Vísir - 09.06.1978, Page 28

Vísir - 09.06.1978, Page 28
Samningsstríðið við Sovétmenn um ullina VÍSIR Mvalbátarnir enn óáreittir á miðunum Hvalfriðunarmenn á Rainbow Warrior hafa hingaö til látið hval- bátana óáreitta samkvæmt upplýsing- um sem Visir aflaði sér I morgun. Skipið hefir ekki svarað Reykja- vfkurradiói siðan i gær- morgun, hvort sem það er vegna skorts á skrif- uðum yfirlýsingum eða misheppnuðum tilraun- um þeirra til að komast i tæri við hvalbátana. Hvalbátarnir hafa einnig látið köllum Reykjavikurradiós ó- svarað, sennilega af ótta við að hval- friöunarmenn á Rain- bow Warrion hafi tæki til að miða bátana út. Hvalvertiöin gengur mjög vel og i morgun höföu 35 hvalir veiðst, 29 langreyðar og . 6 búrhvalir. —Gsal. Viðrœður meirihlutans: Mest roett wm breytta stjórn bo rgarinnar ,,Það er öllum Ijóst sem að þessum málum standa að við ætlum okkur ekki að setjast i þá stóla sem Sjálfstæðisfiokkurinn hefur setiö i til þessa og stjórna borginni eins og hann” hcfur Þjóöviljinn eftir Sigurjóni Péturssyni, forseta borgarstjórnar, i morgun. Þar segir Sigurjón að málefnasamningur meirihlutaflokkanna muni einkum fjalla um stjórn borgarinnar en ekki einstök verkefni. Þau muni vafalaust veröa kynnt við gerð fjárhagsáætlunar. Sigurjón Pétursson segir að málefnasamn- ingurinn verði væntan- lega einhvers konar rammasamningur um breytingar á stjórnkerfi borgarinnar, fremur en sameiginleg stefnuyfir- lýsing um einstaka málaflokka. Einnig kemur fram í viðtalinu við Sigurjón aö rætt hefur verið um niðurfellingu nefnda eða stofnun nýrra, en engar ákvaröanir teknar. —SG. Lokasamning- ar í vikunni? „Ég er vongóður um að samningar takist við sovésku rikisfyrirtækin i þessari viku um sölu á 51 þúsund peys- um”, sagði Bergþór Konráðsson, að- stoðarframkvæmdastjóri Iðnaðardeild- ar SÍS, i samtali við Visi. „Þetta er að visu mjög veruleg magnminnkun”, sagði hann, ”þvi að á siðasta ári keyptu þeir af okkur 265 þúsund peysur.”. Iðnaðardeildin seldi Sovétmönnum ullar- skinna- og prjónavörur i fyrra að verömæti um einn milljarð isl. króna, sem svarar um helming alls verðmætis útflutn- ings deildarinnar. Samningur við sovésku rikisfyrirtækin vó þar þyngst á metunum, en fulltrúar þeirra hafa reynst litið samningsfúsir i ár og hefur samnings- gerð dregist mjög á lang- inn af þeim sökum. Þó hefur verið samið við þá um kaup á værðarvoðum fyrir um 220 milljónir kr. Fulltrúum Iðnaðar- deildar gekk hins vegar miklu mun betur að semja við sovéska sam- vinnusambandið, er þeir voru á ferö i Sovétrikj- unum fyrir skömmu. Að sögn Bergþórs var samið við sovéska samvinnu- sambandið um kaup á ull- ar- og skinnavörum að verðmæti um 320 millj. isl. króna, og kvaö hann það vera verulega aukn- ingu á viöskiptum við þá. „Otlitið var orðiö nokk- uð dökkt, enda eru þessir samningar allir mjög seint á ferðinni”, sagði Bergþór, ,,og við urðum i vor að gripa til þess ráðs að segja upp 45 manns i Heklu, starfsfólki á kvöldvakt i saumasal og næturvakt i prjónasal.” Þessu fólki var gefinn kostur á að færa sig yfir á dagvakt og sagði Bergþór að sumir hefðu gert það, aörir hefðu hætt störfum. Bergþór sagði, að þótt rikisfyrirtækin sovésku keyptu minna af prjóna- vöru nú en áður væri ástandiö alls ekkert stór- alvarlegt, og benti á, að aukning heföi orðið á sölu á vestræna markaöi. — Gsal Þessa mynd tók Gunnar V. Andrésson þegar Þjóöverjinn var á leið til Reykjavlkur i fylgd lögreglunnar. Visað úr landi Þjóðverjanum Konrad Chicielsky varvisaðúr landii gær og þar sem ísland er hluti af samnorrænu vegabréfasvæði þýðir þetta að hann má ekki heimsækja neitt af Norðurlöndunum um ótiltekinn tima. Það var dómsmála- ráðuneytið sem visaði Chicielsky úr landi og var honum jafnframt til- kynnt að hann gæti farið fram á endurskoðun á banninu eftir tvö ár. Chicielsky er sterklega grunaður um aö hafa stol- ið héðan fálkaungum og fálkaeggjum og aö hafa ætlað að halda áfram þeirri iðju i ár. Lögreglan íagði hald á búnað sem hann hafði með sér til að halda hita á eggjum meðan verið væri aö flytja þau milli landa. Ekki ætlaði Chicielsky alveg eggjalaus úr landi, því við leit I bil hans, rétt áöur en honum var skipað um borð, fann tollgæslan tuttugu silamáfsegg. Þau reyndust vera keypt i verslun i Reykja- vik, en \oru gerð ipptæk þar se:n Þjóöverjinn hafði ekkert útflutnings- leyfi. —óT „TÖKUM ÞVÍ SEM AD HÖNDUM BER" segir Haukur Gröndal hjá Smjörlíki h.f. „Við tökum þvi sem að höndum ber og munum eftir sem áður leggja áherslu á fyrsta flokks vöru,” sagði Haukur Gröndal, framkvæmdastjóri Smjörlikis h.f. i morgun, er hann var inntur eftir þvi hvernig fyrirtækið hygðist mæta samkeppni Mjólkursamsölunnar á framleiðslu ávaxtasafa. „Viðhöfum rutt þessari söluvöru braut og gert hana vinsæla enda höfum við aldrei sett nein utan- aðkomandi efni sam- an viö. Það á eftir aö koma i ljós, hvernig ávaxtasafi þeirra verður, en þaö er nú yfirleitt svo aðeinhverjum rotvarnar- efnum er bætt I þessar svokölluðu G-vörur.” „Vissulega hafa væntan- legir keppinautar okk- ar góða aðstööu til framleiðslunnar, þar sem Mjólkurbú Flóamanna er, auk þess sem Mjólkursamsalan er sölu- og dreifingaraöili. En við erum fylgjandi samkeppni og munum halda áfram að gera okk- ar besta og vonum að fólki liki vörur okkar”. Bændur hressir „Við teljum að framleiðsla Mjólkurbús Flóamanna á ávaxtasafa dragi ekki úr sölumögu- leikum mjólkur',' sagöi Gunnar Guöbjartsson, formaður stéttarsam- bands bænda, er Visir náði tali af honum, en sem kunnugt er hafa heýrst þær raddir meöal bænda að sala Tropicana dragi úr mjólkurneyslu. „Það skiptir ekki máli hver selur ávaxtasafann fyrst hann er á markaðn- úm á annaö borð”, sagði Gunnar ennfremur.” Þetta hefur veriö lengi á döfinni og við samþykkt- Um að hefja þessa fram- leiðslu, þar sem viö töld- Um að við gætum náð inn Igróða, i þvi skyni að létta ú mjólkinni.” Gunnar staðfesti að rot- varnarefni væru sett i hinn geymsluþolna á- vaxtasafa Mjólkursam- siölunnar. —ÞJH VÍSIR-SMÁAUGLÝSINGAR Opið virka daga til kl. 22 Laugardaga kl. 10-15. Sunnudaga kl. 18-22 VISIR Simi 86611 VISIR VÍSIR Simi 86611 VISIR VISIR Simi 86611 VISIR

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.