Vísir - 05.01.1977, Side 4

Vísir - 05.01.1977, Side 4
Miðvikudagur 5. janúar 1977 vism Carrillo situr fundi stjórnar andstöðunnar Santiago Carrillo, leið- togi spænskra kommún- ista, kom opinberlega fram í gær, fimm dögum eftir að hann var látinn laus úr fangelsi, til fundar með leiðtogum stjórnar- andstöðuf lokkanna. Til umræðu voru fyrirhugaðir samningar við stjórnina til undir- búnings þingkosningunum. Sæti Carrillos á fundinum hafði staðið autt, meðan samninganefndin beið hans úr fangelsinu. Aður en Carrillo var handtek- inn hafði hann farið huldu höfði, siðan hann kom til Spánar úr út- legðinni i febrúar i fyrra. Hann hefur verið ákærður fyrir sam- neyti við ólögleg samtök (kommúnista), en viðurlög við þvi varða allt að 6 ára fangelsi. Hinsvegar var dómstóll sá, sem fjalla skal um slikar kærur, leyst- ur upp sama daginn og Carrillo var látinn laus. Santiago Carrillo, leiðtogi kommúnista, á leið frá fangels- inu, látinn laus gegn tryggingu, þar til mál hans verður tekið fyrir. Jens Evensen, hafréttar- málaráðherra Noregs, er kominn til Moskvu, þar sem hann mun ræða við ráðamenn um, hvernig varðgæsla skuli höfð á Barentshafi. Hann mun reyna að fá rússa til að samþykkja, að eftirlits- menn með veiðarfærabúnaði megi fara um borð í skip, sem stödd eru á þvi 60 þús. ferkiló- metra svæði er fellur undir 200 milna lögsögu beggja rikj- anna. Vískííð Tugþúsundir litra af viskí eyðilögöust í eldi, þegar þrjár sprengingar urðu í tveim vöruskemm- um i Glasgow í gær. Níu manns slösuðust. Tjónið er metið til 20 milljóna sterlingspunda, og lögreglan álit- ur, að mannskaði hefði orðið, ef ekki hefði verið áramótafri og vinna þvi legið niðri. Sjónarvottar segja, að spreng- „Það var erfið ákvörðun fyrir mig að taka," sagði Jimmy Carter, þegar hann gerði blaðamönnum grein fyrir því í gær, að hann ætlaði að hætta hnetusölu- viðskiptum sínum, meðan hann gegndi forsetaemb- ættinu til að fyrirbyggja grun um misnotkun að- stöðu sinnar. Eins og fyrir löngu er kunnugt, þá er Carter vellauðugur maður af umsvifum sinum i hnetuvið- skiptum. Hann hefur nú i huga að selja vöruskemmur sinar, sem hann hefur rekið i félagi með bróður sinum, Billy, og móður Jimmy Carter (t.v. i framsæti) á ikornaveiðum á landareign sinni með vini, sem ekur jeppanum. Yfir þeim sitja llf- verðir forsetans tilvonandi. brann ingar hafi komið hver á eftir ann- arri með stuttu millibili, en öflug- asta sprengingin varð i vöruhúsi, sem hafði að geyma ýmis efni til landbúnaðar og hjólbarða auk landbúnaðartæk ja. Um orsakirnar er ekki vitað. Þó láta menn sér detta i hug gasleka, þvi að margar slikar sprengingar hafa orðið i Bretlandi af völdum skemmda á gasleiðslum. Tvær slikar urðu i Liverpool og Hudd- ersfield i gær. þeirra, Lillian. Eða að öðrum kosti leigja þær til fjögurra ára. Carter sagðist ætla að fá til fjárhaldsmann til þess að lita eft- ir rekstrinum og eignunum, og kvaðst leggja það á vald honum, hvort heldur yrði leigt eða selt. Klæddur i peysu, gallabuxur og gúmistigvél sýndi Carter frétta- mönnum vöruskemmur sinar og sagði um leið og hann benti þeim á: „Sumt af þvi byggði ég með eigin höndum og það áður en Billy kom heim úr hernum.” skilin við Ali Heimsmeistarinn, Mu- hammad Ali, kemur til með að þurfa að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni 1,5 milljónir dollara við skiptingu eigna þeirra, auk svo lífeyris. Khalilah Ali, önnur kona hnefaleikakappans, krafðist skilnaðar á grundvelli þess, að eiginmaðurinn hefði yfirgefið hana. Var henni veittur skilnaður eftir 9 ára hjónaband þeirra. Ali lét fyrir skömmu eftir sér hafa, að skilnaðarsamkomulag mundi ganga svo hart að honum Ali situr með sárt ennið og treystist ekki til þess aö hætta hnefaleikum eftir fjárútlátin. Beiinda eða Khalilah fær rifieg- an skilding úr búi þeirra Alis. fjárhagslega, að hann gæti ekki hætt hnefaleikum, eins og hann hafði heitið siðasta haust. Khalilah fékk umráð barna þeirra fjögurra: Maryum (7 ára), tviburanna Reeshemah og Jamillah (6 ára) og einkasonur þeirra, Muhammad Ibn (4 ára). Hún fær lifeyri til fimm ára (ótilgreinda upphæð), iburðar- mikið heimili þeirra i úthverfi Chicagó, og tvo bila (Rolls Royce og Cadillac.) Þau Ali gengu i hjóna- band 1967, sama árið og Ali fékk skilnað frá fyrstu konu sinni, Sonji, eftir 3 ára hjónaband. Khalilah hét Belinda, áður en Ali snéri henni til múhammeðs- trúar. Þeirra hjónaband tók að molna, eftir að Ali fór að láta sjá sig mikið á almanna færi með tiskumærinni Veronicu Porche. Veronica var orsök hörku- rifrildis milli Ali og Khalilah skömmu fyrir einvigiö við Frazier i Manila á Filippseyjum 1975. — Ali gekkst við barni, sem Veronica eignaðist I ágúst. Belinda 3 MILLJÓNIR FANGA í SOVÉT — segir Bukovsky Vladimir Bukovsky álitur, að þrjár milljónir manna að minnsta kosti séu í fangelsum, fanga- búðum eða geðveikra- hælum i Sovétríkjunum, eftir því sem „ Le Monde" hefur eftir honum í gær. Alþjóða mannréttindafélags- skapurinn, Amnesty Inter- national, hefur til þessa ætlað þennan fjölda vera um 1 milljón. Bukovsky var sjálfur meðal þessara fanga til skamms tima, en Sovétrikin létu hann lausan i skiptum fyrir leiðtoga Kommúnista i Chile, Luis Cor- valan. t viðtalinu við Le Monde var Bukovsky m.a. spurður um álit hans á ástandinu i Kina: „Það er eins og Rússland fyrir 20 eða 30 árum. Þróunin i Kina verður eins og hjá okkur, hraðari eða hægari, Kina fylgir okkar slóð i átt til alræöis flokksins,” svaraði hann. CARTER HÆTTIR HNETUSOLUNNI

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.