Vísir - 04.02.1977, Blaðsíða 12

Vísir - 04.02.1977, Blaðsíða 12
12 . .V. >*) ' Föstudagur 4. febrúar 1977 vism HKen n með ha'ae" //TUIIT # n nus i 3. derid Handknattleiksfélag Kópavogs, eða HK eins og félagið er daglega kallað, heldur áfram sigurgöngu sinni i lslandsmótinu i handknatt- leik 3. deild — og er enn eina liðið I Suðurlandsriðlinum, með „fullt hús stiga.” Um siðustu helgi lék HK við Vestmannaeyjaliðið Tý og sigraði örugglega, 27:17. HK hef- ur nú leikiö 6 leiki, sigrað I þeim öllum og er með 12 stig. Næst koma sfðan akurnesingar með 11 stig, en þeir hafa leikiö 9 leiki og þvi tapaö 7 stigum. Um siðustu helgi voru leiknir fjórir leikir i 3. deildarkeppninni og uröu úrslit leikjanna þessi: UMFN —Týr 19:26 Akranes —Þór 26:21 HK — Týr 27:17 Breiðablik —Þór 22:23 Staöan er nú þessi: HK 6 6 0 0 139:91 12 Akranes 9 5 1 3 191:190 11 Afturelding 9505 233:217 10 Þór (Vestm.) 9 4 0 5 195:213 8 Breiðablik 7 3 0 4 152:160 6 Týr (Vestm.) 10 3 0 7 217:247 6 UMFN 8 2 1 5 153:162 5 Næsti leikur i 3. deildarkeppn- inni verður á Akranesi á morgun, þá leika akurnesingar við UMFN. —BB. r — Stjórn HSI svarar „mótmœlendum" í kvennahandbolta // Þœr eldri sýndu takmark- aðan óhuga" ttölum hefur ekki vegnaö sérlega vel I heimsbikarkeppninni á skfðum það sem af er vetrarins, en þó tókst Fausto Radici að sigra f svigkeppn- inni sem fram fór I Madonna di Campiglio fyrir skömmu og sýnir myndin hann f keppninni. KKÍ „skandali"! Oft hcfur viröingaleysi for- ustumanna Körfuknattleiks- sambandsins við yngri flokka mót f körfuknattleik verið al- gjört, en ég held aldrei eins og 1 Hagaskólanum f fyrrakvöld. Þá fór fram leikur I 2. fl. karla milli IR og Fram. Var hér um úrslitaleík aö ræða, þar sem þetta eru tvö bestu liðin og bera þau nokkuð af hvað getu snertir. Forráöamönnum KKt var það fullljóst að með tilliti til nýaf- staöins Reykjavlkurmóts að hér var um úrslitaleik að ræða. Samt sem áöur var fram- kvæmd leiksins svo gjörsam- lega I molum að „elstu menn á Eyrarbakka muna ekki annað eins”. Dómararnir mættu 15 mfnút- um of seint, og hafði hvorugur þeirra tilskilin réttindi til dóm- arastarfa, enda var dómgæslan vægast sagt ömurleg, en bitnaði þó jafnt á liðunum sem betur fer. Ritari og timavörður höfðu hvorugur gegnt þeim störfum áður, og höfðu dómarar ekki undan að lagfæra vitleysur þeirra og tafðist leikurinn oft I margar mfnútur meðan vitleys- ur þeirra voru lagfæröar. En það er ekki rétt að hella sér yfir starfsmcnn leiksins, þeir hafa áreíöanlega reynt að gera sitt besta. En sama verður ekki sagt um KKt og þá sem þar stjórna. Það er stjórn KKl sem sér, eða öllu heldur á að sjá um framkvæmd leikjanna. t báðum liöum sem kepptu I fyrrakvöld, 1R og Fram, voru leikmenn búnir að leggja i sig gifurlega vinnu tilaöstanda sig nú þegar mest á reyndi, en þá kemur framkoma KKt eins og köld vatnsgusa framan i alla. Framkoma sem á sér engar hliðstæður. En eitt er vist, hvortsem KKt- menn skilja það eða ekki að á meöan svona er haldiö á málum yngri flokkanna allra er ekki hægt að gera sér vonir um ár- angur á alþjóðavettvangi. KKl-menn með tölu ættu að skammast sin, ef þeir þá kunna þaö, fyrir þá lltilsvirðingu sem þeir sýna hinum yngri og þeim sem eiga að taka við. Allir þessir menn ættu að fela sig og gleyma aö segja HÓ! Það yrði körfuknattleikslþróttinni örugglega til framdráttar. En eitt er vist, og það er að þetta á- stand getur ekki versnað. t stjórn KKt eru nú þessir menn: Páll Júliusson form. Haukur Hannesson, Birgir ö. Birgis, Guðni Guðnason og Bogi Þor- steinsson. Stefán Kristjánsson Ekki eru ýkja mörg ár siðan erlend samskipti islenskra handknattleiksstúlkna ein- skorðuðust við Noröurlanda- meistaramótið, sem haldið var á tveggja ára fresti, siðan á þriggja ára og nú á fjögurra ára fresti. Norðurlandameistara- mót unglinga hefur hins vegar veriö haldið árlega frá 1972 að þessu ári undanteknu vegna h eimsmeistarakeppninnar. Segja má, að það sé fyrst haustið 1974 að breyting veröur á, en þá eru tekin upp lands- leikjasamskipti við færeyinga og hollendinga og I ársbyrjun 1975 er leikiö við bandarikja- menn, bæði i janúar- og april- mánuði. 1 aprilmánuði er svo einnig Noröurlandameistara- mót unglinga hér heima. Lands- liðsnefnd var þvi bjartsýn eftir árangurs- og viðburðarikt leik- ár 1974/75 og formaður lands- liðsnefndar fór gagngert i heimsókn til handknattleiks- sambanda Hollands, Þýska- lands og Danmerkur I þeim til- gangi að semja um landsleiki fyrir A-landslið og þá e.t.v. einnig fyrir U-landslið á næstu tveimur árum. 1 október 1975 var svo hafist handa með æfingar eftir sumar- hlé, en þvi miður kom I ljos, að hér hefði oröið á mikil breyting til hins verra. Eldri stúlkurnar sýndu afar takmarkaðan áhuga á æfingunum, en hins vegar mættu yngri stúlkurnar miklu betur og sýndu starfinu lifandi áhuga. Nú var landsliðsnefndinni vandi á höndum, búið var að semja um 10-12 landsleiki og m.a. um keppnisferö til Þýska- lands, Hollands og Danmerkur. H.S.t. hafði I samráði við lands- liðsnefnd samið um þessa gagnkvæmu landsleiki fyrir áeggjan stúlknanna sjálfra og vegna endurtekinna kvartana þeirra um verkefnaskort. En hér kom I ljós, að hjá eldri og leikreyndari stúlkunum var áhuginn meiri I orði en á boröi. Var nú engu að siður hafinn undirbúningur undir keppnis- ferðina og auk þess undir þátt- töku I Norðurlandameistara- móti unglinga 1976, sem fram fór I Sviþjóð I aprilmánuöi. Segja má að I ársbyrjun 1976 hafi hlaupið á snærið hjá lands- liðsnefndinni, þar sem voru heimsóknir bandarikja- og kanadastúlkna og léku þessi landslið nokkra landsleiki við islensku stúlkurnar. i maimánuði var svo haldiö i langa og stranga keppnisferð til Þýskalands og Hollands. Leikn- ir þar 3 landsleikir og fjöl- margir aðrir leikir, m.a. við meistaraliö ýmissa landa, sam- tals 12 leikir á 10 dögum. A siöastliðnu hausti átti fyrsta verkefni kvennalandsliðsins aö vera þátttaka i Norðurlanda- meistaramóti i lok nóvember- mánaðar. Eins og öllu hand- knattleiksfólki er kunnugt um, hefur H.S.Í. löngum veriö á hrakhólum með húsnæði fyrir landslið sin og ráða þar hvorki bænir né fyrirheit. Veröur slikt ástand vafalaust óbreytt meðan sambandið ræður ekki yfir eigin æfingaaöstööu. Ekki fékkst húsnæði fyrir kvenna- landsliðið fyrr en I siöari hluta októbermánaðar og var nú skammur timi til stefnu. Boöaö- ur var hópur um tuttugu stúlkna til æfinga og lögð áhersla á mikilvægi fyrstu æfinganna. Landsliðsnefndin hugsaði nú gott til glóðarinnar, þar sem pólski landsliðsþjálfarinn dr. Janusz Czerwinski, var mættur til leiks og mætti hann á fyrstu 2 æfingarnar, sem boöaðar voru. A þessum fyrstu æfingum mættu alls 8 stúlkur, þ.e. á ann- arri æfingunni 7 en hinni 6. Dag- inn eftir siðari æfinguna var siðasti dagur, sem unnt var að draga til baka þátttökutilkynn- ingu I Norðurlandamótið og þar sem einsýnt þótti, að verulega skorti á nægan áhuga, var máliö tekið til endurskoðunar af H.S.Í. og landsliðsnefnd. I.andsliðsnefndinni þótti þaö mjög hryggilegt, hve stúlkurnar sýndu litinn áhuga, þótt einn færasti þjálfari heims væri kominn þeim til leiðbeiningar og aðstoðar. Þætti það vafalaust saga til næsta bæjar I hvaða landi sem er, að aðeins mættu 6 og 7 handknattleiksiðkendur á æfingu hjá dr. Czervinski. Sameiginleg viðbrögð H.S.f. og landsliðsnefndar við áhuga- leysi stúlknanna var ákvörðun um gagngera endurskoðun fyrri áætlana. Tillögur landsliðs- nefndar, sem samþykktar voru af stjórn H.S.t. voru i þremur liðum: 1. Þar sem ekki væri von til að unnt yrði að ná saman fram- bærilegu libi á þeim skamma tima, sem til umráða væri, skyldi hætt vib þátttöku I Norðuriandameistaramóti 1976. 2. Tekin veröi upp þjálfun stúlkna 15-18 ára og verði fyrst um sinn höfð ein tvöföld æfing i viku. 3. Tekin verði upp þjálfun stúlkna I aldursflokknum 19- 23 ára og úr þeim hópi valinn landsliðskjarni, sem komi fram fyrir tslands hönd i þeim leikjum sem framundan eru I febrúar- og aprilmánuði 1977. Æfingar verði fram að áramótum ein tvöföld æfing I viku, en verði siðan fjölgað eftir þörfum og aðstæðum. Eftir þessum tillögum hefur verið starfað fram til dagsins i dag, en framundan eru 5 A- landsleikir á yfirstandandi keppnistimabili. Þaö var lands- liðsnefndinni þegar ljóst, að það yrði þessum ungu stúlkum, sem margar hverjar eru litt leik- reyndar, erfiður róður að leika gegn vel þjálfuðum landsliöum annarra þjóða. Var þvi ætið haft i huga að bæta mætti inni þetta lið eldri stúlkum, ef sýnt þætti að slikt mætti verða til að styrkja það. í dag standa málin þannig, að þegar hefur tveimur eldri stúlkum verið bætt inn i þann hóp, sem stundar æfingar hjá landsliösnefndinni. Handknattleikssambandið vill taka skýrt fram, að fyrr- nefnt aldurstakmark er aðeins timabundin ráðstöfun og að ekki er ætlun þess að fram- tiðarlandslið tslands verði ekki skipuð eldri stúlkum. Þessi leið, sem H.S.l. hefur valib, hefur einnig verib farin i ýmsum Evrópulöndum og má m.a. benda þar á Holland og Vestur-Þýskaland i þvi efni. Starf landslibsnefndar hefur ætið beinst að þvi að mæta ósk- um starfandi handknattleiks- stúlkna og hefur hún reynt að velja þær leiöir sem hún hefur talið vera iþróttinni mest til framdráttar á hverjum tima. En það hefur komið fyrir oftar en einu sinni, að áhugi stúlkn- anna hefur verið mjög sveiflu- kenndur svo ekki sé meira sagt. Santið hefur verið — um lands- leiki fram i timann, en þegar á átti að herða og tekið skyldi til við æfingar, hafa mætingar veriö mjög lélegar. 1 blaðaskrifum hefur þvi veriö haldið fram af handknattleiks- stúlkum, að landsliðið I dag sé lélegt og litt áhugavert, en um landslið hefur ekki verið að ræða siðan i mai á siðast-liðnu ári. Það hefur aldrei veriö hlut- verk landsliðsnefndar að kenna handknattleik - og handknatt- leikslþróttina verða stúlkurnar, eins og piltarnir að læra I sin- um félögum. Landsliðsnefndir hafa hins vegar það verkefni að skapa og viðhalda samskiptum við erlendar þjóðir, að gefa völdum hópi kost á æfingum undir handleiðslu þeirra þjálf- ara, sem völ er á á hverjum tlma og hvetja slika lands- liðshópa áfram til starfs. Ef þær sýna ekki þann þroska og áhuga að vilja fórna einhverju fyrir þátttöku I landsliði og landsliðsæfingum, þá veröur aldrei gott landslið til. Það er og veröur þvi fyrst og fremst stúlknanna sjálfra að mynda gott og áhugavert landslið. m vism Föstudagur 4. febrúar 1977 „Vilja bara keppa en ekki œfa" 9 — segir formaður HSI Eins og sjá má hér á siðunni á hefur stjórn HSl sent frá sér ýtar- lega greinargerð vegna málefna kvennalandsliösins, og á blaba- mannafundi I fyrradag bar þetta mál á góma. „Það eru fjölmargar stúlkur sem hafa ekki æft neitt með sínum fé- lögum, bara keppt”,sagði Siguröur Jónsson, „en þær verða að gera sér grein fyrir þvi að þaö getaþær ekki hjá landsliðinu, þótt það sé það sem þær vilja margar hverjar. Það er kominn timi til að þær fari að æfa almennilega”. Stjórnarmenn HSt drógu mjög I efa að mark væri takandi á undir- skriftariistanum sem sendur var blöðunum á dögunum, þar sem þess var m.a. krafist að Landsliös- nefndin segði af sér strax. Svana Jörgensdóttir form. Landsliðs- nefndar kvenna hafði þetta að segja um það mál: „Þaö er fullljóst að þær yngri sem skrifuðu undir á listanum voru beinlinis þvingaðar til þess margar hverjar af þeim eldri, sem hrein- lega stóöu yfir þeim á tneban”. Sigurður Jónsson vildi taka það sérstaklega fram að honum þætti málsmeðferð stúlknanna öll hin einkennilegasta. Þær heföu átt aö ræöa þetta mál við stjórn HSt, en ekki hlaupa með þetta I blöðin. „En við erum tilbúnir að ræða málið viðstúlkurnar, og ég vil biðja ykkur aö boða til fundar hér I skrif- stofu HSt á þriðjudaginn kl. 19, og ykkur er velkomið að vera við- staddir þann fund”, sagði for- maðurinn að lokum. gk—. Þeir keppa á HM Lið tslands sem tekur þátt I heimsmeistarakeppninni I borö- tennis hefur verið vaiið, en keppnin fer fram i Birmingham i Englandi 26. mars—5. april n.k. Keppendur tslands veröa þessir: Hjálmar Aðalsteinsson KR Hjálmtýr Hafsteinsson KR Ragnar Ragnarsson örninn Stefán Konráðsson Gerpla Asta Urbancic örninn Bergþóra Valsdóttir örninn Undirbúningur liðsins fyrir keppnina hefst að segja má í kvöld, en þá leika isiendingar og færey- ingar landsleik i Laugardalshöll. Arsþing borðtennissambandsins var haldið nýlega, og þar var Gunnar Jóhannsson kjörinn for- maður fyrir næsta starfsár. gk-. Barist á botninum og toppnum — Það má búast viö þvf aö mikib verði öskrað og veinað I iþróttahús- inu í Njarðvik á morgun ef að likum lætur, þvi þá mætast þar toppliðin i 1. deild I körfuboltanum UMFN og Armann. Það er ekki langt siðan þessi lib léku leik sinn I fyrri umferðinni i tsiandsmótinu, og þá sigraði UMFN með 4 stiga mun eftir mik- inn baráttuleik. Sigri þeir einnig á morgun, þá hafa þeir tekið örugga forystu I mótinu, og þab sama gild- ir ef Ármann sigrar. Bæði liðin hafa tapab eihum leik til þessa. Leikurinn hcfst kl. 14. Það verður einnig barist á botn- inum I dcildinni, þvi á sunnudaginn leika Fram og Breiðablik i Iþrótta- húsi Hagaskóla kl. 19. Breiðabliks- menn hafa enn ekki hlotið stig i deildinni, en Fram hefur tvö stig — úr fyrri leik liöanna. Þriðji leikurinn I 1. deild um helgina er leikur Vals og tS sem verður i Kennaraháskólanum kl. 15 á morgun. gk—. SÍMON VAR LÖGIIGUR! Þvi var nú aldrei haldið fram af okkar hálfu að Slmon ólafsson hefði verið ólöglegur með Ár- manni, en við vildum fá úr því skorið I eitt skipti fyrir öll hvort svo væri”, sagði Guttormur ólafsson þjálfari Breiðabliks viö Visi I gær- kvöldi, en þá hafði dómstóll Körfu- knattleikssambandsins nýlokið við að dæma I kæru Breiöabliks á hendur Ármanni vegna Simonar Ólafssonar. Orskurður dómstóls KKI var á þá leið að samkvæmt 8. gr. Móta og keppendareglna ÍSÍ væri Simon löglegur, og Armann skyldi þvi halda stigunum tveimur sem félag- ið fékk I leiknum við Breiðablik. ,,Ég geri alveg ráð fyrir aö við sættum okkur við þessa niður- stöðu”, sagði Guttormur, — en við eigum þó eftir að kynna okkur mál- ið og sjá forsendur dómsins.” Þetta voru e.t.v. þau úrslit sem flestir höfðu reiknaö með, en það hlýtur óneitanlega að vekja furöu manna að um þetta mál skyldi ekki vera fjallaö á löglegan hátt. Aö sjálfsögðu átti málið fyrst að fara fyrir dómstól I þvi Iþróttahéraöi sem leikurinn fór fram i, en svo var ekki gert — og málið sent beint til sérdómstóls. Var kæra breiðabliks- manna ef til vill stiluö á rangan aðila? — Það sem veldur þvi að minnst er á þetta hér er einungis það að ef stærri mál koma upp, þá er nauðsynlegt að menn viti hvaða leið á að fara i þessum efnum. gk—. Nr. 1 — 1. tbl. 1. 1977.Verð kr. 300 Við voru feti frá úrslitaleiknum — sagdi Ingólfur Oskarsson „SPORT-maöur* mánaðarins: Hrelnn Halldórsson „RikkiM bestur Norður- löndum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.