Vísir - 24.08.1978, Blaðsíða 1
! LÚDVÍK HÆTTfR
LIKLEOA I
I
I
| Búist við að ncest kemi að Olafi Jófiannessyni að reyna stjórnarmyndun
i
I
Fullvist var talið i morgun, að Lúðvik Jósepsson muni
túlka svar Alþýðuflokksins sem neitun og að hann myndi i
framhaldi af þvi afhenda forseta Islands stjórnarmyndunar-
umboð sitt.
Mikið hefur verið unnið
að þvi bæði i Alþýðu-
bandalagi og Alþýðu-
flokki að finna nýja fleti,
sem leyst geti forsætis-
ráðherramálið, og er Visi
kunnugt um að alvarlega
hefur komið til tals að
forsætisráðherrann verði
utanþingsmaður.
Skiptar skoðanir munu
hafa verið innan Alþýðu-
bandalagsins um túlkun
ályktunar Alþýðuflokks-
ins en þeir Alþýðubanda-
lagsmenn, sem til náöist i
■ morgun, töldu einsýnt, að
litið yrði á hana sem
dulbúna neitun.
í ályktun flokkstjórnar
Alþýðuflokksins segir
m.a., að þrátt fyrir mál-
efnasamstöðu um efna-
hagsaðgerðir næstu fjóra
mánuði, séu enn veiga-
mikil atriði óútkljáð og
telja Alþýöuflokksmenn
ekki timabært aö ræða
stjórnarforystu eða skipt-
ingu ráðherraembætta
fyrr en þau mál séu til
lykta leidd.
Ekki var tekin afstaða
til þess á flokkstjórnar-
fundi Alþýðuflokksins
hvort þeir gætu sætt sig
við forsæti Olafs Jó-
hannessonar, en vitað er
að mikil andstaöa er gegn
þvi. Þá er einnig kunnugt
um mikinn áhuga úlafs
Jóhannessonar á mynd-
um utanþingsstjórnar til
skamms tima.
I umræðunum um utan-
þingsmann sem forsætis-
ráðherra hefur verið litið
svo á, að ráðherrar yrðu
eftir sem áður nlu og
fengu Framsóknarmenn
þá aöeins tvo á móti
þremur frá hinum flokk-
unum.
—ÓM.
* « w* 3 ■
Mýja
sjón-
þulan i
vorpinu
Sjó bls. 2
íslenskir
peningar
verðleusir
erlendis
Sjá bls. 10
Bein lina Vísis er kl. 19.30 til 21.00
i kvöld i sima 86011
Þingflokksfundur Alþýðubandalagsins
hófst kl. 10 i morgun og þar átti að taka
ákvörðun um hvort Lúðvik Jósepsson,
formaður Alþýðubandalagsins, ætti að
skila forseta tslands aftur umboðinu til
stjórnarmyndunar eða reyna áfram að
ná saman vinstri stjórn. Myndin var
tekin i morgun af Lúðvik i hópi flokks-
bræðra sinna.
Visismynd: JA
Matthias Bjarna-
son á beinni iínu
Lesendur Visis geta hringt í Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráö-
herra, i síma Vísis í kvöld og lagt fyrir hann spurningar. Ráðherrann
verður á ritstjórninni i eina og hálfa klukkustund. Gerð verður grein
fyrir spurningum og svörum í Vísi á föstudaginn.
Ef þið viljið spyrja Matthías að einhver ju þá er síminn 86611.
Sjá einnig bls. 2.
£AST EFNI: Vísir spyr 2 Að utan 6 - Erlendar fréttir 7 - Fólk 8 - Myndasögur 8 - Lesendabréf 9 - teiðari 10
Ibróttir 12-13 - Kvikmvndir 17 - Útvarp og sjónvarp 18-19 Dogbók 21 - Stjörnuspó 21 - Sandkorn 23