Vísir - 18.08.1977, Blaðsíða 3
VISIR Fimmtudagur 18. ágúst 1977
3
Tefur kostnaðurinn við
nýtt fyrirkomulag kjöt-
matsins framgang
mólsins?
Landbúnaðarráðuneytið hefur haft til meðferðar
tillögu að lagafrumvarpi frá Búnaðarþingi í þrjú ár
Landbúnaðarráðu-
neytið hyggst innan
skamms taka til athug-
unar frumvarp til
breytinga á lögum um
kjötmat, en Búnaðar-
þing sendi ráðuneytinu
þetta frumvarp fyrir
nokkrum árum.
Eins og Visir skýröi frá fyrr i
vikunni verður óbreytt kjötmat
á komandi hausti þar sem til-
lögur Búnaðarþings til breyt-
inga hafa legið óhreyfðar í land-
búnaðarráðuneytinu i ein þrjú
ár. Nú eru þrir gæðaflokkar á
dilkakjöti en bændur fá sama
verð fyrir kjötið hvort sem það
fer I fyrsta eða annan flokk og
feitt kjöt fer undantekningarlit-
ið i fyrsta flokk. Vill Búnaðar-
þing meöal annars aö komið
verði á sérstökum úrvalsflokki
magúrs kjöts með mikla vöðva.
í samtalivið Visi sagði Svein-
björn Dagfinnsson ráðuneytis-
stjóri landbúnaðarráðuneytis-
ins, aö ýmsar ástæður lægu að
baki þess að frumvarpið heföi
ekki veriö afgreitt áfram til
Alþingis ennþá. Meöal annars
myndi þetta þýða aukinn kostn-
að fyrir rikissjóð, þar sem gert
væri ráð fyrir aö hann stæði
undir kostnaöi við kjötmatið, en
bændur greiða nú þann kostnað.
„En það hefur verið rætt um
að skoða þetta itarlega með þaö
fyrir augum að koma nýskipan
áþessi mál”, sagði Sveihbjörn.
Hann vildi þó ekki fullyrða að
málið kæmi til kasta Alþingis
næsla vetur, en sagði það á
valdi ráðherra.
—SG
ÞÝÐIR
EDDU Á
GRÍSKU
Flytur fyrirlestur
í kvöld
1 kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 20.30, mun Apostolos
Athanassakis prófessir halda
fyrirlestur sem hann nefnir:
, .Drengskapur: The Herioc
Ethos in Norse and Homeric
Epic Literature” i Ameriska
bókasafninu að Neshaga 16, i
Reykjavik.
Athanassakis sem er pró-
fessor i klassiskum bókmennt-
um viö Kaliforniuháskólann i
Santa Barbara, hefur stundað
rannsóknir hér á landi i sumar
á styrk frá Fulbrightstofnun-
inni. Á siðasta ári var hann
styrkþegi Harvardháskólans
við deild skólans i Washingt-
on, D.C. i griskum fræðum.
Hann hefur einnig stundað
rannsóknir i Grikklandi og
Þýskalandi. Athanassakis
vinnur um þessar mundir aö
þýðingu á Eddu á grisku.
Nœr tvö þúsund manns samtímis í
suðurlöndum á vegum Sunnu
Að venju efnir ferðaskrifstof-
an Sunna til hátiöahalda fyrir
farþega sina sem dvelja erlend-
is á þessum tima árs. Hátiöa-
höld veröa á þrem stööum á
Spaiíi um næstu mánaðamót og
einnig veröur nú haldin Sunnu-
hátíð i Grikklandi i fyrsta skipti.
Um mánaðamótin verða um
800 Islendingar á vegum Sunnu
á Mallorka, nálægt 500 á Costa
Del Sol, 250 á Costa B rava og 300
i Grikklandi. Samtals munu þvi
hátt I tvö þúsund manns taka
þáttiSunnuhátiöinumer verða I
Aþenu 31.ágúst, Costa Del Sol 1.
september, Mallorka 2. septem-
ber og á Costa Brava 2. septem-
ber. Þar munu islenskir og
erlendir listamenn koma fram
og skemmta farþegum Sunnu.
—SG
Norrœn myndlistarsýning vœntanleg
hingað í september:
íslenska framlagið
lofað en sýningin í
heild talin vera
„norrœn ringulreið"
Norræna myndlistarsýningin
„Augliti til auglitis” er væntanleg
hingaö til lands I haust.
Sýningin mun standa yfir á
Kjarvalsstöðum dagana 10.-25.
september aö báöum dögum
meðtöldum. Hún kemur hingaö á
vegum Norræna myndlistar-
bandalagsins og Félags islenskra
myndlistarmanna, sem er aðili aö
þvi.
Alltfrá árinu 1946 hefur banda-
lagiö gengist fyrir meiriháttar
samsýningum myndlistarmanna
frá öllum Noröurlöndum. Fyrst
voru þær haldnar á hverju ári i
höfuðborgum landanna, siöar
annaöhvert ár og þá einnig I öör-
um borgum.
Siðasta stóra samsýningin var
á Kjarvalsstöðum i tengslum við
Listahátiö 1972. Aö henni lokinni
var ákveðið aö gera hlé á sllku
sýningarhaldi um sinn og freista
nýrra leiða.
Á aðalfundi myndlistarbanda-
lagsins 1974 var endanlega ákveð-
ið að fela Staffan Cullberg list-
fræðingi I Stokkhólmi að setja
saman norræna samsýningu
myndlistarmanna af nýrri gerö.
Þessi sýning sem Cullberg hef-
ur skipulagt var lengi I mótun.
Hann ferðaðist milli landa árin
1975-76 og kynnti sér stefnur og
leiöir i myndlist skoðaði sýningar
og heimsótti marga myndlistar-
höfunda.
Hingað til lands kom hann tvi-
vegis I þessu skyni. Arangurinn af
þessu starfi Cullbergs ersýningin
Auglititilauglitis, á sænsku „Oga
mot öga”.
Sýningin Augliti til auglitis”
hefur nú verið sýnd i Stokkhólmi,
Osló, Bergen, Helsingfors og
Kaupmannahöfn. í sumar hefur
hún auk þess verið sýnd I Alaborg
i Danmörk'u áður en hún kemur
hingað.
Framlagi íslands vel
tekið
Þar sem sýningin hefur verið
sýnd hefurmikið verið rættog rit-
að um hana og eru menn sist á
einu máli um ágæti hennar, list-
rænt gildi eða hittni boðskapar-
ins, ef hann er þá einhver.
í norskum blöðum er talið aö
sýningin eigi einkum að kenna
mönnum að sjá og uppgötva að
nýju hluti eða staðreyndir sem
þeir eru fyrir löngu hættir aö
skynja sakir hraða og vélvæðing-
ar nútimans.
Samkvæmt fréttum hefur
sýningin hlotið góða og sennilega
besta dóma i Sviþjóð og framlagi
Islands verið hrósað.
I listdóm úr danska stórblaðinu
Politiken eftir B.E. Honum fylgja
m.a. myndir af listaverkum eftir
Tryggva Ólafsson. Þar segir að
Tryggvi fari sinar eigin leiðir,
sem séu flókið sambland
abstraktsjónar, popplistar og al-
gengs natúralisma. ,,Að öðru leyti
gleðja nokkrir Islendingar hjörtu
okkar með finum myndvefnaöi.
Óskari Magnússyni, Blómeyju
Stefánsdóttur og Hildi Hákonar-
dóttur gleymir maður seint” seg-
ir hinn danski gagnrýnandi sem
lýsir sýningunni hins vegar i heild
sem „norrænni ringulreið”.
—H.L.
Sjalfhreinsandi ofn
Innbyggður „Steikar hitamælir",
Griflteinn fylgir. Mjög góður*
Hita- og steikaraofn í eldavél.
Husqvarna heimílistæki
þekkja allir og að góðu einu
☆ ELDAVÉLAR
☆ HELLUR—OFNAR
☆ UPPÞVOTTAVÉLAR
☆ KÆLISKÁPAR
☆ FRYSTISKÁPAR
☆ ELDHÚSVIFTUR
o.fl.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
K0MIÐ - HRINGIÐ - SKRIFIÐ
Husqvarna
er heimilisprýði
UTSALAN
heldur ófram í nokkra daga
Buxur frá 1.000.- kr.
Bolir frá 1.000.- kr.
Skyrtur frá 1.500,- kr.
Samfestingar frá 5.000 kr.
Peysur frá 2.000 kr.
Jakkar frá 2.500 kr.
Skór frá 1.000. kr. j póstsendum
Bergstaðastræti 4a Sími 14350
i