Vísir - 24.08.1978, Qupperneq 6
Fiska
vatnagróður
nýkominn
Fiskabúr og allt
tilheyrandi fiskrœkt
miFISKMUDIN
Fichersundi
simi 11757
Grjótaþorpi
1
Lausar stöður
Við Rannsóknarlögreglu rikisins eru laus-
ar til umsóknar staða skrifstofustjóra og
staða einkaritara rannsóknarlögreglu-
stjóra rikisins.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir sem greini aldur menntun og
fyrri störf, sendist rannsóknarlögreglu-
stjóra rikisins fyrir 25. september 1978.
Rannsóknarlögreglustjóri ríkisins
22. ógúst 1978
Kennarar
Vegna forfalla vantar enskukennara að
Gagnfræðaskóla Húsavikur.
Húsnæði fyrir hendi.Nánari upplýsingar
veita skólastjóri og formaður skólanefnd-
ar í sima 96-41166 og 96-41440.
Skólanefnd Húsavikur
Húsnœði-Heimili í Reykjavík
Ég er 17 ára stúlka úr Reykjavik og óska
eftir herbergi hjá góðu fólki, helst með
börn. Heimilisaðstoð og barnagæslu heit-
ið. Ég er einstæð og þarfnast stuðnings og
félagsskapar.
Uppl. i sima 16568 eftir kl. 19
Til sölu
- ■
.. - , . .. _ _ ^ ._______Fimmtudagur 24. ágúst 197S vism
V vxH'* 1 W* I I k 1 \
£ Umsjón Guðmundur Pétursson >- ^ ]
„STÓRIBRÓÐÍR"
SÉR LANDHELGIS-
BRJÓTANA, HVAR
SEII/I ÞEIR ERU
Norðmenn toka lölvu og
gervihnetti í þjónustu
landhelgisgœslunnar
frambyggður Rússajeppi ’76, ekinn 46 þús.
km. Nýmálaður, góð klæðning og dekk.
Uppl. i slma 95-6119.
Brjóti skipstjóri hinar
ströngu reglur, sem gilda
um fiskveiöi á Noregs-
miöum, á hann lítinn
möguleika á því að sleppa
undan tölvunni.
Skipstjórar erlendra fiski-
skipa, sem stunda veiöar innan
200 milna efnahagslögsögu Nor-
egs (tók gildi í janúar slðasta).
menn stærsta fiskveiöiþjóð
Vestur-Evrópu. Þegar þeir tóku
sér 200 milna efnahagslögsögu
um leið og ýmis strandriki
Evrópu og um leið og Kanada,
féllu undir þeirra yfirráö stór
hluti grunnmiða Vestur-
Evrópu. Auðug fiskimið.
Efnahagslögsagan þekur
tveggja milljóna ferkilómetra
svæði, allt frá eyjum ishafsins
vel, að skiptin skili greinargóð-
um og áreiðanlegum skýrslum.
En fiskimálaráð hefur tök á þvi
að fylgjast með þvi, hvort
skýrslur eru réttar eða óná-
kvæmar og jafnvel falskar. Þeir
skipstjórar og þau skip, sem
þar hafa reynt undanbrögð, eru
sett á sérstakan lista, sem nán-
ara eftirlit er haft með, eða
jafnvel neitað um veiðileyfi,
næst þegar þau sækja um.
Varðskipin fylgjast með er-
lendu fiskiskipunum með þvi að
hafa samband við tölvudeildina,
eða þær fimm miðstöðvar
hennar sem skipt hefur verið
niður á ströndina.
Landhelgisgæslan getur strax
fengið a vita, hvort viðkomandi
skip hefur leyfi til veiöa og þá
hvar. Eða hvort skipiö hefur
Til viðbótar varðskipum og landhelgisflugvélum hefur norska landhelgisgæslan tekið tölvu og gervi-
hnetti i sina þjónustu, svo að nú sér „Stóri bróðir” þrjótana, hvar sem þeir eru.
hafa nú verið varaðir við. Hafa
Norömenn til þessa tekið mjúk-
lega á hinum brotlegu og látiö
áminningar duga, en búa sig nú
undir aö taka harðar á brotum.
Embættismenn sjávarútvegs-
ráöuneytisins norska segja, að
senn — líklega um áramótin
næstu — verði gengið hart aö
þeim, sem brjóta reglurnar,
meö handtökum, sektarviöur-
lögum og sviptingu veiöileyfa.
Tölvudeildin, sem hefur sina
miöstöö i Björgýn, mun enga
miskunn sýna i þindarlausri leit
sinni að landhelgisbrjótum,
eftir þvi sem embættismenn
fiskimálaráösins norska segja.
Auk tölvueftirlitsins býr Nor-
egur aö nýtískulegum flota
varðskipa, en til þess að efla enft
eftirlitið með viðáttu landhelg-
innar er unnið að þvi að
landhelgisgæslan fái afnot af
gervihnetti, njósnahnetti sem
komast á i gagniö 1983. Með
risaloftneti i Noregi veröur tek-
ið á móti upplýsingum frá þrem
bandariskum gervihnöttum.
Tölvudeildin sem fiskimála-
ráöið i Björgyn hefur komiö sér
upp, er einskonar „Stóri bróöir
sér þig”-kerfi. Þaö segir Norð-
mönnum til um það, þegar tog-
ari byrjar veiðar á tilteknu
svæöi, hvers konar veiðarfæri
hann notar og hverjar veiði-
áætlanir skipstjórinn hefur.
Talvan lumar einnig á ýmsum
öðrum mikilvægum upplýsing-
um til takmörkunar veiðunum
og verndunar fiskistofnanna.
Ef togari brýtur fiskveiðiregl-
ur Norðmanna, lætur tölvan
stjórnendur sina vita, og land-
helgisgæslan lætur til skarar
skriöa.
Eins og okkur er vei kunnugt
um, eru frændur okkar Norð-
suður i miðjan Noröursjó. Til
þess að gæta þessarar viðáttu
dugðu ekki gömlu aðferðirnar,
sem viöhafðar voru, meöan
landhelgin var tólf mílur. Þvi
var gripið til tölvunnar, sem
reyndist einfalt og i sjálfu sér
nauðaódýrt ráð, en árangurs-
rikt.
Norska fiskimálaráðiö greinir
fra' þvi, aö fyrir tilstilli tölvunn-
ar hafi um siöustu mánaöarmót
um 59 landhelgisbrot orðið upp-
vis, siöan tölvan komst i gagniö.
Nokkrir landhelgisbrjótanna
voru sektaöir, en hinir fengu
áminningu.
Til aö koma tölvunni viö, er
fariðþannig aö: til þess að fá aö
veiða á norskum miðum, verður
hvert riki að semja við norsku
stjórnina um undanþágu og
veiöikvóta. Til þess að fá veiði-
leyfi verður hvert erlent skip að
senda sinni eigin rikisstjórn
umsókn ásamt veiðiáætlun.
Stjórnin sendir svo umsókn á
sérstökum viöurkenndum papp-
irum og meðmæli sin til fiski-
málaráðs i Björgyn.
Þar er farið yfir allar upplýs-
ingar og .veiðiáætlunin vegin og
metin. Ef leyfið veröur veitt, er
tölvan mötuð á öllum gagnleg-
um upplýsingum, sem liggja
fyrir, þegar þarna er komið
sögu. Skipið getur siðan hafið
veiðar, þegar það hefur fyrst
sent inn skýrslu til fiskimála-
ráðs um, hvar þaö byrjar á
veiöisvæðinu og svo framvegis.
Þegar veiöunum er lokiö,
veröur skipið að senda fiski-
málaráöi skýrslu og tilkynna,
að þaö sé aö yfirgefa norska
fiskveiðilögsögu. Skýrslan á aö
gera grein fyrir aflanum i ein-
stökum atriðum.
Þetta kerfi vinnur þvi aðeins
fyllt veiðikvóta sinn, eöa er
nærri þvbsvo að stöðva veröi
veiðarnar.
Nýlega varaði tölvan gæsluna
við þvi aö einn Grimsbæjartog-
ari frá Englandi sem byrjaði
veiðar 24. júli, hefði 1. ágúst
verið kominn með 326 tonn af
þorski, 47,7 tonn af ýsu, 29.5 tonn
af kola, 25 tonn af karfa, 8 tonn
af steinbit og rúmt tonn af ufsa,
og væri þvi langleiöina búinn að
fylla kvóta sinn. Skipstjórinn
var áminntur um að tilkynna
senn brottför sina af veiðisvæö-
inu og út fyrir lögsöguna og enn-
fremur að láta ekki hjá liöa aö
senda itarlega aflaskýrslu. Ef
það brygðist yrði hann sviptur
veiðileyfinu.
Þannig nýtist talvan til land-
helgisgæslu.
Um gervihnettina gildir ann-
að. Einn þeirra „Seaset”, er út-
búinn mjög fullkomnu radar-
kerfi, sem getur skráö niður
vindátt og vindhraöa og gert
viðvart um reköld og skip eöa Is,
úr 900 km hæð yfir jörðu. Slikur
njósnahnöttur auöveldar aö
fylgjast meö ferðum skipanna,
og eflir eftirlitið en leysir þó
ekki af hólmi varðskipin eöa
landhelgisflugvélarnar.
Fiskimálaráðiö i Björgyn
kann sér naumast læti eftir að
hafa fengið þennan tækjakost i
þjónustu sina. „Þetta auðveldar
allar fiskverndunaraðgeröir,
sem er aðaltilgangur tölvunnar
og af þvi getur öll Evrópa og
kynslóöir framtiðarinnar notið
góös,” sagði forstjóri ráösins,
og bætti við:
„Sjórinn er ekki ókeypis leng-
ur eða öllum frjáls. Togaraskip-
stjórum er best að hafa i huga
framvegis að „Stóri bróðir” sér
þá, hvar sem þeir eru.”