Vísir - 11.02.1977, Blaðsíða 12

Vísir - 11.02.1977, Blaðsíða 12
Slask á Akureyri Pólska meistaraliöiö Slask Wroclaw scm er hcr i viku keppnisferö leggur land undir fót i dag og heldur til Akur- eyrar. l>ar mun liöiö leika gegn úrvali úr Akurevrarfélögunum i kvöld i iþróttaskemmunni, cn á morgun kem- ur islenska landsliöiö noröur og leikur viö Slask þar nyrðra á morgun. Daginn eftir halda bæöi liöin suöur aftur og mætast i iþróttahúsinu i Hafnarfiröi á sunnudag, Skjaldarglíma Ármanns Skjaldarglima Armanns hin 65. I röðinni, verður háö i iþróttahúsi Voga- skóla á morgun, og hefst keppnin kl. 16.30. Kcppendur veröa úr öllum glimu- féiögum i Heykjavik og má nefna Guö- mund 'ólafsson Armanni og óskar Valdimarsson UV. Norton og Bobick mœtast í New York Nú hefur veriö ákveöiö að leikur þeirra Ken Norton og Duane Bobick i þungavigt ihnefaleikum sem fram átti aö fara 2. mars, en var frcstað vegna þess aö Bobick rifibeinsbrotnaöi fari fram I Madison Square Garden I New York 11. mal. Norton sem tapiöi siöustu keppni sinni fyrir heimsmeistaranum Mu- hammcd Ali á stigum I 15 iotum fær 500 þúsund dali, en Bobick fær 250 þús- und dali. Norton hefur unnið 37 leiki siöan hann gerðist atvinnumaöur —en tapaö fjórum. Bobick hefur hinsvegar unniö alla sina leiki sem eru 37 sfðan hann geröist atvinnumaöur i hnefa- ieikum. —BB * Yngri brœður- nir unnu þá eldri Paul Frommclt frá Lichtenstein varö svissneskur meistari isvigi i gær, þegar hann sigraöi i svissneska meistaramótinu sem fram fór I Leukerbad I Sviss. Frommelt er annar skiöamaöurinn frá Lichtenstein sem hlýtur þennan titil — 1973 sigraöi Willy Frommelt, eldri bróöir Paul i þessari keppni. Willy gekk ekki vel I keppninni i gær, hann sleppti hiiöi og var dæmdur úr leik. Paul gekk hins vegar allt i haginn, hann náöi bestum brautartimanum i báö- um feröunum 57,23 sek. og 51,30 sek. — og fékk samanlagðan tfma 1:48.53 min. Ilann fékk haröa keppni frá Christian Hemmi sem var aöeins meö sex hundruðustu úr sekúndu lak- ari tíma 1:49.13 min. Eidri bróöir Christian — Heini Hemmi sem varð svissneskur meistari i fyrra sleppti hliöi eins og Willy Frommelt haföi gert i fyrri feröinni og var þar meö úr leik. Þriöji varö Peter Luescher á 1:49.55 min, og i fjóröa sæti kom svo Andrea IWenzel frá Lichtenstein á 1:50.24. —BB . SJ„---grT^^MM^.----,—aostí^ Föstudagur 11. febrúar 1977 vism vism Föstudagur 11. febrúar 1977 Markovic Landsleikur við Fœreyinga í borðtennis island og Færeyjar leika landsleik I borötennis i l.augardaishöliinni I kvöld. Þetta vcröur fimmta sinn sem þessar þjóöir mætast. i fyrri ieikjum hefur tsiand sigraö þrisvar, en færey- ingar einu sinni — þaö var i Reykjavik 1973. Liöin veröa skipuöfimm inönnum og er liö tslands þannig: Kagnar ltagn- arsson, Hjálmar Aöalsteinsson, Björg- vin Jóhaunesson, Gunnar Finnbjörns- son og Stri in Konráðsson. Þekktasti leikmaöur .ærcyska liösins er Alek Beck. Ilanr. hefur meöal annars oröiö færeyjameistari átta siöustu árin. Auk þ>-ss veröur keppt I únglinga- llokkum 15-17 ára. Þar keppa: Hjálm- týr Hafstcinsson. Tómas Guöjónsson og Sveinbjörn Arnarsson — og i flokki 13-15 ára þar sem þeir Bjarni Kristjánsson og Gylfi Pálsson keppa. A morgun verður svo opiö mót á Akranesi nieö þálttöku beggja lands- liöanna og hefst þaö klukkan 12.00 en tandsieikuiinn I kvöld liefst kl. 20:00. A mótinu á Akranesi er búist viö aö Gunnari Finnbjörnssvni takist aö vinna sig upp i I. flokk en til þess þarf hann aöcins einn punkt. — BB • Líta starfsemi Æskulýðsráðs hornauga „Æskulýðsráð tekur mikiö af ungl- ingum frá hinitm ýmsu félögum og þvi ekki nema von að viö Htum þessa starfsemi horr.auga,” sagöi Gunnar Jónannsson rormaöur Borötennissam- bandsii.s á blaöamannafundi í tiiefni af landr.leik færeyinga og Islendinga I Laugardaishöilinni ! kvöld. Gunnar sagöi aö Æskulýösráö heföi fjármagn- iö og gæti þvi ráöið bestu þjálfarana til sin og eius boöiö uppá mun lægri æfingagjöld en tiökuöust hjá félögun- um. En sem betur færi væri þessuekki þannig fariö hjá öllum félögunum sem stööugi yróu fjölincunari, og nefndi Gunnar KR og Viking sem dæmi. — BB Naumur sigur hjá Klammer Franz Klammer tókst naumlega aö verja titil sinn I austurriska mcistara- mótinu I bruni sem fram fór I Klein- kirchheim I gær. Klammer, sem hefur tapaö nokkr- um keppnum aö undanförnu eftir mikla sigurgöngu áöur, varð þar aö- eins 4 hundruöustu úr sekúndu á undan Ernst Winkler, en þeir tveir höföu tals- veröa yfirburöi yfir næstu menn. Klammer fékk timann 1.46.47 minútur, en Winkler 1.46.51 minútur. —gk Sundblaðið komið út Sunddeild Armanns hefur gefiö út fréttablaö — Sundblaöiö — og er áætl- aö aö þaö komí út fjórum til fimm sinnum á ári. i blaðinu segir aö þar sem fréttir af sundfólki I fréttamiölum séu af skorn- um skammti og heldur bágbornar hafi Sunddeild Armanns ákveöiö aö bæta þar úr meö útgáfu þessa blaös. Meöal cfnis i þessu fyrsta blaöi má nefna: Skotiandsferö, Arsþing SSt, Vestmannaeyjaferö, sundknattleik — og fleira efni er I blaöinu sem fæst á öllum sundstööum ogkostar 50 krónur. ...Hvert ertu aö fara vinur? Agnar Friöriksson laumast hér aftan aö Stefáni Bjarkasyni og nær aö slá boltann úr höndunum á honum Ileik ÍR og UMFN Igærkvöldi. Ljósmynd: Einar Álít fór í lós hjá stúdentunum ,,Ég veit varla hvaö þaö er sem veldur þessu hjá okkur. Þaö er ekki cölilegt hvaö liöiö getur dott- iö langt niöur,” sagöi Bjarni Gunnar miöherji ÍS eftir aö liö hans haföi misst niöur stórt for- skot i leiknum viö Armann i bik- arkeppninni I gærkvöldi, og Ar- mann sigraði meö 80 stigum gegn 74. „Annars mætti segja mér aö llkiegasta skýringin sé sú aö viö ieggjum ekki nægilega mikla rækt viö yngri flokkana,” bætti Bjarni viö og virtist bara taka ó- sigrinum vel. Leikur IS og Ármanns var fjör- lega leikinn, IS byrjaöi vel og reyndar átti liöiö allt stórleik I fyrri hálfleik og haföi forustuna allt frá byrjun. Jón Sigurðsson lék ekki meö Armanni nema stuttan kafla I hálfleiknum og haföi þaö sitt aö segja fyrir liöið. ÍS hafðiyfir þetta 8-12 stig, en i hálfleik var staöan 35:44 fyrir stúdentana. En byrjunin I siöari hálfleikn- um var öll eign ármenninga. Þeir pressuöu stift allan völlinn, og langtimum saman komust stúdentar ekki fram yfir miöju vallarins. Boltinn var miskunnar- laust hirtur af þeim, og Ármann fékk 20 fyrstu stig hálfleiksins gegn aðeins tveimur stigum ÍS og staöan var oröin 55:46 fyrir ár- menninga. Þar meö var raunar gert út um þennan leik, þvi Ar- mann hélt sínum hlut þótt 1S rétti aðeins úr kútnum þegar á hálf- leikinn leið. Meistarar Ármanns sýndu það i þessum leik að þaö veröur erfitt aö stöðva þá á leiö sinni til aö verja titil sinn. Fjarvera Jóns Sig. setti aö visu mikil mörk á leik liðsins, og hann dreif liöið áfram til sigurs. En besti maður liösins var Simon ólafsson sem var sterkur bæöi í sókn og vörn. Af öðrum leikmönnum má nefna Björn Magnússon sem átti aö venju góöan varnarleik og ó- venjugóöan sóknarleik. Um ástæöuna fyrir þessari miklu sveiflu I leik IS skal ekki fjölyrt hér, það er ekki auövelt aö skýra hana og best aö visa bara I orö Bjarna Gunnars hér að fram- an. Stighæstir hjá Armanni voru Sfmon meö 28 stig, Björn Magn- ússon 18 og Björn Christenssen 14. Hjá 1S Steinn Sveinsson 21, Bjarni Gunnar 14, Jón Héöinsson og Ingi Stefánsson 12 hvor. gk—. vill þjúlfa landsliðið „Þvi er ekki að neita að ég hef mikinn hug á þvi aö þjálfa lands- liðið áfram, en það er félag mitt UMFN sem ræöur þvihvort af þvi getur orðið eða ekki”, sagði Vlad- an Markovic, þjálfari UMFN i körfuknattleik, þegar við ræddum við hann I gærkvöldi, en eins og viö skýröum frá i blaðinu i gær mun Markovic ekki sjá um þjálf- un landsliðsins áfram eins og hann hefur gert I vetur. Astæöan fyrir þvi, að hann hef- ur ekki tima vegna anna hjá UMFN er mörgum torskilin, og sumir eiga reyndar erfitt með að sætta sig við hana. Þvi er ekki að neita aö margir leikmanna landsliðsins áttu erfitt með að sætta sig við vinnubrögð Markovic sem þjáifara, og fannst hann ekki nógu mannlegur i sam- skiptum sínum við leikmenn. En þvi verður ekki á móti mælt að hann er fær þjálfari, og þá sér- staklega hvað varðar að byggja upp þrek leikmanna og vörn. Enn hefur ekkert skýrst hvaö tekur við hjá liðinu, þjálfari hefur ekki fengist i hans stað, og reynd- ar hefur heyrst að erfitt verði að finna mann til að taka liðið að sér. Þó eru margir á þeirri skoðun að Birgir örn Birgis verði næsti landsliðsþjálfari okkar i körfu- knattleik, en hann hefur þjálfaö lið Ármanns i vetur með góðum árangri. —gk ÍR úr leik í bikarnum Um leiö og UMFN sigraöi 1R i Bik.ukeppm Körfuknattleiks- samiiandsins gærkvöldi tókst iiöinu að ná lar.gþráöu takmarki. UMFN hafði ulörei áður unniö sigur a 1R, e’i nú hefur þaö tekist ogþarrneöhafa þeir unniö öll liö- in i 1. deild einhverntima. Leikur liðanna i gær var skemmtilegur á aö horfa mikill hraði á báða bóga og ekkert gefið eftir. Liðið skiptust á um forust- una til að byrja með og staðan varð 7:7, en siöan sigu njarövik- ingarnir framúr og höföu mest 10 stiga forskot i fyrri hálfleik sem lauk með 48:38 þtíim i hag. 1 siðari hálfleiknum hélt UMFN ávallt sinum nlut. munurinn hélst óbrev*tur en þé tókst þeim aö komast 14stigyfirmest rétt fyrir leikslok, en lokatöiur leiksins urðu 86 stig UMFN gegn 80 stig- um IR-inga. Það sem UMFN-liðiö vinnur fyrst og fremst á er hin mikla breidd i liðinu, en þar eru ekki færri en 8 mjög jafnir og sterkir leikmenn. Þelta kemur liðinu aö sjálfsógöu vel, það er hægt aö leika á fuilri ierö í vörn og sókn og ávalit menn til aö skipta inná ef þarf. ?iö tvöeruö ^»''iV;• ,Hlustaðu, Tommy — ég get útskýrt ! m á 1 i ft Á yt \'<tj © Bulls ,Þú þarft þess ekki íþessi tréhestur á \þig ekki! J/ baö um ráöninguog látum Galt umað veita honum hana Stigaliæstir þeirra voru Gunnar Þorvarðarson og Þorsteinn Bjarnason, ungur leikmaður I mikiili framför, með 14 stig hvor, Kári Marisstn og Geir Þorsteins- son með 12 stig hvor. Hjá IR vi ru þeir stigahæstir Kristinn Jörundsson með 26 stig, Kolbeinn Kristinsson 18 og Jón Jörur.dsson með 14 stig. gk—. ...Ég ætia hér inn... leiknum í gærkvöidi. Viöar Slmonarson reynir aö komast framhjá tveimur varnarmönnum Slask i Ljósmynd: Einar ,Áhuginn'var af skornum skammti — Og Slask sigraði íslenska landsliðið 26:23 eftir að _________hafg náð yfirburðastöðum í byrjun Þaö var hálfgert slén yfir is- lenska landsliöinu i handknattleik i gærkvöldi þegar þaö lék viö pólsku meistarana Slask 1 Laugardalshöliinni. Pólverjarnir náöu þegar i byrjun leiksins yfir- Hann Tobbii Valer mikilliþróttaáhugamaöur, ogihálfleik á leik Slask og landsliösins I gærkvöldi sýndi hann áhuga sinn I verki. Hann afhenti Jóni Karlssyni, fyrirliöa landsliösins, konfektkassa og 5 þúsund krónur til styrktar landsliöinu, og siöan brá kappinn sér Imarkiö smástund og sýndi ýmsa takta I mark- inu viö mikinn fögnuö viðstaddra. Ljósmynd: Einar buröarstööu 7:1 og 8:2. t háifieik var staðan 15:11, en I siöari hálf- leik byrjaöi islenska iiðiö ágæt- lega og tókst aö jafna 15:15, og siðan 19:19, en pólverjarnir voru sterkari á lokasprettinum og sigruöu veröskuldaö 26:23. ■ Annarri eins byrjun og Islenska liöið sýndi i gær hefur maöur varla oröið vitni aö og alls ekki hægt að sjá aö þar væri landsliö aö leika — slíkar voru byrjenda-. villurnar, boltanum beinlinis kastaö útaf og þaö oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. En öll él birtirupp um siðirog eftírað pól- verjarnir höföu tekiö okkar menn i smákennslustund var eins og þeir vöknuöu aöeins til lifsins og leikurinn jafnaöist smám saman. En þó var alltaf eins og viljann vantaði hjá fslensku leikmönnun- um, enda búnir aö ganga i gegn- um ýmislegt aö undanförnu, og þar sem leikurinn var meira hugsaöur sem æfing hafa þeir vafalaust ekki lagt sig eins fram. Liðið náöi aö visu ágætum kafla i byrjun siðari hálfleiks þegar þaö skoraöi fjögur fyrstu mörkin, en virtist ekki hafa baráttuvilja til aö fylgja þessari ágætu byrjun eftir. Klempel var markahæsti leik- maöur Slask meö 7 mörk. Hann skoraöi 5 mörk i fyrri hálfleik. Hann tók lifinu meö ró I þeim siö- ari — virtist geta skoraö þegar honum hentaöi. Þorbjörn Guömundsson skoraöi flest mörk islenska liösins 7, Björgvin Björgvinsson skoraöi 5 mörk, Geir Hallsteinsson 4, Viöar Simonarson 4 (3), Þórarinn Ragnarsson 2 og Jón Karlsson eitt mark úr viti. —BB umaumm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.