Vísir - 29.06.1978, Side 24
L-
FF Engin ál-
verksmiðja
á ierðinni"
— segir Póll Flygenring
,,Eg kannast alls ekkert viö þetta" sagöi Páll
Flygenring, ráöuneytisstjóri i iönaðarráöuneytinu, er
viö bárum undir hann frétt þá i timaritinu Engineering
and Mining Journal, sem Þjóöviljinn sagöi frá i morgun,
að Norsk Hydro hafi i hyggju að taka i notkun hundraö
þúsund tonna álverksmiðju
,,bað er engin álverk-
smiðja á ferðinni svo að við
vitum til” sagði Páll enn-
fremur. „Fyrir nokkrum
árum var rætt um að
byggja nýja álverksmiðju,
og þá helst á Eyjafirði,
enda þótt ekkert hefði verið
ákveðið um það. Sú hug-
i isiaudi áriö 1982.
mynd datt hins vegar alveg
upp fyrir, og hefur ekkert
verið rædd siðan. Þetta
timarit hlýtur að hafa
fundið þarna einhverjar
gamlar upplýsingar, og
ákveðið aö sjóða saman úr
þeim frétt.”
—AHO
FF Gengisfell-
ing óhjá-
kvæmileg"
— segir Eyjólffur ísfeld,
frcuitkvœmdastjóri SH
,,Verðjöfnunarsjóður þurrkast út i lok
þessa mánaðar og ég held að rekstrar-
stöðvun frystihúsanna sé fyrirsjáanleg
fljótlega eftir það”, sagði Eyjólfur
ísfeld Eyjólfsson, framkvæmdastjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, við
Visi i morgun.
,,Nema það verði gripið
til sérstakra ráðstafanna”,
sagði Eyjól'íur, ,,og ég held
að gengisfelling sé
óhjákvæmileg." Eyjólfur
sagöi að tap frystihúsanna
i dag væri 3.5% miöað við
veltu en þegar Verðjöfn-
unarsjóður gæti ekki staðið
við skuldbindingar sinar
fengist um 10—11% lægra
verð fyrir fiskinn. Þannig
að það gæti hver og einn
reiknað það út hvað gengis-
lækkun þyrfti aö verða
•nikil til þess að rétta við
hag frystihúsanna, væru
engar hliðarráðstafanir
gerðar
Fyrir sitt leyti teldi hann
að frystihúsin gætu ekki
starfað nema nokkra daga
eftir að Verðjöfnunarsjóð-
ur tæmdist.
Eyjólfur sagði að miðað
við það ástand sem rikti i
stjónmálum i dag væri ekki
að vænta að stjórnvöld
gripu til slikra efnahags-
ráðstafanna en það væri
kannski einfaldasta lausnin
að ríkissjóður gengi i
ábyrgð fyrir greiðslur úr
Verðjöfnunarsjóöi út þetta
verðtimabil þ.e. til loka
ágúst.
—KS
Alþýðubandalagið um stjórnarmyndun:
Alþýðufflekkur og Alþýðubandaleg rœðast við
Fjórir bflar i
einum árekstri
Fjórir bilar lentu saman
á Hafnarfjarðarveginum i
gærmorgun. Areksturinn
varö meö þeim gamal-
kunna hætti aö einn bflanna
stansaði snögglega og hinir
komu aftan á hann hver af
öörum.
Bilarnir skemmdust allir
nokkuð, og einn mikið, en
alvarleg slys urðu ekki á
fólki. Einn karlmaður var
þó fluttur á slysavarðstof-
una.
—GA
Fyrsti fundur þingfiokks Alþýöuflokksins, frá vinstri: Bragi Sigurjónsson, Eiöur
Guðnason, Finnur Torfi Stefánsson, Bragi Nielsson, Agúst Einarsson (I forföllum
Björns Jónssonar), Sighvatur Björgvinsson, Gunnlaugur Stefánsson, Vilmundur
Gyifason, Benedikt Gröndal, Kjartan Jóhannsson, Jóhanna Siguröardóttir og Karl
Steinar Guönason.
Frá fundi miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæöisflokksins i gær. A myndinnni má
sjá m.a.: Salóme Þorkelsdóttir, Friörik Sophusson, Ellert B. Schram, Jósep H.
Þorgeirsson, Sverri Hermannsson, Jón Magnússon og Ingu Jónu Þóörardóttur. A
bakviö sjást þeir Matthias Bjarnason og Þorvaldur Garöar Kristjánsson ræöa
málin.
Alþýðuhandalagsmenn Lúövik Jósepssyni formanni stærsta stjórn-
munu liafa lagt til viö for- formanni flokksins yröi arandslööuflokksins. Segja
seta íslands i morgun að falin stjórnarmyndun, sem Alþýöubandalagsmenn,
samkvæmt upplýsingum
blaösins, aö þaö hafi alltaf
tiökast að formanni stærsta
stjórnarandstööuflokksins
væri falin stjórnarmyndun.
Þó mun forysta um stjórn-
arntyndun ekki vera neitt
sérstakt kappsmál Alþýðu-
bandalagsins.
Samkvæmt upplýsingum
Visis er mikill vilji innan
Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks um samstarf
og hefurfyrsti fundur flokk-
anna þegar verið ákveðinn.
Verður hann i dag.
Alþýðubandalagið er litt
hrifið af hlutleysisstuðningi
Framsóknar, ef til kæmi
minnihlutastjórn verka-
lýðsflokkanna. Virðist vera
vilji hjá Alþýðubandalags-
mönnum um nýja vinstri
stjórn með fullri þátttöku
Framsóknar, en eftir er að
sjá hversu Framsóknar-
menn eru ginkeyptir fyrir
slikri stjórn.
Ýmsir Framsóknarmenn
hafa haft á orði, að erfitt
verði að neita þátttöku i
riýrri vinstri stjórn, en
ólafur Jóhannesson
formaður flokksins lýsti
þvi hins vegar yfir fyrir
kosningar, að Fram-
sóknarflokkurinn myndi
ekki fara i rikisstjórn, ef
hann tapaði verulega i
kosningunum. Og sú varð
raunin. Fróðlegt verður þvi
að sjá viðhorf þeirra, ef ný
vinstri stjórn verður uppi á
teningi verkalýðsflokk-
anna.
—Gsal/ÓM
Vilja láta
Lúðvik reyna
Fermenn stjórnarflokk-
anna ihuga ekki afsegn
Geir Hallgrimsson.
Ýmsir hafa haft á oröi
að formönnum Sjálf-
stæöisfiokksins og Fram-
sóknrfiokksins, Geir
liallgrimssyni og Ólafi
Jóhannessyni, bæri að
segja af sér formennsku í
fiokkum sinum eftir þaö
afhroð sem flokkarnir
guldi I kosningunum á
sunnudaginn. i samtölum
við blaöamenn V'isis i gær
kom fram hjá þcim báö-
um, að þeir hafa ekki
hugsað sér að láta af for-
mennsku.
,,Ég tel ekki ástæðu
fyrir mig sem formann
Sjálfstæðisflokksins aö
fara fram á traustsyfir-
lýsingu miðstjórnar og
þingflokks”, sagði Geir
Hallgrimsson.
,,Ég hef ekki tekið það
til athugunar” var svar
Ólafs Jóhannessonar.
Geir Hallgrimsson var
ennfremur inntur eftir
þvi i gær, hvort hann gæti
einn talað i nafni flokks-
ins og útilokað möguleika
á hlutleysisstuðningi við
minnihlutastjórn Alþýðu-
flokks og Alþýðubanda-
lags, ef til þess kæmi.
;,Um þessi mál er algjör
einhugur i flokknum, en
að sjálfsögðu verða allar
ákvarðanir teknar i sam-
ráðj við miðstjórn og þing-
flokk”.
Ólafur Jóhannesson
sagði i gær, að allar
ákvarðanir varðandi
stjórnarmyndanir, ef til
þess kæmi að Framsókn-
arflokkurinn tæki þátt i
þeim, yrðu teknar af mið-
stjórn flokksins.
—Gsal/ÓM.
Ólafur Jóhannesson.