Tíminn - 11.10.1968, Blaðsíða 1
Þrá setningu Alþingis. Forseti íslands í ræSustól.
(Tímamynd Gunnar)
89. þingið sett í gær
riv-Reykjavík, fimmtudag.
Alþingi ísléndinga, 89. lög-
gjafárþing, var sett í dag að
lokinni guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni. Forseti íslands dr.
Kristján Eldjárn setti þingið
með snjallri ræðu og er ræða
hans birt j heild á bls. 3. Þing
heimur hyllti forsetann og
fósturjörðina að i^æðu lokinni
Aldursforseti þingsins, Sig-
urvin Einarsson, 1. þingmað-
ur Vestfirðinga, tók við fund-
árstjórn.
í upphafi minntist aldursfor-
seti þriggja látinna alþingis-
manna, sem létust í sumar, þeirra
Sigurðar Kristjánssonar, Jónasar
Þorbergssonar og Jónasar Jóns-
sonar ( frá Hriflu. Minningaroi’ð
Sigurvins Einarssonar um þessa
merku alþingismenn verða birt í
heild í blaðinu á morgun.
Þá var þingheimi skipt í þrjár
kjördeildir, þar sem rannsaka
Framhald á bls. 14
Úr þingflokksherbergi Framsóknarflokksins. Talið frá vinstrl: Einar Ágústsson, Halldór E. Sigurðsson, Þórar-
inn Þórarinsson, Eysteinn Jónsson, Bjarni Guðbjörnsson, Ingvar Gíslason, Páll Þorsteinssi. og Ólafur Jóhann-
esson, formaður flokksins. (Tímamynd Gunnar)
Geta flutt
OL um loft-
bru í skyndi
EKH-Reykjavik, fimmtudag.
Það hefur komið til tals að
aflýsa eða fresta Ólympíuleik
unum vegna hinna blóðugu stúd
entaóeirða í Mexíkóborg að
undanförnu, en forseti Alþjóða
Ólympíunefndarinnar hefur ný
lega lýst því yfir að leikarnir
muni fara fram samk\'æmt á-
ætlun. Nú hefur flugher Banda
ríkjanna hafið undirbúning að
því að koma á fót loftbrú, sem
gæti ineð stuttum fyrirvara
flutt Ólympíuleikana frá Mex
íkó til Los Angeles í Bandarikj
unum. Brjótist stúdentaóeirðir
á ný út Mexíkó er þvi mögu
legt að leikarnir verði í Los
Angeles í ár .
Komi enn á ný til blóðugra á
taka milli stúdenta, almennings
og lögreglu Mexíkóborg, verða
Ólympíuleikarnir einfaldlega
fluttir til Los Angeles. Banda
ríski flugherinn ér fær um að
flytja íþróttamenn, farastjóra
og starfsfólk leikanna til Banda
rikjanna á tiltöluleg stuttum
tíma.
í Los Angeles hafa áður ver
ið haldnir Ólympíuíeikar. Var
það árið 1932 svo að keppnis
völlur með áhorfendapöllum,
hjólreiðabrautir, sundlaugar og
annað eru til reiðu.
Undirbúningur að því að
koma á fót loftbrúnni — Mexí-
kóborg — Los Angeles er þeg
ar í fullum gangi og svo vel á
veg kominn að allt má heita
tilbúið.^ Hvort af þessum flutn
igum verður veltur á stjómmála
þróuninni í Mexíkó.
Verði leikirnir fluttir frá
Mexíkóborg til Los Angeles
hafa forráðamenn íþróttamála í
Los Angeles beðið um 14 daga’
Framhald á bls. 14
IÐNÞINGINU AD LJUKA
2730 sjúkra-
rúm í landinu
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
í nýútkomnum Hagtíðindum
er skrá um heilbrigðisstofnan
ir og sjúkrarúm í þeim í árs-
lok 1967, en í því sambandi
eru barnaheimili, elliheim-
ili og slíkar stofnanir ekki
taldar til heilbrigðisstofnana.
Samkvæmt þessari skrá voru
til staðar í árslok á síðasta ári
2730 sjúkrarúm á landinu öllu.
Flest sjúkrarúm voru í Land
spítalanum í Reykjavík. 310
talsins, en síðan koma Geð-
veikrahælið á Kleppi með 280
sjúkrarúm og Elliheimilið
Grund, hjúkrunardeild, með
( 200 sjúkrarúm.
Sjö aðrar heilbrigðisstofnan
Framhald á bls. 14
Hluti af fulltrúum á Iðnþínginu.
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Fundum 30. Iðnþings íslend-
inga var haldið áfram í dag í
Félagsheimilinu Stapa í Ytri-
Njarðvík, og gerði þingið ýmsar
ályktanir um innflutnings- og
tollamál iðnaðarins, cndurkaup
framleiðsluvíxla iðnfyrirtækja,
Iðnlánasjóð og Iðnaðarbanka fs-
lands h.f. Var meðal annars þeim
tilmælum beint til bankaráðs
Iðnaðarbankans, að hlutafé bank-
ans yrði aukið til þess að gefa
fleiri iðnðarmönnum kost á að
gerast hluthafar í bankanum.
Þingiiiu lýkur síðdegis á morgun.
föstudag.
Iðnþingið hófst í gær, eins og
blaðið hefur skýrt frá áður, og
voru þá flutt erindi um ýmis mál
efni iðnaðarins. A fundinum í
dag voru tekin fyrir álit nefnd-
anna.
Álit allsherjarnefndar um er-
indi Félags réttingamanna um að
hifreiðaréttingar verði gerðar að
sérstakri löggiltri iðngrein var
Framhald á bls. 14 ;