Vísir - 19.01.1978, Page 24
n.mk
Smáauglýsing í Visi er enginQ
Odíö virka daaa til kl. 22.00
!§É£k
Opið virka daga til kl. 22.00
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
simi
86611
Fiskverð í þessum mónuði?
EKKERT SMAMAL SEIM HRIST
ER FRAM ÚR ERMINNI"
„Þetta er ekkert smámál sem
haegt er aö hrista fram úr erm-
inni”, sagöi Matthias Bjarna-
son, sjávarútvegsráöherra, viö
Vfsi i morgun, er hann var
spuröur um hvort og hvenær
rikisstjórnin ætlaöi aö grfpa til
aögerða tii lausnar deilum um
ákvöröun fiskverðs.
„Þessi mál eru í aðgerð en
það liggur ekkert fyrir ennþá”,
sagði ráðherra. „Hér er ekki um
neinar smáupphæðir að ræða og
það hefur verið haft samráð við
marga aðila. Rikisstjórnin hef-
ur einnig fjallað um þessi mál á
mörgum fundum.”
Ráðherra var að þvi spurður
hvort hann teldi að unnt væri að
ákveða fiskverð án aðgerða af
hálfu hins opinbera. Sagði hann
að það væri ljóst að ekki væri
mögulegt fyrir kaupgndur að
greiða hærra verð fyrir fiskinn
og jafnframt yrðu seljendur að
fá hækkun. I þessari stöðu hlyti
að þurfa að koma til aðgerða
annars staðar frá.
„Ég get ekki svarað þvi”,
sagði ráðherra, „hvenær að-
gerða er að vænta frá rikisvald-
— segir Matthías
Bjarnason, um
ókvörðun fiskverðs
inu, en þetta er stórt og mikið
vandamál.” Um það hvort þess-
ar aðgerðir kæmu ef til vill ekki
fyrr en i febrúar með almennum
efnahagsaðgerðum rikis-
stjórnarinnar, sagði ráðherra
að hann vonaðist til að það
drægist ekki svo lengi. — KS
Akureyri:
Tveir árekstrar
Tveir árekstrar urðu á
Akureyri i gærdag og eru tveir
ökumannanna sem lentu i
þeim grunaöir um ölvun við
akstur.
Fyrri áreksturinn varð um
klukkan hálf sjö á mótum Þór-
unnarstrætis og Þingvalla-
strætis. Talsvert tjón varð á
bilunum, sem eru tveir fólks-
bilar en engin slys urðu á
mönnum. ökumaður annars
bilsins er grunaður um ölvun
við akstur.
Hinn áreksturinn varð rétt
eftir klukkan sjö á Tryggva-
götu og er annar ökumaðurinn
grunaður um ölvun. Engin
slys urðu á fólki en eitthvert
tjón á bilunum. —EA
LYST
EFTIR
KONU
Lögreglan i Reykjavik hefur
lýst eftir konu, sem fór aö
heiman á sunnudagskvöld.
Nafn konunnar er Kristjana
H. Júliusdóttir og er hún til
heimilis að Yrsufelli 3 i
Reykjavik. Hún er þritug,
dökkhærð með sitt hár og er
166 sm á hæð. Þegar hún fór að
heiman var hún i stuttum
ullarjakka með belti, bláum
flauelsbuxum og brúnum
kúrekastigvélum. —EA
Aflahrotan, sem nú stendur yfir á loönuvertlöinni hefur oröiö tii þess, aö þrær verksmiöjanna viö noröurströndina eru aö fyllast og þurfa þvi skip-
in aðsigla lengra meö aflann. Þannig er,til dæmis(Vikingur væntanlegur meö einar I2001estir til Reykjavikur idag og einnig kemur danska skipið
isafold meö loönuafla sinn suður til Faxaflóa.
Fyrsta loðnan til Reykjavíkur:
Víkingur og Isafold komu
í morgun með um 1600 tonn
Skaplegt veiðiveður
var á loðnumiðunum við
Kolbeinsey i gærkvöldi
og uótt og veiðin góð.
Loðnunefnd hafði i morgun
fengið tilkynningu frá 36 skipuni)
sem öll höfðu fengið einhvern afla
— samtals 11.890 tonn.
Flest skipin voru á leið til lands
með afla sinn og var þeim stefnt á
alla helstu löndunarstaði allt
suður til Reykjavikur.
Von var á Vikingi AK til
Reykjavikur skömmu fyrir há-
degi með um 1200 tonn og
dansk/islenska skipið ísafold var
rétt á eftir með um 350 lestir inn-
anborðs.
—klp—
Fjórhagsóœtlun Reykjavíkurborgar til síðari umrœðu í dag:
Borgarráð gerír tillögur um
324 milljóna tekjuaukningu
350 mHI. varið til oð mœta verðhœkkunum á órinu
Borgarráö samþykkti I gær
tillögu til borgarstjórnar um
hækkun á tekjuhliö fjárhags-
áætlunarinnar fyrir árið 1978
um 324 milljónir króna og verða
niðurstöðutölur áætlunarinnar
þar með rúmlega 14.7 milljarö-
ar króna, að sögn Birgis tsleifs
Gunnarssonar, borgarstjóra, i
morgun.
Borgarstjórnin mun taka til
við siðari umræðu um fjárhags-
áætlunina I dag og verður hún
væntanlega afgreidd einhvern
timann i nótt.
„Við höfum endurskoðað
tekjuáætlunina með tilliti til
upplýsinga, sem fjárlögin gefa
tilefni til, og samkvæmt upp-
lýsingum frá Þjóðhagsstofnun”,
sagði Birgir Isleifur i morgun.
Þannig hækka tekjur af útsvari
vegna þess, að tekjuaukning
milli ára reynist nokkru meiri
en áður var áætlað. Eins munu
tekjur úr jöfnunarsjóði, af að-
stöðugjöldum og af bensinskatti
verða nokkru meiri en áætlað
var upphaflega.
„Við verjum þessari hækkun
að langmestum hluta til að
mæta verðhækkunum, sem
verða munu á þessu ári, en i
heild gerum við ráð fyrir um 350
milljónum til að mæta verö-
hækkunum á árinu”, sagði
Birgir Isleifur.
Borgarráð ákvað einnig i gær
tillögur um styrki til einstakra
félaga og annarra aðila, og
hækkuðu þeir um 47.8 milljónir
króna frá upphaflegri fjárhags-
áætlun.
„Mestu hækkanirnar sam-
kvæmt tillögum borgarráðs er
10.9 milljón króna hækkun til
iþróttabandalagsins.sem þá fær
82.4 milljónir, og 10 milljón
króna hækkun til Kirkju-
byggingasjóös, sem þá fær 28
milljónir”, sagði hann.
Niðurstöðutölur fjárhags-
átælunarinnar eru eftir þessar
tillögur 14 milljarðar og 738
milljónir, og er það 41.3% hækk-
un á milli fjárhagsáætlana.
— ESJ.