Vísir - 14.08.1976, Side 8

Vísir - 14.08.1976, Side 8
8 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ilitstjórar: Þorsteinn Pálsson, ábm. Ólafur Itagnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson Fréttastj. erl. frétta: Guðmundur Pétursson Blaðamenn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir. tþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Útlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 8(5611 AfgreiÖsIa: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ititstjórn: Siðuinúla 14. Simi 86611.7 linur Askriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. ______________i lausasölu 50 kr, eintakið. Blaðaprent hf,_ Handahófeða ákveðin stefna? Byggðastefna hefur verið eitt af tiskuhugtök- unum i almennum stjornmálaumræðum siðustu ár. Allir stjórnmálaflokkarnir telja sig vera boð- bera þessarar stefnu. Á hinn bóginn hefur al- menningur hvergi séð af þeirra hálfu ákveðna stefnumörkun i þessum efnum, þar sem gerð er grein fyrir markmiðum og leiðum. Flestir eru á einu máli um mikilvægi þess að stuðla að eðlilegri byggðaþróun i landinu og draga sem mest má vera úr misjafnri aðstöðu manna eftir búsetu. Sannleikurinn er hins vegar sá, að ekki er fyrir hendi nein pólitisk stefnumót- un um þessi efni. t sjálfu sér er það i meira lagi furðulegt, að þetta skuli viðgangast ekki sist þegar á það er lit- ið, að tveimur hundraðshlutum rikisútgjalda er varið til aðgerða i byggðamálum. Aðgerðir i þessum efnum eru þvi eðlilega að meira og minna leyti handahófskenndar. Forystumenn svonefndrar byggðastefnu innan stjórnmálaflokkanna hafa fram til þessa lagt á það mesta áherslu, að fjármagnsdreifingin yrði úr miðstýrðum sjóðum i Reykjavik. Með stofnun Framkvæmdastcrfnunar rikisins á sinum tima var þessari fjármagnsdreifingu komið undir flokkspólitisk eftirlitsmannakerfi. Að verulegu leyti hefur þessi lánastarfsemi farið fram án skipulags eða markmiðs. Ákveðnar undantekningar eru þó hér á. En það sem mestu máli skiptir er þó það, að með starfsemi af þessu tagi er ekki verið að auka fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga eða samtaka þeirra. Þessir aðilar eiga eftir sem áður allt undir eftirlitsmönnum stjórnmálaflokkanna í Reykjavík. Fæstum getur þó dulist, að áhrifamesta leiðin til þess að styrkja byggðirnar utan þéttbýlis- svæðisins á suðvesturlandi er sú að efla fjárhags- legt sjálfstæði þeirra. Það er vitaskuld miklum mun vænlegri leið til árangurs, ef menn vilja i raun réttri stuðla að raunhæfum aðgerðum i þessum efnum. Fram hafa verið settar mjög ákveðnar hug- myndir um aukin völd og áhrif samtaka sveitar- félaga i einstökum landsfjórðungum. M.a. hefur verið lagt til i þeim efnum að þau verði svo sjálf- stæð að kosið verði til stjórna þeirra i almennum kosningum. Jafnframt er ljóst að endurskipu- lagning sveitarstjórnarkerfisins hlýtur að vera ein af meginforsendum alvarlegra aðgerða i byggðamálum. Stjórnmálaflokkarnir hafa verið mjög tregir við að taka af skarið i þessum efnum. Bæði er, að þeir virðast vera smeykir við hagsmunasamtökin og einstakir þingmenn reikna dæmið þannig, að kjósendur eigi þeim meira að þakka, ef þeir geta sýnt fram á, að framfaramálin heima i héraði eigi rætur að rekja til þeirra eigin milligöngu i lánasjóðakerfinu i Reykjavik. Tvimælalaust er mikil þörf á að mótuð verði skýr stefna i byggðamálunum. Það er ekki nóg að veita fjármagni i þessu skyni, ef það er ekki i á- kveðnum farvegi. Engum vafa er undirorpið, að á þessu sviði er þörf nýsköpunar. Aðgerðir ibyggðamálum eru nauðsynlegar. En þær á að framkvæma á grundvelli pólitiskrar stefnumörkunar. Þar á hefur hins vegar orðið verulegur misbrestur. Laugardagur 14. ágúst 1976 VISIR Umsjón: Guömundur Pétursson J saman bækur sinar Reagan og Schweiker bera Það áttu vist fæstir von á þvi af ihalds- manni eins og Ronald Reagan þykir vera, að hann ætti það til, að hætta öllu undir eitt spil, eins og hann gerði núna á dögunum. í fyrsta lagi braut hann gamla hefð, sem er ekki háttur ihalds- samra, þegar hann til- nefndi varaforsetaefni sitt, áður en flokks- þingið er haldið, þar sem valið verður, hver skuli vera i framboði fyrir repúblikanaflokk- inn. í öðru lagi valdi hann einn allra frjálslynd- asta manninn úr röðum flokksbræðra sinna, sem finna mátti. Nýja tví- stirnið: Reagan og Schweiker Ahrifin ur&u lika meiri, en af fellibylnum Bellu. Menn vissu ekki hva&an á þá stóö ve&riö, þegar Reagan geröi kunnugt val sitt á Richard Schweiker, öldungadeildarþingmanni Pennsylvaniu. Þeir höf&u þó vit- aö af Bellu á leiöinni, áöur en hún skall á ströndina. Flestra viðbrögö voru á þá lund, aö Reagan hef&i ekki get- aö gert Ford keppinaut sinum betri greiöa. Þarna heföi hann gert þá skyssu, sem I einu höggi eyðilegöi allar hans vonir um aö vinna útnefningu flokksins. Eft- ir þvi sem dagarnir hafa liöiö frá reiöarslaginu, viröist koma smám saman i ljós, aö þetta hefur ekki veriö Reagan til eins mikils tjóns, og menn vildu meina. En margur ihaldsma&urinn i repúblíkanaflokknum hefur siö- an vaknaö til umhugsunar um, hversu velhann i rauninni þekki Ronald Reagan. Að visu hefur enginn kjörfull- trúanna, sem áöur haföi heitiö Reagari stuöningi á þinginu, snúiö viö bla&inu. En komiö hef- ur hik á marga, meöan þeir skoöa Reagan öðrum augum en fyrr. Helgina eftir, aö Reagan til- kynnti valiö á varaforsetaefn- inu, máttu hann og helstu kosn- ingapáfar hans sitja við simann oghringja I allar áttir til aö sefa æsta stuðningsmenn. Siöan hafa Reagan og Schweiker veriö á þönum saman og ávarpaö kjör- fulltrúa fjölda rikja. Allsta&ar er reynt að sannfæra menn um, aö þetta bragö Reagans hafi veriðmeistaralegherkænska en ekki afglöp, eins og flestir töldu. Það hefur ekki veriö alltof auövelt verk fyrir Reagan, þvi aö hann hefur um leið oröiö aö kingja ýmsum fyrri fullyröing- um, enda val hans á Schweiker i æðimikilli mótsögn viö margt af þvi, sem hann sló fram til að laöa aö sér fylgi frá Ford. Þaö var jú Reagan, sem sjálf- ur sagöi: „Stjórnmálaflokkur getur aldrei náö til allra. Hann má ekki blandaö skoöunum i hentistefnuskyni til þess eins að fjölga kjósendahóp sinum.” — — Eða...: „Ég hef ekki trú á þeirri venju aö velja varafor- seta úr hinum enda fylkingar- innar af þeirri ástæðu einni, aö hann geti náö i atkvæöi, sem þú getur ekki náö I sjálfur.” Þetta siöastnefnda virtist þó einasta ástæöan fyrir vali Rea- gans á Schweiker, jafn ólikrar skoöunar og þeir hafa veriö um ýmis stefnumál. Ekki eru samt stuöningsmenn Reagans þess álits. Þeir vilja lita svo á, aö þessi merkisberi ihaldssamari afla flokksins sé einfaldlega aö breikka sjón- deildarhring sinn og um leiö skapa flokknum betra tækifæri i forsetakosningunum sjálfum, sem fram eiga aö fara i nóvem- ber. Þeir svara gagnrýni hinna, sem halda þvi fram, aö þarna hafi Reagan selt ihaldshugsjón sina fyrir atkvæ&avonir, meö þvi, aö standi flokksmenn ekki saman i kosningunum i vetur, blasi viö ósigur á borö viö 1964, þegar Barry Goldwater var i framboöi. Þeir segja aö Reagan hafi brug&iö á þaö rá&iö, san helst geti komiö I veg fyrir klofning flokksins. Að sjálfsögöu er þar gengiö út frá þeirri forsendu, sem Reagan gefur kjósendum sinum. Nefni- lega að flokknum sé nauösyn á aö bjóöa hann fram sem nýtt andlit, er aldrei hafi veriö viö Washington kennt. Reagan valdi sér augnablikiö til aö varpa fram Schweik- er-sprengju sinni, þegar for- kosningarvigin höföu aö mestu hjaönað og ró færst yfir, meðan menn biöu flokksþingsins og úr- slita. Þá horföi hann aö vísu fram á nær öruggan ósigur. Þaö haföi hann gert oftar þessa mánuöi, sem hann hefur att kappi við Ford. En jafn oft og hann var talinn gjörsigraöur, reis hann aftur upp og var undir lokin ekki nema nokkrum kjör- fulltrúum frá þvi, að brjóta aðra rótgróna hefö i flokksstarfinu. Þaö hefur hingaö til aldrei brugöist, að flokkarnir hafi val- ið til framboös þáverandi for- seta, ef hann hefur gefiö kostá sér til annars kjörtimabils. Reagan haföi nær oröið undan- tekningin. Þessi fyrrverandi kvik- myndastjarna þykir búa yfir rafmögnuöu aðdráttarafli, sem Gerald Ford skortir. Margir telja Reagan bestan ræöuskör- ung stjórnmálamanna I Ame- riku. Er enn i minnum höfö sjónvarpsræöa, sem þessi rikis- stjóri Kaliforniu, sem Reagan var þá, flutti til varnar Barry Goldwater 1964.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.