Vísir - 25.01.1977, Page 6
6
Þriðjudagur 25. janúar 1977
vism
Spáin gildir fyrir miðvikudaginn
^fi.janúar:
Hrúturinn
21. mars-20. april:
Þér gæti sést yfir m ikilvægan hlut
i flýtinum við að ljúka verkefn-
inu. Seinni hluti dags er anna-
samur, og þú kemst varla yfir allt
sem gera þarf. Hvildu þig i kvöld
og ihugaði ástandið.
Nautið
21. aprfl-21. mai:
Streita er að gera út af við þig,
hægðu á, ef mögulegt er. Þér gæti
runnið i skap vegna hægagangs
annarra. Ekki er flas til fagnað-
ar.
Tvlburarnir
22. mai-21. júni:
ÞU hefur yndi af að láta mikið
bera á hæfileikum þinum. Láttu
ekki skoðanir annarra koma þér á
óvart.
Krabbinn
21. júni-23. jili:
Hækkandi sól hefur stórgóð áhrif
á þig. Lundin er létt og væri
heillaráðað miðla öðrum af gleð-
inni. Ástamálin eru dálitið flökt-
andi.
Ljónið
24. júlí-23. ágúst:
Trúðu ekki öllu sem þér er sagt
eins og nýju neti. Reyndu að
leggja sjálfstætt mat á hlutina.
Það gæti orðið gestkvæmt hjá þér
i kvöld og glatt á hjalla.
Meyjan
24. ágúst-23. sept.:
Fólk sem þú hefur yfir að ráða er
svifaseint og þú óþolinmóður.
Einblindu ekki á dökku hliðarnar,
reyndu að finna hinn gullna
meðalveg.
Vogin
24. sept.-23. okt.
Vinur þinn eða ættingi kemur þér-
i vafasama aðstöðu. Biddu átekta
og vittu hvernig best er að snúa
sig Ur klipunni.
Drekinn
21. okt.-22. nóv.:
Þér hættir til að dreyma dag-
drauma um farsæla lausn eigin
vandamála. Atburður seinni
hluta dags vekur þig til raunveru-
leikans.
Bogmaðurinn
23. nóv.-21. des.:
Efasemdir hafa ef til vill hrjáð
þig i gær, en i dag ættir þú að vera
viss i þinni sök. Þér ætti að vera
óhætt að taka áhættu að vissu
marki.
Steingeitin
22. des.-20. jan.:
Ástin og rómantikin eru i' fullu
fjöri, og fólk fremur daðurgjarnt.
Taktu hlutina mátulega alvar-
'ega. Þér gefst tækifæri til að tala
um deilumál i kvöld.
Vatnsberinn
21. jan.-19. febr.:
ÞU gætir verið gagnrýnd(ur)
smávægilega i dag. Taktu þvi vel
og láttu engan höggstað á þér
finna. Ef þú ert til i tuskið getur
dagurinn orðiö stórskemmtileg-
ur.
Fiskarnir
20. febr.-20.
mars:
Það veitist erfitt að hafa minnstu
áhrif á þig i dag Þú stendur fast á
þinum skoðunum. Þú ættir að
setjast niður i kvöld og ihuga
stöðu þina gagnvart öðru fólki.
En apa maðurinn
hristir þá af sér|~
meðan vélin rennur
niður mýrina
i Peggy Storb sveiflar vélinni til meðan Tarsan tosar mann
henn ar upp I vélina. Nú leggja menn Qgwas til nýrrar atlögu.