Vísir - 18.05.1977, Blaðsíða 24

Vísir - 18.05.1977, Blaðsíða 24
VÍSIR Mi&vikudagur 18. mai 1977 Tveir í gœslu vegna fíkni- efnamála Tveir menn á þritugsaldri eru enn i gæsluvaröhaldi vegna fikniefnamálsins sem nú er til rannsóknar. Þriöja manninum sem einnig sat inni var sleppt fyrir skömmu. Rannsókn málsins gengur nokkuö'vel, en þeir sem henni stjórna verjast allra frétta. Enn er ekki ljóst hvort hér er um nýtt mál að ræöa eða anga af eldri málum. —SG » ■ ■——T-rir—T—l Kœrður fyrir að leita ó stúlkubörn Ungur maöur hafði uppi kynferðislega tilburöi við fjög- urra ára gamait stúlkubarn i stigagangi fjölbýlishúss hér I borginni á dögunum. Er barn- iö fór aö gráta iagði hann á flótta en náöist nokkru siðar. Hann hefur áöur orðið uppvis að slfku atferli. begar maður þessi var tek- inn til yfirheyrslu viðurkenndi hann þegar f stað að hafa verið þarna að verki og var honum sleppt að yfirheyrslu lokinni. Mál hans verður sent áfram . til saksóknara, en þetta er ekki i fyrsta skipti sem hann er kærður fyrir að leggjast á stúlkubörn. Hefur hann hlotið dóm og setið í fangelsi, en hér er greinilega um sjúkleika að ræða. Menn af þessu tagi eru sem betur fer ekki margir i borginni, en bara einn sem gengur laus er einum of mikið. —SG „Erfiðara að tjónka við stjórnmólamenn en sjómenn" Danska blaðið Börsen rœðir við Jón Jónsson forstjóra Hafrannsóknarstofnunarinnar Ilafrannsóknarstofnunin á ts- landi er vaidamikil stofnun og á ekki i neinum vandræöum meö sjómennina sem hún „ræöur yfir”. Hún hefur fengiö vald sitt frá stjórnvöldum. En Hafrann- sóknarstofnunin á i meiri erfið- leikum meö að tjónka viö rfkis- stjórnina og stjórnmálamenn- ina en sjómennina. Þetta segir danska blaðið Börsen, að afloknu viðtali sem þaö átti við Jón Jónsson for- stjóra Hafrannsóknarstofnun- arinnar. Og blaðið hefur eftir Jóni: „Við höfum þannig lagt til að þorskveiðin við ísland verði ekki meiri en 235 þúsund tonn i ár. Þessa tillögu styöja útgerð- armenn, en þaö er langt þvi frá öruggt að pólitíkusarnir vilji ljá henni liö sitt”. Danir velta mikiö fyrir sér hvort það sé mögulegt að þeir geti lært af islendingum i fisk- verndunarmálum og komast að raunum að svo sé. í viðtalinu rekur Jón Jónsson þær aðgerðir sem gripið er til hér við land til að vernda fisk- stofnana. Hann segir að ef vart verði við of mikið magn smá- fisks i afla skipanna sé svæðum umsvifalaust lokað. Nú sé hægt að loka umsvifalaust i þrjá daga, en fiskifræðingar vilji að hægt verði að loka þessum svæðum strax i átta daga. Jón segir þær reglur sem við höfum um fiskverndunarmál vera ákveðnari og strangari en tiðkist hjá Norður-Atlantshafs- ráðinu og EBE og að sjálfsögðu strangari en hjá dönum. „En það er nauðsynlegt”, segir Jón. „Nútima togari getur eytt öllum smáfiski á heilu svæði á einum degi og það þolum við ekki”. —EKG Sáttanefnd hefur haft stöðugt samband við rik- isstjórnina siðustu daga. Á myndinni sést Hall- dór E. Sigurðsson, samgönguráðherra (t.v.) ræða við tvo sáttanefndarmenn, þá Guðlaug Þorvaldsson, háskólarektor og Jón Þorsteins- son, lögfræðing. —Ljósmynd: Jens. Siglingin kostaði 800 þús — piltarnir uppvísir að 5 innbrotum Sigling sem piltarnir þrir brugðu sér i fyrir stuttu i óleyfi á trillu frá Hafnarfirði, eins og Vis- ir sagði frá, varð nokkuð dýr. Hún kemur liklega til með að kosta um 800 þúsund, þar sem tals- verðar skemmdir höfðu orðið m.a. á vélinni i siglingunni. Piltarnir, sem eru 13 og 14 ára gamlir, urðu uppvisir að fleira en þessu þegar rann- sóknarlögreglan i Hafnarfirði fékk málið i hendurnar, eða fimm innbrotum samtals. Meðal annars brutust þeir inn i Flensborgar- skóla um helgina siðustu og fyrir um hálfum mánuði stálu þeir tals- verðu af sælgæti úr sæl- gætisgerðinni Mónu.-EA Banaslys ó Eskifirði Banaslys varö i fiskimjöls- verksmiöjunni á Eskifirði i gær. Rúmlega fertugur maöur sem var þar viö vinnu varö fyrir slysi og beið bana. Mað- urinn var fæddur árið 1933 og var búsettur á Eskifirði. —EA Erfiður fjárhagur Félagsheimilasjóðs: Skuldar 49 félags- heimilum 102 millj. Eigendur félagsheimila áttu um áramótin inni hjá Féiags- heimiiasjóöi rúmlega 102 miljónir króna. Jafnframt liggja nú hjá sjóönum umsóknir frá rúmlega 20 aöilum, um stuðning við byggingu nýrra fé- lagsheimila eöa til viðbygginga. Það voru 49 félagsheimili, sem áttu inni hjá sjóðnum um áramótin, samkvæmt upplýsingum frá menntamála- ráðuneytinu. Af þeim var 21 félagsheimili lokiö, og 15 nærri lokið, en hin 13 voru á ýmsum byggingastigum. 40 þessara 49 húsa eru i notkun að öllu eða að hluta. A undanförnum árum hafa tekjur félagsheimilasjóðs af skemmtanaskatti yfirleitt verið verulega meiri en áætlað hefur verið á fjárlögum viökomandi ára. Sem dæmi má nefna, að i fyrra voru tekjurnar áætlaðar rúmlega 59 milljónir, en þær urðu rúmlega 72 milljónir. —ESJ Kynning íslenskra iðnaðarvara í Skagafirði hafin: „Dogur iðnaðaríns ú Sauðórkróki verður ó föstudag Kynning á íslenskum iðnaðarvörum hófst í verslunum i Skagafirði í gær, en þar mun iðn- kynning standa fram á sunnudag. Á föstudaginn verður „dagur iðnaðar- ins" á Sauðárkróki. Iðnkynningin verður opnuð á fimmtudaginn kl. 14 i Safna- húsinu á Sauöárkróki, en þar munu um 20 iðnfyrirtæki i Skagafirði kynna framleiðslu sina og þjónustu. Þessi kynning verður opin almenningi kl. 14-22 dag hvern til sunnudagskvölds. Nýbygging heimavistar Gagnfræðaskólans verður opin almenningi á sama tima, en þar veröur kynnt starfsemi þeirra byggingaraðila á Sauðárkróki, sem annast hafa alla vinnu við bygginguna. 1 Iðnaðarmannahúsinu veröur smiðja Ingimundar Bjarna- sonar til sýnis, en hún var stofnuð árið 1925. Ingimundur gaf félaginu smiðjuna ásamt öllum verkfærum, og er hún varðveitt þar ásamt nokkrum smiðagripum eftir skagfirska iðnaðarmenn. Á fimmtudag verður fundur um nýtingu steinefna til iönaöarframleiðslu með raf- b'ræðslu haldinn á vegum atvinnumálanefndar Sauðár- króksbæjar. Fundurinn verður I Bifröst kl. 15 og munu ýmsir sérsfræðingar hafa framsögu. • A föstudag kl. 14.15 verður fundur um iðnaðarmál á sama stað, og þar mun dr. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra, flytja ávarp, en Arni Guömundsson, framkvæmda- stjóri, og Pétur Sæmundsen, bankastjóri, hafa framsögu. 1 móttöku ráðherra siðar um daginn verða nokkrir aðilar heiðraðir fyrir störf aö iðnaöar- málum —ESJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.