Tíminn - 11.10.1968, Side 7
ÁSKORENDAMÓTIÐ
1968
FÖSTTJDAGVR H. október 1968.
Einvígíð:
Larsen — Portisch
Porec í Júgóslavíu,
8. — 24. maí 1968.
Hér var tvímælalaust um að
rœða hörðustu viðureignina í
1. umferð ' áskorendamótsins.
Larsen, þessi ókrýndi skák-
kóngur áranna 1967 og 1968,
var að sjálfsögðu álitinn sigur
Stranglegri, en andstæðingur
hans var til alls líklegur, ekki
sízt, þegar hafður var í huga
margur óblíður skellurinn, scm
Larsen hafði orðið að þola frá
hans hendi í fyrri viðureignum.
Raunin varð líka sú, að sigur
Larsens í einvíginu hékk á blá
þræði og úrslitin voru ekki ráð
in fyrr en í 10. skákinni. Hefði
sigurinn alveg eins getað fallið
Portisch í skaut, en forlögin
voru ekki á hans bandi að
þessu sinni.
Einvígið hófst 8. maí og stýrði
Portiseh hvítu mönnunum í
fyrstu skákinni. Beindist skák
in inn á farveg nimzo-indverskr
ar varnar, og gafst Larsen færi
á að beita þar afbrigði, sem
hann hefur endurbætt og notað
mikið dð undanförnu. Portich
reyndi að endurbæta tafl-
mennsku hvíts en mistókst, og
náði Larsen þá frumkvæðinu.
Varð Portisch að láta af hendi
peð til að verjast meiri háttar
áföllum, en tókst í leiðinni að
einfalda svo stöðuna að Larsen
fékk ekki fært sér liðsyfirburð
ina í nyt. Var jafntefli samið í
40. leik eftir árangurslausar
vinningstilraunir af hálfu Lar
sens.
Annarri skákinni lyktaði með
sviplegum hætti fyrir Portisch
sem náði undirtökunum eftir lit
lausa byrjunartaflmennsku and
stæðingsins. Tókst honum að
knýja fram hagstætt endatafl
og koma Larsen í mjög erfiða
aðstöðu. En staðan krafðist að
gæzlu — þó sérstaklega þolin
mæði, og þar skorti nokkuð á
hjá Portisch. Með ótímabærri
peðsfórn skapaði hann Larsen
gagnfæri, sem hann notfærði
sér út í yztu æsar. Portisch rat
aði í tímaþröng, gerði hverja
vitlausuna á fætur annari og
tapaði að lokum skákinni. —
Þarna fór sannarlega forgörð
um gott tækifæri fyrir Portisch
tilað ná forystu í einvíginu.
í 3. skákinni var nimzo-ind
verska vörnin aftur á ferðinni
og enn reyndi Poi-tisch að end
urbæta taflmennsku hvíts. Við
fáum nú að sjá, hvernig til
tókst að þessu sinni.
3. sk'ákin.
Hv.: Portisoh. Sv.: Larsen.
Nimzo-indversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4, e6 3. Rc3,
Bb4 4. e3, 0—0 5. Bd3.
(Ýmsir hafa álitið 5. Rgc2 ná-
kvaímasta leikinn hér. Reshev
sky beitti honum í 1. og 3 sKák
inni í einvíginu vi'ð Korchnoj,
en varð lítið ágengt)
ó. —, c5 6. Rf3, d5 7. 0—0,
Rc6 8. a3, dxc4.
(Venjulegasta framhaldið er
8. —. Bxc3t 9. bxc3 dxc4 10.
Bxc4, Dc7)
9. Bxc4
(Hinn kosturinn er 9. axb4,
cxd4 10. Bxc4, dxcíá 11. DxD
HxD 12. bxc3, Re4, sem varla
getur talizt hvíti rmjög hagstæð
ur).
9. —, Ba5
(Larsen hefur mj’ög fengizt við
að rannsaka þetta afbrigði að
undanförnu og með endurbót
um sínum hefur hann glætt
það nývju lílfi).
10. Dd3
(Álitið skarpasta svarið, þó að
eftirtekijiurnar verði að teljast
rýrar).
10. —, a(> 11. a4?
(1. skákin tefldist á þeasa leið:
11. Hdl, b5 12. Ba2, c4 13. Eþ>2
De8 14. Bd2 (14. Bdl, sem
Gligoric lék í 8. einvígisskák
sinni við Tal, breytir litlu um
gang má'lanna). 14. —, Bb6 16.
Bbl, e5 16. dxe5, Rxe5 17. Re4
Rxe4 18. Bxé4, Rc6 og svartur
stendur vel. Með 11. a4 hefur
Portisch hugsað sér áð endur
bæta taflmiennsku sína í 1. skák
inni, en þar skjöplast honum
illilega. Hvita staðan verður
mjög losaraleg, einku.m vegna
hins viðsj’árverða veikleika á
b4).
11. —, Bd7 12. dxc5, De7
13. e4.
(Hvítur hefur engin tók á því
að halda c-peðinu. 13. Dd6
væri einfaldlega svarað méð
—, Hac8, ásamt 14. —, Bb4, ef
þörf krefur).
13. —, Dxc5 14. Be3?
(Það er óþarfi að neyða svart
til að leika beztu leikiunum.
Betra var 14. Bf4, Hfd8 15.
Hacl o.s.frv.)
14. —, Dh5 15. Bf4 *
(Sbr. athugasemd við 14. leik
SVarta drottningin stendur bet-
ur á h5 en c5)
15. —, Hac8 16. Hacl, Hfd8
17. Bg3?
(Nánast afgerandi afleikur.
Biskupinn á c4 er i hættu
staddur og hvitur hefði því átt
áð að draga hann til baka til
b3. T. d. 17. Bb3. e5 18. Bg5,
Bg4 19. Rd5 og hvítur stendur
ekki illa að vígi. Eftir 17. Bg3
gerir svartur út um skákina
með nokkrum vel völdum leikj
um).
17. —, Be8 18. Dbl
(18. De2 mundi einnig svarað
með 18. —, Rd4 og hvitur
kemst ekki hjá a.m.k. peðstapi
eftir 19. Rxd4, Hxd4. Hvítur
reynir því að flækja taflið, en
svartur er vel á verði og leiðir
skákina örugglega til sigurs).
18. —, Rd4! 19. Rxd4, Hxc4
20. Rde2.
(Enn virðist töluvert hald í
hvitu stöðunni, en Larsen sýn
ir fram á, að máttarstoðirnar
eru veikar).
20, —, Rxc4!
(Þetta peðlsnán skapar hvíti
nokkur gagnfæri, en gagnvart
nákvæmri taflmennsku Larsens
mega þau sín lítils).
21. Rxe4, Dxe2 22. Rd6, IIxcl
23. Dxcl, Bc6 24. Dg5, Dd2!
25. Bf4, Dd5 26. Rc4, DxD
27. BxD, Hd5 28. Rxa5, Hxa5.
(iHvíta staðan er nú gijörtöpuð
og eftirleikurinn þarfnast ekki
skýringa).
29. Bd2, Hxa4 30. Bc3, h5
31. Hdl, Hg4 32. g3, Ha4 33.
f4, Kh7 34. Hel, Bd5 35. Kf2
f6 36. h4l, Kg6 37. He3, Kf5
38. Hel, b6 39. Hdl, a5 40.
Hel, b5 41. He2.
Hér fór skákin í bið, en hivítur
gafst upp nokkrum leikjum
seinna enda er staðan vita
vonlaus.
Með 2Vz vinning að þremur
skákum loknum, var Larsen
búinn að tryggja sér öruggt for
skot, og maður sikyldi því ætla,
að hann færd sér að engu óðs
lega í framhaldinu. En slíkur
hugsunarháttur er Larsen fram
andi. Hann áleit baráttuþrek
andstæðing'sins lamað vegna ó-
sigranna í 2. og 3. skákinni og
tefldi þess vegna óhikað til
vinnings í,4. skákinni. Eftir 20
leki var staðan í jafnvœgi og
Portisch bauð jafntefli Larsen
hafnaði, en gekk skiömmu síðar
of langt í vinningstilraunum sín
um. Portisch náði yfirhöndinni
og nú kom í Ijós, að ^Larsen
hafði vanmetið andstæðing
sinn. Portisch hélt vel á stö'ð
unni, jók í sífellu yfirburði
sína og neyddi andstæðing sinn
til uppgjafar í 39. leik, en þá
var mát óumílýjanlegt. Nú var
munurinn aðeins 1 vinningur
og Larsen hlaut að endurskoða
afstöðu sina.
5. skákin var vel tefld af
beggja há'lfu, sannkölluð bar-
áttuskák. Eftir miklar svipting
ar í miðtaflinu leystist skákin
upp í friðsamlegt cndatafl, þar
sem hvorugur komst no.kkuð
áleiðis. Jafntefli samið í 34.
leik.
í 6. skákinni var staðan í
jafnvægi allan tímann.Portisch
virtist þó heldur vera að ná
yfinhöndinni þegar líða tók á
miðtaf’lið. Larsen, minnugur
málalokanna í 4. skákinni,
hafði vaðið fyrir neðan sig að
þessu sinni og cinfaldaði stöð
una með snjallri drottningar-
fórn. Jafntefli samið í 32. leik.
í 7. skákinni kom pað greini
lega í ljós, að Larsen átti erfitt
með að hafa hemil á sigurlöng
un sinni. Að vísu hafði hann
heldur yfirhöndina mestan
hluta skákavinnar, en Portisch
tókst að jafna metin um síðir
og blasti þá ekkert v>ð nems
jaftefli. — Larsen strettist
við engu að síður og lenti að
lokum í óhagstæðu endatafli.
Þegar skákin fór í bið, virtist
Larsen eiga möguleika á jafn
tefli, en Portisch tókst að
út’kljá skákina sér í hag me'3
n'ák’vœ'mri taflmennsku. ,—
Þar með var forskot Larsens
að engu orðið og allt gat skeð.
Það verður að teljast ein-
stakur klaufaskapur hjá Port-
isch að fá ekki nema 1 vinn-
ing úr 8., og 9. skákinni. í
báðum þessum skákum var
hann búinn að koma andstæð
ingi sínum í alvarlega klípu,
en lét hann sleppa fyrir hreina
handvömm. Eflaust hafa von-
brigðin út af þessum mála-
lokum orkað að því að Port-
isch gat lítið sem ekkert við-
nám veitt í 10. skákinni og
Larsen fagnaði því sigri í ein-
víginu, hlaut 5% vinning gegn
AV*.
Úrslit:
Larsen: V2 — 1 — 1 — 0 — Vz
i/2 _ 0 — % — % — 1 =
5%.
Portisch: Vz — 0 — 0 1 — V2
y2 — 1 — V2 — 1/2 — 0 =
4%.
Friðrik Ólafsson.
FAY KAFFI OG MATARSERVÉTTUR
MARGIR LITIR, FALLEGAR, ÓDÝRAR