Vísir - 09.10.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 09.10.1976, Blaðsíða 1
Laugardagui^9. október 1976 T 243. tbl. 66.‘árg. V r r AVISANAMALIÐ: Banki veitti yfirdráttar- heimild á ávísanareikningi — Vanskilavextir teknir af umsömdum skammtímayfirdrœtti á hlaupareikningum „Það hefur komið fram að einn bankinn veitti einu fyrirtæki munnlega heimild til skamms tíma til yfirdráttar á ávisana- reikningi, sem fyrirtækið var með i bankanum. Fyrir þessum yfir- drætti var sett trygging og hafa bankastjórar bankans sagtað það sé rétt að þessi heimild hafi verir veitt”, sagði Hrafn Bragason, borgardómari, sem fer með rann- sókn ávisanamálsins í viðtali við Vfsi. „Þessi reikningur hafði fyrst veriðnotaður fyrir einstakling, en var á þessum tima notaður fyrir fyrirtækið á sama hátt og önnur fyrirtæki nota hlaupareikninga. Þegar hins vegar svo var komið að það var nær stöðugur yfir- dráttur á reikningnum, var honum lokað.” Hrafn sagði að allir bankarnir hefðu veitt skammtíma heimildir til yfirdráttar á hlaupareikn- ingum, en af þessum skamm- timayfirdráttum hefðu verið o^ væru teknir vanskilavextir. A stöðugum yfirdrætti á hlaupa- reikningi eru hins vegar teknir yfirdráttarvextir, sem eru 6% lægri en vanskilavextirnir. Það hefði þvi raunverulega engu breytt, þótt menn færu yfir um- saminn yfirdrátt án þess að tala fyrst við bankann. Þá sagði Hrafn að venjulega hefðu verið settar einhverjar tryggingar fyrir þessum skamm- tímayfirdráttum, en það þó komið fyrir að þessar tryggingar væru ekki fyrir hendi, þegar á reyndi. Hann sagði að það væri umdeilt meðal bankamanna, hvort löglegt væri að taka vanskilavexti af umsömdum skammtímayfirdrætti, en ljóst aö allir bankarnir gerðu það. Hins vegar væru þessar heimildir yfir- Allir kassarnir þar sem skjöl um ávísanamálið eru geymd. Auk þessara skjala er svo einn stór skjalaskápur fullur af gögnum. Visismyndir Jens leitt til skriflegar i aðalbönk- búum bankanna hvernig frá unum, en mjög misjafnt i úti- þessu hefur verið gengið. —rj r I gœr var unnið við að fletta grasinu ofan af Laugardalsvellinum, en stór hluti vallarins var stórskemmdur. — Sjá baksíðu HEFUR SKIPULAG ORKUIÐNAÐARINS í FÖR MEÐ SÉR TVÍVERKNAÐ? Þorvaldur Garðar Kristjánsson formaður Orkuráðs lýsir ýmsum meinbugum á núverandi skipu- lagi orkuiðnaðarins, I viðtali við Visi á bls. II. Segir hann að núna geti það komið fyrir aö tveir aðil- ar vinni aö sömu rannsókn og geti slikt haft i för með sér tviverkn- að. Þá fjallar Þorvaldur um hraða i byggingu orkumannvirkja og segir hann að hraðinn geti haft þær afleiðingar að ákvörðun sé tekin um að byggja orkumann- virki sem ekki séu hagkvæm. Þorvaldur ræðir einnig um að dreifa þurfi orkuverum um landið vegna hættu á eldgosum. Loks reifar hann ólikar hug- mvndir um eignaraðild. rekstur og uppbyggingu raforkufyrir- tækjanna. Sjá bls. 11. Helgarblaðið fylgir ókeypis með Vísi í dag

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.