Vísir - 27.08.1976, Side 8

Vísir - 27.08.1976, Side 8
8 VÍSIR Útgcfandi: Iteykjaprcnt hf. Framkvæmdastjórí: Daviö Guðmundsson Ritstjórar: Þorstcinn Pálsson, áþm. Olafur Itagnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson Fréttastj. erl. frétta: Guömundur Pétursson Blaðamcnn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir. tþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. útlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson. Drcifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar: Ilverfísgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiösla: II verfísgötu 44. Simi 86611 llitstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611.7 linur Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf.__________________ Slagorð eða ákveðin stefna ? Á siðari árum hafa stjórnmálaflokkarnir hver i kapp við annan lýst áhuga sínum á byggðamál- um. Engum blöðum er um það að fletta, að byggðastefna er eitt helsta tiskuorðið i stjórn- málum um þessar mundir. Stjórnmálamenn nota það i tima og ótima, þegar þeir þurfa að telja fólki trú um eigið ágæti. Fólkið i landinu hefur hins vegar aldrei fengið haldbæra skýringu á þvi hvert stjórnmála- flokkarnir vilja stefna i þessum efnum, og þvi siður hafa talsmenn þeirra gert grein fyrir þeim leiðum, sem þeir vilja fara að settu marki. Byggðastefnan er þannig rekin án pólitiskrar stefnumörkunar. Núverandi rikisstjóm markaði þáttaskil i þess- um efnum með þvi að ákveða, að 2% rikisút- gjalda skyldi ávallt verja til aðgerða i byggða- málum. Að öðru leyti hefur þessi stjórn ekki stefnu i byggðamálum fremur en fyrri rikis- stjórnir. Allir vilja stuðla að jafnari búsetuskil- yrðum i landinu. Spurningin er hins vegar sú, hvernig það eigi að gera. í tið fyrri ríkisstjórnar var sett á fót miiliþinga- nefnd i byggðamálum. Þegar nefnd þessi var sett á fót á sinum tima, var helst að skilja, að henni væri ætlað að brjóta blað i stjórnmálasögunni. Siðan hefur ekki borið mikið á nefndinni og svo mikið er vist, að hún hefur ekki sett fram neina stefnumörkun á þessu mikilvæga sviði. Alveg er ljóst, að þannig geta mál ekki gengið til langframa. Svo miklu fjármagni er varið i þessu skyni, að menn þurfa að vita eftir hvaða leiðum á að fara. Fram til þessa hefur sá kostur verið valinn að miða aðgerðir i byggðamálum nær einvörðungu við fjárveitingar og lánafyrir- greiðslu úr miðstýrðum sjóðum i Reykjavik. Svo virðist sem tilviljun hafi meir ráðið þvi að þessi mál hafi komist inná þessa braut en fyrir- fram ákveðin pólitisk stefnumörkun. Jafnvel frjálshyggjumenn i stjórnmálum hafa athuga- semdalaust horft upp á þessi málefni fara i þenn- an farveg. Hitt ætti þó að vera alveg ljóst, að raunhæfar aðgerðir i byggðamálum hljóta að byggjast á þvi fyrst og fremst að efla sjálfstæði byggðanna. Hvort tveggja er, að sveitarfélögin og samtök þeirra þurfa að fá aukið stjórnarfarslegt sjálf- stæði og meiri fjárhagsleg áhrif. Þetta tvennt þarf að haldast i hendur. Það ætti að liggja i augum uppi, að byggðirnar utan þéttbýlissvæðisins verða aldrei sjálfstæðar, ef þær eiga ávallt að sækja allt undir miðstýrða sjóði og fyrirgreiðslustofnanir i Reykjavik. Veru- leg valddreifing er þvi ein af undirstöðum mark- vissrar byggðastefnu. í raun réttri er tómt mál að tala um byggðastefnu, ef valddreifingin er ekki þungamiðjan. Æskilegt væri að stjórnmálamenn fengjust til að ræða um stefnuna i byggðamálum út frá þess- um grundvallarsjónarmiðum. Það er pólitík að velja leiðir að markmiðum. Stjórnmálamenn, sem vilja risa undir nafni, geta ekki vikið sér undan þvi að ræða svo umfangsmikil mái frá þessu sjónarhorni. Föstudagur 27. ágúst 1976 VISIR Umsjón: Guðmundur Pétursson KEISARINN ÖLL- UM GLEYMDUR Skeggjað andlit hans er enn á þar til þeir urðu uppiskroppa og Sá maðurinn, sem allir telja gjaldmiðli Eþiópfu og einnig fengu i staðinn merki „bráða- að haldi um stjórnartaumana, nokkrum frimerkjum, en að birgða herstjórnar sócialista- er Mangistu Haile-Mariam, öðru leyti er Haile Selassie, rikisins Eþíópfu”. majór, en hann ber annars titil- keisari keisaranna, horfinn f Utanaðkomandi láta stundum inn fyrsti varaformaður bráða- gleymskunnar dá I dag ári eftir i ljós undrun sfna yfir þvi, að birgða framkvæmdaráðs hers- að hann lést. enn skuli þó notuð mynt með ins. Þetta ráð er annars betur þekkt undir nafninu „Derque”, sem þýðir einfaldlega nefndin. Það hefur aldrei verið gert kunnugt, hve margir eiga sæti i þvi. Formaður þess er Teferi Bante, herhöfðingi, en hann á samt ekki sæti i ráðinu, og þó hann heiti leiðtogi þjóðarinnar er það á allra vitorði, að hann er valdalaus og áhrifalítill. Þriðii maðurinn, sem stundum eru birtar myndir af I blöðum á þeim stað, þar sem myndir keisarans birtust fyrrum, er Atnafu Abate ofursti. Hann er annar varaformaður framkvæmdaráðs ... og svo framvegis. Hann og Teferi hershöfðingi eru mun meira i sviðsljósinu en Mengistu majór, þótt ekkert sé það i llkingu við umtalið, san keisarinn fékk. — Þegar þeir ferðast um landið, eru þeir að vísu i fylgd öflugs lifvarðar, en það er fátækleg prósessía i samanburði við skrúðgönguna, sem fylgdi jafnan keisaranum. Embættismenn bráðabirgða- stjórnarinnar njóta ekki meiri valda, en þeirgerðu undir stjórn keisarans. í mörgum tilvikum eru þetta sömu mennirnir, sem hafa einungsi breytt stjórn- málaafstöðu sinni til þess, sem betur hentar tiðarandanum. Sumir hafa verið ófarsælli og sitja i fangaklefum, þar sem rúmlega 60 ættmenni keisarans Hinn 83 ára gamli keisari lést mynd keisarans og frimerki, en eru einnig höfð i haldi. Þegar 26. ágúst 1975, og var þá þeim er bent á, að það hefði annað veifið eru látnar I ljós naumast ár liðið frá |)vi herinn, verið sóun að varpa á hauga áhyggjur af liðan þessara sem situr þar enn við völd, lagði birgðum af þessu tagi og slá keisarlegu ættingja, er það helst veldi hans I rúst eftir 44 ára nýja mynt.—Auk þess vaknar erlendis, en minna heima i stjórn hans. lika sú spurning, hvað setja Eþíópiu. Jarðneskar leifar hans liggja hefði átt i staðinn fyrir Mörgum þeirra er haldið i einhversstaðar i ómerktri gröf. keisaramyndina. kjallara Þjóðhallarinnar, þar Minning hans hefur einfaldlega Jafn persónudýrkandi og sem „Derque” heldur fundi sina verið látin hverfa inn I 2000 ára stjórn keisaraveldisins var, fyrir luktum dyrum. Lita ýmsir sögu Eþiópiu, miklu fremur en meðan Haile Selassie var og svo að föngunum sé haldið að hún hafi verið þurrkuð út. hét, jafn ópersónuleg er nú- Þ?r sem gislum til að hindra að- Bylting hersins með öllum verandi bráðabirgðastjórn for að „nefndinni”. Það þeim umskiptum og þeirri hersins. Likist það helst þvi, að stangast þó á við það áhuga- óvissu, sem siðustu tvö árin hún vilji fela sig á bak við nafn- leysi, sem leþiópumenn sýna hafa einkennst af, hafa fengið leysu. föngunum. landsmönnum ærið nóg annað umhugsunarefni en keisarann sáluga. Þegarsiðasta styttan af honum var dregin i keðjum af stalli sinum i aðalgötu Addis Ababa fyrir aðeins tveimur mánuðum, voru fáir, sem gáfu þvi neinn sérstakan gaum. Né heldur virtist það vekja athygli, þótt nafni götunnar, sem áður hét eftir Haile Selassie, hefði verið breytt. Aðrar styttur af „Ljóninu af Júda” hafa verið fjarlægðar hér og þar um landið, og hefur ekki frést af öðrum viðbrögðum en þeim, þar sem látín hefur verið I ljós velþóknun á þvi, að honum skyldi vikið frá völdum. Tylftir stofnana, sem áður báru nafn hans, hafa hlotið ný heiti, sem annað hvort eru dregin af starfsemi þeirra eða landfræðilegri staðsetningu. — Engin þeirra hefur verið kennd við nýju valdhafana. Enn má þó sjá eitt ryðfallið skilti með áletruninni „H.S. Háskólinn”, en hann er nú orðið einfaldlega kallaður háskólinn I Addis Ababa. Hefur ekki enn verið tekin upp full kennsla i hi'num tveimur og hálfu ári eftir að honum var ki rfilega lokað i byrjun andstöðunnar gegn keisaranum. Embættismenn hins nýja rikis notuðu bréfhausa merkta „hinu keisaralegu lýðveldi Eþiópiu”,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.