Tíminn - 11.10.1968, Qupperneq 2
2
Skipulagsmál
Alþýðusambandsins
TIMINN
FOSTUDAGUR 11. október 1968.
ÞÁTTUR ÞESSI hefur nú aft
ur göngu sína reglulega eftir
nokkuð langt sumarleyfi, og er
þess að vænta, að hann birtist
reglulega á næstu mánuðum.
Um margt er að rita af vett
vangi launþega. Atvinnu-
ástandið er þegar orðið slæmt,
og útlitið í haust og vetur ömur
legt. Alþýðusambandsþing ^
skal haldið seinni hluta nó-
vember mánaðar, og verða þar
m.a. til umræðu tillögur um
nýtt skipulag samtakanna.
Ég mun í þessum þætti, og
fleirum, ræða það nýja skipu-
lag, sem Laga- og skipulags-
nefnd ASÍ hefur sent frá sér
sem „Frumvarp að lögum Al-
þýðusambands íslands". Mun
ég ræða það mál hlutlægt,
skýra frá staðreyndum þess
nýja skipulags, sem þar e,r í
frumvarpsformi, og geta breyt
inga frá núverandi skipulagi,
og fyrri lagafrumvörpum.
LAGA- OG SKIPULAGS-
NEFNDIN sendi í síðasta mán-
uði bréf til allra sambandsfé-
laga ASÍ, ásamt frumvarpi
nefndarin_n*r að nýjum lögum
fyrir ASÍ, og hefur það bréf
verið birt opinberlega.
Nefndin var sem kunnugt er
skipuð sjö mönnum, kjörin í
framhaldsþinginu í janúar , síð
astliðinn. í nefndinni eiga sæti
Eðvarð Sigurðsson, Snorri
Jónsson, Óskar Hallgrímsson,
Pétur Sigurðsson, Jón Bjarna-
son, Selfossi, Björn Jóns-
son, Akureyri, og Iíermann
Guðmundsson Hafnarfirði.
í bréfinu er minnst á helztu
breytingar þær sem gerðar
hafa verið frá frumvarpi því,
sem meirihlúti fyrri Laga- og
skipulagsnefndar lagði fyrir
framhaidsþingið í janúar. Um
þær breytingar segir svo í bréf
inu:
„HELZTU breytingar frá
fyrra frumvarpi eru eftirfar-
andi:
í. í fyrra frumvarpi var
gert ráð fyrir, að fækka veru-
lega á þingum ASÍ þannig, að
fulltrúar yrðu 150 í stað 370—
380 eins og verið hefur síðustu
þing. Nefndin leggur til, að
fulltrúum verði ekki fækkað
nærri því svo mikið, sömu regl
ur og áður gildi um félags-
mannafjölda á bak við fulltrúa
þó þannig, að ekkert félag,
sem hefur færri félagsmenn
en 25 fái fulltrúa, og að félög,
sem hafa 501 félagsmann eða
fleiri fái ekki nema einn full-
trúa fyrir hverja 200 félags-
menn eða brot úr þeirri tölu
sem er hundrað eða meir fyrir
þann félagsmannafjölda. sem
er umifram fimmhundruð.
2. Þá leggur nefndin til að
fulltrúakjör á þing ASÍ fari
fram í sambandsfélögunum,
en ekki á vegum landssamb-
andanna eins og gert var ráð
fyrir í fyrra frumvarpi.
3. Þá er það og breyting
frá fyrra frumvarpi, að lagt
er til að sambandslögin hafi
frjálst val um það, hvort þau
skipi sór í landssambönd. eða
séu beinir aðilar að ASÍ.
4. Það nýmæli er tekið upp
í frumvarpið, að Alþýðusam-
bandsþing skuli kjósa sjö
manna skipulagsmálanefnd,
sem hafi það hlutverk - að
fylgjast með framgangi sam-
þykkta ASÍ í skipulagsmálum,
og gera tillögur um þau efni
til miðstjórnar og sambands-
stjórnar. Auk þess á nefndin
að fjalla um inntökubeiðnir
nýrra landssambanda og fé-
laga, og ágreiningsmál, sem
rísa milli félaga og landssam-
banda o.fl.“.
ÞETTA ERU sem sagt
helztu breytingar frá meiri-
hlutafrumvarpinu frá í janúar.
Aftur á móti eru þýðingar-
miklar breytingar aðrar ef mið
að er við núgildandi lög Al-
þýðubandalagsins, ekki sízt
varðandi skipun sambands-
stjórnar og varðandi skatt-
lagningu.
Mun ég ræða þau atriði og
fleiri, í síðari þáttum, en hér
um frumvarpið í heild, aðild-
arákvæðin og kosninga fyrir-
komulagið.
ÞAR SEM hvað mestum deil
um olli á ASÍ-þinginu i jan-
úar, var spurningin um aðild
að sambandinu. Samkvæmt
meirihlutafrumvarpinu, sem
lá fyrir því þingi, var ætlunin
að einungis landssambönd
ættu aðild að ASÍ.
Frá þessu hefur nú verið
fallið, þótt andinn í frumvarp
inu sé augljóslega í þá átt, að
landssamböndin verði aðaluppi
staða Alþýðusambandsins er
fi'á líður. Þó geta félög, sem
hafa færri en 50 félagsmenn,
ekki fengið aðild að Alþýðu-
sambandinu, séu þau ekki
' í því nú, og félög, sem
ekki hafa aðild nú, en hafa
yfir 50 félagsmenn fá því
aðeins aðild, að verksvið þess
BÆNDUR ■ BÆNDUR
Kynnið ykkur verðin á tækjunum, sem við höfum á lager.
Leitið upplýsinga og festið ykkur tæki, meðan
þau bjóðast á þessu hagstæða verði.
Suðurlandsbraut 6,
sími 38540.
Söluumboð
fyrlr
»111.
UmboSs- & heildverzlun
Kirkjuhvoli - Reykjavlk
Síman 21718,42137
IJPI
innréttingar.
-*■ JP-Innréttingar frá Jóni' Péturssyni, húsgagnaframleiSanda — auglýstar I
sjónvarpi. Stflhreinarj sterkar og val um viðartegundir og harCplast- Fram-
leiOir einnig fataskápa.
A5 afiokinni vlðtækri könnun teljum viö, aö staðlaöar hentl I flestar 2—5
herbergja Ibúðlr. elns og þær eru byggðar nú. Kerfi okkar er þannig gert, að
oftast má án aukakostnaðar, staðlæra innréttinguna þannlg að hún henti. I
allar íbúðir og hús.
VELJUM ISLENIKI
ISLENIKKN IÐH.D
Allt þetta
•*• Seljum staðlaðar eldhús-
innréttingar, það er fram-
leiðum eldhúslnnréttingu og
seljum með öllum. raftækjum
og vaski. Verð kr. 61.000,00 -
fcr. 68.500,00 og kr. 73 000,00.
ie Innifalið I verðinu er eid-
húsinnrétting, /5 cub/f. (s-
skápur, eldesamstæða með
bakarofni, iofthreinsari með
kolfilter, sinki - a - matio
uppþvottavél og vaskur, enn-
fremur söluskattur-
ir Þér getið valið um inn-
lenda framleiðslu á eldhús-
um og erlenda framleiðslu.
(Tielsa se'm er stærsti eldhús-
framleiðandi á meginlandi
★ Elnnig getum við smlðað
Innréttingar eftir teikningu
cg éskum kaupanda.
★ Þetta er eina tilraunln, að
þvf er bezt verður vltað til
að leysa öll ■ vandamál hús-
byggjenda varðandi eldhúsið.
Fyrir 68.500,00, geta
margir boðið yður eldhúsinn-
réttingu, en ekki er kupnugt
Um, að aðrir bjóði yður. eld-
húsinnréttingu, með eldavél-
arsamstæðu, viftu, vaski,
uppþvottavél og ísskáp fyrir
þetta verð- - Allt Innljalið
meðal annars söluskattur kr.
falli ekki undir eitthvert að-
ildar-landssambandið eða fé-
lagið.
UM ÞETTA segir svo m.a.
í 5. grein frumvarpsins: — „Að
Alþýðusambandinu geta átt að
ild landssambönd, sem skipu-
lögð eru í samræmi við sérstak
ar samþykktfr Alþýðusam-
bandsþinga og fullnægja á-
kvæðum laga þessara, svo og
einstök verkalýðsfélög, sem
eru í ASÍ við gildistöku laga
þessara, og ekki skipa sér í
landssambönd. Þó getur fé-
lag með 50 félagsmönnum_ eða
fleiri fengið aðild að ASÍ, ef
verksvið þess fellur ekki und-
ir neitt þeirra landssambanda
eða félaga, sem fyrir eru í Al-
þýðusambandinu“.
Af þessu er ljóst, að þó að
þau félög, sem nú eru í Al-
þýðusambandinu, hafi algjört
valfrelsi um hvort þau vilja
halda þeirri aðild áfram, eða
ganga í landssamband, þá er
slíkt valfrelsi mjög takmarkað
fyrir þau félög, sem ekki eru
beinir aðilar að ASÍ, en kynnu
að hafa hug á slíkri aðild —
eða þá ný félög, sem kynnu
að verðn stofnuð. Falli verk-
svið slíkra félaga undir eitt-
hvert landssambandanna,
skulu þau í það landssamband
ganga.
Ákvæðin um landssam-
böndin eru svipuð og í meiri
hlutafrumvarpinu. M.a. skulu
þau halda þing annað hvort ár.
Meðal vðrkefna. þeirra, sem
tekin eru fram í frumvarpinu
er „að sameina innan vébanda
sinna verkalýðsfélög í sam-
ræmi við lög þessi og að vinna
að stækkun félagseininga og
félagssvæða í samráði við við-
komandi verkalýðsfélög og
skipulagsmálanefnd ASÍ“.
SAMPANDSÞING skal hald-
ið fjórða hvert ár samkvæmt
frumvarpinu. Hvert verkalýðs-
félag — hvort sem það er beinn
aðili að Alþýðusambandinu
eða er aðili að því í gegnum
landssamband — skal kjósa
beint til þingsins, hafi það 25
félagsmenn eða fleiri. Smærri
félög fá engan fulltrúa á ASÍ-
þing.
Um þetta eru ákvæði í sjötta
kafla frumvarpsins, en þar
segir í 28. grein: — „Hverju
verkalýðsfélagi, sem á aðild að
ASÍ beint eða sem aðili lands-
sambands og telur 25 félags
menn eða fleiri, er skylt að
láta fara fram kosningu full
trúa á Alþýðusambandsþing
úr hopi félaga sinna.
Tala fulltrúa miðast við tölu
fullgildra félagsmanna, eins og
hún er tilfærð á síðustu árs-
skýrslu 1. janúar næst á und-
an þannig:
Fyrir allt að hundrað félags
menn eipo fulltrúa, og einn
fulltrúa fyrir hvert hundrað
félagsmanna. eða brot úr hundr
aði, ef þa'ð nemur hálfu hundr
aði eða meiru.
Fyrir félög með 501 félags
mann eða fleiri skal að auki
kjósa einn fulltrúa fyrir
hverja 200 félagsmenn, eða
'brot. ef það nemur hundraði
eða meiru.
Nú háttar svo til, að félag
á aðild að fleiru en einu lands
sambandi og félagsmannafjöldi
þess teyfii kosningu fleiri en
eins fulltrúa, er félaginu þá
heimilt að láta fulltrúakjör til
þings ASÍ fara fram í deildum
enda raski það ekki heildar-
tölu fulltrúa félagsins".
ÞETTA skipulag á kosnmgu
til ASÍ-þings kemur í stað þess
hrærigrauts, sem svo mikla
andspyrnu fékk á framhalds-
þinginu í janúar. Og þótt þetta
skipulag sé vissulega mun skyn
samlegra þá má búast við’ að
það mæti einhverri andstöðu,
einkum þó frá þeim félögum,
sem með þessu nýja kerfi
' myndu missa mögulejka á eig
in fulltrúa á þingi ASÍ.
En bæði hvað aðild að ASÍ,
og kosningar til ASÍ-þing
varðar, er þó um að ræða mikla
bót frá því fyrirkomulagi, sem
var í meirihlutafrumvarpinu
sem lagt var fyrir framhalds-
þingið .
Um önnur atriði hins nýja
frumivarps mun ég rœða nán-
ar í náesta þætti.
Elías Jónsson.
HÁTÍÐATÓN-
LEIKAR Á
75 ÁRA AF-
\
MÆLI PÁLS
ÉSÓLFSSONAR
Tónlistarfélagið gengst fyrir
hátíðatónleikuim á 75 ára afmæli
Páls ísólfssonar n.k' laugardag
12. þ.m. kl. 3 e.h. í Austurbæjar
bíói.
Á undan tónleikunum flytur
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld,
ávarp. Efnisskráin sem eingöngu
er skipuð verkum effir Pál, er
þannig: Fyrst syngur Þuríður
Pálsdóttir með undirleik Jórunn-
ar Viðar, þessi lög: Sáum þið
hana systur mína; Krossavísur;
Heyr, það er unnusti minn; Sum
ar; Tveir víkivakar og Vöggu-
vísa. Þar næst leikur Jórunn Við-
ar einleik á píanó Fimm svip-
myndir. Siðan syngur Kristinn
Hallsson þessi lög: Fyrr þín gæð
in fýsilig; Jarpur skeiðar fljótur
frár; Ég reið um háar heiðar;
Söknuður og Heimir. Undirleik
annast Árni Kristjánsson og loks
leikur Rögnvaldur Sigurjónsson'
einleik á píanó Tilbrigði um stef
eftir ísólf Pálsson.
Að tónleikunum loknum munu
vinir og aðdáendur Páls ísólfs-
sonar hylla hinn dáða organleik
ara, stjórnanda, kennara og tón-
skáld £ 75 ára afmæli hans, en
Páli verður viðstaddur tónleik-
ana.
Tónleikarnir verða endurteknir
á sunnudag kl. 3.
i