Vísir - 27.08.1976, Síða 17

Vísir - 27.08.1976, Síða 17
Útvarp í kvöld klukkan 22,15 Frjáls útvarpsrekst- ur í deiglunni „Ætlunin er aö ræöa um frjálsan útvarpsrekstur og hvort leyfa beri frjálsan út- varpsrekstur”, sagöi Baldur Guölaugsson umsjónarmaöur þáttarins „t deiglunni”, sem er á dagskrá útvarpsins I kvöid. „Tilefni umræðnanna er um- sókn þeirra Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar og Markúsar Arn- ar Antonssonar um rekstur frjálsrar útvarpsstöövar sem getiö var um i Visis fyrir skömmu”. Enn er ekki vitaö, hvort rekst- ur þessarar útvaprsstöövar veröur leyföur, en komið hefur fram, að Ellert B. Schram vara- formaður útvarpsráös er hlynntur þvi, að frjáls útvarps- rekstur verði leyfður. Útvarpsráö hefur ákveöiö aö láta afla upplýsinga um hver sé lagalegur réttur og skylda ráös- ins til að fjalla um beiöni þeirra Markúsar Arnar og Vilhjálms um að reka frjálsa útvarpsstöö. Baldur fær til sin þá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og Stefán Karlsson handritafræöing en hann átti sæti i siðasta útvarps- ráði fyrir hönd alþýðubanda- lagsins, til að ræöa rökin meö og á móti frjálsum útvarpsrekstri og almennt um frjálsan út- varpsrekstur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var annar þeirra sem sótti um rekstur frjálsrar útvarpsstööv- ar og veröur rætt viö hann I þætti Baldurs Guölaugssonan Föstudagur 27. ágúst 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25.Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. 13.00 Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Leikir f fjörunni” eftir Jón Óskar Höfundur les (2). 15.00 Miðdegistónleikar 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.20 Popphorn 17.30 Tveir fyrir Horn og Bangsi meö Höskuldur Skagfjörö flytur fyrri hluta frásögu sinnar af Horn- strandaferö. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir, Fréttaauki. 19.35 Daglegt mál Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 tþróttir Umsjón-: Jón Asgeirsson. 20.00 Pianósónata i G-dúr op. 78 eftir Franz Schubert Vladimir Ashkenasy leikur. 20.40 Mistilteinn og munaöar- hyggja Siguröur Ó. Pálsson skólastjóri flytur erindi. 21.05 Promenadetónleikar frá útvarpinu i Stuttgart Guömundur Gilsson kynnir. 21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan úr Svartaskógi” eftir Guö- mund Frimann Gfeli Hall- dórsson leikari les sögulok (17) 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. i deiglunni Baldur Guðlaugs- son stjórnar umræðum Stefáns Karlssonar handritafræðings og Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar lögfræðings um frjálsan út- varpsrekstur. 22.55 Áfangar. Tónlistarþátt- ur i umsjá Asmundar Jóns- sonar og Guöna Rúnars Agnarsonar. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Grænland „Og hann kall- aöi landið Græniand” Fyrri hluti fræöslumyndar, sem gerö er sameiginiega af danska, norska og islenska sjónvarpinu. Rifjuö upp sagan af landnámi ís- lendinga á Grænlandi og skoðaöar minjar frá land- námsöld. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 21.20 Lygalaupurinn (Billy Liar) Bresk biómynd frá ár- inu 1963, byggðá samnefndu leikriti eftir Keith Water- house og Willis Hall. Leik- stjóri John Schlesinger. Aöalhlutverk Tom Courte- nay og Julie Christie. Billy Fisher starfar hjá útfarar- stofnun. Hann hefur auöugt imyndunarafl og dreymir dagdrauma, þar sem hann vinnur hvert stórvirkið á fætur ööru, og þannig flýr hann gráan og til- breytingarlausan hvers- dagsleikann. „Billy Liar" í sjónvarpinu í kvöld: Lífið innan um líkkisturnar „Billy Liar” (Lygalaupur- inn), myndin sem sjónvarpið varpar i kvöld, er ein af at- hyglisveröustu myndum breska leikstjórans John Schlesinger. Stenst hún aö ýmsu leyti samanburö viö aörar þekktar myndir leikstjórans svo sem „Darling”, „Far from the Madding Crowd”, „Midnight Cowboy” og nú slðast myndina, sem Háskólabió sýndi fyrir stuttu „Day of the Locust”. Tvær þessara mynda leikstjór- anseru ihópi Óskarsverðlauna- mynda. Myndin „Darling” færði Julie Christie verðlaunin fyrir leik, og sú fræga mynd „Midnight Cowboy” var valin besta mynd og Schlesinger besti leikstjóri áriö 1969. ímyndinni „Billy Liar”, sem byggð er á bók og leikriti eftir Keith Waterhouse, skoðar Schlesinger breskt miöstéttar- þjóöfélag i gegnum dagdrauma ungs pilts, Billy Fisher. Myndin bregöur upp beiskri mynd af samfélaginu, sem Billy hrærist i viö dagleg störf sln h já útfararstofnuninni. Billy er latur og flýr I hugan- um inn I bjarta veröld, sem fær- ir honum meiri gleöi en lifiö inn- an um likkisturnar. Leikarinn Tom Courtenay fer sérlega vel með hlutverk Billy. Hann færir okkur hugarheima Billy eftirminnilega á skjáinn enda einna þekktastur fyrir túlkun sina á ýmsum utan- garðsmönnum. í myndum eins og „Dr. Zhivago”, þar sem hann lét Strelnikow, „Dagur I lifi Ivan Denisovitch” og ,,Lonli- nessof the Long Distance Runn- er” hefur hann vakiö samúö áhorfandans með olnbogabörn- unum. Breska leikkonan Julie Christie fer með annað aöal- hlutverkið i myndinni. „Billy Liar” markaöi sannarlega timamót i sögu þessarar glæsi- legu leikkonu. Hún skaut henni upp á stjörnuhimininn og inn i myndir sem allir þekkja, svo sem ,,Dr. Zhivago”, „Far from the Madding Crowd”, ,,Dar- ling”, „The Go-Between” og „Don’t Rook Now!”, sem Háskólabió sýúdi nýlega. Nýj- asta mynd Christie „Shampoo”, hefur hlotiö lof erlendis að undanförnu, en þeirri mynd leikstýrði Hal Ashby, stjórnandi „Harry og Tonto”. Einfaldur innhverfur leikur 'Christie ásamt útlitstöfrum hennar hafa jafnan fallið i góð- an jaröveg hjá áhorfendunum, þótt hæfileikar hennar hafi oft á tiöum orðiö deiluefni gagnrýn- enda. —JónB. Tom Courtenay og Julie Christie I myndinni „Billy Liar”, sem sjón- varpið sýnir klukkan 21.201 kvöld ef veður leyfir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.