Tíminn - 11.10.1968, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 11. október 1968.
TIMINN
DENNI
DÆMALAUSI
— Af hverju segirðu væni
minn þegar þa'ð eru gestir, en
steinlþegiðu þegar við erum
ein.
SJÓNVAR P IÐ
Föstudagur 11. 10.1968
20.00 Fréttir
20.35 Nýjasta tækni og vísindi
1. Berklar
2. Eggjahvíturík næring
3. Bergmálsmíðun hjá Ieður*
blöku.
4. Áttarma kolkrabbar.
Þýðandi og þulur: Örnólfur_
Thorlacius.
21.00 Charlie Drake
Brezki gamanleikarinn Char-
lie Drake skemmtir.
/ % l y T
6 d
7 8 m Sff 9
« ÍS m /Z
/3 /y /////
/r
Lái’étt: 1 Ódauðl'egur 6 Kona 7
Stafrófsröð 9 Mótorskip 1-0 Rúsínu
graut 11 Fisk 12 51 13 Kvikindi
15 Lánsfé.
Krossgáta
139
Lóðrétt: 1 Ljór 2 Bvíld
ist 3 Eyju 4 Tónn 5 Gorgeir
inn 8 hrós 9 Foka 13 Tón
14 Fæddi.
Ráðnimg á gótu nr. 138.
Lárétt: 1 Fjóluna 6 Lit 7
Ar 9 DÐ 10 Mikojan 11 Ró
12 L1 13 Ama 15 Siðsamt.
Lóðnétt: 1 Framrás 2 Ó1
3 Liðorms 4 UT 5 Auðnist
8 Ríó 9 Dal 13 Að 14 AA.
fsl. texti: Ingibjörg Jónsdótt
ir.
21.35 Á hæla ljónsins.
(After the lion, jackels)
Bandarísk kvikmynd gerð
fyrir sjónvarp.
Aðalhlutverk: Suzanne Ples
hette, Stanley Barker og
John Saxon.
22.20 Erlend málefni
Umsjón: Ásgeir Ingólfsson.
22.40 Dagskrárlok.
Bústaðaprestakall.
Munði sjálfboðavinnuna, fimmtu
dagskvöld kl 8.
Sjáið hvað náttúran er dásam
leg, bömin mín. Hafið nú augu
og eyru opin.
mér til að eyðileggja mig, nei.
Hann nötraði af kulda.
— Já, en þú hlýtur að sjá það
pabbi. . . byrjaði Anna, en hann
greip önugur fram í fortölur
hennar.
— Ert það þú eða ég sem á að
ráða því hvernig mér líður? Ég
hef aldrei leitað læknis á minni
lífsfæddri ævi, og ef þið leiðið
svoleiðis náunga inn til mín,
sparka ég honum út aftur, að þú
vitir það. Æ, æ, æ. . . stundi
hann eftir ræðuna.
— Heldurðu að þú getir spark
að með brotinn fótinn? spurði
Kristín. — Og hvorki læknirinn
né ég. . .
— Þú greip Óli Pétur fram í
með fyrirlitningu. — Það væri
sjón að sjá, eða hitt þó heldur.
Æ, æ, æ.
— En pabbi, svona getur þetta
ekki gengið mælti Anna óróleg.
Hún settist á vota vegarbrún-
ina og tók höfuð föður síns £
kjöltu sér meðan Jóhann og
drengirnir fengust við börurnar.
— Gengið. _ Hver hefur sagt
það? spurði Óli Pétur. — Sendið
eftir honum Samúel í Holti.
Það væri nær. . . og ódýrara
í þessu kom Jóhann til þeirra
— Samúel í Holti, endurtók
hann. — Samúel er ekki svo af-
leitur að lækna beljur, en. . .
Hann fékk ekki heldur að ljúk
setningunni.
— Samúel eða engan, sagði Óli
Pétur þvermóðskulega. Síðan fór
um hann hríðskjálfti. — Mér er
skítkalt. . . eins og kvikindi.
Almennilega í staupinu, það er
sem ég þarf
Tennurnar gnötruðu svo í hon-
um að hann átti erfitt með að
koma upp nokkru orði, en nú
komu drengirniir með börur. Óli
Pétur stundi hástöfum meðan ver
ið var að koma honum fyrir á
þeim, og Anna grét af meðaumk-
un.
— Nú skalt þú halda heim og
taka Tóna með þér, sagði Jó-
hann og sneri sér til hennar. Við
Malín skulum sjá til að vel verði
að honum búið, og við erum fjög-
ur til að bera hann.
— En ég vil...
— Nei, þú verður líka að hugsa
um það sem þú átt heima fyrir.
— Já, en. . .
— Þú verður að gegna_ þessu,
manneskja, tuldraði Óli Pét-
ur uppi á börunum. — Ætlarðu
ekki að gegna þínum skyldum.
— Hugsaðu líka um mömmu
mælti Jóhann. — Hún veit ekk-
ert.
— Já, og það er afmælisdagur-
inn hennar ömmu, sagði’ Anna í
hálfum hljóðum. — Þá verð ég
vist að fara. En í öllum bænum,
berið hann varlega. — heyrið þið
það drengir Gangið samstíga Og
segið Malín að hita mjólk með
liunangi í. . .
— Já, já, svaraði Jóhann óþol-
inmóður. — Farðu nú heim og
fáðu þér mjólk að drekka s.iálf.
— Og stóran bolla af sterku
afmæliskaffið bætti Kristín við.
Nálægt elliheimilinu lá afleggj
ari heim að Neðrabæ. Þar nam
Jóhann staðar. — Þú getur
skroppið heim að Neðrabæ Krist
ín oe spurt Knút fyrir mie hvort
hann viljj lána mér hálfan lítra
af koníaki Þeir eiga það ævinlega
heima hjá sér.
^ — Og flýttu þér, stelpa, bætti
Óli Pétur við óþolinmóður.
Kristín fór. Hér var ekki út af
eins dimmt og í skóginum, en þó
svo að öðru hvoru þurfti hún að
þreifa fyrir sér með fætin-
um, hvar vegurinn væri. Hún sá
ljósið í glugganum, hlýtt og vina-
legt, milli hlynviðartrjánna sem
uxu umhverfis hlaðvarpann, Marg
ir gluggar voru uppljómaðir í
þessu stóra, hvíta húsi, og
Kristínu fannst gestirnir hljóta að
vera komnir, fyrst það var líka
ljós í „stóru stofunni“. Bæjarhús-
in voru, að henni fannst, enn
meir aðlaðandi eftir einsemdina
myrkrið og ömurleikann í Skóg-
inum.
Það kunni að búa um sig á
Neðrabæ. Við dagsbirtu hafði
Kristínu ætíð fundizt stóra
stofan dálítið stirfin og ópersónu-
leg þrátt fyrir djúpa og þægilega
hægindastóla, stóra og mjúka gólf
ábreiðu og daufa liti. En þegar
kveikt hafði verið á öllum lömp-
um með gulu silkihjálmunum,
ljómaði hún af unaði og heimilis
hlýju. Húsgögnum var fyrir kom-
ið af sérfræðingum og Amalía
var sérlega upp með sér af henni.
Þessa stofu gat Kristín eignazt,
ef hún vildi . . . Annars var inn-
búi í öllu íbúðarhúginu raðað nið-
ur á myndarlegan og hagkvæm-
an hátt, með alls konar vinnu-
sparandi tiltektum. Það var ekki
mikil raun að vera húsmóðir hér
Kristín hafði sagt — og það
með sannfæringu — að það ætti
ekki við hana að taka neitt'að
sér, sem væri altilbúið, og gert
af annarra höndum. En sem hún
staulaðist nú hingað éftir leirugri
heimreiðinni, að þessari ógeðs
legu skógarferð lokinni, fannst
henni það nú samt geta verið ó-
sköp inndælt að eiga svo áhyggju
laust líf í vændum, sem það gæti
orðið á Neðrabæ. Það var nokk-
urs virði, ekki var fyrir það að
synja. Og henni féll vel við
Hinrik. Það skipti mestu máli, og
tilfinningar hennar í Hinriks garð
hlutu að nægja til að tryggja
hamingjusamt hjónaband.
Kristín fór inn eldhúsmegin.
Lóa var þar ein að fást við kjöt-
stönglana sem hún steikti á
hverju kvöldi.
— Hvað er nú um að vera,
fyrst þú kemur um þetta leyti
dags? spurði hún.
Kristín sagði sem var. — Eru
gestir hjá ykkur? spurði hún svo.
— Bara. Hilmar og Bergur.
Gerðu svo vel að ganga inn.
Kristín var húsakynnum ná-
kunnug. Hún fór gegnum forsal-
inn rúmgóða án þess að kveikja
ljós og drap á dyrnar að „stóru
stofu“. Það var að vísu þarfleysa,
en hún gætti þess vandlega að
gera sig ekki of heimakomna.
— Kom inn! hrópaði Knútur
með eftirvæntingu í rómnum.
Hinrik tók hurðina opna áður
en henni vannst tími til þess og
það glaðnaði yfir honum. þegar
hann sá hver komin var.
— Nei, Kristín! sagði hann og
það var bæði undrun og ánægja
í rómnum. — Hvernig stendur á
komu þinni?
Kristín skýrði frá því í stuttu
I máli, sem gerzt hafði og bar fram
[ erindi sitt. Knútur fór þ»jar og
sótti koníaksflösku fram í skáp.
— Segðu föður þínum, að hann
þurfi ekki að borga þetta. Ef ég
gæti gert Óla Pétri svolít-
inn greiða með þessu, langar mig
að leggja minn skerf til þess.
Kristín þakkaði og kvaddi. Þeg-
ar hún rétti Hinrik höndina,
hristi hann höfuðið. — Ég skal
fylgja þér til hælisins. Það er svo
dimmt og ófýsilegt í kvöld, en
við verðum fljótari að ganga þenn
an spöl. heldur en fara að taka
út bílinn.
Þetta var satt, og hversu fegin
sem hún hefði viljað láta fallast
niður á mjúk hægindi bifreiðar-
innar, svo þreytt sem hún var,
þá féllst hún á það, sem Hinrik
sagði Henni var enn dimmra
| fyrir augum, þegar út kom, vegna
viðbrigðanna eftir ljósbirtuna
notalegu inni fyrir Það var ekki
kalt í veðn — sem betur fór
vegna Óla Péturs — frekar mollu-
legt, en haustraki og þokuloft.
Hinrik tók undir handlegg
Kristínar og gekk henni samstíga.
— Það liggur við að maður skamm
ÚTVARPID
Föstudagur 11. október.
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Há
desisútvarp
13.15 Lesin IHSilRtJ
djaskrá næstu
viku 13.30 Við vinnuna: Tón
leikar 14.40 Við. sem heima
sitjum: Kristmann Guðmunds-
son les 15,00 Miðdegisútvarp.
Fréttir Tilkvnninsar. Létt lög.
16.15 VeðurfregnÞ íslenzk tón
list 17 00 Fréttir Klasslsk tón
list 17 45 Lestrarstund fyrir
litlu börnin 18 00 Þióðlög. Til
kynningar 18.45 Jeðurfregnrr.
Dagskrá kvöldsins 19.00 Frétt-
ir Tilkvnninsar 19 30 Efst á
baugi- Elías Jónsson og Magnús
Þórðarson tala um erlend mál-
efni. 20.00 Óperetttulög eftir
Fall. Lehár Strauss og Heu-
berger. 20.30 Sumarvaka 21.35
„Commotio" op. 58 etftir Carl
Nielsen 22.00 Fréttir og veð
urfreenir 22.15 Kvöldsagan —
22.35 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar tslands. 23.05
Fréttir í stuttu máli. Dagskrár
lok.
Laugardagur 12. október
7.00 Morgunútvarp 12.00 Há-
degisútvarp 13.00 Óskalög sjúkl
inga. Kristín Sveinsbjörnsdóttir
kynnir 15,00 Fréttir 15.10 Á
líðandi stund. Helgi Sæmunds
son rabbar
við hlustend-
ur. 15.30
Laugardags
syrpa. í umsjá Baldurs Guð-
laugssonar. 17 15 Á nótujn æsi
unnar Dóra tnavadóttir og
Pétur Steingrímsson kynna nýj
ustudiæeurlögin 17.45 Lestrar-
stund fyrir litlu börnin. 18
00 Söngvar í léttum tón. 18
20 Tilkynningar 18.45 Veðui
fregnir. 19.00 Fréttir 19.30
Daglegt líf. Árni Gunnarsson
^ frétta’vaður sér um þáttinu
20 00 Klassíok’’- iansar og fcór
Iöp 1 “vndaraón
urinn i \mberwood“ eftir Dinr
er og Morum. Leikstjóri: Bald
vin Halldórsson. 22.00 Fréttii
og veðurfregnir 22.15 23.55
Fréttir í stuttu máli. Dag-
skrárlok.