Vísir - 24.08.1978, Síða 5
5
vism Kimmtudagur 24. ágúst 1978
i——
Þokuvilltir
Fransmenn
Mikil þoka var viö Heklu og
næsta nágrenni i gærdag, og
gerðiþokan ferðamönnum erfitt
fyrir.
Meðal annars villtust þar
fjórir franskir ferðalangar, sem
þó komust til manna af sjálfs-
dáðum áður en lauk.
Höfðu þá verið kallaðar út
björgunarsveitir og leitarflokk-
ar frá Hvolsvelli og Selfossi.
Ekki varð Frökkunum meint af
villugöngu sinni i þokunni.-All.
Tjón í Reykhóla-
brunanum nemur
um 80 milljónum
tbúar i skólahverfi Heykhóla
á Barðaströnd urðu fyrir um-
talsverðu fjárhagslegu tjóni á
dögunum er skólahúsnæðið á
Reykhólum brann.
Er tjónið metið á um 50
milljónir króna, en húsið var aö-
eins vátryggt fyrir 22 milljónir.
Eru það þvi um 28 milljónir sem
ber á milli tryggingarupphæðar
og raunverulegs verðs hús-
næðisins.
Byggingakostnaði er skipt
milli rikissjóðs og sveitar-
félagsins, þannig að rikið greið-
ir 77% en sveitarfélagið 23%.
Nýbyggingin hefur kostað um 80
milljónir, þannig að þar af þarf
sveitarfélagið að greiða sem
næst 12 milljónum. —AH
Kynbomban keypti
fyrir milljón i
fríhöfninni
Bandariska kynbomban og
leikkonan Eva Gabor var á ferð
yfir Norður-Atlantshaf i gær, og
lenti meðal annars á Kefla-
vikurflugvelli. Meö i för voru
eiginmaður hennar, vigvéla-
framleiðandinn Rockwell,
ásamt fylgdarliði.
Þau hjón brugðu sér inn i fri-
höfnina i um það bil 30 minútur,
og þau gerðu sér litið fyrir og
versluðu fyrir um eina milljón
króna. Aðallega voru það
islenskar vörur og ilmvötn
ásamt Havanavindlum sem þau
keyptu.
Eva Gabor er sem kunnugt er
systir hinnar frægu leikkonu
Zsa Zsa Gabor. —AH
Tómas Ingi ófram
konrektor
Tómas Ingi Olrich hefur ný-
lega verið endurráðinn konrekt-
or Menntaskólans á Akureyri.
Tómas hefur gegnt þessu starfi
siðan 1973, en skylt er að aug-
lýsa starfið, sem er aðstoðar-
skólameistarastaða; á fimm ára
fresti.
Þá hafa þær breytingar orðið
á mötuneyti M.A., að við þvi
tekur nú Sigmundur Rafn Ein-
arsson, en Elinbjörg Þorsteins-
dóttir hefur látið af starfi mat-
selju. —AH.
Sœkir um
Fríkirkjuna
Séra Kristján Róbertsson var
eini umsækjandinn um Fri-
kirkjuna i Reykjavik, en um-
sóknarfrestur rann út þann 31.
júli siðast-liðinn. Séra Kristjan
er þjónandi prestur i Þykkvabæ
á Rangárvöllum.
—AH.
Stéttarsambands-
fundur ó Akureyri
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda hefst á Akureyri á
þriðjudaginn. Lýkur fundinum
siðan á miðvikudag eða
fimmtudag.
Til umræðu verða aðallega
framleiðslu- og skipulagsmál
landbúnaðarins i landinu. —AH
Bretar rœða við
L.Í.Ú.
Fjórir fiskumboðs-
menn frá Bretlandi eru
nú staddir hér á landi
ásamt ræðismanni
Islands og aðalumboðs-
manni íslenskra fiski-
skipa i Bretlandi, Jóni
Olgeirssyni.
Munu Bretarnir i dag ræða við
forystumenn L.t.Ú. um við-
skipti þessara aðila, og tekur
Jón Olgeirsson þátt i þeim
viðræðum.
Ekki hefur áður verið eins
mikið um landanir islenskra
fiskiskipa i Bretlandi eins og nú,
eftir að fiskmarkaðir voru opn-
aðir á ný. —AH.
Tveir Eyjabótar
strönduðu
Vestmannaeyjabátarnir Stig-
andi II og ölduljón strönduöu I
þoku við Höfn í Hornafirði i gær,
er þeir voru að koma inn til að
taka is.
Náðust bátarnir báðir út eftir
tvær tilraunir, og munu þeir lit-
ið eða ekkert skemmdir, en þeir
fóru upp við Ósland I Horna-
fjarðarósi. —AH
Meðalverð fisks
mjög hótt í
Englandi
Meðalverð á fiski á fiskmörk-
uðum i Bretlandi er mjög hátt
þessa dagana, og hafa islensk
skip selt þar fyrir mjög gott
verð.
Sem dæmi um þaö má nefna
sölu skuttogarans Oturs GK i
Hull i gær, sem seldi fyrir 29
milljónir króna, en meðalverðið
var 290 krónur. Er það eitt al-
besta meðalverð, sem fengist
hefur i Englandi á þessu ári.
—AH.
eik
trandgötu 31 HafnarTirði
Simi 53534
Vorum að
taka upp
UFO vörur
Mussur fyrir dömur
Grófrifflaðar buxur,
peysur fyrir dömur
og herra og fleira
og fleira
Mjög virðist misjafnt hvað múrarar greiða i skatt. Myndin sýnir múrara aðstörfum. Vfsismynd: JA
Hvað borga þeir í skatta?
MISJAFN ER JI/IUR’
ARA SKATTURINN
þúsund og upp i 3.960 þúsund.
Er hér um að ræöa samanlagð-
an lekjuskalLeignaskatt og að-
slöðugjöld eða útsvar.
Lægsla skaltinn greiðir Sig-
mar liróbjartsson en þann
hæsta greiðir Þórður Þórðar-
son. Úrtakið er sem endranær
gerl al' handahófi og ekki kunn-
ugt um neinar skýringar, sem
vera kunna á þessum misjöfnu
gjöldum.
Allar tölur I listanum, sem hér
fer á eftir, miöast við þúsundir
króna.
—ÓM.
Tekjuskattur Eignaskattur Útsvar/Aðst.gj. Samtals
Diðrik Ilelgason 800 89 348 1.237
Guðmundur Kristinsson 209 88 306 603
Jón Bergsteinsson 1.034 116 456 1.606
Ólafur H. Pálsson 530 443 712 1.685
Sigmundur P. Lárusson 471 74 439 984
Þórður Þóröarson 2.011 442 1.507 3.960
Sigmar llróbjartsson 15 34 117 177
Kári Þórir Kárason 298 261 533 1.092
Skattalið Visis úr múrarastétt
greiðir gjöld frá krónum 166
Heilsuverndarstöð Reykjavikur auglýsir
lausar til umsóknar eftirtaldar stöður:
Hjúkrunarfrœðinga við ungbarnaeftirlit,
heilsugæslu i skólum og heimahjúkrun.
Aðstoðarmanns við skólatannlækningar.
Umsóknum sé skilað fyrir 4. september
n.k. til hjúkrunarforstjóra sem jafnframt
gefur nánari upplýsingar.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur