Tíminn - 11.10.1968, Page 12
12
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 11. október 1968.
Leeds aftur á toppinum
Leeds United hefur nú tekið
forustuna í 1. deildarkeppninni
ensku, því á miðvikudaginn vann
liðið enn einn góðan sigur á úti-
velli sigraði Sunderland 1:0 og
skoraði miðherjinn Mike Jones
eftir varnarmistök hjá Sunder-
land.
Annars var aðalleikurinn á mið
vikudaginn á leikvelli Tottenham
i Lundúnum, Wihite Hart Lame, en
Evrópumeistarar Manch. Utd.
komu í heimsókn. Meðal hinna
58 þúisund áhorfenda voru leik-
menn Estudiantes frá Argentínu,
en þeir komu til Englands sama
dag, og leika síðari leikinn gegn
Manch. Utd. í heimsimeistara-
keppni félagsliða n.k. miðvikudag
Leikurinn var afmælisleikur fram
kvæmdastjóra Tottenham, Bill
Nichiolson, en þennan dag voru
10 ár frá því hann tók við liðinu,
ög hefur síðan fagnað mörgum,
stórum sigrum með því.
Og framan af leit út fyrir, að
T-otteniham myndi sigra auðveld-
lega Cliff Jones — sem sennilega
lék þarna sinn síðasta leik með
Tottenham — skoraði fljótlega og
Gilzean bætti síðan við öðru marki
Én leikmenn Manchester létu það
ekki á sig fá, Crerand skoraði fyr
ir hlé, og strax í byrjun síðari
hálfleiks jafnaði Law. Fleiri urðu
mörkin ekki í að mörgu leyti frá-
bærum leik.
Radford skoraði snemma fyrir
Arsenal í ieiknum gegn ensku
meiisturunum, Manoh. City, og
reyndi Arsenal síðan að halda því
forskoti. Það tókst ekki, .því Bell
jafnaði fyrir City í síðari hálfleik.
Coventry, sem sigraði WBA í báð
um leikjunum í fyrra, hlaut nú
slæman skell í West Bromwich
(útborg Birmingham), Bftir jafn
an fyrri hálfleik skoraði WBA
fimm mörk í þeim síðari og vann
8-1.
í 2. deild var merkilegast, að
Hull City sigraði Derby County
1:0, og er komið í þriðja sæ-ti i
deildinni. Hull byrjaði mjög illa
— tapaði tveimur fyrstu leikjun
Framhald a bls. 15.
Einn af bandarisku körfuknatt.
Iciksmönnunum, sem leikur með
Gillettc-liðinu í Lauganctalshöllinni
f kvöld gegn úrvalsliði KKÍ.
Körfuknattleikur í kvöld:
Fyrsti stórleikurinn
á keppnistímabilinu
Alf-Reykjavík. — í kvöld fer
fram fyrsti stórleikurinn í körfu
knattleik á hinu nýbyrjaða keppn
'istímabili körfuknattleiks-
manna. Þá leikur tilraunalandslið
ið á móti, bandaríska úrvalslið-
inu frá Gillette-verksmiðjunum.
KKÍ hafa ekki enn bortz upp-
lýsingar um einstaka leikmenn
bandaríska liðsins en þeir eru:
Rod Mcdonald Dave Wagnon,
Joe Franklín, A1 Skakely, Glen-
don Toreen, George Hicker,
Bobby Lewis, Joe Portier. Bill
Langheld og Ken Morehead.
Allir hafa þeir leikið með vel
þekktum háskólaliðum og er ekki
að efa að þetta er sterkt lið enda
eru hálfatvinnumannalið sem
þetta stökkpallur fyrir körfuknatt
leiksmenn er hafa í huga að ger-
ast atvinnumenn í íþróttinni.
Þjálfari bandaríska liðsins, Jim
Mcgregor, er ekki heldur neinn
aukvisi og vel þekktur bæði
Evrópu og Bandaríkjunum. Hef
ur hann m.a. þjálfað nokkur
landslið í Evrópu á undanförnum
árum. Fyrir tveimur árum var
hann þjálfari liðs Gulf olíufélags
ins og fór með það í keppnis-
ferð til Evrópu. Nokkrir leik-
manna þess liðs eru nú atvinnu-
Framhald á bls. 15
Allir þurfa marga
af þessum
Þejr eru svo góðir og ódýrir. Þægilegir til notkunar, á heimilum, í skólum og við
ýmis störf. BIC fine liggur rétt og þægilega í hendi og gefur jafna og hreina skrift.
Þér þurfið að eignast marga BIC.
IR hefur tekið
forystuna
Alf-Reykjavík. — Með sigri
sínum yfir KR, 13:10, hafa ÍR-
ingar tekið forystuna í meistara-
flokki karla í Rvíkurmótinu í
handknattleik. ÍR-liðið leikur mjög
skemmtilegan handknattleik, enda
eru margir góðir einstaklingar í
liðinu. Þeirra beztir eru Vilhjálm-
ur Sigurgeirsson, Ásgeir Elíasson
og Brynjólfur Markússon.
En það er einhver dejrfð yfir
KR-liðinu. Það er eins og vanti
baráttuneistann. Vissulega er það
tnikil blóðtaka fyrir liðið að missa
Gísla Blöndal, en það er engin
ástæða til að leggja árar í bát
vegna þess.
í hálfleik hafði ÍR yfir 7:4, en
lokatölur urðu 13:10, sanngjörn
úrslit eftir gangi leiksins. Mörk
ÍR skoimðu: Vilhjálmur 5, Brynj-
ólfur 4, Ásgeir 2, Þórarina T. og
Þórainn Kl. 1 hvor. Mörk KR:
Karl Jóh. 4, Hilmar og Sigurður
Ó. 2 hvor, Sigmar og Steinar 1
hvor.
Staðan í meistaraflokk karla í
Reykjavikurmiótinu í handtonatt-
leik: 1
3 0 0 43:34 6
2 0 0 30:22 4
1 0
1 0
1 0
1 0
IR
Fram
Valur
Þróttur
Víkingur
KR
Ármann
Góður leikur Víkings
Víkings-liðið sýndi á miðvikudag
inn hvað virkilega býr í því. Þá
sigraði það Val með fjögurra
marka mun, 12:8, og sýndi mjög
góðan leik, Að vísu var Valíi-Iiðið
frekar dauft, en enginn er betri
en mótherjinn leyfir.
Það voru einkum risarnir, Jón
H. og Einar M., sem sköpuðu
usla. Jón skoraði 6 mörk og Ein-
ar 3. Flest markanna voru gull-
falleg. En hvenær ætla þeir fé-
lagar að sýna slík tilþrif leik eft
ir leik? Víkings-liðið stendur og
fellur með þeim, það er vitað
mál, og þegar Víkingur á lélegan
leik, stafar það af því, að annar
hvor þessara leikmanna, eða báð-
ir eiga slæman dag. Annars brá
fyrir skemmtilegu línuspili hjá
Fram í
vandræðum
Fram átti í miklum erfiðleikum
með Ármann í fyrri hálfleik. Á
fyrstu 16 mínútunum komst Fram
ekki á blað, en Ármann skoraði
3:0. í síðari hálfleik náði Fram
sér á strik og skoraði þá hvert
markið á fætur öðru og sigraði
15:8. Mörk Fram: Gunnlaugur 6,
Gylfi J. 3, Sigurbergur og Sig.
E. 2 hvor. Björgvin, Ingólfur og
Gylfi Hj. 1 hver. Mörk Ármanns:
Björn og Ragnar 3 hvor, Hreinn
og Ástþór 1 hvor.
Víkingum og ættu þeir að beita
því meira.
Knattspyrnuhetjur Vals, sem
einnig stunda handknattleik, Her
mann Gunnarsson & Co. voru
ekki kornnir úr Portúgalsreisunni,
þegar þessi leitour fór fram.
Bergur Guðnason var sá eini,
sem sýndi tilþrif. Hann skoraði 6
mörk og Jón K. og Ágúst 1 hvor.
Fyrir Víking skoruðu auk Jóns
og Einars, þeir Ólafur Fr., Þórar
inn og Jón Ól. 1 mark hver.
Forsala
hefst á
morgun
Danmerkurmeistararnir i
handknattleik, HG, eru
væntanlegir til landsins á
mánudaginn, en í næstu
viku leika þeir fjóra leiki
liér, þann fyrsta á þriðju-
dáginn. H Forsala aðgöngu-
miða hefist á morgun, laug
ardag, í bókaverzlun Lárus-
ar Blöndal. Verð aðgörigu-
miða er kr. 100 og kr. 50
fyrir börn.
I