Vísir - 14.08.1976, Page 6

Vísir - 14.08.1976, Page 6
Útvarp í dag klukkan 13.30: Asta og Hjalti rabba við Magnús Sigmundsson ,meA þeim á myndinni er Þorbjörn Sigurðsson, tækni- maður. Mynd: Jens. suður ><; Þá var komið við á ættarmóti Útog í þættinum „út og suður” sem er á dag- skrá útvarpsins i dag klukkan háif tvö kennir að venju margra grasa og er viða leitað fanga. Eins og áður hefur komið fram fóru stjórnendur þáttarins vestur á firði ekki alls fyrir löngu og tóku þar fólk tali. Að sögn Hjalta Jóns komu þau við á Bildudal og var þar rabbað við ibúa staðarins. Einu sinni var hægt að kaupa Bildudals grænar baunir, en þar sem þær eru hættar að spretta keyptu þau bara rækjur i staöinn. i Tálknafirði þar sem var mikið stuð i mannskapnum. A ættarmótinu var skirt barn i kirkjunni i Stóra Laugardal, en þá kirkju byggði einn ættfaðir- inn. Af ættarmótinu fóru útvarps- menn að Brjánslæk og tóku flóa- bátinn Baldur yfir fjörðinn. A leið sinni yfir fjörðinn kom báturinn við i Flatey, þar sem eitt sinn var blómleg byggð. Vegna veðurs gátu þau ekki haft langa viðdvöl i eyjunni, en héldu áfram ferð sinni til Stykkishólms. Þá ikomu i heimsókn til þeirra Astu og Hjalta góðkunnir hljóm- listamenn þau Ragnar Bjarna- son, Þuríöur Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson, en þau hafa að undanförnu skemmt fólki úti á landsbyggðinni með söng og glensi. Þau eru um þessar mundir að syngja inn á nýja plötu lög eftir Jónatan Ólafsson frá Siglufirði, en hann er sennilega eini mað- urinn sem samið hefur vals um þann mæta fisk loðnuna. Þá verður talað við enn einn hljómlistamanninn og er það Magnús Sigmundsson, sem kunnur varð þegar hann söng með kollega sinum Jóhanni á árunum. Blessuð börnin eru ekki af- skipt i þættinum og byrjar Þór- hallur Sigurðsson leikari lestur splunkunýrrar barnasögu eftir Þröst Karlsson. Að sjálfsögðu verða svo leikin lög eftir þörfum og Hjalti mun ef að likum lætur ekki gleyma ökumönnunum þótt verslunar- mannahelgin sé um garð geng- in. —SE. Sjónvarpsmyndin í kvöld: Frá gluggaþ œðstu meto Bandariska söngva- og gaman- myndin „How to Succeed In Business Without Really Trying” var sýnd að þvf er mig minnir i Tónabiói fyrir nokkrum árum og þótti þá ágæt skemmtun. Mynd þessi verður á skermi sjónvarps- ins i kvöld. Myndin er byggð á sam- nefndum söngleik, sem sýndur var á Broadway við þó nokkrar vinsældir. Myndin I kvöld er þvi fyrst og fremst kvikmyndun á leikhúsverkiog i henni þó nokkuð mikið af stúdiósenum af gamla skólanum. David Swift er allt i senn höf- undur handrits, framleiðandi og leikstjóri. Swift sneri sér ekki að kvikmyndunum fyrr en eftir nokkuð langan feril I sjónvarps- og útvarpsþáttagerð. Hann vann með barnastjöm- unni Hayley Mills i nokkrum myndum, meðal annars mynd byggðri á sögunni um PolUönnu. Þá gerði Swift og mynd með Jack Lemmon, er nefdist „Under The Yum Yum Tree”. Þótt allt séu þetta skikkanlegar myndir er myndin „How to Succeed in Business” hans þekktasta verk. Upp á siðkastið hefur litið spursttil leikstjórans DavidSwift en aftur á móti hefur leikaranum David Swift sést bregða fýrir i aukahlutverkum i ýmsum af þeim myndum, sem hingað hafa borist að undanförnu svo sem „Dagur Sjakalans”, „Travels With My Aunt” og „The Internec- ine Project”. Gluggahreinsarinn Myndin „How to Succeed in Business Without Really Trying” segir frá gluggahreinsaranum J. Pierpont Finch, sem starfar við Worldwide Wicket stórfyrirtæki i New York. Finch dreymir um að ná ofar i metorðastiganum og ákveður að stytta sér leið með að- stoð handbókar, sem gefurýmsar góðar ráðleggingar i þvi efni. Leikararnir i myndinni eru Islenskum áhorfendum að mestu ókunnir að Rudy Vallee undan- teknum. Eins og flestir aðrir leikarar myndarinnar lék hann einnig i leikhúsuppfærslu sögunnar. mi Wm' - MiM TM Kaffihléin i Woridwide Wicket fyrirtækinu voru stundum nokkub frábrugðin þvi sem tiðkast annars staðar. Laugardagur 14. ágúst 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Ragnar Þorsteinsson heldur áfram lestri „Útungunarvélarinnar”, sögu eftir Nikolaj Nosoff (5). óskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristin Sveinbjörns- dóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 tt og suöur. Ásta R. Jóhannesdóttir og Hjalti Jón Sveinsson sjá um sið- degisþátt með blönduðu efni. (16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir). 17.30 1 leit að sólinni. Jónas Guðmundsson rithöfundur rabbar við hlustendur i fjórða sinn. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá i kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 FjaðrafokÞáttur i umsjá Sigmars B. Haukssonar. 20.00 óperutónlist: Þættir úr „Brottnáminu úr kvenna- búrinu” eftir Mozart. 20.55 „Friðarsinni", smásaga eftir Arthur C. Clark. Óli Hermannsson þýddi. Jón Aðils leikari les. 21.25 Vinsæi iög frá árunum 1938-41. Rosita Serrano syngur. 21.50 „Vinur i Viet-nam”, ljóð eftir örn Bjarnason. Hjalti Rögnvaldsson leikari les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. SUNNUDAGUR 15. ágúst 8.00 Morgunandakt. Séra Sigurður Pálsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veöurfregn- ir. Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugreinum dagblaö- anna. 9.15 Morguntónieikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Þættir úr Jóhannesarpassiunni eftir Johann Sebastian Bach. Evelyn Lear, Hertha Töpper, Ernst Haefliger, Kieth Engen, Bachkórinn og B a c h h 1 j ó m s v e i t in i Munchen flytja, Karl Richter stjórnar. b. Fiölu- konsert nr. 1 i D-dúr eftir Niccolo Paganini. Shmuel Ashkenasi leikur með Sin- fóniuhljómsveitinni i Vin, Herbert Esser stjórnar. 11.00 Messa i Kópavogs- kirkju. Prestur: Séra Arni Pálsson. Organleikari: Guðmundur Gilsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Minir dagar og annarra. Einar Kristjánsson rithöf- undur frá Hermundarfelli rabbár viö hlustendur. 13.40 Miðdegistónleikar: Frá ungverska útvarpinu. Nikita Magaloff leikur á pianó Fjögur Impromptu op. 142eftir Franz Schubert. 14.15 Hringborðsumræður um Kröfluvirkjun. Hljóðritun gerð við Kröflu 23. f.m. með þátttöku allra Kröflunefnd- armanna, sérfræðinga hennar og fulltrúum Orku- siofnunar. rali Heiðar Jónsson stjórnar umræðum. 16.00 tslensk einsöngslög. Þuriður Pálsdóttir syngur lög eftir Pál ísólfsson, Guö- rún Kristinsdóttir leikur á pianó. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Alltaf á sunnudögum. Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.10 Barnatimi: Agústa Björnsdóttir stjórnar. Kaupstaðir á Islandi: Siglu- f jörður. 18.00 Stuhdarkorn meðltalska selloleikaranum Enrico Mainardi. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Orðabelgur. Hannes Gissurarson sér um þáttinn. 20.00 Frá fjölskyldutónieikum Sinfóniuhljómsveitar ts- lands i Háskólabiói 3. april i vetur. 20.40 fslenzk skáldsagnagerð. Þorsteinn Antonsson rithöf- undur flytur annað erindi sitt: Smiðirnir. 21.10 Kórsöngur I útvarpsal: Kvennakór Suðurnesja syngur lög eftir Mozart, Mendelssohn, Schubert, Kubik og Ahrold. Ragnheið- ur Guðmundsdóttir syngur einsöng. Ragnheiður Skúla- dóttir leikur á pianó. Söng- stjóri: Herbert H. Agústs- son. 21.40 „Hundlubbi Thomasar Edisons”, smásaga eftir Kurt Vonnegut. Þuriður Friðjónsdóttir leikkona les þýðingu Rafns Guðmunds- sonar. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi Þorgilsson dans- kennari velur lögin og kynn- ir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. SUNNUDAGUR 15. ágúst 1976 17.00 Frá Olympiuleikunum. Blakkvenna: Suður-Kórea: Ungverjaland, keppt um 3. verðlaun, og Japan:Sovét- rikin, úrslit. Körfubolti karla: Bandarikin :Sovét- rikin. Kynnir Bjarni Felix- son. 18.00 Bleiki pardusinn. Bandarisk teiknimynda- syrpa. 18.10 Sagan af Hróa hetti. Breskur myndaflokkur um ævintýri útlagans Hróa Hattar. 3. þáttur. 19.00 Frá Oiympiuleikunum. Sleggjukast, grindahlaup karla og kvenna.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.