Vísir - 09.06.1978, Blaðsíða 3

Vísir - 09.06.1978, Blaðsíða 3
VISIR Föstudagur 9. júni 1978 Hrauneyjafossvirkjun: Framkvœmdir hefjast Framkvæmdir við Hrauneyjafossvirkjun eru nú i þann veginn að hefjast að þvi er segir i frétt frá Landsvirkjun. Kemur og fram að ráð- gert sé að kostnaður verði fjármagnaður með erlendum lántök- um að f járhæð alls um 103 milljónir Banda- rikjadollara. Að öðru leyti verður virkjunin fjármögnuð með fé Ur rekstri Landsvirkjunar og framlögum eigenda. Nettó aukning skulda Lands- virkjunar á byggingartima Hrauneyjafossvirkjunar áætl- ast hins vegar ekki hærri en um 38 milljónir Bandarikjadoilara þar sem afborganir á sama tima áætlast um 65 milljónir Banda rikjadollara. Landsvirkjunstefnirað þvíað fyrri vélasamstæða Hrauneyja- fossvirkjunar verði komin i gagnið i nóvember 1981. Það er talið nauðsynlegt til að tryggja að ekki verði orkuskortur á orkuveitusvæði Landsvirkjunar og samtengda landskerfi vetur- inn 1981-82. Fyrsti áfanginn i byggingar- vinnu á virkjunarstaðnum verður gröftur fyrir stöðvarhúsi virkjunarinnar og er gert ráð fyrir að þvi verki verði lokið fyrir veturinn. Verktaki við þennan hluta verksins verður Istakhf.. ifélagi viðMiðfell h.f., Loftorku s.f., E.Pihl & Sön og Skanska Cementgjuteriet en þessir verktakar stóðu sameig- inlega að lægsta tilboðinu i verkið. Hér er um að ræða fyrsta verksamninginn i þágu virkjunarinnar og hefst vinna næstu daga. Að öðru leyti verður byggingarvinnan boðin út næsta haust og eftir þvi sem verkinu miðar áfram. —SE. 104 5 manna bifreiö. Mjög góöir aksturseiginleikar. Framhjóladrifinn, sjálfstæö fjöörun á öllum hjólum, sparneytinn og meö hin viöurkenndu Peugeot gæöi. HAFRAFELL H.F. Vagnhöföa 7, símar: 85211 85505 UMBOÐ A AKURLYRI: Víkingur S.F. Furuvöllum 11, sími: 21670 céVag er</y Eyjagötu 7, örfirisey Reykjavík . simar 14093—13320 HUSTJOLD - TJALDHIMNAR SÓLTJÖLD, TJÖLD TJALDDÝNUR. Framleiðum allar gerðir af tjöldum á hag- stæðu verði m.a. 5 — 6 manna 3 manna Hústjöld 5 gerðir af tjaldhimnum. kr. 36.770. kr. 27.300. kr. 68.820.- — Seljum einnig ýmsan tjaldbúnað t.d. — Sólstóla, kælibox, svefnpoka og leiktjöld Komið og sjáiö tjöldin uppsett í hinum nýju glæsilegu húsakynnum að Eyjagötu 7 örfirisey. Póstsendum um allt land.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.