Tíminn - 11.10.1968, Side 6
r
/
.6
okur
nýkomnar i Opel — Skoda
Benz — Taunus — Fiat —
Renault o. fl. bifreiSar.
SMYR'ILL Ármúla 7- Sími 12260.
KLÆÐASKÁPAR
1 barna og einstaklingsherbergi
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
og heimilistæki í miklu úrvali
Einnig:
Svefnherbergissett
Einsmanns rúm
Vegghúsgögn (pirasistem)
Sófaborð
Skrifborð o. fl. o. fl.
HÚS OG SKIP HF
Ármúla 5, simar 84415 og 84416
Augðýsiug
Póst- og símamálastjórnin óskar eftir tilboðum
í byggingu undirstöðu fyrir 30 metra mastur við
stuttbylgjustöðina á Vathsendahæð. Útboðsgagna
má vitja á skrifstofu radíótæknideildar, 4. hæð
Landsímahúsinu, gegn 500,oo kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu radíótæknideildar
fyrir föstudag 18. október kl. 10, en þá verða þau
opnuð.
Póst- og símamálastjórnin.
TAKIÐ EFTIR - TAKIÐ EFTIR
Hausta tekur i efnahagslífi þjóðarinnar. Þess
vegna skaJ engu fleygt, en allt nýtt. Talið við
okkur, við kaupum alls konar eldri gerðir hús-
gagna og húsmuna. þótt þau þurfi viðgerðar
við. — Leigumiðstöðin. Laugavegi 33, bakhúsið.
Simi 10059. — Geymið auglýsinguna.
Royal
VÖRUGÆÐUNUM MÁ ÆTÍÐ TREYSTA
Straum
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 11. október 1968.
Rauða eyðimörkin á frummál-
inu II deseerto rosso
Leikstjóri: Miehelangelo
Antonioni
Handrit: M. Antonioni og
Tonio Guerra
Kvikmyndari: Carlo di Palma
Tónlist: Giovanni Fusco, ítölsk
frá árinu 1964
Sýningarstaður: Laugarásbíó
danskur texti.
Myndin fjallar um tauga-
veiklaða konu Júlíönnu (Mon-
ica Vitti), sem á heima í Rav-
enna á Ítalíu. Hún er gift, mað
ur hennar Hugo (Carlo Chion
etti) er rafmagnsverkfræðing
ur og þau eiga lítinn son. Júlí
anna er ekki fullkomlega með
sjálfri sér eftir misheppnað
sjálfsmorð, henni finnst að eng
inn þaxfnist hennar, en hiún
þarfnist ástar fná eiginmanni
og syni.
Stöðugur ótti er förunautur
hennar og ofskynjanir þjá hana.
Skólabróðir manns hennar
Corrado Zellner (Richard
Harris) námuverkfræðingur
verður hrifinn af henni og reyn
ir að hjálpa henni. Hún trúir
honum fyrir hrellingum sínum
og angist um að verða ekki heil
"brigð aftur.
Myndin er í litum og erlend
ur gagnrýnandi hefur sagt um
þessa mynd að Antonioni hafi
gert það sama fyrir litmyndir
og Chaplin fyrír gamanmyndir
og er það sízt ofmælt. Hinn
frábaej-i lcvikmyndari Carlo
di Palma gefur ekki fyrri kvik
myndara Antonionis, Gianni de
Venanzo, eftir hvað snilldartök
ur snertir. Hann gefur í skyn
með rangfærðum ,fókus“ og
litum, hvernig' áhrif atvik hafa
á Júlíönu. Tónlist Fusco er sú
eina er hæfir þessu efni og
langdreginn eintóna sónninn
sem heyrist þegar Júlíanna tal
ar undirstrikar tómahljóðið í
tilveru hennar.
Corrado er óákveðinn og
óöruggur, þegar Júlíanna spyr
á hvað hann trúi svarar hann:
„svolítið á mannkynið, minnna
á réttlætið- og meira á fram
farir", og á þá við tækniþróun.
Hann er á stöðugu flökti frá
einum stað til annars og festir
hvergi yndi.
Antonioni lýsiir frábærlega
vel hömlum vélaaldar á tilfinn
inganæma konu hún horfir
skelfd á hvæsandi vélarnar og
angistaraugum á óhreinindin í
sjónum. Jafnvel leikföng drengs
ins eru vélknúin og vekja ótta
hjá henni, róbótinn suðar um
nótt. Állinn úr ánni er með
steinolíubragði, reylcurinn frá
Moníca Vitti í hlutverki Júlíönnu í „Rauðu eyðimörkinni“ —
fyrstu litmynd ítalska kvikmyndasnillingsins Michealangelo
Antonioni.
verksmiðjunni er eitraður, ef
fuglar fljúga í gegnum hann
drepast þeir, en það eru svo
fáir fuglar eftir, segir Júlíanna
við son sinn.
Hafið hefur mikil áhrif á
Júlíönnu allt frá því að hún
svamlaði í sjónum áhyggju-
laus unglingur og skúta brun
aði inn víkina fyrir fullurn segl
um og út aftur og til skipsins
með gula pestarveifu við hún
þegar svallið stendur sem
hæst í verkfæraskúrnum. Corr
ado minnir hana á hafið, ein-
mana órólegur og sterkur.
Umhverfið er ekki Ítalía í
sól og gleðskap, heldur köld
og grá iðnaðarbor|* með þröng
um dimmum götum, engin létt
músik heldur blístrið í reyk
háfunum þegar gufan ryðst út.
Þeir sem sáu Richard Harris
í hlutverki rugbyhetjunnar í
„This sporting life“ leikstjóri
Lindsay Anderson, sem var
sýnd I Háskólabíói hafa ekki
gleymt þvi að hamn er ákaflega
fjölhæfur leikari og sýnir blæ
brigðaríkan leik í hlutverki
Corrado. Vitti er ómissandi í
allar myndir Antoniois enda
ekki allra færi að túlka persón
ur hans, hún kemur til skila
hlýju og viðkvæmni þeirri sem
einkennir þessa sjúku konu.
Chionetti er lang „eðlilegastur“
af persónunum ásamt Xenia
Valderi, Rita Renoir og Aldo
Grotti sem taka þátt í svallinu
í skúrnum. Það er næstum að
Júlíanna telji sér til teknar að
vera svo „eðlileg" að drýgja
hór. Flestir horfa tómlátum
augum á mengun andrúmslofts
ins, og hafsins svo öfugsnúnar
eru tilfinningar þeirra „heil
brigðu".
Þessi mynd fékk „gullna
ljónið" á kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum árið 1964 og talin
bezta mynd þess árs. Gagnrýn
endur hafa talið hana beztu og
fegurstu mynd Antonionis til
þessa.
,Blow-up“ nýjasta mynd
Antonionis sem hann gerði í
Bretlandi hlaut „gullna pálm
an“ á kvikmyndahátíðinni í
Cannes ’66. Vonandi siglir hún
í kjölfar þessarar fyrir fullum
seglum hingað.
LJDSASAMLOKURNAR
Heimsfrægu 6 og 12 v. 7” og 5%”
Mishverf H-framl.iós,
Viðurkennd tegund.
BÍLAPERUR
— Fjölbreytt úrval —
HEILDSALA — SMÁSALA
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
SMYRILL
Ármúla 7 — simi 12260.