Tíminn - 11.10.1968, Page 5
FÖSTUDAGUR 11. október 1968.
TIMINN
í SPEGLITIMANS
Eins og kunnugt er af heims
fréttuni «• hinn frægi leikari
Peter Selilrs nýlega skilinn við
sína sænskættuöu eiginkonu,
leikkonuna Britt Eklund. Pétur
virðist hafa tekið skilnaðinn
mjög nærri sér, því hann ein-
angrar sig frá öðru fólki, um-
gengst engan nema sína nán-
ustu vini og svo dóttur sína
sem hann skilur varla við sig.
Þau feðginin dveljaist nú um
borð í snekkju Péturs, sem ligg
ur við festar undan ströndum
Mónakkó. Britt skildi við mann
sinn meðal annars af þeim
ástæðum að hún kærði sig
ekki lengur um að vera gift
trúð. Trúðsnafnið virðist samt
illa hæfa Pétri núna, hann röltir
aðeins um með grafarsvip, hef
ur meira að segja skýrt
snekkju sína upp, hún nefnist
núna „Victoria“ í höfuðið á
einkadótturinni, en áður nefnd
ist hún einfaldlega „Bo Bo“.
Nú mun loksins vera séð
fyrir endann á áframhaldandi
framleiðslu hinna sí vinsælu
,Angeliqe“ kvikmyndum, en
nú mun svo komið að framleið
endur og leikarar eru orðnir
hundleiðir á blessaðri stúlk-
unni. Reyndar mun alltaf hafa
staðið til að halda framleiðsl-
unni áfram talsvert lengur en
nú er ákveðið, að aðstandendur
myndarinnar telja sér það ekki
fært lengur. Svo skyndileg enda
lok geta náttúrulega ekki þýtt
nema eitt: Angeliqe og hinn
marghrjáði eiginmaðurinn henn
ar Joffrey ná saman að lokum
en eins og íslenzkum aðdáend
um þeirra hjóna er kunnugt
hefur þeim ekki hingað til tek
izt að búa saman í friði fyrir
ýmsum vondum mönnum. Þessi
síðasta Angeliqe kvikmynd á
svo að bera nafnið „Angeliqe
og soldáninn“.
Þau hjónakornin Ríkarður
Burton og Elísabet Taylor hafa
af sumum verið nefnd stór-
stjörnur. Samfcvæmt því er
Elísabet stór-stjörnueigitnkona
og Ríkharður stór-stjörnueigin
maður. Og þegar stór-stjörnu
eiginmaður ætlar að vera góð
ur við sína stór-stjörnueigin-
konu og gleðja hana með ein-
hverri smá gjöf, en slíkt gerist
svona einu sinni í mánuði, þá
getur hann naumast verið þekkt
ur fyrir að gefa henni neitt
sem kostar minna en 300.000
dollará, eins og demantshring
urinn sem hann gaf henni í
síðasta mánuði, eða listisnekkj
an þar áður, eða þá þotan sem
hann gaf henni í vor. En hvað
getur Elísahet þá gert fyrir
mann sinn í staðinn? Jú hún
veit sem er að Ríkharður þolir
ekki að ganga í öhreinum nær
fötum, hann verður að geta
skipt um nærföt að minnsta
kosti þrisvar á dag, svo Elísa-
bet reynir að vera góð eigin
kona, og þvær nærföt manns
síns hvenær sem tóm gefst frá
kvifcmyndaleik og ferðalögum.
Hún gætir þess að hafa ávallt
litla þvottaskál ásamt sápu í
veskinu sínu, og síðan hamast
hún við að skrúbba á kvöldin
þegar hún er komin upp á
hótelherbergi. Nærfötin þurrk
ar hún síðan á hitarörunum
sem hún segir að séu í loftinu
á flestum baðherbergjum vest
an hafs.
Bf maður er handlaginn og
hugmyndaríkur, eru varla tak
mörfc fyrir því sem hægt er
að gera. Það sannaði nýlega
bandarískur verkfræðingur,
sem tók sig til á dögunum og
smíðaði sér hraðlbát úr göml
um geimi undan flugvélabenz
íni. í þennan bát sinn lét verk
fræðingurinn síðan fimmtíu
hestafla mótor, en það vélar
afl er svo yfirdrifið fyrir
„benzíntankinn“ að fáir hafa
við honum. Þegar svo verk-
fræðingurinn fór sína fyrstu
reisu á bátnum olli hann upp-
þoti hjá bandarísku strand-
gæzlunni, því gæzlumenn könn
u'ðúst alis ekki við þennan sér
kennilega hlut sem þaut með
ógnar hraða aðeins ofan við
vatnsyfirboffðið. Strandgœzl-
unni þótti því tryggara a'ð
senda varðbát til að athuga
málið, og komst að hinu sanoa.
Þáð fór iUa fyrir honum
Jens karlinum Mauritz um
daginn. Hann ætlaði eins og
venjulega eftir vinnutíma að
fara og spila það göfuga spil
keiluepil með nokkrum kunn
ingjum sínum. En kona hans
sem var orðin frem.ur þreytt
á þessu endalausa keiluspili
manns síns, hafði eimitt ásett
sér áð binda endi á þessa spila
fíkn hans. Þegar Jens hafði
gleypt í sig kvöldmatinn í flýti
eins og hann var vanur, hljóp
hann fram í forstofuna og
kallaði upp til konu sinnar, og
bað hana að kast til sín spila
kúlunni sinni, en hán-n spilaði
mjög oft með þessari sömu
kúlu, taldi að hún yki á heppni
sína. Fiúin var viðbúin þess
ari bón manns síns og kastaði
kúlunni — af afli beint ofan á
hviril Mauritz gamla og hann
féll við höggið og hefur ekki
stáðið upp síðan.
Það var ekki nema tveggja
mánaða gamalt, hrossið hér á
myndinni, þegar það varð fyrir
því óláni að brjóta á sér annan
framfótinn. Eigandinn sem
'vildi ekki eiga nerna heil-
brigða hesta, alveg sama þó
hinn Óheppni foli væri af frægu
kyni, seldi slátraranum þegar í
stað hrossið. Slátrarinn hefur
sennilega verið eitthvað frá-
brugðinn því sem almennt ger
ist með slátrara, því hann drap
ekki folann heldur lét smíða
á hann tréfót, og nú sprangar
folinn, sem reyndar heitir
„Audaee“ um græna akra slátr
ans, rígmontinn yfir þvi að vera
eini hesturinn í heiminum með
tréfót.
Þessi unga og bráðfallega
franska kvifcmiyndaleikkona,
heitir Mireille Darc. Hún hef
ur bitið það í sitt fallega höfuð
að sigra í samkeppni við
Birgittu Bardot urn vinsældir,
en Mireille álítur að Birgitta
hafi se-ti'ð helzt til lengi í há-
sæti sínu. Mireille álítur sig
hafa flest til að bera sem
nægi til a'ð bola Birgittu gömlu
frá, en hún hefur að minnsta
kosti útlit og línur til þess,
röd'd og hæfileika ásamt næg
um viljia. í sjónvarpsviðtali
sagði hún nýleg-a, að alveg eins
og Marilyn Monroe, svæfi hún
alltaf í „Ohanel nr. 5“ og að
naumast gæti hún hugsað sér
að ganga til hvílu, nema með
karlmann í fanginu á sér. Þeg
ar stúlkan lét sér þessi orð um
munn fara, var útsendingunni
hætt, en of seint, því yfirlýsing
in heyrðist nú samt.
A VlÐAVANGI
„Líkurnar fyrir mynd-
un þjóðstjérnar hafa
minnkað7'
Styrmir Gunnarsson, þing-
fréttamaður Morgunblaðsins rit
ar í blað sitt í gær pistil er
hann nefnir „Bréf um Al-
þingi“. f bréfi þessu ræðir
hann nokkuð um þær vanga
veltur, sem ‘hafa verið um
það síðustu vikur, hvort við
ræður stjórnmálaflokkanna um
efnahagsástandið myndu leiða
til myndunar stjómar allra
flokka, þjóðstjórnar. Em þetta
segir Styrmir m. a.:
„Miklar vagnaveltur hafa
verið um það síðustu vikurnar
að viðræður stjórnmálaflokk-
anna myndu leiða til myndunar
þjóðstjórnar spm tæki áð sér
að koma í framkvæmd nauð
synlegum ráðstöfunum og síð
an myndi efnt til kosninga að
ári liðnu. Mér virðast líkurn
ar fyrir myndun þjóðstjórnar
hafa minnkað að undanförnu.
Um túna í fyrra mánuði virt
ist töluverð hi-evfing vera fyr
ir þjóðstjórn, aðallega úti á
landi og fullvíst er, að þing
menn landsbyggðarinnar hafa
orðið varir við sterkar óskir
um þjóðstjórn vegna ótta fólks
við atvinnuástandið í vetur. f
Rcykjavík hefur á hinn bóginu
verið sterk andstaða gegn þjóð
stjórn. Ástæða er til að ætla,
að áhrifamikil öfl í stjómar-
andstöðuflokkunum hafi um
skeið haft vemlegan áliuga á
þjóðstjórn og þá virtist dæmið
standa þannig, að það ylti nokk
uð á undanvillingunum í Al-
þýðubandalaginu, hvort af
henni yrði eða ekki. Nú hefur
heldur dregið úr áhuga stjórn
arandstöðunnar á þjóðstjórn og
byggist það á því, að henni
þykir fullmikil samheldni vera
milli Sjálfstæðisflolcksins og
Alþýðuflokksins í ríkisstjórn.
Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðubandalagið hafa nefnilega
gert sér vonir um, að þeim
munj. takast að komast «pp á
milli stjómarflokkanna í þjóð-
stjórn og brjóta þannig niður
valdakerfi þessara tveggja
flokka, sem brátt verður nær
10 ára gamalt. Nú eru stjórn
arandstöðuflokkarnir hins veg
ar orðnir vondaufir um, að
þetta muni takast en óttast að
gangi þeir inn í þjóðstjórn
muni Sjálfstæðisflokkur og
Alþýðuflokkur sparka þeim út,
þegar þeim hentar. f þessum
efnum geta nýjar sveiflur orð-
ið á næstu vikum, en óhætt er
að fullyrða, að nú, þegar Al-
þingi kemur saman til fundar,
séu litlar líkur á að þjóðstjórn
verði mynduð.“
Skólamálin og Gylfi
Alþýðumaðurinn á Akureyri
málgagn Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra,
segir svo í forustugrein sinni
nm ekólamálin eftir 12 ára
feril Gylfa Þ. Gíslasonar sem
menntamálaráðherra
„Sá skólahúsnæðisskortur,
sem við eigum nú við að
glíma hér í kjördæminu, færir
okkur heim sanninn nm, að
aldrei má láta löng aðgerðar-
leysistímabil ganga yfir í skóla
byggingarmálum, svo sem því
miður ríkti hér á árum áður
sums staðar, og nú kemur okk
ur grimmilega í koll, en við
þurfum að vera samhent um
úr að bæta.“