Vísir - 10.03.1977, Page 3
visra Fimmtudagur 10. mars 1977
3
Guöjón Indriöason smiOakenn-
ari bendir okkur á lagerinn.
nokkrar úrbætur i þessum efnum.
Væntanleg er til skólans ný vél.
miðuð við lokað, eða mannlaust
vélarrúm. Það skyggir þó á, að
alls endis óvlst er hvort hún kom-
ist upp þar sem ekki er enn vitað
hvort fjármagn fáist til þess.
Tveir bekkir í sömu stofu
Þannig háttar lika til þarna þar
sem hinum verðandi vélstjórum
er kennt að umgangast vélarnar
að gjarnan verða tveir og þrir
kennarar aö vera meö jafn marga
bekki I einu I sama sal og er vart
að annars staðar frá þekkist
dæmi um slikt.
„Vélasalurinn hlytur að hafa
veriö byggður sem safnhús eða
sýningarsalur”, sagði Halldór
Þorbergsson, „þvl það er óliklegt
að við hefðum þurft sal af þessari
gerð fyrir kennslustofur. Ég hefði
miklu frekar kosið að hér væru
fjórir salir meö tveimur kennslu-
stofum hver, heldur en þennan sal
með tlu vélum.”
Eirlkur leiðsögumaður okkar
og Halldór voru sammála um aö
að sem boðið væri upp á þarna
væri algjörlega ófullnægjandi
núna á seinni hluta tuttugústu
aldar, en hefði llklega verið ágæt-
lega boðlegt I kring um heims-
styrjöldina.
Sú aðstaða sem er þarna fyrir
stýri- og kælitæknikennsluna er
afar fullkomin og eitthvað það
besta sem skólinn getur boðið upp
á. Hluti tækjanna sem notaður er
við þá kennslu var útbúinn af
kennurum skólans.
Þrengsli í nýja húsinu
Aöstaöa til kennslu I verklegri
rafmagnsfræði er I nýju húsnæði
sem hefur fram á slðustu ár verið
gagnlegt. Núna er hins vegar orð-
iö þröngt um mannskapinn. Egg-
ert Gautur kennari sagði okkur
að áætlað hefði verið að byggja
við norðurenda ússins, en ekkert
hefði oröið af þvl. 1 þeim hluta
hefði Stýrimannaskólinn átt að
vera með aðstööu, en þess I stað
væri hann nú á eftir hæð raf-
magnsfræöihússins þar sem
kennsla i rafmagnsfræði átti að
vera.
Sæmilega er búið að kennslu I
minni háttar æfingum en hins
vegar vantar mótórsamstæður og
álagsvogir til að setja álag á
vélar.
Tökum við verðmætum
tækjum
„Skólinn hefur ekki þróast sem
skyldi, hvorki hvað snertir tækja-
kost eöa húsnæði, þrátt fyrir
mikla fjölgun nemenda, og
tækniframfarir”, sagði Eirikur
Bj. Barðason.
„Skólinn er til dæmis verr sett-
ur til smlða en f jölbrautarskólinn
I Breiðholti. Þaö finnst okkur
skjóta nokkuð skökku við því að
þessi skóli er hugsaöur til fram-
haldsnáms.
Það er alltaf talaö um að þjóð-
félagið hafi ekki efni á aö koma
upp viðunandi aðstöðu. En það
virðist gleymast aö við eigum að
taka viö tækjum fyrir hundruöir
milljóna”. — EKG
Þeir eru allir á fjórða ári. Frá vinstri, leiðsögumaður okkar, Eirlk-
ur Bj. Barðason, Jón Kr Guðmundsson, Hafliði Sævaldsson og
Sigurður TraustiÞorgrimsson. Þeir standa þarna viðgamlan mótor
sem upphaflega mun vera kominn úr gamalli hvalstöð og var slðar
notaður I Hafnarfirði.
Nýjar vínteg-
undir droga ekki
úr vínneyslu
Hvergi i heiminum
hefur, svo vitað sé, tek-
ist að minnka heildar-
neyslu með nýjum
áfengistegundum og
breyttum drykkjuvenj-
um, samkvæmt upp-
lýsingum frá áfengis-
varnarráði.
Afengisvarnarráð segir einu
leiöina til aö draga úr tjóni þvl
sem áfengisneysla veldur vera
þá aö minnka heildarneysluna.
Slíkt verði aðeins gert meö
hömlum og háu veröi.
Afenisvarnarráö vitnar til
reynslu svia af milliöli, sem sé
svo slæm að nú hafi verið bann-
að að framleiða það og selja.
Segir áfengisvarnarráö, aö svl-
ar telji að ölið sé sjálft skað-
valdur, en ekki einungis
dreifingarhættirnir.
— EKG
Ingólfur hœttir
hjó Pólýfón
Ingólfur Guðbrandsson sem
veriö hefur söngstjóri Pólyfon-
kórsins frá upphafi, mun nú láta
af þeim störfum. Ingólfur stofn-
aði kórinn fyrir 20 árum og hefur
verið aðaldriffjöður hans alla tlð.
Endirinn á söngstjórnarferli
Ingólfs verða hátiðatónleikar
kórsins i Reykjavik um páskana
og för til Italiu með Kammersveit
Reykjavikur.
Förin til Italiu verður farin 24.
júnl og veröur fjölmennasta og
umfangsmesta hljómleikaferða-
lag sem farið hefur veriö frá Is-
landi til þessa.
I ferðinni til Italiu verða 140
söngvarar Pólýfonkórsins ásamt
fimm einsöngvurum og 34 manna
hljómsveit. Einnig verður meö I
förinni 70 manna fylgdarliö.
—EKG
Stjórnin á 20 ára afmæli kórsins.
Frá vinstri Jóseflna Pétursdóttir,
Sigrlöur óskarsdóttir, Friðrik Ei-
riksson formaður, Guðrún Guð-
jónsdóttir og Guðmundur Guð-
brandsson. f
Ingólfur Guðbrandsson
Segíð upp samníngunum
— segir miðstjórn Múrarosombandsins
Miðstjórn Múrarasambands segja upp gildandi kjara-
tslands samþykkti á stjórnar- samningum, með lögiegum
fundi 2. mars sl. að skora á öll fyrirvara, eða eigi slðar en 31.
aðildarfélög sambandsins, að mars nk.
Þaöhefur verlð margt um manninn á Loftleiðahótelinu að undan-
förnu til að fylgjast meö skákeinvlgi þeirra Spassky og Hort. Hér
má sjá tvo „meistara” I biöstöðu, en það eru þeir Hrelnn M. Jó-
hannsson gullsmlöameistari til vinstri og Hilmar Steingrimsson
rafvirkjameistari til hægri að spá I skákina. Þeir hafalda þvf sjálf-
sagt áfram f dag, en þá mætast stórmeistararnir Spassky og Hort I
sjöttu skákinni. Hefst viöureign þeirra kl. 17,00. Jósmynd JA....
Flugvellir
á Alþingi
Skýrsla flugvalla-
nefndar um áætlunar-
flugvelli og búnað
þeirra er nú hjá sam-
gönguráðuneytinu, þar
sem verið er að kanna
hvernig best verði að
hrinda i framkvæmd-
um úrbótatillögum
nefndarinnar.
Flugvallanefnd skilaöi
skýrslu sinni i nóvember á slð-
asta ári og haföi komist aö
þeirri niðurstööu að vlða væri
pottur brotinn. Skýrslan var
mjög Itarleg en i stórum drátt-
um má segja að nefndin hafi
lagt til aö næstu sex árin yröi
árlega varið að meöaltali 900
milljónum króna til fram-
kvæmda við flugvelli.
Birgir Guöjónsson, lög-
fræðingur hjá samgönguráðu-
neytinu, sagöi Visi að næsta
skrefyrði liklega aö leggja mál-
ið fyrir Alþingi.
Birgir sagði aö flugvalla-
skýrslan væri ekki fram-
kvæmdaáætlun I smáatriðum,
enda hefði það ekki verið ætlun-
in. 1 skýrslunni er aðeins sagt
hvað vantar og nefnd forgangs-
atriði.
„Það er Alþingi sem hefur
valdið og næsta skref verður
liklega að fara með máliö þang-
að”, sagði Birgir. „Skýrsla
flugvallanefndar verður þar
ekki lögð fram sem fram-
kvæmdaáætlun, heldur veröur
reynt að fá viljayfirlýsingu
þingsins um að við uppbyggingu
flugvalla skuli viss meginatriöi
höfð i huga. Framkvæmdir
verða svo eftir þvi sem fjár-
veitingar fást.” — OT.