Vísir - 11.02.1977, Blaðsíða 4

Vísir - 11.02.1977, Blaðsíða 4
Föstudagur 11. febrúar 1977 vism UmsjÖn; Guðmundur Pétursson Forseti Indlands lést af hjartaslagi Forseti Indlands, Fakhruddin Ali Ahmed, lést i gær af hjartaslagi á heimili sinu i forsetabústaðn- um i Nýju Delhi. Hann var 71 árs að aldri. Ahmed forseti haföi veikst fyrr i vikunni, þegar hann var staddur I Kuala Lumpur 1 opin- berri heimsókn til Malasiu. Hann varð að hætta við heim- sókn til Filippseyja og Burma. Var flogið meö hann til Nýju Delhi i gær. 1 opinberri tilkynningu um veikindi hans var sagt i gær, að forsetinn þarfnaðist hvildar vegna ofþreytu. En tekið var fram, að engu þyrfti að kviða um heilsu hans. Fjórir læknar undirrituðu dánarvottoröið, sem hljóðaöi upp á, að forsetinn hafi látist vegna afleiöinga hjartaslags, sem hann heföi ekki náö sér af. Eiginkona Ahmeds, Begum Abida, tvær systur hans og Indira Gandhi forsætisráðherra voru við banabeð hans, þegar hann skildi við. — Opinberum skrifstofum veröur lokaö I dag og flaggað er alls staðar i hálfa stöng á Indlandi. Jatti, hinn 64 ára varaforseti Indlands, mun sverja i dag embættiseiö sem forseti lands- ins. Ævisaga Henry K aefin út 1979 muni færa honum 1,5 milljónir’ dollara i aðra hönd. Otgefendurnir „Little, Brown and Company”, sem er dótturfyr- irtæki „Time Inc.”, segja að samningurinn hafi verið undirrit- aöur siöasta mánudag. Gert er ráð fyrir, að minningarnar komi út haustið 1979. Framkvæmdastjóri útgáfunnar sþáir þvi, að frásögn Kissingers af árunum, sem hann var ráögjafi Nixons forseta i öryggismálum (1968-76), „geri þetta mikilvæg- ustu bók aldarinnar” Hann varðist allra frétta af þvi, hvaö Kissinger fengi I höfundar- laun. En eitt þeirra útgáfufyrir- tækja, sem keppt hafði um birt- ingaréttinn, taldi, að samningur- inn hefði tryggt Kissinger ekki minna en 1,5 milljónir dollara. Faðir Dunstan reynir að hugga starfsfólk trúboðsstöðvarinnar I Musami i Hódesfu og blökkumannaprest, sem syrgja sjö hvita trú- boöa, sem skæruliðar þjóðernissinna myrtu á sunnudaginn. Faðir Dunstan var i hópi með hinum, en lifði af fjöldamorðin. Dr. Henry Kissinger fyrrum utanrikisráð- herra hefur gert samn- ing um birtingu ævi- minninga sinna og ætla menn, að sá samningur Hörð rimma í Beirút Palestínuskœruliðar í bardaga við friðargœslusveitir Ákafir bardagar bloss- uöu upp í Líbanon í gær, þeir verstu frá því í fyrra. Friðargæslusveitir araba blönduöu sér í átök sem uröu á milli tveggja skæru- liðahópa palestínuaraba við f lóttamannabúðirnar Sabra í Beirút. Palestinuí1 -abar segja, aö bar- dagarnir hafi byrjað með skær- um millí öndverðra hópa skæru- liða sem lögðu fjandskapinn á hilluna i bili, til þess aö snúast gegn friðargæslusveitunum (mestmegnis sýrlenskum her- mönnum), þegar þær blönduöu sér I átökin. Fleiri palestinuskæruliöar slógust I liö með þessum félögum sinum eftir aö skothriöin hófst af misskilningi.^/Ienn héldu i fyrstu að allsherjaráhlaup heföi veriö gert á flóttamannabúðirnar. Kurt Waldheim, framkvæmdá- stjóri Sameinuöu þjóðanna sést hér á myndinni staddur I heim- sókn I Beirút að viröa fyrir sér verksummerki borgarastyrj- aidarinnar, en hann er þessa dagana á ferðaiagi í austurlönd- Beitt var vélbyssum, sprengju- vörpum, loftvarnabyssum og skriödrekum og varð úr hörö rimma, áöur en lauk. Skæruliöahreyfing Dalestlnuar- aba er klofin I tvennt I Libanon. Annar hópurinn klauf sig úr þjóö- frelsishreyfingu dr. George Hab- ash i október 1968 og er algerlega mótfallinn hverskonar friðsam- legri lausn deilunnar I Austur- löndumnær. Þessi hópur klofnaöi svo aftur i tvennt I fyrra, þegar þeim þótti leiötogi sinn, Ahmed Jibril, hafa svikið þá i hendur sýrlendingum. Bófar í Sovét Tveir ungir sovéskir afbrotamenn, sem skáru lögregluþjón á háls eftir að hafa áður sært hann með skoti, hafa verið dæmdir i Tbilisi til dauða, eftir þvi sem Georgíu-blaðið Zarya Vostoka skýrir frá. Blaöiö segir svo frá, að 28 ára gamall bófaforingi, Alexander, og félagi hans, Nodar, hafi veriö á höttunum eftir bifreiö til undir- búnings bankaráni. Klæddu þeir sig I einkennisbúninga sovéskra liðsforingja og biöu við vegarbrún eins og til þess aö snikja far með næstu bifreið. Undir hermanna- frökkunum földu þeir stolna Kalashnikov-riffla. Óeinkennisklæddur lögreglu- þjónn átti leið hjá og nam staðar til þess að taka þá upp I. Þegar inn I bilinn var komið, slógu fant- arnir manninn I öngvit. En þegar þeir áttuöu sig á þvi aö maðurinn var lögregluþjónn, vildu þeir ekki skilja hann eftir lifandi til frá- sagnar. SAGDI SIG UR AKADEMIUNNI Einn af meðlimum kvikmyndaakademi- unnar i Los Angeles hefur sagt sig úr henni til þess að mótmæla á- kvörðun hennar um að verðlauna kvikmynd- ina „King Kong” fyrir „effektana”, eins og það er kallað á kvik- myndamáli. „En að minu mati var hand- bragðiö á „Kong” svo slæmt, að hún verðskuldaði ekki nokkur verðlaun,” sagöi Jim Danforth við fréttamenn. Akademian kunngerði fyrr i vikunni, að hún hefði verölaun- aö King Kong og visindareyfar- ann „Logan’s Run” fyrir effektatækni. — Slfk aukaverð- laun eru kunngerð löngu áður en aðalverölaunaafhendingarnar fara fram (sem er I mars). AtrlM úr myndinni „King Kong”. Danforth, sem sjálfur nýtur mikillar virðingar sem tækni- maöur við „effekta” og hefur tvivegis komið til greina til Osk- arsverðlauna sjálfur, sagði að 36 meölimir nefndar þeirrar, sem mælir meö myndum til verðlauna við akademiuna, hefðu talið „Logan’s Run” vera þá einu sem til greina kom. En akademian hefði boriö þá ráö- um, enda heföi hún verið undir þrýstingi frá viðskiptaheimin- um. Danforth sagði sig úr nefnd- inni, úr akademiunni sjálfri og skilaði aftur Óskars-viðurkenn- ingum sinum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.