Vísir - 22.11.1977, Side 2

Vísir - 22.11.1977, Side 2
r. ( í Reykjavík J Lestu mikið af bókum? Sæþór Þórðarson, trésmiöur: Nei, enginn timi. Les bara Visi. Eirikur Þorleifsson, rafvirki: Talsvert, bæði skáldsögur og fræðibækur. Ég á mikiö af bók- um. Róbert Gislason, nemi: Já, ég les dálitið, skáldsögur og sakamála- sögur eftir Alistair MacLean og Desmond Bagley. Sigurður Sigurðsson vélstjóri: Nei, til þess hef ég er.gan tíma.Ég ætla aö geyma þaö til elliáranna. Blöðin duga mér. Lilja Jónsdóttir, afgreiöslu- stúlka: Eitthvaö þá helst skáld- sögur eftir Guðrúnu frá Lundi og Snjólaugu Bragadóttur. Þriðjudagur 22. nóvember 1977 VISIR Mikil uppbygging ó Hvommstanga: Melavegur. Frysti- og sláturhús Kaupfélags Vestur-Húnvetninga f baksýn. Vfsismyndir: SHÞ/-Hvammstanga 35 EINBÝLISHÚS í SMÍÐ / W UM I AR! Mikil uppbygging hefur verið á Hvammstanga að undan- förnu. Auk þess sambýlishúss með fjórum íbúðum á bygging- aráætlun leigufbúða sveitarfé- laga voru um 35 einbýlishús I byggingu á þessu ári, en á Hvammstanga búa á fimmta hundraö manns. Við eina götu i bænum, Mela- veg, eru 17 einbýlishús i bygg- ingu, og þegar flutt i nokkur þeirra. Þá eru þrjú stórhýsi I byggingu, en það er hús rækju- verksmiðjunnar Meleyri, slát- ur- og frystihús Kaupfélags Vestur-Húnvetninga, iþróttahús og sundlaug hreppsins og auk þessa alls viðbygging við mjólk- ursamlagið, sem er i gangi. Þessi uppbygging hefur geng- ið furðu vel og iðulega verið .filutt i húsin á sama ári og bygg- ing þeirra hófst. Nokkur hús eru svonefnd ein- ingahús, bæði frá Siglufiröi og Húsasmiðjunni I Reykjavik. Þá eru ennfremur nokkur stein- steypueiningahús i byggingu I bænum. —ESJ/SHÞ-Hvammstanga Grunnur hins nýja fþróttahúss og sundlaugar íslenskur regnbogi fyrir milljarð í Fœreyjum Matthias Bjarnason sjávarút- vegsráðherra, þáði boð til Fær- eyja og sat þar i góöum fagnaði i tvo eða þrjá daga. Ráðherran- um voru sýnd ýms atriði at- vinnusögunnar, einkum er lúta að vinnslu sjávarafurða og er ekkert nema gott um það að segja. Viö heimkomuna sagði hann að sum frystihúsin væru betur búin en hér heima en önn- ur lakar. Aftur á móti var ráð- herranum ekki sýnt hvernig Færeyingar fara að þvi aö greiöa hærri laun i fiskiðnaði en hér þekkist og hærra verö fyrir fiskinn sem þó er seldur á sömu mörkuðum og islens'kur fiskur. Allt var það á huldu og fer kannski best á þvi, fyrst fjár- munir hjá okkur virðast týnast I fiskversluninni. Nóg er að hafa skipakaupin frá Noregi i gangi aö sinni. Þá veitti sjávarútvegsráð- herra þvi athygli aö hvar sem hann fór um á bilum var ekið á malbikuðum vegum. Færeyjar eru þó ekkert bílaland og vöru- flutningar, öfugt við það sem gildir hér, fara aö mestu fram á sjó. Samt hafa Færeyingar lagt mikið kapp á gerð varanlegra vega og hafa nú lagt slitlag á alla sina vegi. Vegirnir f Fær- eyjum hljóta að vera ihugunar- efni fyrir fslenskan ráöherra sem hefur séö þá meö eigin aug- um. Hér á aftur á móti aö eyöa niu milljörðum I möl og drullu næsta sumar. Þriðja stórvirkið sem sjávar- útvegsráöherra sá í heimsókn sinnitilFæreyja var myndarleg eldisstöð fyrir regnbogasilung. Færeyingar flytja nú út regn- bogasilung fyrir rúman milljarð á ári, en ræktunina hófu þeir árið 1971. Skýtur þetta eitthvað skökku við þá baráttu sem Skúli ILaxalóni hefur háð við yfirvöld um ræktun regnbogasilungs hér á landi s.l. þrjátiu ár eða svo. Þar hefur einn maður( að visu alveg stikkfri eins og aörir i kerfinu, gengið fram fyrir skjöldu og f nafni embættis sfns gert Skúla á Laxalóni ómögu- legt að rækta regnbogasilung til manneldis og jafnvel ekki flytja út hrogn enda er dæmi þess að Skúli hefur brennt hrognum fyr- ir um þrjár milljónir króna vegna þess að tilskilin leyfi til útflutnings fengust ekki. Kenning kerfisþjónsins hefur ætið verið sú að hrogn Skúla væru sýkt og raunar regnboga- stofninn allur aö a.m.k. hefði ekki verið úr þvi skoriö aö svo væri ekki. Við það hefur setið I nær þrjátiu ár og mun væntan- lega sitja á meöan kerfisþjónn- inn hefur starfsaldur til i opin- beru embætti, og þeir aðrir þjónar hans, sem eru þess sinnis að alls ekki megi ala regnboga- silung á tslandi sakir sjúkleika. Færeyingar hafa hins vegar annan hátt á i þessu eins og fleiru sem að verklegum vits- munum lýtur. Sjávarútvegsráð- herra skoöaði uppeldisstöðina og hlustaði með undrun á að þeirskyldu nú þegar vera farnir að flytja út fyrir rúman mill- jarð. Að hinu spurði hann ekki hvaöan stofninn að þessum fær- eyska regnboga væri enda þurfti varla nokkurrar forvitni viö um það atriöi þar sem rikis- valdið með hjálp þjóns sins virðir Islenska regnbogann á viö þaö sem einhver kerfisþrællinn kallaði sporðmink. Það var þvl ástæðulaust aö spyrja um skyldleika þarna á milli. ✓ Hins vegar kom á daginn, þegar málið var athugaö nánar að það sem rikisvaldið og þjón- ar þess vildu drepa á íslandi var orðinn gróöavegur i Færeyjum. Þaö vill nefnilega svo til aö Skúliá Laxalóni lagði Færeyja- stöðinni til hrogn úr stöð sinni árið 1971 eftir ábendingum bæði frá Danmörku og Noregi en þar var Færeyingum tilkynnt að heilbri gði regnbogastofninn fengist einungis á íslandi. Laxa- i. lónsregnboginn hefur þannig veitt miklu fé i bú Færeyinga og á eftirað gera betur á meöan is- lenska kerfiö heldur áfram þrjátiu ára striði sfnu við Skúla á Laxalóni. Margfaldað meö milljarði Færeyinganna má álita aö Skúli hefði getað fært þjóðarbúinu þrjátiu milijaröa fyrir regnboga hefði hann verið látinn i friöi. Kannski fara stjórnvöld nú að skilja að það er dýrt að hafa ofstopamenn i for- svari fyrir fiskeldismálum. Svarthöfði

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.