
„Það eru báðir aðilar
óánægöir meö þessa samninga.
Viö álitum þetta slæma samn-
inga og verkfræðingar eru held-
ur ekki ánægöir meö þá”, sagöi
Albert Guömundsson formaður
launamálanefndar Reykja-
víkurborgar er haföi meö samn-
inga við verkfræðinga aö gera
fyrir hönd borgarinnar.
Launamálanefndin klofnaði i
afstöðu sinni til samninganna.
Albert og Markús örn Antons-
son voru fylgjandi þvi að semja
en Kristján Benediktsson og
Sigurjón Pétursson andvigir.
Albért sagöi að verkfræðingar
hefðu farið fram á hærri kaup-
hækkun en samist hefði um.
Ennfremur sagði hann að mjög
hefði legiðá að þessi deila verk-
fræðinga og borgaryfirvalda
leystist. Þvi þó að aðeins hefðu
verið fáir verkfræðingar i verk-
falli hefði það haft áhrif á svo
marga þætti i starfi borgarinn-
ar.
„Það er á grundvelli tillögu
frá sáttasem jara, sem
samningar náðust”, sagði Al-
bert. „Verkfræðingar lögðu
fram tillögu sem viö höfnuðum
og þeir höfnuðu sömuleiðis okk-
ar tillögu. En eftir nokkurt þras
tókust samningar.
Það er óhætt að segja að þetta
hafa verið erfiðir samningar.
Þeir halda vel á sinu og slikt hið
sama reyndum við.”
Albert sagði að kauphækkunin
til verkfræðinga hefði auðvitað i
för með sér útgjaldaaukningu
fyrir borgina. Hve mikla væri
ekki búið aö reikna út. „En ég er
alls ekki ánægður með þessa
samninga”, sagði hann.
E.K.G.
Ekki var knýjandi að semja
„Við töldum þaö ekki knýj-
andi fyrir borgina aö semja”,
sagði Kristján Benediktsson en
hann ásamt öörum fulltrúa i
launamálanefnd Reykjavikur-
borgar Sigurjóni Péturssyni
skrifuöu ekki undir samninga
við verkfræöinga sem undir-
ritaöir voru i gærkvöldi.
— segir Kristjón Benediktsson sem átti sœti í launanefnd borgarinnar
- „Það var ekki kominn slikur
þrýstingur að ástæða væri til að
flýta sér of mikið. Það var að-
eins þrýst á i sambandi við
mælingar”, sagði Kristján.
„Við töldum ekki fært að
semja um svo mikla kauphækk-
un, þar sem nýlega var búið að
semja viö aðra starfshópa um
mun minni kauphækkun. Við
óttumst að samningur af þessu
tagi við tiltölulega fámennan
hóp dragi dilk á eftir sér.”
Telurðu þessa samninga mis-
tök?
„Ég vil ekki orða það svo
sterkt. Reynslan á eftir að skera
úr um þaö. En þetta er ákaflega
varhugavert”.
Kristján minnti loks á að mál-
inu væri ekki lokið.
..Samningarnir eiga eftir að
fara fyrir fund hjá verkfræðing-
um og borgarráði.” — EKG