Vísir


Vísir - 27.08.1976, Qupperneq 9

Vísir - 27.08.1976, Qupperneq 9
VISIR Föstudagur 27. ágúst 1976 9 AF HEIDMÖRK UPP f FORSÆTISRÁÐHtRRASTOL Stefón Þorsteinsson skrifar um Odvar Nordli, forsœtisróðherro Noregs, sem í dag kemur í opin bera heimsókn til íslands Segja má að það sé einkennandi fyrir forustumenn i norskum rikisstjórnum siðustu áratugina að þeir eru úr stétt al- þýðu. Odvar Nordli forsætisráð- herra er þar engin undan- tekning. Hann er fæddur 3. nóvember 1927 og upp alinn á Heiðmörk, þar sem faðir hans varhandverksmaður við norsku járnbrautirnar. Verslunar- skólaprófi lauk hann tvitugur að aldri og hafði hann þá þegar helgað sig endurskoöunar- störfum en þar átti hann mikil- hæfan starfsvettvang, raunar allt þar til hann varð forsætis- ráðherra 15. jan. s.l. og héraðs-endurskoðandi mun starfsheiti hans verða við stór- þings-kosningar næsta ár. Úr endurskoðun i pólitik Segja má að Nordli hafi I þvi starfi öðrum þræöi rutt braut sina, á stjórnmálasviðinu upp i sæti forsætisráöherra Noregs, en sem endurskoðandi starfaði hann lengst á vegum hins opin- bera. Fyrst varð hann aðstoðar- maður við endurskoðunardeild i Bærum, sem nánast er úthverfi Oslóborgar, einskonar Kópa- vogur þar. Las hann þá utan- skóla að mestu til stúdentsprófs, er hann tók 1951. Var hann þá raunar orðinn fulltrúi i endur- skoðunarstofnun Heið- merkur-fylkis og varð siðan héraðsendurskoðandi á heima- slóðum. Snemma fór Odvar Nordli að láta til sin taka á stjórnmála- sviðinu og var fljótlega eftir aö hann hvarf heim kjörinn vara-oddviti. Trúnaðarmaöur ýmissa stéttarfélaga hefir hann verið um langt skeið, og for- svarsmaður ínnanhéraðs og utan. Formaður var hann kjör- inn I ýmsum samtökum norska alþýðuflokksins, en i stjórn hans á hann sæti. Sat hann fyrst á Stórþinginu fyrir flokk sinn áriö 1958. Um langt skeið hefur hann þar átt sæti sem fyrsti þing- maður Heiðmerkurfylkis, eða þar til hann varö ráðherra, en norskir ráðherrar eru undan- þegnir aímennum þingstörfum, þá tekur varamaður þeirra þar við. Umbætur i skattamál- um Arið 1973 var Odvar Nordli kjörinn formaður þingsflokks Verkamannaflokksins á norska Stórþinginu. Löngum hafa þing- störf hans einkum beinst að skattamálum og hefir hann veriö formaður þingnefnda hér að lútandi. Hefir hann látið mjög til sin taka á þingi og er talið að hann eigi mikinn og verðungan þátt i þvi hve norö- menn eru á góðum vegi i skatta- málum en miklir byltingatftnar hafa á þeim vettvangi verið aö undanförnu i Noregi, og er raunar þegar af þvi merk saga sem fsl. framámenn mættu margt af læra. Heiðmörkin er eitt af allra blómlegustu héruðum i Noregi og segja má að núv. forsætis- ráðherra landsins sé sannur sonur Heiðmerkurinnar, svo stolt er fólkið þar af honum og henn hreykinn af þvi. Kona Odvar Nordlis er Marit Haraseth, sem hún hét áöur en hún varð Nordli. Hún er fjórum árum yngri en bóndi hennar og það er varla nein goðgá að ganga út frá þvi að vagga hennarhafi einnig á Heiðmörk- inni staðið, þótt ekki sé sá sem þetta ritar þeim málum gjör- kunnugur. Rikisstjórn Nordlis tók völd um miðjan janúar s.l. 1 henni eru 15ráðherrar. Það má segja að um áratugi hafi um helmingur rikisstjórna þar verið valdir utan þings, og svo mun það nú vera. — Liklega 7 utan þingmenn en 8 þingkjörnir. Leiðtogi að ósk Brattel- is Þess var getið hér að framan að i Noregi tæki varamaður þingsæti er kjörinn þingmaður settist i ráðherrastólinn. Þó hafa ráðherrar sæti sitt i þing- sölum, þ.e.a.s. ráðherrasæti, en þingmönnum er skipaö þannig til sætis að þingmenn kjördæm- anna „sitja þar saman” og stóllinn raunar merktur þing- sætinu, frá einu þingi til annars. Ráðherrar munu þar vist vart sjást I þingsölum á fundum nema mál er varða ráðuneyti þeirra sé á dagskrá. Stendur þá forseti gjarnan upp, gengur á móti ráðherra og býður hann velkominná þingfund. Þingsköp eru að þessu leyti gjörólik á norska Stórþinginu og Alþingi Islendinga. Litill vafi leikur á þvi að þaö var að ósk Trygve Brettelis að Odvar Nordli varö eftirmaöur hans er hann óskaði að sleppa stjórnartaumunum. Yfirleitt var stjórn Nordlis vel tekið, það þótti t.d. vel farið að hann hélt sömu utanrikis- og fjármála- ráðherrunum þeim Knut Frydenlund ogPer Kleppe, sem er utanþingmaður og einn lit- rikasti f jármálaráðherra Noregs um langt skeiö, að sjálf- sögðu umdeiidur, en báðir þykja þeir afburöamenn. Og ekki verður annað sagt en stjórnin hafi fariö Nordli vel úr hendi. Þar sem Verkamanna- flokkurinn hefir ekki meirihluta á Stórþinginu nýtur stjórn hans stuðnings SV flokksins (Sosial- istisk Valgforbund) sem eiga 16 þingmenn af þeim 155 þing- mönnum sem skipa Stórþingið i dag. Ráðherra oliuveldis Að sjálfsögöu er forsætisráð- herra Noregs mikill vandi á höndum um þessar mundir, eins og málum er þar nú komið á þeim miklu byltingartimum þar sem beinlinis er gengið út frá þvi að Noregur verði eitt mesta oliustórveldi jarðar. Vafalaust munu norömenn trúa hinum mikilhæfa og glögga endurskoðanda af Heiömörkinni fyrir landsstjórninni þar, fram að næstu stórþingskosningum sem veröa að ári þar i landi. Þing þaö er nú situr ber til hans fyllsta traust, hvað svo sem framtiðin kann að bera I skauti sinu. Islendingar eiga Odvar Nordli forsætisráðherra Noregs margt gott upp aö inna bæöi beint og óbeint, hann hefur sýnt það að undanförnu að hann ber mikla ræktarsemi og góðvild til íslendinga. Vafalaust verða þau hjónin Marit og Odvar Nordli hér aufúsugestir. Nordlis regjering utnevnes i dag Brattetí fár Nordtís jobb G. Hansen fortsatt president mottatt i «storfings- kretser» A» Píl VASSBOTN ar man I «ator- tingskretser* reagert pi re- gjchngBn KonHis tiltre4elseser- Tt har aport et nenasgnt nt- valg bt poíitikcr* aadr« mam Ukke atir t mller farste Kn>» og •ook sltpper & nttala h* nnl éet falges opp. — Du var den farste Innsn Ar- beiderpartiet som offcntftg for- langte at Trygve Brattell akulle g& av sotn stataminister. Er du n& fornayd? — Ja, avarer Krlstensen. fdrmella posisjan tilairr. Den farsta vt p&trafT etter at atatsBnintateren var g&tt ned fra talerstolaa var Enropabevegel- aena generalsekret*r Martin Ski. thQigere gnjppeækret*r for Kr. F.. n& tnedlem av Heyre. — Den er aH rtght. synea jeg. det heter ja mt grunnlaget for u tannkepofitikken er en zuer hontakt med TCorden ag aodra vestliga Iand. Dette gir penpek- tivcr «g sier mer enn akkizrat dm ordaoc som st&r der. Jeg bygger dette bi. a. p& at TCenDl etter mitt inntrykk har et zraget klart syn p& niirfieid i Euispt, sier Hayres Torsteln Tynnlng har denne koznsnentaren: — Jeg har sœrllg festet meg ved det avsnitt i erkheringen hvor det heter at regjeringen vil arbelde for & forenkle forboldet mellom den enkelte og offentlige admlnlntrasjon. AUe er enig 1 at dette er en sentral oppgave, men regjeringens politikk hittil har resultert i det motsatte. Det er vedtatt en rekke lover og íorord- ninger som har innskrenket folks handlefrihet. Hvis Nordli- regjeringen greler & fslge opp dette punktet, vil det v«re 1 trid zned det vl har bevdet I og uten- for Stortinget, jeg mlnncr for eksempel om konsesjonsloven, sier Tynntng, Hoyre. Asbjorn Hangstveit. tldligere parhuneotarisk leder for Krlste-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.