Vísir - 01.02.1977, Blaðsíða 1
Siódegisblaö fyrir
fjölskylduna >fM
alla i /i
/«
Samstarf vinstri manna í bœjarstjórn Akraness sundraðist:
Meiríhluti myndaður í nótt
Sjálfstæðisflokkur, Al-
þýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag hafa myndað
nýjan bæjarstjórnar-
meirihluta á Akranesi.
Samstarf Alþýðuflokks,
Alþýðubanda lags og
Framsóknarflokks fór út
um þúfur fyrir skömmu
eftir mikil sambúðar-
vandamál.
Fundir í nýju meiri-
hlutaf lokkunum voru í
gærkvöldi. Var endanlega
gengið frá samstarfinu
um klukkan hálf-þrjú f
nótt.
Flokkarnir gerBu meö sér
málefnasamning og stefnuyfir-
lýsingu. Þar er meðal annars
kveöiö á um stofnun hitaveitu i
samvinnu við borgnesinga, að
vistmenn geti flutt inn i nýtt
dvalarheimili aldraðra i ár og
næsta ár, Fjölbrautarskóli verði
stofnaður, aöalhafnargarðurinn
verði lengdur og lagningu
varanlegs slitlags á götur veröi
haldið áfram. Einnig verði
haldið áfram framkvæmdum
við iþróttahús, sjúkrahús, leik-
skóla og fleira.
Akveöið var að Magnús Odds-
son bæjarstjóri gegni starfi sinu
áfram út kjörtimabilið sam-
kvæmt ráðningarsamningi.
Þess má geta að ekki er þetta
i lyrsta sinn sem vinstri meiri-
hlutinn springur á Akranesi.
Það geröist einnig um 1960. Þá
var llka myndaður nýr meiri-
hluti með sjálfstæöismönnum.
— EKG
Aukin tœkni við kennsiuna:
Borgin kemur
ó fót nóms-
gagnamiðstoð
Notkun ýmiss konar náms-
gagna við kennslu hefur færst i
vöxt á siöustu árum, þótt enn
séum við langt á eftir nágranna-
þjóðunum f þvi efni. Nú hefur
Eeykjavikurborg ákveðið að
styðja við þessa kennslutækni
með þvi að koma á fót náms-
gagnamiöstöð fyrir grunnskóia
borgarinnar.
Námsgagnamiðstöðinni er
ætlaö að hafa umsjón meö
skólasöfnum, annast útbreiöslu-
og fræðslustarfsemi og sjá um
framleiöslu námsgagna. Aætlaö
er að miðstööin hefji ýmsa þjón-
ustu fyrir skóla borgarinnar
með næsta skólaári, en undir-
búningur er þegar hafinn.
Miðstööin veröur deild á veg-
um Fræðsluskrifstofu Reykja-
vikur og hefur Guðbjartur
Gunnarsson veriö ráðinn for-
stöðumaður hennar.
Sérstakt samkomulag hefur
verið gert milli fræösluráðs
Reykjavíkur, menntamála-
ráöuneytisins og stjórnar Rikis-
útgáfu námsbóka um sameigin-
lega aðild að Námsgagnamiö-
stöð Fræösluskrifstofu Reykja-
vikur varðandi mannafla, hús-
næði, tækjakost, efni til fram-
leiðslu, rekstur og varöandi sölu
og dreifingu þeirra námsgagna,
sem fyrirhugaö er að framleiöa.
Ætlunin er að skólar utan
Reykjavikur eigi kost á aö
,kaupa þaö efni I Skólavörubúð
rlkisútgáfunnar sem vel tekst til
um að framleiða i samstarfi við
skóla höfuðborgarinnar. — SJ
: 3
£ tf
£
■'í 6
yÍÍ-Í ci
-•■■C-.JC £ C ' a
*':■$.Jí'É c; O
íx e c o
v js •* c
» jt •* É
‘ -í C
* £ C
■et C
at C
& C ■ ,
Með breyttum kennsiuháttum koma glærur að ýmsu leyti í stað kennslubóka. Nemendur Kennara-
háskóla tslands hafa sfðustu vikuna verið að kynna sér gerð námsgagna af ýmsu tagi og hér vinna
nokkrir fyrstubekkingar aðþviaðsetja hluta heilsufræðinngar á mynd. Ljósm. JA
Fer Krafla í tíu milljarða á árinu?