Vísir - 09.10.1976, Blaðsíða 13
13
VISIR Laugardagur 9. október 1976
Vísir á ferð um landið
„Sportveiðimennirnir eru að eyðileggja
fyrir okkur lífsafkomuna" í )
— segja dragnótamenn á Dalvík
- Simi 42600
„Þaö á nú aö heita aö viö
séum á dragnót, en þaö er þó
varla aö hægt sé að kalla þaö þvi
nafni, þvi riðin eru svo stór á
nótunum að viö fáum varla bein
úr sjó”, sögöu sjómenn er viö
vfsismenn hittum aö máli á Dal-
vik fyrir stuttu.
Það voru skipverjar á. nóta-
bátnum Otri frá Dalvik er viö
hittum við höfnina á Dalvik, en
þeir voru þar að gera aö nótum
sinum þar i góðviðrinu. Þrátt
fyrir að komiö væri fram i októ-
ber var ekkert lát á góðviðrinu
þar norðanlands, og menn
gengu um léttklæddir.
Skipstjóri á Otri er Björgvin
Gunnlaugsson, en á bátnum er
fimm manna áhöfn. Eru meðal
annarra i áhöfninni bræður
skipátjórans og faðir. Eru þeir
feögar frá Arskógsströnd en eru
nýlega fluttir til Dalvikur.
Þeir skipverjar á Otri sögðu
að erfitt væri aö stunda drag-
nótaveiðar i Eyjafirði eftir að
gefin heföi verið út ný reglugerð
um lágmarksmöskvastærð
dragnóta, en þar er kveöið á um
aö ekki megi nota möskva undir
170 mm að stærð, en áður var
miðað við 120 mm. „Þetta er að
okkar dómi alltof stórt stökk,
ekki hvað sist með tilliti til þess
að togurum er leyft að nota net
meö allt niður i 135 mm
möskvastærð”, sögðu þeir fé-
lagar. Sögðu þeir liklegast að
dragnótaveiöar fyrir norður-
landi legðust alveg niður ef ekki
yröi breyting þar á. „Það eru
sportveiöimennirnir sem
heimta þetta, og siðan lendir
það á okkur sem höfum fram-
færi okkar og fjölskyldna okkar
á veiðum hér i firöinum”, sagöi
Gunnlaugur Kárason, faðir
skipstjórans. — Með sportveiði-
mönnunum átti hann við þá
menn sem stunda ýmiss konar
vinnu, en róa á litlum trillum
um helgar.
Þeir sögðu ennfremur að
Kaupfélag Eyfirðinga væri með
einu fiskverkunarstöðina á Dal-
vik, og þvi yrði allir að leggja
þar upp, hvort sem þeim likaöi
þaö betur eða verr. — „En það
er alltaf svona og svona þegar
eitthvað fyrirtæki nær einok-
unaraðstöðu eins og KEA hér”,
sögöu þeir ennfremur.
Þá sögðu skipverjar á Otri
okkur að sennilega væri einna
best að fullvinni aflann sjálfir,
og skapa sér á þann hátt vinnu,
ekki sist ef aflinn ykist ekki. Það
kváðust þeir hafa gert meira og
minna er þeir voru enn búsettir
úti á Arskógsströnd. — „Það
sem annars hefur bjargað okkur
hér i sumar, er það, hve tiðar-
farið hefur verið einstakt”,
sögðu þeir að lokum, og hver
getur ekki tekið undir þau orð?
— AH Akureyri
Ahöfnin á Otri á hafnarbakkanum á Dalvik I bliðviðrinu fyrir
nokkrum dögum. Taliö frá vinstri: Jens Sigurðsson, Gunnlaugur
Jón Gunnlausson, Gunnlaugur Karlsson og Björgvin Gunnlaugsson.
A myndina vantar Albert Gunnlaugsson.
Björgvin Gunnlaugsson, skip-
stjóri á Otri frá Dalvik að
huga að netunum.
HAKSKE
Skúlagötu 5
54
RASN
VORUH