Vísir - 11.02.1977, Blaðsíða 24

Vísir - 11.02.1977, Blaðsíða 24
VÍSIR Föstudagur 11. febrúar 1977 Fíkniefnamúl: Fimm í gœslu- varðhaldi — einn úrskurð- aður í gœr Maöur var úrskuröaöur I gæsluvaröhald í gær vegna nýjasta flkniefnamálsins sem nú er i rannsókn. Fimm menn eru þvi i gæsluvaröhaldi nú vegna fikniefnamála. Tveir þeirra sem setiö hafa i gæsluva i haldi aö undan- förnu eru þar vegna rannsókn- ar á sama máli og þess sem úrskurðaöur var i gær. Rann- sókn á þeim fikniefnamálum sem komið hafa upp er nú I fullum gangi. —EA ENGIN LOÐNA í NÓTT Gngin loönuveiöi var I nótt. Þrátt fyrir góöar torfur náöu bátarnir engu þar sem ioönan stóð svo djúpt. Jafet ólafsson hjá Loðnu- nefnd sagði i samtali viö Visi i morgun að þetta myndi ekki hafa svo slæm áhrif fyrir bát- ana þar sem þaö er löndunar- biö á Austfjarðahöfnum. Loðnan færir sig nú hægt suður meö Austfjöröum og nálgast heldur landiö. — EKG Fannst ligg- jandi úti Maður fannst hggjandi úti I gærkvöldi og lá hann i urð við Austurbrún. Reyndist hann ölvaður, en hann var fluttur af lögreglunni á slysadeild. —EA Sóknin stjórnlaus Stjórn sóknarnefndar Viöi- staöasóknar I Hafnarfiröi sagöi öll af sér i gær. t stjórn- inni voru eingöngu karlmenn, en þaö hefur valdiö þó nokkru fjaörafoki innan safnaöarins. A sóknarfundi i gær var kos- in uppstillinganefnd, til að stinga upp á hugsanlegum stjórnarmönnum á næsta fundi.sem verður á sunnudag- inn. A meöan verða sóknar- börn i Viöistaðasókn stjórn- laus. —GA Helgin: LITLAR BREYTINGAR Á YEÐRINU Ekki litur út fyrir aö miklar breytingar veröi á veörinu um helgina. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem Visir fékk i morgun, er gert ráö fyrir austanstrekk- ingi við suðurströndina og veröur þar frostlaust. Hægur vindur verður i öðrum lands- hlutum. A Suöurlandi veröur llklega skýjaö en á Norður- og Vesturlandi litur út fyrir aö verði góðviðri. —EA Dýrara að flytja bílinn milli fjórðunga en út l»að gctur veriö dýrara aö flytja bifreiö sina milli staöa á islandi rn aö fara meö hana til Noregs. Bifreiðacigandi kom aö máii við Visi á dögunum og sagðist hafa þurft aj) greiöa 28.235 krón- ur fyrir aö fara meö bifreiö slna meö strandferöaskipi frá Höfn I Hornafiröi til Keykjavikur, og væri þaö sennilega svipaö og kostaö hefði aö fara meö bifreiö meö Smyrli til Noregs og heim aftur. Blaðamaður Visis hafði sam- band við Skipaútgerö rikisins og spurði Hauk Guömundsson hjá t'armdeildinni um fiuinings- kostnað með strandferðaskip- unum. „Flutningsgjaldið fyrir fólks- bifreið er 5.175 krónur fyrir tonmð, þegar um flutninga milii fjórðunga er að ræða,” sagði Haukur. „Innan fjórðungs er gjaldið hins vegar 3.950 krónur. Þetta er lágmarksgjald og mið- ast við eitt tonn. Við þetta bætist vörugjald, sem verið hefur 1.025 krónur fyrir bifreið, sem flutt er til Reykjavikur, en frá Reykjavik til staða úti á landi er einungis greitt hálft vörugjald. Þetta gjald á að hækka eitthvað þessa dagana. Loks kemur kostnaður við uppskipun og útskipun, sem er 1.375 krónur á tonnið. Þetta er kostnaðurinn hjá okkur, en það er svolitiö breyti- legt úti á landi hvað uppskipun- arkostnaðurinn er mikill. Sums staðar, t.d. á Vestfjörðum, er hann vist eitthvað meiri,” sagði hann. Samkvæmt þessu kostar um 17 þúsund krónur að flytja tveggja tonna bifreið milli fjórðunga. Fyrir léttari bifreið- ar er þetta minna, en meira fyrir þyngri bifreiöar. 12.400 á bifreið til Noregs Hjá ferðaskrifstofunni Úrval fengust þær upplýsingar, að næsta sumar myndi kosta 12.400 krónur að flytja venjulega fólksbifreið frá íslandi til Nor- egs, og þá 24.400 krónur báöar leiðir. Gjald það, sem greiða þarf með strandferðaskipunum, er einnig hærra en hjá bilaferjun- um Herjólfi og Akraborg. Guðmundur Einarsson, for- stjóri Skipaútgerðarinnar, sagði iviðtali við Visi, að kostnaður- inn hjá strandferðaskipunum væri verulega hærri m.a. vegna þess, að hifa þyrfti bifreiðarnar um borð og frá borði, og það kostaði mikið. Þetta þyrftu bíla- skipin ekki að gera, þar sem hægt væri að aka beint um borð. „Ég hef hins vegar ekki sett mig það nákvæmlega inn i þessa flutningataxta ennþá, að ég geti lýst skoðun á þvi, hvort þeir séu óeðlilega háir eða lágir,” sagði Guðmundur. —ESJ. jg,- v Jf. \| f. Bí * ’ Veöriö undanfarna daga hefur minnt fólk frekar á vordaga en aö nú sé öllu eölilegra aö rlki hávetur meö öllu þvl sem honum fylgir. Þessir krakkar á myndinni fagna þessu ágæta veöri eins og flestir aörir og hafa dregiöút hjólin sin. Ljósmynd Visis Loftur. Fyrirhugað að byggja við Hlíðaskóla Aðstaða hreyfihamlaðra nemenda skólans bœtt „Þetta viöbótarhúsnæöi veitir okkur aöstööu til aö sinna ýms- um þeirn þáttum sem hingaö tH hafa veriö lagöir til hliöar eöa ekki hefur veriö sinnt nægilega vel og á þaö sérstaklega viö um sjúkraþjálfunina og ta’nnlækna- þjónustu,” sagöi Asgeir Guö- mundsson skólastjóri Hliöa- skóla i samtali viö VIsi I morg- un, en borgarráö hefur sam- þykkt aöbyggt veröi viö skólann húsnæöi, sem sérstaklega veröi ætlaö þeim hreyfihömluöu börn- um sem þar eru. I Hlföaskóla eru nú 16 hreyfi- hömluð börn og auk þess 6 heyrnarskert börn. Þau stunda nám með öðrum nemendum skólans eftir þvi sem kostur er. Þetta er eini skólinn i Reykjavik þar sem starfsemi sem þessi fer fram.en þó eru einstakir hreyfi- hamlaöir nemendur i öðrum skólum. Asgeir sagði að skólinn væri illa hannaöur til að sinna þessu verkefni. Væri nánast ekkert hægt að hreyfa sig I skólanum nema fara upp eða niður stiga. Nýja húsnæðiö bætir þetta nokkuö. Það verður byggt viö neöstu hæö skólans og stækkar þá sá hluti hússins sem hægt er aö komast um á hjólastólum. „Það er mjög mikilvægt að þessi börn séu i skóla meö öör- um börnum,” sagði Asgeir. „Viö höfum reynt aö brúa þaö bil sem þörf er á og hefur þat, gengið mjög vel og i mörgum tilfellum ótrúlega vel. Þetta starf er vitaskuld ekki vandalaust eöa erfiðleikalaust. Þaö þarf til þess mikinn starfs- kraft og samhentan. En þessir nemendur falla vel aö félags- skap annarra nemenda og aö minu áliti hafa báöir hóparnir grættmikiöá þessari samdvöl.” —SJ Samningsuppkastið um jarðstöð ó Ísiandi: Hefur verið í athugun í fjóra tnónuði Dregist hefur aö afgreiöa samningsuppkastiö viö Mikla norræna ritsimafélagiö, en þaö var tekiö tii umræöu á fundi rikisstjórnarinnar i gær. Samningsuppkast þetta var tilbúið i október siðastliðnum, og var upphaflega stefnt aö þvi að afgreiöa þaö i rikis- stjórninni fyrir jól, en siöan I. byrjun janúar. Þaö hefur hins vegar alltaf dregist og eru nú liðnir um fjórir mánuöir siöan islenska viðræöunefndin og fulltrúar Mikla norræna rit- simafélagsins gengu frá upp- kastinu. Blaðið hefur fregnaö, aö ákvæöi I samningsuppkastinu um skattstööu Mikla norræna ritsimafélagsins vegna starf- rækslu jaröstöövar hér á landi i samvinnu viö fslendinga, sé hlesta deilumálið. Hefur þetta mál veriö til athugunar bæði hjá fjármálaráöuneytinu og samgönguráðuneytinu, en endanlega er það rikisstjórn- in, sem tekur ákvörðun mál- inu. —ESJ JÖTUNN ENN FASTUR Stóri borinn, Jötunn, er enn fastur i borholunni viö Laugaland, þar sem unniö er fyrir Hitaveitu Akureyrar. Hefur nú veriö unniö við los- un hans i rösklega viku og aö sögn Sveins Scheving hjá Orkustofnun veröur ekki gef- ist upp við þær tilraunir á næstunni. Borholan var oröin rúmlega 460 metra djúp og er festan á neöstu 10 metrunum. —SJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.