Vísir - 24.08.1978, Page 2
2
Hefur þú saknað leik-
húsanna i sumarfríinu?
Viggó Bjarnason, vaktmaöur
Ég er nú kannski ekki rétti maö-
urinn til þess aö svara þvi. Ég er
litill leikhúsmaöur þannig aö
sumarfri þeirra kemur ekki viö
mig.
Hulda Klkharösdóttir, hjúkrunar-
kona.
Nei þaö hef ég ekki gert en ég hef
nú lika verið úti á landi. Hvar á
Akureyri. Nei ég saknaöi ekki
leikhússins þar, og ekki heldur
Reykjavikurleikhúsanna þegar
ég kom i bæinn.
Einar Kárason „altmuligmand" -
Mér er fjandans sama um hvort
leikhúsin eru i frii eöa ekki.
Þórný Jónsdóttir afgreiöslu-
stúika:
Ég er þaö litil leikhúsmanneskja
aö ég hef varla oröið vör viö aö
leikhúsin séu i sumarfrii.
Hólmfrföur Magnúsdóttir starfs
kona:
Nei þaö hef ég ekki gert.
t
: 9 ' ' *»
Fimmtudagur 24. ágúst 1978 VISIR
Beina línan er hjá Visi í kvöld kl. 19.30—21.00:
I
Matthías á
beinni línu
Til hvaða aðgerða verður gripið i málefnum
frystiiðnaðarins 1. september? Hvers vegna er i
slikt óefni komið, að atvinnuleysi vofir nú viða
yfir þrátt fyrir landburð af fiski upp á siðkastið?
bessum og fleiri spurningum
mun eflaust veröa beint til
Matthiasar Bjarnasonar,
sjávarútvegs-og heilbrigðisráð-
herra, á beinni linu Visis I kvöld.
Matthias mun þar svara les-
endum Visis um málefni sjávar-
útvegsins og einnig um heil-
brigðismál.
Allir eru sammála um aö
ófremdarástand riki nú i frysti-
iðnaðinum. Sum frystihús á Suö-
Vesturhorni landsins hafa þegar
lokaö og eru um 900 manns á þvi
svæði atvinnulaus.
Frekari stöövun vofir yfir
viöa um land og hafa mörg
frystihús boðað lokun nú 1.
september ef ekkert veröi að
gert.
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins hefur hótað
eigendum frystihúsa málsókn ef
ekki veröi greidd laun um eins
mánaöar uppsagnartima, sem
þeir telja lögmætan. Vinnuveit-
endur eru ekki sammála þeirri
túlkun.
Annar áfangi geödeildar
Landspítalans er nú senn tilbú-
inn til notkunar, en fyrsti áfangi
hefur enn ekki verið tekinn i
notkun og ekki vitað hvenær það
verði. Er hér um pólitiska
ákvörðun að ræöa, sem ekki
hefur verið tekin. Ekki er að efa
að lesendur Visis muni vilja
fræðast um þessi mál og fleiri,
sem heyra undir ráðuneyti
Matthiasar.
Tekið verður viö spurningum I
sima Visis 86611 frá kl. 19.30 til
kl. 21.00 og veröa spurningar og
svör birt á föstudaginn. —OM.
„Starfíð fellur vel að náminu"
— rœtt við
Kristínu Bjarna-
dóttur, nýja
þulinn hjó
Sjónvarpinu
Nýr þulur hefur tekiö til
starfa hjá sjónvarpinu. Sú heitir
Kristin Bjarnadóttir og stundar
nám í Kennaraháskólanum, auk
þess sem hún vinnur hjá Sjóva
viö skrifstofustörf.
Vlsir ræddi viö Kristlnu og
var hún fyrst spurö aö þvi
hvernig standi á þvi aö hún sé
nú komin I þetta þuiarstarf.
„Það var einfaldlega auglýst I
fyrra eftir sjónvarpsþulum og
ég sótti um. Inntökuprófinu var
þannig háttað, að við vorum
sminkaðar og lásum texta, sem
við höfðum aðeins fengið að æfa
okkur á, inn á myndsegulband.
Siðan var valið úr þeim upptök-
um, en það var hins vegar ekki
fyrr en núna þegar Una hætti aö
það varö pláss fyrir mig”.
„Hvenær byrjaðir þú?”
„Fyrsta kvöldið sem ég kom
fram var á laugardagskvöldi,
og ég var auðvitað frekar
taugaóstyrk, sérstaklega vegna
þess aö mér fannst laugardags-
útsendingin vera svo ógurlega
löng. Ég hefði heldur kosið að
byrja á venjulegu kvöldi. En
svona eftir á að hyggja, þá held
ég, að það heföi ekki veriö neitt
betra, þvi að i fyrstu kynning-
unni fyrir iþróttaþáttinn kynnti
ég án þess að koma fram I
mynd. Það var dálitiö hug-
hreystandi að kynna án þess að
sjást. Svo var Sigurlina Davíðs-
dóttir hjá mér allt kvöldiö og
taldi i mig kjarkinn svo þetta
hafðist allt saman einhvern
veginn.
Við lesum kynningarnar af
blööum sem liggja á borði fyrir
framan okkur. Jú, maður er
náttúrlega hræddur um að fara
llnuvillt og fylgir linunum með
KristínBjarnadóttir, sjónvarpsþuia. Viö hiiö hennar er uppstoppaöur fálki, sem hún hefur mikiö dálæti
á. " Vlsismynd: JA.
visifingrinum eins og i barna-
skóla. En það er svo sem enginn
skaði skeöur þó aö maöur rati á
ranga linu. Þá er bara að biðjast
afsökunar og byrja aftur”.
„Hvernig er vinnudegi háttaö
hjá ykkur?”
„Við fáum áætlun einn mánuð
fram I timann um þau kvöld
sem hver á að koma fram. Ef
við þurfum getum við svo skipt
okkar ámilli. Hver þulur kynnir
eitt til tvö kvöld i viku.
Við þurfum að vera mættar
niðri i sjónvarpi um þaö bil
klukkustund áður en útsending
hefst og verðum að vera þar
meðan hún stendur yfir ef eitt-
hvað skyldi fara úrskeiðis. Milli
kynninganna getum viö svo gert
það sem við viljum. Jú, ég horfi
á sjónvarp, ef það er eitthvað,
sem mig langar til að horfa á”.
„Hvernig list þér á starfiö?”
„Alveg ágætlega. Þetta hefur
gengiö stórslysalaust hjá mér,
enn sem komið er. En starfið er
skemmtilegt, að þvi leyti, að
maður sér þarna fólk, sem
maður hefur kannski bara heyrt
nöfnin á, og svo er einnig fróð-
legt að fylgjast með þvi hvernig
er unnið i sjónvarpinu.
„Heldur þú aö þú veröir lengi
I þessu starfi?”
„Þessi vinna fellur ágætlega
að skólanum sem ég er I, en ég
er i Kennaraháskólanum og á
þar eftir tvö ár. Ég vona bara,
að það komi ekkert fyrir, þannig
að ég verði að hætta þularstarf-
inu”. —bJH