Vísir


Vísir - 14.08.1976, Qupperneq 3

Vísir - 14.08.1976, Qupperneq 3
3 VISIR Laugardagur 14. ágúst 1976 Þa& var engin smá steinvala sem innbrotsþjófarnir notuOu til aO brjóta uppp hurö verslunarinnar i NorOurbrúninni. Steinninn vó um 60 kg. og mölbraut gleriö I hurDinni og dyraumbúnaöinn. Mynd: Jens. ÞRÍR INNBROTSÞJÓFAR GÓMAÐIR Á STOLNUM BÍLUM Brotist var inn i matvörubúö viö Norðurbrún 2 um hálf sjö leytiö i gærmorgun. Voru þar á fcrö þrir ungir menn, og komust þeir inn i verslunina meö þvi að kasla stórum grjóthnullungi i gegnum dyr verslunarinnar, sem var úr tvöföldu ein- angrunargleri. Steinninn var svo stór, að tvo þurfti til að henda honum. Maöur var aö vinna i verslun- inni er mennina bar þarna aö, og er þeir uröu hans varir lögöu þeir á flótta á bíl sem þeir höföu komiö á. Geröi maöurinn i versluninni lögreglunní þegar viövart, og gat lýst bifreiöinni nokkuö greinilega. Var þá allt lögregluliö Reykjavfliur sent út aö leita bflsins, og fannst hann eftir nokkra stund. Var þá aöeins ökumaðuri bilnum, og var hann talsvert drukkinn. Kom I ljós að bifreiöinni höföu þeir kumpánar stolið fyrr um nóttina i gamla bænum. Var pilturinn fluttur á lög- regluvaröstofuna, en jafnframt hafin leit aö hinum tveimur. Fundust þeir eftir skamma stund inn á Kleppsvegi, þar sem þeir voru að gangsetja bifreið sem þeir hugðust taka trausta- taki. Af þvi varð þó ekki, og voru þeir fluttir á lögreglustöð- ina. Piltarnir eru allir rúmlega tvitugir aö aldri, og hafa a.m.k. tveir þeirra komist undir manna hendur áður. Þeir voru allir undir áhrifum áfengis. Þess má geta aö báöar bif- reiðarnar sem þeir þremenn- ingarnir stálu eru fólksbflar af gerðinni Ford Cortina, en aö sögn lögreglunnar nýtur sú teg- und mikilla vinsælda hjá bfla- þjófum. Mun þaö vera vegna þess að auöveldara er aö gang- setja þær án kveikjulykils en flestar aðrar bifreiöategundir. —AH. Ætla að krœkja sér í krœkling Þeir sem hafa áhuga á a& gæöa sér á kræklingi munu eflaustfara með feröafélaginu Útivist i gönguferö á kræklingafjörur viö Háls I Kjós á.morgun. Lagt verður af stað frá Um- ferðamiðstöðinni i Reykjavik klukkan 13. Er miöað viö aö vera viö Háls á háfjöru. Að sögn þeirra hjá Útivist eru ferðir sem þessar mjög vinsælar og hafa farið upp undir hundraö manns i þær. Er hugmyndin að matreiöa kræklinginn sem fólk t&iir enda er þetta hinn mesti herramannsmatur. Þeir sem ekki hafa áhuga á göngutúr um fjörur geta fariö i f jallgöngu á Meðalfell i Kjós. —EKG. Einar Hákonarson myndlistar- gagnrýnandi Vísis Einar llákonarson mynd- listarkennari og listmálari hefur tekið viö störfum sem myndlistargagnrýnandi VIsis. Einar er fæddur i Reykjavik árið 1945. Hann lauk teikni- kennaraprófi árið 1964 og var siðan við framhaldsnám við Valands listaháskólann i Gautaborg i Sviþjóð, frá 1964 til 1967. Siðan hann lauk námi hefur hann unnið sem kennari við Myndlista- og handiðaskólann með hléum. Einar Hákonarson hefur tekið þátt i fjölda myndlistar- sýninga bæði hér á landi og er- lendis. Hefur hann unnið bæði að svartlist og málun. Verkfrœðingar fó 40% hœkkun: „Þaö er alltaf ánægjulegt að búiö sé aö leysa mál. En þessi samningur er ekkert til aö hrópa húrra fyrir. Þetta er minnsta mögulega hækkun sem hægt er aö sætta sig viö”, sagöi Gunnar H Gunnarsson fulltrúi i samninganefnd verkfræöinga hjá Reykjavikurborg er Visir ræddi viö hann. Tveggja mánaða verkfalli verkfræðinga lauk i fyrrinótt og eru þá væntanlega úr sögunni Ekkert til að hrópa hórra fyrir" — segja verkfrœðingar n margs kyns vandræði sem skapast hafa vegna vinnu- stöðvunarinnar. Verkfræðingar munu fá um 40% hækkun. Þannig að 1. mars siöast liðinn hefur kaup þeirra hækkað um 6%, 10% frá 1. júli. Fyrsta október næst komandi fá þeir 6% hækkun, 3,8% 1. janúar, 5% frá 1. febrúar og 4% frá 1. júli. Samningur þessi gildir til 10. júli. Visitöluhækkun kemur á laun eins og hjá öðrum og verði gengið fellt falla samningar úr gildi. Gunnar sagði að hóflega reiknað hefðu verkfræðingar hjá borginni verið 20% lægri i ævitekjum siðasta haust en starfsbræður þeirra á verk- fræðistofum. Og ef allt væri reiknað með væri sennilegri tala nær 30%. Siðan hefði bilið breikkað þannig að hækkunin nú gerði ekki meir en að vega það upp. Siöan bar Gunnar saman þró- un I tekjum verkamanna annars vegar og verkfræðinga hjá Reykjavikurborg frá árinu 1967. „Til þess að launahlutfall héld- ist svipað og þá þyrftu laun okk- ar að hækka um 60 til 70 pró- sent”, sagði hann. „Og til að halda i við iðnaðarmenn þyrftu þau að hækka um 80 til 90%.” Sem dæmi um hækkun sem yrði hjá verkfræðingum er störfuðu hjá Reykjavikurborg nefndi Gunnar að hæstu laun verkfræðings hjá Reykjavikur- borg fyrir hækkun hefðu verið 142.517 en væru nú 170.593. Byrjunarlaun fyrir verkfræðing sem kæmi beint frá prófborðinu væru nú 106.631 krónur. — EKG „Slœmir samningar" — segir Albert Guðmundsson formaður launamólanefndar Reykjavíkurborgar „Það eru báðir aðilar óánægöir meö þessa samninga. Viö álitum þetta slæma samn- inga og verkfræðingar eru held- ur ekki ánægöir meö þá”, sagöi Albert Guömundsson formaður launamálanefndar Reykja- víkurborgar er haföi meö samn- inga við verkfræðinga aö gera fyrir hönd borgarinnar. Launamálanefndin klofnaði i afstöðu sinni til samninganna. Albert og Markús örn Antons- son voru fylgjandi þvi að semja en Kristján Benediktsson og Sigurjón Pétursson andvigir. Albért sagöi að verkfræðingar hefðu farið fram á hærri kaup- hækkun en samist hefði um. Ennfremur sagði hann að mjög hefði legiðá að þessi deila verk- fræðinga og borgaryfirvalda leystist. Þvi þó að aðeins hefðu verið fáir verkfræðingar i verk- falli hefði það haft áhrif á svo marga þætti i starfi borgarinn- ar. „Það er á grundvelli tillögu frá sáttasem jara, sem samningar náðust”, sagði Al- bert. „Verkfræðingar lögðu fram tillögu sem viö höfnuðum og þeir höfnuðu sömuleiðis okk- ar tillögu. En eftir nokkurt þras tókust samningar. Það er óhætt að segja að þetta hafa verið erfiðir samningar. Þeir halda vel á sinu og slikt hið sama reyndum við.” Albert sagði að kauphækkunin til verkfræðinga hefði auðvitað i för með sér útgjaldaaukningu fyrir borgina. Hve mikla væri ekki búið aö reikna út. „En ég er alls ekki ánægður með þessa samninga”, sagði hann. E.K.G. Ekki var knýjandi að semja „Við töldum þaö ekki knýj- andi fyrir borgina aö semja”, sagði Kristján Benediktsson en hann ásamt öörum fulltrúa i launamálanefnd Reykjavikur- borgar Sigurjóni Péturssyni skrifuöu ekki undir samninga við verkfræöinga sem undir- ritaöir voru i gærkvöldi. — segir Kristjón Benediktsson sem átti sœti í launanefnd borgarinnar - „Það var ekki kominn slikur þrýstingur að ástæða væri til að flýta sér of mikið. Það var að- eins þrýst á i sambandi við mælingar”, sagði Kristján. „Við töldum ekki fært að semja um svo mikla kauphækk- un, þar sem nýlega var búið að semja viö aðra starfshópa um mun minni kauphækkun. Við óttumst að samningur af þessu tagi við tiltölulega fámennan hóp dragi dilk á eftir sér.” Telurðu þessa samninga mis- tök? „Ég vil ekki orða það svo sterkt. Reynslan á eftir að skera úr um þaö. En þetta er ákaflega varhugavert”. Kristján minnti loks á að mál- inu væri ekki lokið. ..Samningarnir eiga eftir að fara fyrir fund hjá verkfræðing- um og borgarráði.” — EKG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.